{"id":7951,"date":"2026-02-06T09:00:56","date_gmt":"2026-02-06T09:00:56","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=7951"},"modified":"2026-02-06T09:27:19","modified_gmt":"2026-02-06T09:27:19","slug":"hja-dagnyju-og-laufeyju-eda-hja-dagny-og-laufey","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2026\/02\/06\/hja-dagnyju-og-laufeyju-eda-hja-dagny-og-laufey\/","title":{"rendered":"Hj\u00e1 Dagn\u00fdju og Laufeyju \u2013 e\u00f0a hj\u00e1 Dagn\u00fd og Laufey?"},"content":{"rendered":"<p>\u00c1 Facebook-s\u00ed\u00f0u vinar rakst \u00e9g n\u00fdlega \u00e1 \u00feessa athugasemd: \u201e\u00c1 hverjum degi hlusta \u00e9g \u00e1 \u00feuli R\u00daV beygja ranglega mannan\u00f6fn. M\u00e1 \u00fear nefna n\u00f6fn eins og Laufey og Dagn\u00fd svo d\u00e6mi s\u00e9u tekin.\u201c \u00de\u00f3tt \u00fea\u00f0 s\u00e9 ekki nefnt geri \u00e9g r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 \u00fearna s\u00e9 veri\u00f0 a\u00f0 tala um endingarleysi \u00feessara nafna \u00ed \u00feolfalli og \u00fe\u00e1gufalli sem er vel \u00feekkt. \u00cd <em>M\u00e1lfarsbankanum <\/em><a href=\"https:\/\/malfar.arnastofnun.is\/grein\/69947\">segir<\/a>: \u201eKvenmannsn\u00f6fn sem enda \u00e1 -<em>\u00fd<\/em> e\u00f0a -<em>ey<\/em> \u00ed nefnifalli enda almennt \u00e1 -<em>\u00fdju<\/em> e\u00f0a -<em>eyju<\/em> \u00ed \u00feolfalli og \u00fe\u00e1gufalli, sbr. \u00c1rn\u00fd, Bjargey, Bjarney, Bjartey, Dagn\u00fd, Eirn\u00fd, Fanney, Fri\u00f0n\u00fd, Gu\u00f0n\u00fd, Hr\u00f3\u00f0n\u00fd, Kristn\u00fd, Laufey, L\u00edney, Marey, M\u00e1ney, Oddn\u00fd, Sign\u00fd, Sigurey, S\u00f3ley, V\u00e9n\u00fd, \u00de\u00f3rey og \u00de\u00f3rn\u00fd. Undantekningar fr\u00e1 \u00feessu eru n\u00f6fnin Jenn\u00fd, Magn\u00fd og Mars\u00fd, sem eru endingarlaus \u00ed \u00feolfalli og \u00fe\u00e1gufalli.\u201c<\/p>\n<p>\u00dearna er ekki nefnt hver s\u00e9rsta\u00f0a s\u00ed\u00f0astt\u00f6ldu \u00feriggja nafnanna s\u00e9, en \u00fev\u00ed er svara\u00f0 \u00ed \u00a0<em>Beygingarl\u00fdsingu \u00edslensks n\u00fat\u00edmam\u00e1ls <\/em>\u00fear sem <a href=\"https:\/\/bin.arnastofnun.is\/korn\/7\">segir<\/a>: \u201e\u00d3samsett kvenn\u00f6fn sem enda \u00e1 <strong>-\u00fd<\/strong> eru endingarlaus, t.d. <strong>Ann\u00fd<\/strong>,<strong> Benn\u00fd<\/strong>,<strong> Henn\u00fd<\/strong>, <strong>Magn\u00fd<\/strong> og <strong>Mars\u00fd<\/strong>.\u201c Hin n\u00f6fnin sem enda \u00e1 <em>-\u00fd <\/em>eru sem s\u00e9 samsett og hafa seinni li\u00f0inn <em>-n\u00fd<\/em>. Skilin vir\u00f0ast samt ekki alveg sk\u00fdr \u00fev\u00ed a\u00f0 nafninu <em>Jenn\u00fd <\/em>sem nefnt er \u00ed <em>M\u00e1lfarsbankanum <\/em>er \u00fearna sleppt, og \u00ed <em>Beygingarl\u00fdsingunni <\/em>er \u00feolfall og \u00fe\u00e1gufall \u00feess nafns <a href=\"https:\/\/bin.arnastofnun.is\/leit\/jenn%C3%BD\">gefi\u00f0<\/a> sem b\u00e6\u00f0i <em>Jenn\u00fd <\/em>og <em>Jenn\u00fdju<\/em>. \u00dea\u00f0 er reyndar \u00f3v\u00edst a\u00f0 skilin milli samsettra og \u00f3samsettra or\u00f0a s\u00e9u sk\u00fdr \u00ed huga m\u00e1lnotenda \u2013 f\u00f3lk hefur tilhneigingu til a\u00f0 skynja mannan\u00f6fn og \u00f6rnefni sem <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2026\/02\/05\/hvernig-a-ad-bera-fram-signy\/\">eina heild<\/a> \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 leysa \u00feau upp og tengja hluta \u00feeirra vi\u00f0 \u00f6nnur or\u00f0.<\/p>\n<p>\u00d6ll n\u00f6fnin sem enda \u00e1 <em>-n\u00fd <\/em>og <em>-ey<\/em> eru eing\u00f6ngu gefin upp me\u00f0 endingunni <em>-ju <\/em>\u00ed \u00feolfalli og \u00fe\u00e1gufalli \u00ed <em>Beygingarl\u00fdsingu \u00edslensk n\u00fat\u00edmam\u00e1ls<\/em> \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem <em>M\u00e1lfarsbankinn <\/em>bo\u00f0ar. En \u00ed samt\u00edmam\u00e1li, a.m.k. \u00f3formlegu, er endingarleysi mj\u00f6g algengt, einkum \u00ed n\u00f6fnum sem enda \u00e1 <em>-ey<\/em>. \u00cd samf\u00e9lagsmi\u00f0lahluta <em>Risam\u00e1lheildarinnar<\/em>, sem gefur g\u00f3\u00f0a mynd af \u00f3formlegu m\u00e1li, er um 30% \u00feolfalls- og \u00fe\u00e1gufallsmynda <em>-n\u00fd-<\/em>nafnanna <em>Dagn\u00fd<\/em>, <em>Gu\u00f0n\u00fd<\/em>, <em>Oddn\u00fd <\/em>og <em>Sign\u00fd<\/em> \u00e1n endingar, en um 60% mynda af <em>-ey<\/em>-n\u00f6fnunum <em>Fanney<\/em>, <em>Laufey<\/em>, <em>S\u00f3ley<\/em> og <em>\u00de\u00f3rey<\/em>. \u00cd fornu m\u00e1li voru n\u00f6fnin sem enda \u00e1 <em>-ey <\/em>endingarlaus \u00ed \u00feolfalli og g\u00e1tu veri\u00f0 endingarlaus \u00ed \u00fe\u00e1gufalli l\u00edka. Tr\u00falegt er a\u00f0 <em>-u<\/em>-endingin hafi fest \u00fear \u00ed sessi vegna \u00e1hrifa fr\u00e1 \u00f6\u00f0rum n\u00f6fnum, einkum \u00feeim sem enda \u00e1 <em>-n\u00fd<\/em>.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er ekkert skr\u00edti\u00f0 \u00fe\u00f3tt \u00feessi n\u00f6fn hafi tilhneigingu til a\u00f0 missa endinguna \u00ed \u00feolfalli og \u00fe\u00e1gufalli \u2013 langflest sterk kvenkynsor\u00f0 eru endingarlaus \u00ed \u00feessum f\u00f6llum. Fyrir utan f\u00e1ein or\u00f0 sem enda \u00e1 <em>-ur <\/em>\u00ed nefnifalli og <em>-ing<\/em>-or\u00f0 eru \u00fea\u00f0 n\u00e1nast eing\u00f6ngu kvennan\u00f6fn sem f\u00e1 <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2020\/11\/11\/beyging-kvenmannsnafna\/\">endingu<\/a> \u00ed \u00feolfalli og \u00fe\u00e1gufalli. Or\u00f0 sem eru samhlj\u00f3ma kvennan\u00f6fnum eru l\u00edka endingarlaus \u00ed \u00feessum f\u00f6llum, svo sem samnafni\u00f0 <em>s\u00f3ley <\/em>og fyrirt\u00e6kisnafni\u00f0 <em>S\u00f3ley <\/em>\u2013 \u201e<strong>S\u00f3ley <\/strong>og <strong>Fanney <\/strong>beygjast ekki eins og \u00f6rnefni\u00f0 <strong>Vi\u00f0ey<\/strong>\u201c <a href=\"https:\/\/bin.arnastofnun.is\/korn\/7\">segir<\/a> \u00ed <em>Beygingarl\u00fdsingu \u00edslensks n\u00fat\u00edmam\u00e1ls<\/em>. \u00dea\u00f0 getur au\u00f0vita\u00f0 verka\u00f0 ruglandi \u00e1 m\u00e1lnotendur \u00feegar sama or\u00f0i\u00f0 beygist \u00e1 mismunandi h\u00e1tt eftir \u00fev\u00ed hvort \u00fea\u00f0 er kvenmannsnafn e\u00f0a eitthva\u00f0 anna\u00f0 \u2013 <em>koma fr\u00e1 S\u00f3leyju <\/em>en <em>vinna hj\u00e1 S\u00f3ley<\/em> og <em>t\u00edna s\u00f3ley<\/em>.<\/p>\n<p>T\u00ed\u00f0nit\u00f6lur \u00far <em>Risam\u00e1lheildinni <\/em>sem v\u00edsa\u00f0 er til h\u00e9r a\u00f0 framan s\u00fdna gl\u00f6ggt a\u00f0 endingarleysi umr\u00e6ddra nafna \u00ed \u00feolfalli og \u00fe\u00e1gufalli er e\u00f0lilegt m\u00e1l verulegs hluta m\u00e1lnotenda, og \u00e9g hef l\u00edka i\u00f0ulega or\u00f0i\u00f0 var vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 sumir nafnberar \u00feessara nafna kunna ekki vi\u00f0 <em>-ju<\/em>-endinguna og vilja frekar hafa nafni\u00f0 sitt endingarlaust \u00ed \u00feolfalli og \u00fe\u00e1gufalli. Almennt s\u00e9\u00f0 er e\u00f0lilegt a\u00f0 fara a\u00f0 vilja nafnbera um me\u00f0fer\u00f0 \u00e1 n\u00f6fnum \u00feeirra, og \u00ed lj\u00f3si \u00feess a\u00f0 endingarlausu myndirnar eru mj\u00f6g algengar, samr\u00e6mast sumar hverjar fornu m\u00e1li, samr\u00e6mast venjulegu beygingarmynstri sterkra kvenkynsor\u00f0a, og sumir nafnberar kj\u00f3sa \u00fe\u00e6r fremur, kemur ekki anna\u00f0 til greina en vi\u00f0urkenna \u00fe\u00e6r sem r\u00e9ttar \u2013 \u00fe\u00f3tt myndir me\u00f0 endingu s\u00e9u vitaskuld l\u00edka r\u00e9ttar \u00e1fram.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c1 Facebook-s\u00ed\u00f0u vinar rakst \u00e9g n\u00fdlega \u00e1 \u00feessa athugasemd: \u201e\u00c1 hverjum degi hlusta \u00e9g \u00e1 \u00feuli R\u00daV beygja ranglega mannan\u00f6fn. M\u00e1 \u00fear nefna n\u00f6fn eins og Laufey og Dagn\u00fd svo d\u00e6mi s\u00e9u tekin.\u201c \u00de\u00f3tt \u00fea\u00f0 s\u00e9 ekki nefnt geri \u00e9g r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 \u00fearna s\u00e9 veri\u00f0 a\u00f0 tala um endingarleysi \u00feessara nafna \u00ed \u00feolfalli og [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-7951","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7951","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=7951"}],"version-history":[{"count":6,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7951\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":7957,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7951\/revisions\/7957"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=7951"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=7951"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=7951"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}