{"id":8290,"date":"2026-09-07T23:00:28","date_gmt":"2026-09-07T23:00:28","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=8290"},"modified":"2026-09-08T09:24:56","modified_gmt":"2026-09-08T09:24:56","slug":"islenska-sem-annad-mal-i-fjarlagafrumvarpi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2026\/09\/07\/islenska-sem-annad-mal-i-fjarlagafrumvarpi\/","title":{"rendered":"\u00cdslenska sem anna\u00f0 m\u00e1l \u00ed fj\u00e1rlagafrumvarpi"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd fr\u00e9tt \u00e1 vef <em>R\u00edkis\u00fatvarpsins <\/em>\u00ed dag <a href=\"https:\/\/www.ruv.is\/frettir\/innlent\/2026-09-07-rikid-ver-691-milljon-i-islenskukennslu-fyrir-utlendinga-486317\">segir<\/a>: \u201eHeildarframl\u00f6g til \u00edslenskukennslu fyrir \u00fatlendinga aukast \u00e1 n\u00fdjan leik eftir mikinn ni\u00f0urskur\u00f0 \u00e1 \u00e1rinu 2026\u201c og \u201e\u00cd n\u00fdju <a href=\"https:\/\/www.stjornarradid.is\/library\/?itemid=b9fd1f0c-0e3e-4750-b77f-4244a14262cc\">fj\u00e1rlagafrumvarpi<\/a> fyrir \u00e1ri\u00f0 2027 er gert r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 verja samtals 691 millj\u00f3n kr\u00f3na \u00ed \u00edslenskukennslu \u00fatlendinga og n\u00e1mskei\u00f0 fyrir fl\u00f3ttaf\u00f3lk. Upph\u00e6\u00f0in skiptist \u00ed 491 millj\u00f3n kr\u00f3na almenna fj\u00e1rveitingu undir framhaldsfr\u00e6\u00f0slu og 200 millj\u00f3na kr\u00f3na t\u00edmabundi\u00f0 framlag til eins \u00e1rs \u00ed gegnum Vinnum\u00e1lastofnun\u201c. \u00cd fr\u00e9ttinni segir enn fremur: \u201e\u00c1 fyrsta heila \u00e1ri n\u00faverandi r\u00edkisstj\u00f3rnar l\u00e6kku\u00f0u framl\u00f6gin ni\u00f0ur \u00ed 361 millj\u00f3n kr\u00f3na.\u201c Samkv\u00e6mt \u00feessu v\u00e6ri h\u00e6kkunin fr\u00e1 \u00feessu \u00e1ri 330 millj\u00f3nir kr\u00f3na, e\u00f0a um 91,4%. En \u00fev\u00ed mi\u00f0ur er \u00fea\u00f0 ekki svo gott.<\/p>\n<p>\u00cd <a href=\"https:\/\/www.stjornarradid.is\/library\/?itemid=134cff47-8c9c-11f0-b895-005056bcde1f\">fj\u00e1rlagafrumvarpi<\/a> fyrir yfirstandandi \u00e1r sem lagt var fram \u00ed fyrrahaust voru vissulega \u00e6tla\u00f0ar 360,7 millj\u00f3nir \u00ed verkefni\u00f0 \u201e\u00cdslenskukennsla fyrir \u00fatlendinga\u201c undir fj\u00e1rlagali\u00f0 22.20 og \u00fea\u00f0 er s\u00fa tala sem v\u00edsa\u00f0 er til \u00ed fr\u00e9ttinni. En \u00ed me\u00f0f\u00f6rum fj\u00e1rlaganefndar var \u00feessi upph\u00e6\u00f0 h\u00e6kku\u00f0 um r\u00famar 254 millj\u00f3nir og \u00ed endanlegum <a href=\"https:\/\/www.stjornarradid.is\/library\/?itemid=ab76eee4-f2d7-11f0-b899-005056bcde1f\">fj\u00e1rl\u00f6gum<\/a> \u00e1rsins voru \u00fev\u00ed settar 615 millj\u00f3nir kr\u00f3na \u00ed \u00feetta verkefni. \u00cd <a href=\"https:\/\/www.stjornarradid.is\/verkefni\/opinber-fjarmal\/fjarlog\/fjarlog-fyrir-arid-2027\/greinargerdir-raduneyta\/greinargerd\/22-onnur-skolastig-og-stjornsysla-mennta-og-barnamala\">sk\u00fdringum<\/a> vi\u00f0 li\u00f0 22.20 \u00ed n\u00fdja frumvarpinu segir: \u201eFj\u00e1rheimild m\u00e1laflokksins h\u00e6kkar um 130 m.kr. vegna \u00edslenskukennslu fyrir \u00fatlendinga. Fj\u00e1rheimild m\u00e1laflokksins l\u00e6kkar um 254 m.kr. vegna t\u00edmabundinna verkefna sem falla ni\u00f0ur.\u201c \u00deessar 254 millj\u00f3nir sem \u00fearna falla ni\u00f0ur eru v\u00e6ntanlega \u00fe\u00e6r s\u00f6mu og b\u00e6tt var vi\u00f0 \u00e1 fj\u00e1rl\u00f6gum \u00feessa \u00e1rs.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3tt 130 millj\u00f3nir komi \u00fear \u00e1 m\u00f3ti, \u00feannig a\u00f0 grunnurinn \u00e6tti a\u00f0 h\u00e6kka upp \u00ed 491 millj\u00f3n eins og nefnt er \u00ed fr\u00e9tt <em>R\u00edkis\u00fatvarpsins<\/em>, er samt um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a l\u00e6kkun upp \u00e1 124 millj\u00f3nir fr\u00e1 \u00fev\u00ed sem er \u00ed fj\u00e1rl\u00f6gum \u00feessa \u00e1rs. En talan fyrir verkefni\u00f0 \u201e\u00cdslenskukennsla fyrir \u00fatlendinga\u201c undir li\u00f0 22.20 \u00ed n\u00fdja frumvarpinu er ekki 491 millj\u00f3n heldur 343,2 millj\u00f3nir \u2013 \u00fearna munar 148 millj\u00f3num. \u00c9g ver\u00f0 a\u00f0 j\u00e1ta a\u00f0 \u00e9g botna ekki \u00ed \u00feessu \u00f3samr\u00e6mi og veit ekki vi\u00f0 hvora t\u00f6luna \u00e1 a\u00f0 mi\u00f0a. En \u00feess ver\u00f0ur a\u00f0 geta a\u00f0 \u00feessu til vi\u00f0b\u00f3tar koma vissulega 200 millj\u00f3nir \u00e1 fj\u00e1rlagali\u00f0 29.70: \u201eUm er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a t\u00edmabundna fj\u00e1rheimild til eins \u00e1rs vegna \u00edslenskun\u00e1mskei\u00f0a fyrir fl\u00f3ttaf\u00f3lk og kemur til m\u00f3ts vi\u00f0 t\u00edmabundna heimild sem f\u00e9ll ni\u00f0ur \u00e1ri\u00f0 2026.\u201c<\/p>\n<p>Heildarupph\u00e6\u00f0 sem \u00e1 a\u00f0 verja \u00ed kennslu \u00edslensku sem annars m\u00e1ls \u00e1 n\u00e6sta \u00e1ri er \u00fev\u00ed anna\u00f0hvort 543 e\u00f0a 691 millj\u00f3n. S\u00e9 fyrri talan r\u00e9tt er um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a h\u00e1tt \u00ed 70 millj\u00f3n kr\u00f3na l\u00e6kkun fr\u00e1 \u00feessu \u00e1ri, og meiri a\u00f0 teknu tilliti til ver\u00f0lags\u00fer\u00f3unar \u2013 s\u00e9 seinni talan r\u00e9tt er um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a r\u00famlega 75 millj\u00f3na h\u00e6kkun \u00ed kr\u00f3num tali\u00f0. Eftir sem \u00e1\u00f0ur er heildarupph\u00e6\u00f0in t\u00f6luvert l\u00e6gri en var \u00e1 \u00e1rinu 2025 \u00feegar 574 millj\u00f3num var vari\u00f0 \u00ed \u00edslenskukennslu fyrir \u00fatlendinga og 150 millj\u00f3num \u00ed inngildingu sem felst a\u00f0 verulegu leyti \u00ed \u00edslenskukennslu. \u00deetta er \u00fe\u00f3 sagt me\u00f0 \u00feeim fyrirvara a\u00f0 framsetning fj\u00e1rlagafrumvarpsins er ekki til \u00feess fallin a\u00f0 au\u00f0velda venjulegu f\u00f3lki a\u00f0 \u00e1tta sig \u00e1 einst\u00f6kum t\u00f6lum, og \u00e9g ver\u00f0 manna gla\u00f0astur ef \u00feetta er rangt hj\u00e1 m\u00e9r.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd fr\u00e9tt \u00e1 vef R\u00edkis\u00fatvarpsins \u00ed dag segir: \u201eHeildarframl\u00f6g til \u00edslenskukennslu fyrir \u00fatlendinga aukast \u00e1 n\u00fdjan leik eftir mikinn ni\u00f0urskur\u00f0 \u00e1 \u00e1rinu 2026\u201c og \u201e\u00cd n\u00fdju fj\u00e1rlagafrumvarpi fyrir \u00e1ri\u00f0 2027 er gert r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 verja samtals 691 millj\u00f3n kr\u00f3na \u00ed \u00edslenskukennslu \u00fatlendinga og n\u00e1mskei\u00f0 fyrir fl\u00f3ttaf\u00f3lk. Upph\u00e6\u00f0in skiptist \u00ed 491 millj\u00f3n kr\u00f3na almenna fj\u00e1rveitingu [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-8290","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8290","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=8290"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8290\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":8291,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8290\/revisions\/8291"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=8290"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=8290"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=8290"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}