{"id":8148,"date":"2026-05-02T15:37:58","date_gmt":"2026-05-02T15:37:58","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=8148"},"modified":"2026-05-02T15:37:58","modified_gmt":"2026-05-02T15:37:58","slug":"eg-er-ad-spa-hvad-ertu-ad-spa","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2026\/05\/02\/eg-er-ad-spa-hvad-ertu-ad-spa\/","title":{"rendered":"\u00c9g er a\u00f0 sp\u00e1: Hva\u00f0 ertu a\u00f0 sp\u00e1?"},"content":{"rendered":"<p>Notkun sagnarinnar <em>sp\u00e1 <\/em>\u00ed sambandinu <em>sp\u00e1 \u00ed eitthva\u00f0<\/em>\/<em>einhverju <\/em>\u00ed <a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/38591\">merkingunni<\/a> 'velta einhverju fyrir s\u00e9r' er ekki \u00fdkja g\u00f6mul \u2013 vir\u00f0ist hafa komi\u00f0 fram upp \u00far 1960 eins og \u00e9g hef raki\u00f0 \u00ed <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2019\/09\/09\/spaid-i-thessu\/\">pistli<\/a>. \u00c9g hef aldrei s\u00e9\u00f0 \u00feessa n\u00fdjung \u00ed notkun sagnarinnar gagnr\u00fdnda, en hins vegar hafa \u00f3tal sinnum veri\u00f0 ger\u00f0ar athugasemdir vi\u00f0 a\u00f0 nota\u00f0 s\u00e9 \u00fe\u00e1gufall me\u00f0 henni, <em>sp\u00e1 \u00ed einhverju<\/em>, frekar en \u00feolfall, <em>sp\u00e1 \u00ed eitthva\u00f0<\/em>. \u00cd <em>M\u00e1lfarsbankanum <\/em><a href=\"https:\/\/malfar.arnastofnun.is\/grein\/71137\">segir<\/a> t.d.: \u201eSagt er <strong>sp\u00e1 \u00ed eitthva\u00f0<\/strong>, ekki \u201esp\u00e1 \u00ed einhverju\u201c.\u201c \u00deolfalli\u00f0 er vissulega eldra, en \u00fe\u00e1gufalli\u00f0 vir\u00f0ist koma fram upp \u00far 1990 og \u00feess hefur veri\u00f0 geti\u00f0 til a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 fyrir \u00e1hrif fr\u00e1 sambandinu <em>p\u00e6la \u00ed <\/em>sem alltaf tekur me\u00f0 s\u00e9r \u00fe\u00e1gufall. Hugsanlega stafar andsta\u00f0an vi\u00f0 \u00fe\u00e1gufall af (misskilinni) tengingu vi\u00f0 \u201e\u00fe\u00e1gufallss\u00fdki\u201c.<\/p>\n<p>En fleiri n\u00fdjungar \u00ed notkun sagnarinnar <em>sp\u00e1<\/em> hafa komi\u00f0 fram \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1ratugum. Ein er notkun hennar \u00ed spurningum eins og \u201e\u00c9g sag\u00f0i n\u00fa bara hreint \u00fat; hva\u00f0 ertu a\u00f0 sp\u00e1?\u201c \u00ed <em>St\u00fadentabla\u00f0inu <\/em>1998. \u00cd <em>DV <\/em>1999 segir: \u201eMa\u00f0ur horfir \u00e1 \u00fe\u00e6r og spyr: hva\u00f0 ertu a\u00f0 sp\u00e1?\u201c \u00cd <em>DV <\/em>2001 segir: \u201eHann segir: \u201eHva\u00f0 varstu a\u00f0 sp\u00e1?\u201c \u00feegar \u00fe\u00fa ert a\u00f0 koma \u00far klippingu.\u201c \u00cd <em>bla\u00f0inu <\/em>2006 segir: \u201eHva\u00f0 ertu a\u00f0 sp\u00e1, ekkert farinn a\u00f0 undirb\u00faa \u00feig?\u201c \u00deetta or\u00f0alag hefur veri\u00f0 mj\u00f6g algengt \u00ed \u00f3formlegu m\u00e1li a.m.k. s\u00ed\u00f0an um aldam\u00f3t \u2013 d\u00e6min um \u00fea\u00f0 \u00ed <em>Risam\u00e1lheildinni <\/em>eru h\u00e1tt \u00ed fj\u00f6gur hundru\u00f0, langflest af samf\u00e9lagsmi\u00f0lum. Merkingin \u00ed \u00fev\u00ed er svipu\u00f0 og \u00ed sambandinu <em>sp\u00e1 \u00ed<\/em>, \u00fe.e. 'velta fyrir s\u00e9r', en \u00fe\u00f3 vir\u00f0ist oft felast meiri undrun \u00ed \u00feessu, \u00ed \u00e1tt vi\u00f0 'hva\u00f0 ertu eiginlega a\u00f0 hugsa?'.<\/p>\n<p>E\u00f0lilegt er a\u00f0 l\u00edta \u00e1 spurnarfornafni\u00f0 <em>hva\u00f0 <\/em>\u00ed sl\u00edkum d\u00e6mum sem andlag sagnarinnar <em>sp\u00e1<\/em>, eins og \u00ed <em>hva\u00f0 ertu a\u00f0 hugsa?<\/em>, <em>hvern varstu a\u00f0 hitta?<\/em>, <em>hverjum varstu a\u00f0 hj\u00e1lpa?<\/em>, <em>hvers ertu a\u00f0 \u00f3ska \u00fe\u00e9r?<\/em> o.s.frv. Eins og \u00feessi d\u00e6mi s\u00fdna kemur spurnarfornafni\u00f0 \u00fe\u00e1 fram \u00ed \u00fev\u00ed falli sem s\u00f6gnin st\u00fdrir \u2013 \u00feolfalli me\u00f0 <em>hugsa<\/em> og <em>hitta<\/em>, \u00fe\u00e1gufalli me\u00f0 <em>hj\u00e1lpa<\/em> og eignarfalli me\u00f0 <em>\u00f3ska<\/em>. N\u00fa stj\u00f3rnar <em>sp\u00e1 <\/em>venjulega \u00fe\u00e1gufalli \u00e1 andlagi s\u00ednu, <em>sp\u00e1 einhverju<\/em>, og \u00fev\u00ed m\u00e6tti b\u00faast vi\u00f0 a\u00f0 sagt v\u00e6ri <em>hverju ertu a\u00f0 sp\u00e1?<\/em> \u00dea\u00f0 er vissulega e\u00f0lileg setning, en \u00ed henni hefur <em>sp\u00e1 <\/em>eing\u00f6ngu <a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/38591\">merkinguna<\/a> 'segja fyrir \u00f3or\u00f0na hluti, m\u00e6la fram sp\u00e1d\u00f3m' en getur ekki merkt 'velta fyrir s\u00e9r'. Sambandi\u00f0 <em>hva\u00f0 ertu a\u00f0 sp\u00e1? <\/em>vir\u00f0ist \u00fev\u00ed hafa slitna\u00f0 \u00far tengslum vi\u00f0 venjulega heg\u00f0un sagnarinnar <em>sp\u00e1<\/em>.<\/p>\n<p>\u00d6nnur n\u00fdjung var\u00f0andi <em>sp\u00e1 <\/em>er notkun sagnarinnar \u00ed eins konar inngangssetningum, oftast a\u00f0 spurningum e\u00f0a vangaveltum. \u00cd <em>DV <\/em>2004 segir: \u201e\u00e9g var a\u00f0 sp\u00e1. ef \u00e9g les blogg vil \u00e9g vera partur af \u00feeim.\u201c \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>2013 segir: \u201e\u00c9g er a\u00f0 sp\u00e1 \u2026 mun einhver muna eftir m\u00e9r eftir minn dag?\u201c \u00cd <em>Fr\u00e9ttabla\u00f0inu <\/em>2015 segir: \u201eSko \u2026 \u00e9g er a\u00f0 sp\u00e1 \u2026 var\u00f0andi eina \u00fej\u00f3nustu \u2026 sem \u00e9g hef ekki keypt \u00e1\u00f0ur \u2026 en skilst a\u00f0 \u00fei\u00f0 s\u00e9u\u00f0 alveg a\u00f0 sinna.\u201c \u00cd <em>Fr\u00e9ttabla\u00f0inu <\/em>2016 segir: \u201e\u00c9g er a\u00f0 sp\u00e1, ert \u00fe\u00fa me\u00f0 einhver verkefni fyrir okkur sem vi\u00f0 g\u00e6tum sinnt gegn v\u00e6gu gjaldi?\u201c \u00cd sama bla\u00f0i sama \u00e1r segir: \u201e\u00e9g er a\u00f0 sp\u00e1 \u2026 hven\u00e6r byrja heilarnir \u00ed stelpum a\u00f0 virka?\u201c \u00d6ll d\u00e6min nema \u00fea\u00f0 fyrsta eru \u00far \u00fe\u00fd\u00f0ingum \u00e1 myndas\u00f6gum sem s\u00fdnir a\u00f0 \u00feetta er mj\u00f6g talm\u00e1lslegt.<\/p>\n<p>\u00deetta or\u00f0alag er mj\u00f6g algengt \u00ed \u00f3formlegu m\u00e1li og hefur veri\u00f0 \u00fea\u00f0 a.m.k. fr\u00e1 aldam\u00f3tum \u2013 d\u00e6min \u00ed <em>Risam\u00e1lheildinni <\/em>eru \u00e1 \u00feri\u00f0ja \u00fe\u00fasund, n\u00e6r \u00f6ll af samf\u00e9lagsmi\u00f0lum. Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0 inngangssetning af \u00feessu tagi er \u00ed raun n\u00fdjung \u00ed m\u00e1linu a\u00f0 \u00e9g held \u2013 \u00ed merkingarlega svipu\u00f0um d\u00e6mum eins og <em>\u00e9g er a\u00f0 velta fyrir m\u00e9r hvort \u2026 <\/em>e\u00f0a <em>\u00e9g er a\u00f0 p\u00e6la \u00ed \u00fev\u00ed hven\u00e6r \u2026<\/em> er framhaldi\u00f0 (sem hefst \u00e1 spurnaror\u00f0i) aukasetning (fallsetning), en \u00fea\u00f0 sem kemur \u00e1 eftir <em>\u00e9g er a\u00f0 sp\u00e1 <\/em>hefur ekki bein setningafr\u00e6\u00f0ileg tengsl vi\u00f0 undanfarann. B\u00e6\u00f0i <em>hva\u00f0 ertu a\u00f0 sp\u00e1? <\/em>og <em>\u00e9g er a\u00f0 sp\u00e1<\/em> eru \u00fev\u00ed athyglisver\u00f0ar setningafr\u00e6\u00f0ilegar n\u00fdjungar, en \u00e9g minnist \u00feess ekki a\u00f0 hafa s\u00e9\u00f0 f\u00f3lk amast vi\u00f0 \u00feeim \u2013 enda engin \u00e1st\u00e6\u00f0a til. \u00deetta eru samb\u00f6nd sem greinilega n\u00fdtast vel \u00ed m\u00e1linu.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Notkun sagnarinnar sp\u00e1 \u00ed sambandinu sp\u00e1 \u00ed eitthva\u00f0\/einhverju \u00ed merkingunni 'velta einhverju fyrir s\u00e9r' er ekki \u00fdkja g\u00f6mul \u2013 vir\u00f0ist hafa komi\u00f0 fram upp \u00far 1960 eins og \u00e9g hef raki\u00f0 \u00ed pistli. \u00c9g hef aldrei s\u00e9\u00f0 \u00feessa n\u00fdjung \u00ed notkun sagnarinnar gagnr\u00fdnda, en hins vegar hafa \u00f3tal sinnum veri\u00f0 ger\u00f0ar athugasemdir vi\u00f0 a\u00f0 nota\u00f0 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-8148","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8148","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=8148"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8148\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":8149,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8148\/revisions\/8149"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=8148"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=8148"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=8148"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}