{"id":8064,"date":"2026-03-21T09:32:29","date_gmt":"2026-03-21T09:32:29","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=8064"},"modified":"2026-03-21T09:32:29","modified_gmt":"2026-03-21T09:32:29","slug":"ad-ganga-erinda-sinna","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2026\/03\/21\/ad-ganga-erinda-sinna\/","title":{"rendered":"A\u00f0 ganga erinda sinna"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd \u201eM\u00e1lv\u00f6ndunar\u00fe\u00e6ttinum\u201c var n\u00fdlega vakin athygli \u00e1 setningu \u00ed fr\u00e9tt \u00e1 vefnum <em>Austurfr\u00e9tt<\/em> \u00fear sem <a href=\"https:\/\/austurfrett.is\/frettir\/egilsstadhir-oumdeild-thjonustumidhstoedh-austurlands\">st\u00f3\u00f0<\/a>: \u201eEgilssta\u00f0ir er \u00feungami\u00f0ja \u00fej\u00f3nustus\u00f3knar \u00edb\u00faa Austurlands en um 40% allra \u00edb\u00faa ganga erinda sinna \u00fear \u00ed b\u00e6.\u201c Um \u00feetta var sagt: \u201e\u00deetta hl\u00fdtur a\u00f0 valda miklu \u00e1lagi \u00e1 fr\u00e1veitukerfi b\u00e6jarins!\u201c Auglj\u00f3st er a\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed er v\u00edsa\u00f0 til \u00feeirrar merkingar sambandsins <em>ganga erinda sinna <\/em>sem gefin er \u00ed <em>\u00cdslenskri or\u00f0ab\u00f3k <\/em>\u2013 'h\u00e6gja s\u00e9r'. Sambandi\u00f0 kemur fyrir \u00ed \u00feessari merkingu \u00feegar \u00ed fornu m\u00e1li \u00ed myndinni <em>ganga \u00f8renda sinna<\/em>, sem og \u00ed myndinni <em>ganga \u00f8rna sinna <\/em>en <em>\u00f6rna <\/em>er <a href=\"https:\/\/malfar.arnastofnun.is\/grein\/69908\">\u00f6nnur<\/a> (samandregin) mynd eignarfalls fleirt\u00f6lu af <em>\u00f8rendi<\/em>. Reyndar hefur umr\u00e6ddri fr\u00e9tt veri\u00f0 breytt og \u00fear segir n\u00fa \u201een um 40% allra \u00edb\u00faa reka erindi s\u00edn \u00fear \u00ed b\u00e6\u201c.<\/p>\n<p>Stundum hefur veri\u00f0 amast vi\u00f0 rangri notkun sambandsins <em>ganga erinda sinna<\/em>, svo sem \u00ed <em>Einingu <\/em>1953 \u00fear sem <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/5406349?iabr=on#page\/n10\/mode\/1up\/\">haft er eftir<\/a> Magn\u00fasi Finnbogasyni menntask\u00f3lakennara: \u201eEkki: ganga erinda einhvers \u2013 heldur: <em>reka erindi einhvers<\/em>. Menn geta a\u00f0eins gengi\u00f0 erinda <em>sinna<\/em>, ekki annarra.\u201c Til \u00feessa v\u00edsar J\u00f3n G. Fri\u00f0j\u00f3nsson \u00ed \u201e\u00cdslensku m\u00e1li\u201c \u00ed <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>2004 og <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/3606783?iabr=on#page\/n32\/mode\/1up\">segir<\/a>: \u201enotkun or\u00f0asambandsins ?<em>ganga erinda e-s<\/em> (annarra, st\u00f3rveldis, tiltekins fyrirt\u00e6kis \u2026) er n\u00fdm\u00e6li fr\u00e1 mi\u00f0ri 20. \u00f6ld sem sty\u00f0st ekki vi\u00f0 m\u00e1lvenju. H\u00e9r er auglj\u00f3slega um \u00fea\u00f0 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a a\u00f0 menn rugla saman tveimur or\u00f0asamb\u00f6ndum, <em>ganga erinda\/\u00f6rna sinna<\/em> og <em>reka erindi e-s<\/em>. Ruglingur \u00feessi er afk\u00e1ralegur \u00fear sem merking or\u00f0asambandanna tveggja er gj\u00f6r\u00f3l\u00edk.\u201c<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er \u00fe\u00f3 ekki r\u00e9tt a\u00f0 um s\u00e9 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u201en\u00fdm\u00e6li fr\u00e1 mi\u00f0ri 20. \u00f6ld\u201c heldur finnast d\u00e6mi um \u00fea\u00f0 \u00ed fornu m\u00e1li a\u00f0 <em>ganga erinda einhvers <\/em>s\u00e9 haft \u00ed s\u00f6mu merkingu og <em>reka erindi einhvers<\/em>. \u00cd <em>R\u00e9mundar s\u00f6gu keisarasonar <\/em><a href=\"https:\/\/onp.ku.dk\/onp\/onp.php?c776009\">segir<\/a> t.d.: \u201e\u00de\u00fa skalt ganga minna erenda \u00e1 erkibiskups gar\u00f0.\u201c \u00ddmis eldri d\u00e6mi er l\u00edka a\u00f0 finna \u00e1 <em>t\u00edmarit.is<\/em>. \u00cd <em>T\u00edmanum <\/em>1872 segir: \u201eb\u00f6rnum og jafnvel fullor\u00f0num m\u00f6nnum er l\u00edfsh\u00e6tta b\u00fain a\u00f0 ganga erinda sinna hjer um str\u00e6tin.\u201c \u00cd <em>\u00cdsafold <\/em>1911 segir: \u201es\u00e1, er hj\u00e1lpa\u00f0 hef\u00f0i danska valdinu, til a\u00f0 tra\u00f0ka \u00feingr\u00e6\u00f0inu [\u2026] og ganga erinda \u00feess h\u00e9r \u00e1 landi.\u201c \u00cd <em>L\u00f6gr\u00e9ttu <\/em>1911 segir: \u201eUnglingur \u00f3skast yfir veturinn til a\u00f0 ganga erinda \u00ed b\u00e6inn.\u201c \u00cd <em>Vestra <\/em>1917 segir: \u201eVanda\u00f0ir menn eiga ekki a\u00f0 ganga erinda \u00f3hlutvandra manna.\u201c<\/p>\n<p>Hitt er r\u00e9tt a\u00f0 me\u00f0 eignarfornafni, <em>ganga erinda sinna<\/em>, haf\u00f0i sambandi\u00f0 eing\u00f6ngu merkinguna 'h\u00e6gja s\u00e9r' \u00ed fornu m\u00e1li, og fram eftir tuttugustu \u00f6ld er \u00fea\u00f0 l\u00edka venjuleg merking \u00feess \u00fe\u00f3tt einst\u00f6ku d\u00e6mi finnist um anna\u00f0, eins og d\u00e6mi\u00f0 \u00far <em>T\u00edmanum <\/em>1872 sem h\u00e9r var tilf\u00e6rt. En \u00feegar n\u00e1lgast mi\u00f0ja \u00f6ldina fer \u00f6nnur merking a\u00f0 koma fram og ver\u00f0ur sm\u00e1tt og sm\u00e1tt algengari \u00feegar l\u00ed\u00f0ur \u00e1. \u00cd <em>Al\u00fe\u00fd\u00f0ubla\u00f0inu <\/em>1939 segir: \u201eH\u00e6tti a\u00f0 aka fullfr\u00edskum m\u00f6nnum, sem vel geta gengi\u00f0 erinda sinna um b\u00e6inn.\u201c \u00cd <em>T\u00edmanum <\/em>1949 segir: \u201e\u00deeir hafa haft st\u00e6rsta stj\u00f3rnm\u00e1la flokk landsins, Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokkinn, alveg \u00e1 valdi s\u00ednu og ekki beitt honum til annars en a\u00f0 ganga erinda sinna.\u201c \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1951 segir: \u201eEn m\u00e1ske l\u00e1ta R\u00fassar hann ganga erinda sinna.\u201c<\/p>\n<p>Sambandi\u00f0 <em>ganga erinda sinna <\/em>er skrauthv\u00f6rf, upprunni\u00f0 \u00e1 \u00feeim t\u00edma \u00feegar f\u00f3lk gekk afs\u00ed\u00f0is til a\u00f0 sinna \u00feessari ath\u00f6fn, en me\u00f0 tilkomu innikl\u00f3setta ver\u00f0ur merkingin \u00ed s\u00f6gninni <em>ganga <\/em>fjarl\u00e6gari og gagns\u00e6i sambandsins minna, enda er merking \u00feess fjarri venjulegri merkingu nafnor\u00f0sins <em>erindi<\/em>. Sambandi\u00f0 <em>ganga \u00f6rna sinna <\/em>heldur hins vegar sinni merkingu vegna \u00feess a\u00f0 <em>\u00f6rna <\/em>kemur hvergi annars sta\u00f0ar fyrir. Breytt notkun endurspeglast \u00ed <em>\u00cdslenskri n\u00fat\u00edmam\u00e1lsor\u00f0ab\u00f3k <\/em>\u00fear sem <em>erindi <\/em>er <a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/10269\">sk\u00fdrt<\/a> 'm\u00e1laleitan, tilm\u00e6li, skrifleg e\u00f0a munnleg, m\u00e1larekstur' og \u00fear undir er m.a. sambandi\u00f0 <em>ganga erinda <\/em>&lt;<em>yfirvaldanna<\/em>&gt;. Sambandi\u00f0 <em>ganga erinda sinna <\/em>er hins vegar ekki tilf\u00e6rt s\u00e9rstaklega og merkingin 'h\u00e6gja s\u00e9r' kemur hvergi fram.<\/p>\n<p>D\u00e6mum um eldri merkinguna \u00ed <em>ganga erinda sinna <\/em>hefur fari\u00f0 \u00f6rt f\u00e6kkandi s\u00ed\u00f0an um mi\u00f0ja s\u00ed\u00f0ustu \u00f6ld og h\u00fan er n\u00e1nast horfin \u00ed textum fr\u00e1 \u00feessari \u00f6ld \u00ed <em>Risam\u00e1lheildinni<\/em> \u00fe\u00f3tt fyrir komi a\u00f0 minnt s\u00e9 \u00e1 hana eins og \u00ed <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/6036560?iabr=on#page\/n34\/mode\/1up\/\">molanum<\/a> \u201eM\u00e1li\u00f0\u201c \u00ed <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>2012: \u201e<strong>Erindi<\/strong> er \u201everkefni sem e-r annast fyrir sj\u00e1lfan sig e\u00f0a a\u00f0ra\u201c. Tala\u00f0 er um a\u00f0 <strong>reka erindi<\/strong> og \u00fea\u00f0 getur ma\u00f0ur gert b\u00e6\u00f0i fyrir sig og a\u00f0ra. A\u00f0 <strong>ganga erinda sinna<\/strong> \u00fe\u00fdddi svo a\u00f0 h\u00e6gja s\u00e9r. \u00cd \u00feessu lj\u00f3si er spurning hva\u00f0 felst \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 \u201eganga erinda \u00fatlendinga\u201c. \u00dea\u00f0 er enginn vafi \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 sambandi\u00f0 <em>ganga erinda sinna <\/em>hefur merkinguna 'sinna erindum s\u00ednum' \u00ed huga megin\u00feorra m\u00e1lnotenda, a.m.k. \u00feeirra yngri, en vissulega b\u00fd\u00f0ur \u00fea\u00f0 upp \u00e1 \u00fat\u00farsn\u00faning eins og d\u00e6min sanna.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd \u201eM\u00e1lv\u00f6ndunar\u00fe\u00e6ttinum\u201c var n\u00fdlega vakin athygli \u00e1 setningu \u00ed fr\u00e9tt \u00e1 vefnum Austurfr\u00e9tt \u00fear sem st\u00f3\u00f0: \u201eEgilssta\u00f0ir er \u00feungami\u00f0ja \u00fej\u00f3nustus\u00f3knar \u00edb\u00faa Austurlands en um 40% allra \u00edb\u00faa ganga erinda sinna \u00fear \u00ed b\u00e6.\u201c Um \u00feetta var sagt: \u201e\u00deetta hl\u00fdtur a\u00f0 valda miklu \u00e1lagi \u00e1 fr\u00e1veitukerfi b\u00e6jarins!\u201c Auglj\u00f3st er a\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed er v\u00edsa\u00f0 til \u00feeirrar [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-8064","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8064","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=8064"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8064\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":8065,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8064\/revisions\/8065"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=8064"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=8064"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=8064"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}