{"id":7946,"date":"2026-02-05T08:00:56","date_gmt":"2026-02-05T08:00:56","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=7946"},"modified":"2026-02-04T10:40:40","modified_gmt":"2026-02-04T10:40:40","slug":"hvernig-a-ad-bera-fram-signy","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2026\/02\/05\/hvernig-a-ad-bera-fram-signy\/","title":{"rendered":"Hvernig \u00e1 a\u00f0 bera fram Sign\u00fd?"},"content":{"rendered":"<p>Um daginn var spurt \u00ed \u201eM\u00e1lspjalli\u201c um frambur\u00f0 nafnsins <em>Sign\u00fd <\/em>\u2013 hvort \u00e6tti a\u00f0 bera \u00fear fram lokhlj\u00f3\u00f0 e\u00f0a \u00f6nghlj\u00f3\u00f0. Stutta svari\u00f0 er a\u00f0 hvort tveggja er r\u00e9tt \u2013 \u00ed <em>M\u00e1lfarsbankanum <\/em>er ekki <a href=\"https:\/\/malfar.arnastofnun.is\/grein\/66664\">gert<\/a> upp \u00e1 milli: \u201eB\u00e6\u00f0i \u00feekkist a\u00f0 <em>g<\/em>-i\u00f0 \u00ed nafninu <strong>Sign\u00fd<\/strong> s\u00e9 bori\u00f0 fram eins og <em>g<\/em>-i\u00f0 \u00ed s\u00f6gninni <em>signa<\/em> og eins og <em>g<\/em>-i\u00f0 \u00ed s\u00f6gninni <em>sigra.<\/em>\u201c Yfirleitt hefur veri\u00f0 tali\u00f0 a\u00f0 lohlj\u00f3\u00f0sframbur\u00f0urinn (<em>signa<\/em>) s\u00e9 s\u00e1 almenni en \u00e9g veit ekki til \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi veri\u00f0 rannsaka\u00f0. \u00deetta kann a\u00f0 vera eitthva\u00f0 landshlutabundi\u00f0 e\u00f0a jafnvel aldursbundi\u00f0 og \u00f6rugglega a\u00f0 einhverju leyti einstaklingsbundi\u00f0 \u2013 v\u00edst er a\u00f0 sumar konur sem heita \u00feessu nafni vilja ekkert me\u00f0 lokhlj\u00f3\u00f0sframbur\u00f0inn hafa. \u00cd tilvikum sem \u00feessum finnst m\u00e9r e\u00f0lilegast a\u00f0 fara a\u00f0 vilja nafnbera, ef hann er kunnur.<\/p>\n<p>En hvers vegna er frambur\u00f0ur <em>Sign\u00fd<\/em> \u00e1 reiki? \u00c1 milli s\u00e9rhlj\u00f3\u00f0s og <em>n<\/em> (og einnig s\u00e9rhlj\u00f3\u00f0s og <em>l<\/em>) stendur b\u00f3kstafurinn <em>g <\/em>yfirleitt fyrir lokhlj\u00f3\u00f0 \u2013 <em>signa<\/em>, <em>vegna<\/em>, <em>sagnir<\/em>, <em>rigna<\/em>, <em>Ragn\u00fd<\/em>, <em>Magn\u00fd<\/em> o.s.frv. \u2013 og \u00feess vegna m\u00e6tti b\u00faast vi\u00f0 a\u00f0 sama gilti um <em>Sign\u00fd<\/em>. En \u00feetta er samt ekki algilt \u2013 vi\u00f0 h\u00f6fum or\u00f0 eins og <em>hugn\u00e6mur<\/em>, <em>hagn\u00fdta <\/em>o.fl. \u00fear sem er bori\u00f0 fram \u00f6nghlj\u00f3\u00f0. Munurinn \u00e1 \u00feessum or\u00f0um og hinum er s\u00e1 a\u00f0 \u00feau eru samsett og skil samsetningarli\u00f0anna er milli <em>g <\/em>og <em>n <\/em>\u2013 <em>hug-n\u00e6mur<\/em>, <em>hag-n\u00fdta<\/em>. \u00dea\u00f0 er vel \u00feekkt a\u00f0 or\u00f0hlutaskil hindra \u00fdmsar hlj\u00f3\u00f0breytingar \u2013 s\u00f6mu klasar haga s\u00e9r \u00f3l\u00edkt eftir \u00fev\u00ed hvort \u00feeir eru innan eins or\u00f0hluta e\u00f0a skiptast milli or\u00f0hluta. Me\u00f0al \u00feeirra breytinga sem skil hindra oft er loklj\u00f3\u00f0un \u00f6nghlj\u00f3\u00f0a \u00e1 undan \u00e1kve\u00f0num hlj\u00f3\u00f0um.<\/p>\n<p>Nafni\u00f0 <em>Sig-n\u00fd <\/em>er samsett og fyrri li\u00f0ur \u00feess s\u00e1 sami og \u00ed <em>Sig-ur\u00f0ur<\/em>, <em>Sig-r\u00ed\u00f0ur<\/em>, <em>Sig-mundur<\/em> o.s.frv. \u00fear sem bori\u00f0 er fram \u00f6nghlj\u00f3\u00f0. \u00deess vegna m\u00e6tti b\u00faast vi\u00f0 a\u00f0 sama gilti um <em>Sig-n\u00fd<\/em> \u2013 \u00fear v\u00e6ri bori\u00f0 fram \u00f6nghlj\u00f3\u00f0 \u00fear sem or\u00f0hlutaskilin k\u00e6mu \u00ed veg fyrir a\u00f0 \u00fea\u00f0 breyttist \u00ed lokhlj\u00f3\u00f0. \u00dea\u00f0 gerist hins vegar stundum, einkum \u00ed algengum or\u00f0um, a\u00f0 m\u00e1lnotendur h\u00e6tta a\u00f0 skynja \u00feau sem samsetningar og \u00fe\u00e1 h\u00e6tta skilin a\u00f0 hindra \u00fdmsar hlj\u00f3\u00f0breytingar. \u00deetta er ekki s\u00edst algengt \u00ed \u00f6rnefnum eins og \u00e9g hef <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2023\/04\/07\/stadbundinn-framburdur-ornefna\/\">skrifa\u00f0<\/a> um, svo og \u00ed mannan\u00f6fnum \u2013 f\u00f3lk skynjar \u00feau sem eina heild, sem heiti \u00e1kve\u00f0ins sta\u00f0ar e\u00f0a pers\u00f3nu, \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 leysa \u00feau upp \u00ed samsetningarli\u00f0i sem \u00fea\u00f0 tengir vi\u00f0 \u00f6nnur or\u00f0 \u00ed m\u00e1linu. \u00dea\u00f0 er v\u00e6ntanlega \u00fea\u00f0 sem hefur gerst me\u00f0 nafni\u00f0 <em>Sign\u00fd<\/em>.<\/p>\n<p>Margir m\u00e1lnotendur hafa sem s\u00e9 fari\u00f0 a\u00f0 skynja nafni\u00f0 sem eina heild og bera \u00fea\u00f0 \u00fev\u00ed fram me\u00f0 lokhlj\u00f3\u00f0i. \u00dea\u00f0 er alveg e\u00f0lilegt og \u00e1 s\u00e9r fj\u00f6lm\u00f6rg ford\u00e6mi \u00ed m\u00e1linu \u2013 en \u00fea\u00f0 er l\u00edka e\u00f0lilegt a\u00f0 halda \u00f6nghlj\u00f3\u00f0inu. Nafni\u00f0 <em>Dag-n\u00fd<\/em>, sem einnig hefur seinni li\u00f0inn <em>-n\u00fd <\/em>og b\u00faast m\u00e6tti vi\u00f0 a\u00f0 haga\u00f0i s\u00e9r eins, er aftur \u00e1 m\u00f3ti alltaf bori\u00f0 fram me\u00f0 \u00f6nghlj\u00f3\u00f0i. \u00c1st\u00e6\u00f0an er l\u00edklega s\u00fa a\u00f0 \u00fe\u00f3tt <em>Dagn\u00fd <\/em>s\u00e9 gamalt \u00ed m\u00e1linu er stutt s\u00ed\u00f0an \u00fea\u00f0 var\u00f0 algengt, og au\u00f0veldara er a\u00f0 tengja fyrri li\u00f0inn vi\u00f0 \u00feekkt og algengt or\u00f0, <em>dagur<\/em>, en \u00ed <em>Sign\u00fd<\/em>. N\u00f6fnin <em>Magn\u00fd<\/em> og <em>Ragn\u00fd<\/em> eru hins vegar alltaf borin fram me\u00f0 lokhlj\u00f3\u00f0i, enda er seinni li\u00f0ur \u00feeirra ekki <em>-n\u00fd <\/em>heldur er samsetningin <em>Magn-\u00fd <\/em>og <em>Ragn-\u00fd <\/em>og m\u00e1lnotendur tengja \u00feau v\u00e6ntanlega vi\u00f0 n\u00f6fn eins og <em>Magn\u00fas <\/em>og <em>Ragnar<\/em>.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Um daginn var spurt \u00ed \u201eM\u00e1lspjalli\u201c um frambur\u00f0 nafnsins Sign\u00fd \u2013 hvort \u00e6tti a\u00f0 bera \u00fear fram lokhlj\u00f3\u00f0 e\u00f0a \u00f6nghlj\u00f3\u00f0. Stutta svari\u00f0 er a\u00f0 hvort tveggja er r\u00e9tt \u2013 \u00ed M\u00e1lfarsbankanum er ekki gert upp \u00e1 milli: \u201eB\u00e6\u00f0i \u00feekkist a\u00f0 g-i\u00f0 \u00ed nafninu Sign\u00fd s\u00e9 bori\u00f0 fram eins og g-i\u00f0 \u00ed s\u00f6gninni signa og eins [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-7946","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7946","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=7946"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7946\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":7949,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7946\/revisions\/7949"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=7946"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=7946"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=7946"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}