{"id":8334,"date":"2026-09-30T14:38:20","date_gmt":"2026-09-30T14:38:20","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=8334"},"modified":"2026-09-30T14:38:20","modified_gmt":"2026-09-30T14:38:20","slug":"i-hvada-mund-gefur-morgunstundin-gull","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2026\/09\/30\/i-hvada-mund-gefur-morgunstundin-gull\/","title":{"rendered":"\u00cd hva\u00f0a mund gefur morgunstundin gull?"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd morgun kom \u00ed \u201eM\u00e1lspjalli\u201c forvitnileg spurning um or\u00f0asambandi\u00f0 <em>Morgunstund gefur gull \u00ed mund<\/em> sem er sk\u00fdrt 'morgunstund f\u00e6rir au\u00f0\/fars\u00e6ld \u00ed h\u00f6nd' \u00ed <em>Merg m\u00e1lsins <\/em>eftir J\u00f3n G. Fri\u00f0j\u00f3nsson, enda getur or\u00f0i\u00f0 <em>mund<\/em> \u00fe\u00fdtt 'h\u00f6nd', eins og \u00ed samsetningunni <em>mundlaug<\/em>. Fyrirspyrjandi sag\u00f0ist alltaf hafa skili\u00f0 sambandi\u00f0 \u00e1 \u00feennan veg \u2013 \u201ea\u00f0 vi\u00f0 f\u00e1um gull \u00ed h\u00f6nd \u00feegar vi\u00f0 v\u00f6knum snemma og n\u00fdtum hv\u00edldan og ferskan huga til a\u00f0 afkasta miklu \u00ed kyrr\u00f0 og lj\u00f3ma morgunsins\u201c. En <em>mund <\/em>getur l\u00edka merkt 't\u00edmi' og kemur \u00ed \u00feeirri merkingu b\u00e6\u00f0i fyrir \u00ed kvenkyni og hvorugkyni, og einnig \u00ed karlkynsmyndinni <em>mundur<\/em>, og fyrirspyrjandi sag\u00f0i \u00fev\u00ed: \u201eSvo f\u00f3r \u00e9g allt \u00ed einu a\u00f0 efast, er \u00fea\u00f0 t\u00edmi sem er gulls vir\u00f0i sem vi\u00f0 eignumst?\u201c<\/p>\n<p>Hva\u00f0 sem or\u00f0i\u00f0 <em>mund <\/em>merkir \u00fearna er lj\u00f3st a\u00f0 yfirf\u00e6r\u00f0 merking sambandsins er 's\u00e1 e\u00f0a s\u00fa sem fer snemma \u00e1 f\u00e6tur kemur miklu \u00ed verk' eins og <a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/28945\">segir<\/a> \u00ed <em>\u00cdslenskri n\u00fat\u00edmam\u00e1lsor\u00f0ab\u00f3k<\/em>. \u00dea\u00f0 er samt sem \u00e1\u00f0ur forvitnilegt a\u00f0 reyna a\u00f0 finna \u00fat hver hin b\u00f3kstaflega merking \u00ed <em>mund <\/em>s\u00e9 og \u00fe\u00e1 reynist fleira koma til greina en 'h\u00f6nd' og 't\u00edmi'. \u00cd <em>\u00cdslensk-danskri or\u00f0ab\u00f3k <\/em>fr\u00e1 1920-1924 er sambandi\u00f0 <a href=\"https:\/\/blondal.arnastofnun.is\/faersla\/241911\/merkja\/morgunstund\">\u00fe\u00fdtt<\/a> 'Morgenstund har Guld i Mund' sem er <a href=\"https:\/\/ordnet.dk\/ods\/ordbog\/60094010#Mund\">d\u00f6nsk mynd<\/a> sambandsins, en <em>mund <\/em>\u00e1 d\u00f6nsku merkir 'munnur'. \u00cd \u00f6\u00f0rum m\u00e1lum \u00fear sem sambandi\u00f0 kemur fyrir er or\u00f0 sem \u00fe\u00fd\u00f0ir <em>munnur <\/em>einnig nota\u00f0 \u2013 \u00e1 <a href=\"https:\/\/elon.io\/grammar\/norwegian\/texts\/proverb-morgenstund\">norsku<\/a> <em>Morgenstund har gull i munn<\/em>, \u00e1 <a href=\"https:\/\/kulturminnet.wordpress.com\/2026\/09\/04\/ordsprak-och-talesatt-del-82-morgonstund-har-guld-i-mund\/\">s\u00e6nsku<\/a> <em>Morgonstund har guld i mund<\/em> (\u00fear sem <em>mund <\/em>er eldri mynd fyrir <em>mun<\/em>) og \u00e1 <a href=\"https:\/\/de.wikipedia.org\/wiki\/Morgenstund_hat_Gold_im_Mund\">\u00fe\u00fdsku<\/a> <em>Morgenstund hat Gold im Mund<\/em>.<\/p>\n<p>Danska sambandi\u00f0 er <a href=\"https:\/\/ordnet.dk\/ods\/ordbog\/60094010#Mund\">sagt<\/a> komi\u00f0 \u00far \u00fe\u00fdsku, og \u00edslensk ger\u00f0 \u00feess er v\u00e6ntanlega komin \u00far d\u00f6nsku e\u00f0a beint \u00far \u00fe\u00fdsku \u00fear sem hafa veri\u00f0 uppi \u00fdmsar kenningar um uppruna \u00feess. \u00c1\u00f0ur <a href=\"https:\/\/de.wikipedia.org\/wiki\/Morgenstund_hat_Gold_im_Mund\">var tali\u00f0<\/a> a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00e6tti \u00ed raun hli\u00f0st\u00e6\u00f0u e\u00f0a r\u00e6tur \u00ed norr\u00e6nu \u00fear sem fr\u00e6\u00f0imenn t\u00f6ldu sig hafa fundi\u00f0 sambandi\u00f0 <em>Morgunstund hefir gull \u00ed mund<\/em> og t\u00f6ldu <em>mund <\/em>\u00fe\u00e1 merkja 'h\u00f6nd'. En fari\u00f0 var a\u00f0 draga \u00feessa sk\u00fdringu \u00ed efa \u00feegar \u00ed lj\u00f3s kom a\u00f0 sambandi\u00f0 kemur \u00ed raun ekki fyrir \u00ed forn\u00edslensku og ekki heldur \u00ed \u00fe\u00fdskum m\u00e1lsh\u00e1ttas\u00f6fnum fr\u00e1 sext\u00e1ndu \u00f6ld og er \u00fev\u00ed sennilega yngra en svo \u2013 og \u00fev\u00ed t\u00e6plega h\u00e6gt a\u00f0 rekja \u00fea\u00f0 til or\u00f0sins *<em>munt <\/em>sem var l\u00f6ngu horfi\u00f0 \u00far m\u00e1linu. Or\u00f0i\u00f0 <em>mund <\/em>\u00ed merkingunni 'h\u00f6nd' var mj\u00f6g sjaldg\u00e6ft \u00ed forn\u00edslensku og a\u00f0eins nota\u00f0 \u00ed sk\u00e1ldam\u00e1li.<\/p>\n<p>S\u00fa sk\u00fdring sem <a href=\"https:\/\/de.wikipedia.org\/wiki\/Morgenstund_hat_Gold_im_Mund\">n\u00fa vir\u00f0ist talin l\u00edklegust<\/a> \u00e1 uppruna sambandsins \u00ed \u00fe\u00fdsku er a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00fe\u00fd\u00f0ing e\u00f0a umor\u00f0un \u00e1 latneska m\u00e1lsh\u00e6ttinum <em>aurora musis amica <\/em>sem merkir b\u00f3kstaflega 'd\u00f6gunin er vinur (lista-\/mennta-)gy\u00f0janna' og hefur s\u00f6mu yfirf\u00e6r\u00f0u merkinguna og \u00fe\u00e6r ger\u00f0ir sem hafa or\u00f0i\u00f0 <em>mund<\/em>. \u00cd \u00fe\u00fdsku riti fr\u00e1 seinni hluta sautj\u00e1ndu aldar eru latnesk og \u00fe\u00fdsk ger\u00f0 m\u00e1lsh\u00e1ttarins tilf\u00e6r\u00f0ar hvor \u00e1 eftir annarri: \u201eAurora Musis amica, Die Morgenstund hat das Brod im Mund\u201c. \u00dear merkir <em>Mund <\/em>greinilega 'munnur' og vitanlega er <em>brau\u00f0 \u00ed munn <\/em>e\u00f0lilegt samband en \u00ed elstu \u00fe\u00fdskum d\u00e6mum um m\u00e1lsh\u00e1ttinn er \u00ed vi\u00f0b\u00f3t vi\u00f0 e\u00f0a \u00ed sta\u00f0inn fyrir <em>Gold <\/em>oft haft <em>Arbeit<\/em>,<em> Brot <\/em>e\u00f0a <em>Gott<\/em>. Ekki vir\u00f0ist \u00f3l\u00edklegt a\u00f0 <em>Mund <\/em>hafi upphaflega komi\u00f0 inn \u00ed m\u00e1lsh\u00e1ttinn r\u00edmsins vegna.<\/p>\n<p>Elsta \u00edslenska <a href=\"https:\/\/ritmalssafn.arnastofnun.is\/daemi\/333432?daemi=1043067\">d\u00e6mi\u00f0<\/a> um m\u00e1lsh\u00e1ttinn er \u00ed <em>D\u00e6grastyttingu <\/em>eftir Stein J\u00f3nsson H\u00f3labiskup fr\u00e1 1727: \u201eMorgunstund hefur gull \u00ed mund segjum v\u00e9r \u00ed almennu m\u00e1lt\u00e6ki.\u201c \u00dearna, og \u00e6 s\u00ed\u00f0an, er notu\u00f0 myndin <em>mund <\/em>eins og \u00ed d\u00f6nsku og \u00fe\u00fdsku, enda \u00fe\u00f3tt h\u00fan hafi aldrei geta\u00f0 merkt 'munnur' \u00ed \u00edslensku. En ef myndin <em>munn <\/em>hef\u00f0i veri\u00f0 notu\u00f0 hef\u00f0i r\u00edmi\u00f0 fari\u00f0 forg\u00f6r\u00f0um og m\u00e1lsh\u00e1tturinn or\u00f0i\u00f0 mun svipminni. Hugsanlegt er a\u00f0 \u00feegar m\u00e1lsh\u00e1tturinn var tekinn inn \u00ed \u00edslensku hafi <em>mund <\/em>\u00ed raun veri\u00f0 endurt\u00falka\u00f0 til a\u00f0 halda r\u00edminu og skili\u00f0 sem 'h\u00f6nd' sem er merkingarlega e\u00f0lilegt \u2013 l\u00e6r\u00f0ir menn hafa \u00feekkt \u00fe\u00e1 merkingu \u00far sk\u00e1ldam\u00e1li \u00fe\u00f3tt or\u00f0i\u00f0 v\u00e6ri aldrei nota\u00f0 \u00ed almennu m\u00e1li. En upphaflega merkingin \u00ed <em>mund<\/em> vir\u00f0ist sem s\u00e9 vera 'munnur' en hvorki 'h\u00f6nd' n\u00e9 't\u00edmi'.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd morgun kom \u00ed \u201eM\u00e1lspjalli\u201c forvitnileg spurning um or\u00f0asambandi\u00f0 Morgunstund gefur gull \u00ed mund sem er sk\u00fdrt 'morgunstund f\u00e6rir au\u00f0\/fars\u00e6ld \u00ed h\u00f6nd' \u00ed Merg m\u00e1lsins eftir J\u00f3n G. Fri\u00f0j\u00f3nsson, enda getur or\u00f0i\u00f0 mund \u00fe\u00fdtt 'h\u00f6nd', eins og \u00ed samsetningunni mundlaug. Fyrirspyrjandi sag\u00f0ist alltaf hafa skili\u00f0 sambandi\u00f0 \u00e1 \u00feennan veg \u2013 \u201ea\u00f0 vi\u00f0 f\u00e1um gull \u00ed [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-8334","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8334","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=8334"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8334\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":8335,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8334\/revisions\/8335"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=8334"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=8334"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=8334"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}