{"id":8233,"date":"2026-07-31T09:35:43","date_gmt":"2026-07-31T09:35:43","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=8233"},"modified":"2026-07-31T09:35:43","modified_gmt":"2026-07-31T09:35:43","slug":"framburdur-erlendra-nafna-i-islensku-samhengi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2026\/07\/31\/framburdur-erlendra-nafna-i-islensku-samhengi\/","title":{"rendered":"Frambur\u00f0ur erlendra nafna \u00ed \u00edslensku samhengi"},"content":{"rendered":"<p>Tveir af \u00feeim erlendu stj\u00f3rnm\u00e1lam\u00f6nnum sem voru ofast nefndir fyrir utan Kennedy Bandr\u00edkjaforseta \u00feegar \u00e9g var a\u00f0 byrja a\u00f0 hlusta \u00e1 \u00fatvarpsfr\u00e9ttir svona 7-8 \u00e1ra, \u00e1 \u00e1runum 1962-1963, voru \u00feeir <em>Du G\u00f3l <\/em>Frakklandsforseti og <em>Hj\u00fam <\/em>l\u00e1var\u00f0ur utanr\u00edkisr\u00e1\u00f0herra Bretlands, og s\u00ed\u00f0ar fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra. \u00dea\u00f0 t\u00f3k mig sm\u00e1t\u00edma og olli m\u00e9r nokkrum heilabrotum a\u00f0 \u00e1tta mig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feetta voru s\u00f6mu mennirnir og \u00e9g las um \u00ed <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>og <em>T\u00edmanum<\/em> en h\u00e9tu \u00fear allt \u00f6\u00f0rum n\u00f6fnum, a\u00f0 m\u00e9r fannst \u2013 <em>de Gaulle <\/em>og <em>Home<\/em>. \u00c1 \u00feessum t\u00edma voru erlend n\u00f6fn \u00ed \u00fatvarpsfr\u00e9ttum n\u00e1nast eina \u00fatlenskan sem ma\u00f0ur heyr\u00f0i nokkurn t\u00edma, fyrir utan s\u00f6ngtexta, og \u00f3samr\u00e6mi milli frambur\u00f0ar og stafsetningar var manni \u00fev\u00ed algerlega framandi. En n\u00fa eru a\u00f0rir t\u00edmar.<\/p>\n<p>\u00deegar erlend n\u00f6fn koma fyrir \u00ed \u00edslenskum texta reynum vi\u00f0 oftast a\u00f0 bera \u00feau fram eitthva\u00f0 \u00ed l\u00edkingu vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem gert er \u00e1 \u00fev\u00ed m\u00e1li sem \u00feau eru komin \u00far \u2013 ef vi\u00f0 teljum okkur vita \u00fea\u00f0. \u00dea\u00f0 var einmitt \u00fea\u00f0 sem \u00fatvarps\u00feulir \u00feessa t\u00edma ger\u00f0u me\u00f0 n\u00f6fn eins og <em>de Gaulle <\/em>og <em>Home<\/em>. Au\u00f0vita\u00f0 er frambur\u00f0urinn sjaldnast alveg s\u00e1 sami \u00fev\u00ed a\u00f0 hlj\u00f3\u00f0 eins m\u00e1ls samsvara hlj\u00f3\u00f0um annars m\u00e1ls yfirleitt ekki fullkomlega, jafnvel \u00fe\u00f3tt vi\u00f0 k\u00f6llum \u00fea\u00f0 \u201es\u00f6mu\u201c hlj\u00f3\u00f0in. \u00cdslenska hefur t.d. a\u00f0eins eitt <em>s-<\/em>hlj\u00f3\u00f0 sem vi\u00f0 setjum \u00ed sta\u00f0inn fyrir \u00fdmis svipu\u00f0 hlj\u00f3\u00f0 \u00ed ensku, \u00fe\u00fdsku og fr\u00f6nsku \u2013 oft heyrum vi\u00f0 ekki muninn og \u00e1ttum okkur ekki \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 erum a\u00f0 nota anna\u00f0 hlj\u00f3\u00f0. \u00dea\u00f0 er alveg e\u00f0lilegt a\u00f0 setja hlj\u00f3\u00f0 \u00far \u00edslensku hlj\u00f3\u00f0kerfi \u00ed sta\u00f0 framandi erlendra hlj\u00f3\u00f0a.<\/p>\n<p>En ef vi\u00f0 vitum ekki hvernig n\u00f6fnin eru borin fram \u00ed frumm\u00e1linu, t.d. \u00feekkjum ekki m\u00e1li\u00f0, reynum vi\u00f0 a\u00f0 giska \u2013 stundum \u00fat fr\u00e1 \u00edslenskum frambur\u00f0i, en i\u00f0ulega l\u00edka \u00fat fr\u00e1 enskum frambur\u00f0i. \u00c9g hef stundum s\u00e9\u00f0 tala\u00f0 um \u201eRitsjard Wogner-heilkenni\u00f0\u201c \u2013 \u00fear er v\u00edsa\u00f0 til \u00feess \u00feegar nafn \u00fe\u00fdska t\u00f3nsk\u00e1ldsins <em>Richard Wagner<\/em> er bori\u00f0 fram eins og \u00fea\u00f0 v\u00e6ri enskt nafn. \u00dea\u00f0 er svo sem skiljanlegt a\u00f0 \u00feetta gerist hj\u00e1 almennum m\u00e1lnotendum vegna \u00feess a\u00f0 flestir \u00cdslendingar \u00feekkja eitthva\u00f0 til ensks frambur\u00f0ar en margfalt f\u00e6rri kunna \u00fe\u00fdsku, og enska er einhvers konar \u201esj\u00e1lfgefin \u00fatlenska\u201c \u00e1 \u00cdslandi. Samt sem \u00e1\u00f0ur ver\u00f0ur a\u00f0 \u00e6tlast til \u00feess a\u00f0 f\u00f3lk sem vinnur vi\u00f0 fj\u00f6lmi\u00f0la \u00feekki grundvallarreglur um frambur\u00f0 helstu Evr\u00f3pum\u00e1la.<\/p>\n<p>\u00c9g f\u00f3r a\u00f0 hugsa um \u00feetta \u00ed tengslum vi\u00f0 athugasemdir sem oft eru ger\u00f0ar vi\u00f0 frambur\u00f0 erlendra skammstafana, eins og streymisveitunnar <em>HBO Max <\/em>og Knattspyrnusambands Evr\u00f3pu, <em>UEFA<\/em>. \u00deessar skammstafanir eru i\u00f0ulega bornar fram <em>eidsb\u00ed\u00f3 <\/em>og <em>j\u00faeifa <\/em>en m\u00f6rgum finnst a\u00f0 fremur \u00e6tti a\u00f0 nota \u00edslensk heiti b\u00f3kstafanna og segja <em>h\u00e1-b\u00e9-o <\/em>og <em>u-e-eff-a<\/em>. En h\u00e9r er \u00e1 \u00fea\u00f0 a\u00f0 l\u00edta a\u00f0 skammstafarnirnar eru n\u00e6r \u00e6vinlega nota\u00f0ar en ekki full n\u00f6fn \u00feessara fyrirb\u00e6ra. <em>HBO <\/em>stendur fyrir <em>Home Box Office <\/em>sem v\u00edsar til \u00fareltrar t\u00e6kni og <em>UEFA <\/em>stendur fyrir <em>Union of European Football Associations <\/em>sem er alltof langt til a\u00f0 nota \u00ed venjulegri umr\u00e6\u00f0u. Skammstafarnirnar hafa \u00fev\u00ed \u00ed raun \u00f6\u00f0last sj\u00e1lfst\u00e6tt l\u00edf og eru or\u00f0nar hin venjulegu heiti fyrirb\u00e6ranna.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 h\u00f6fum hli\u00f0st\u00e6\u00f0 d\u00e6mi \u00ed \u00edslensku. H\u00e9r starfar st\u00e9ttarf\u00e9lagi\u00f0 <em>VR <\/em>sem \u00e1\u00f0ur var skammst\u00f6fun fyrir <em>Verslunarmannaf\u00e9lag Reykjav\u00edkur<\/em>. En vegna \u00feess a\u00f0 f\u00e9lagsf\u00f3lk starfar vi\u00f0 margt anna\u00f0 en verslun, og starfssv\u00e6\u00f0i f\u00e9lagsins n\u00e6r langt \u00fat fyrir Reykjav\u00edk, \u00fe\u00f3tti \u00feetta heiti ekki lengur h\u00e6fa og n\u00fa heitir f\u00e9lagi\u00f0 formlega <em>VR<\/em>, bori\u00f0 fram <em>vaff-err<\/em>, \u00fe\u00f3tt stundum s\u00e9 a\u00f0 v\u00edsu l\u00e1ti\u00f0 svo heita sem \u00feessir stafir standi fyrir <em>vir\u00f0ing \u2013 r\u00e9ttl\u00e6ti<\/em>. \u00dearna hefur \u00fea\u00f0 sem \u00e1\u00f0ur var skammst\u00f6fun or\u00f0i\u00f0 a\u00f0 heiti f\u00e9lagsins, og svipa\u00f0 hefur \u00ed raun gerst me\u00f0 <em>HBO <\/em>og <em>UEFA<\/em> \u2013 <em>eidsb\u00ed\u00f3 <\/em>og <em>j\u00faeifa <\/em>eru hin venjulegu heiti \u00feessara fyrirb\u00e6ra, og \u00feess vegna er ekkert athugavert vi\u00f0 a\u00f0 bera \u00feau fram upp \u00e1 ensku eins og hver \u00f6nnur ensk n\u00f6fn sem notu\u00f0 eru \u00ed \u00edslensku samhengi.<\/p>\n<p>\u00dear\u00a0 me\u00f0 er ekki sagt a\u00f0 \u00feetta gildi um allar erlendar skammstafanir \u00e1 n\u00f6fnum af einhverju tagi. \u00deegar um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a skammstafanir sem h\u00e6gt er a\u00f0 kve\u00f0a a\u00f0 er oft hef\u00f0 fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 bera \u00fe\u00e6r fram eins og \u00edslensk or\u00f0 \u2013 gott d\u00e6mi er <em>NATO <\/em>sem oft er l\u00edka a\u00f0laga\u00f0 \u00edslenskri stafsetningu og skrifa\u00f0 <em>NAT\u00d3<\/em>, og varla er nokkurn t\u00edma bori\u00f0 fram <em>neit\u00f3<\/em> \u00ed \u00edslensku samhengi. Au\u00f0vita\u00f0 er ekki heldur neitt athugavert vi\u00f0 a\u00f0 bera skammstafanir erlendra nafna fram staf fyrir staf, me\u00f0 \u00edslenskum b\u00f3kstafaheitum, og oft er hef\u00f0 fyrir \u00fev\u00ed \u2013 <em>DR <\/em>og <em>NRK <\/em>er venjulega bori\u00f0 fram <em>d\u00e9-err <\/em>og <em>enn-err-k\u00e1<\/em>. En meginatri\u00f0i\u00f0 er a\u00f0 \u00fea\u00f0 er \u00ed m\u00f6rgum tilvikum alveg e\u00f0lilegt, og ekki \u00ed neinni andst\u00f6\u00f0u vi\u00f0 \u00edslensku og \u00edslenska m\u00e1lhef\u00f0, a\u00f0 nota erlendan frambur\u00f0 erlendra skammstafana.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Tveir af \u00feeim erlendu stj\u00f3rnm\u00e1lam\u00f6nnum sem voru ofast nefndir fyrir utan Kennedy Bandr\u00edkjaforseta \u00feegar \u00e9g var a\u00f0 byrja a\u00f0 hlusta \u00e1 \u00fatvarpsfr\u00e9ttir svona 7-8 \u00e1ra, \u00e1 \u00e1runum 1962-1963, voru \u00feeir Du G\u00f3l Frakklandsforseti og Hj\u00fam l\u00e1var\u00f0ur utanr\u00edkisr\u00e1\u00f0herra Bretlands, og s\u00ed\u00f0ar fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra. \u00dea\u00f0 t\u00f3k mig sm\u00e1t\u00edma og olli m\u00e9r nokkrum heilabrotum a\u00f0 \u00e1tta mig \u00e1 \u00fev\u00ed [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-8233","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8233","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=8233"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8233\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":8234,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8233\/revisions\/8234"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=8233"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=8233"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=8233"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}