{"id":8338,"date":"2026-10-02T11:52:12","date_gmt":"2026-10-02T11:52:12","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=8338"},"modified":"2026-10-02T11:52:12","modified_gmt":"2026-10-02T11:52:12","slug":"oskiljanlegur-reglugerdartexti","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2026\/10\/02\/oskiljanlegur-reglugerdartexti\/","title":{"rendered":"\u00d3skiljanlegur regluger\u00f0artexti"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd <a href=\"https:\/\/www.reglugerd.is\/reglugerdir\/eftir-raduneytum\/ivr\/nr\/25007\">breytingu \u00e1 regluger\u00f0<\/a> um \u00f6kusk\u00edrteini s\u00ed\u00f0an \u00ed sumar segir a\u00f0 eftirfarandi b\u00e6tist vi\u00f0 5. t\u00f6luli\u00f0 6. greinar: \u201ec. \u00f6kut\u00e6ki sem eru kn\u00fain \u00f3hef\u00f0bundnu eldsneyti, sem um getur \u00ed 2. gr. tilskipunar r\u00e1\u00f0sins 96\/53\/EB, me\u00f0 leyfilegan h\u00e1marksmassa yfir 3.500 kg en sem fer ekki yfir 4.250 kg vi\u00f0 flutning \u00e1 v\u00f6rum \u00e1n eftirvagns, \u00fear sem aksturinn er \u00ed h\u00f6ndum handhafa \u00f6kusk\u00edrteinis \u00ed flokki B sem var gefi\u00f0 \u00fat a.m.k. tveimur \u00e1rum \u00e1\u00f0ur, a\u00f0 \u00fev\u00ed tilskildu a\u00f0 massinn sem fer yfir 3.500 kg s\u00e9 eing\u00f6ngu vegna umframmassa kn\u00faningskerfisins \u00ed tengslum vi\u00f0 kn\u00faningskerfi \u00f6kut\u00e6kis me\u00f0 s\u00f6mu m\u00e1l sem b\u00fai\u00f0 er hef\u00f0bundnum brunahreyfli me\u00f0 rafkveikju e\u00f0a \u00fej\u00f6ppukveikju, og a\u00f0 \u00fev\u00ed tilskildu a\u00f0 flutningsgetan hafi ekki aukist \u00ed tengslum vi\u00f0 sama \u00f6kut\u00e6ki.\u201c<\/p>\n<p>G\u00e1tu\u00f0 \u00fei\u00f0 lesi\u00f0 \u00feetta \u00e1n \u00feess a\u00f0 draga andann? \u00deetta er sem s\u00e9 ein m\u00e1lsgrein, hundra\u00f0 or\u00f0. \u00c9g setti \u00feetta a\u00f0 gamni inn \u00ed s\u00e6nsku <em><a href=\"https:\/\/www.lix.se\/\">lix-form\u00faluna<\/a><\/em> sem stundum er notu\u00f0 til a\u00f0 reikna l\u00e6sileika texta (\u00fat fr\u00e1 fj\u00f6lda m\u00e1lsgreina, fj\u00f6lda or\u00f0a og fj\u00f6lda or\u00f0a lengri en sex b\u00f3kstafir) \u2013 \u00fe\u00f3tt h\u00fan s\u00e9 vissulega hvorki fullkomin n\u00e9 \u00f3umdeild gefur h\u00fan \u00e1kve\u00f0nar v\u00edsbendingar. Samkv\u00e6mt henni er e\u00f0ileg <em>lix<\/em>-tala barnab\u00f3ka undir 30, au\u00f0lesinn texti og fagurb\u00f3kmenntir eru milli 30 og 40, mi\u00f0lungs\u00feungur texti svo sem bla\u00f0atexti milli 40 og 50, \u00feungur texti, d\u00e6miger\u00f0ur fyrir stj\u00f3rns\u00fdslutexta, er milli 50 og 60, og mj\u00f6g \u00feungur texti (\u201ebyr\u00e5kratsvenska\u201c) er yfir 60. En \u00feessi regluger\u00f0artexti sprengdi skalann og f\u00e9kk <em>lix<\/em>-t\u00f6luna 133! \u2013 langh\u00e6stu <em>lix-<\/em>t\u00f6lu sem \u00e9g hef s\u00e9\u00f0.<\/p>\n<p>Fyrir utan \u00feetta eru \u00fearna sjaldg\u00e6f or\u00f0 sem \u00f3l\u00edklegt er a\u00f0 almenningur \u00feekki, svo sem <em>\u00fej\u00f6ppukveikja<\/em> og<em> kn\u00faningskerfi<\/em>. Eftir a\u00f0 hafa lesi\u00f0 \u00feetta margoft held \u00e9g helst a\u00f0 \u00feetta merki eitthva\u00f0 \u00ed \u00fe\u00e1 \u00e1tt a\u00f0 \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 \u00f6kur\u00e9ttindi \u00ed B-flokki mi\u00f0ist almennt vi\u00f0 b\u00edla sem eru 3.500 k\u00edl\u00f3 e\u00f0a l\u00e9ttari \u00fe\u00e1 megi \u00feau sem hafa \u00feessi r\u00e9ttindi keyra rafb\u00edl sem er allt a\u00f0 4.250 k\u00edl\u00f3 ef \u00feyngdin umfram 3.500 k\u00edl\u00f3 stafar eing\u00f6ngu af \u00feyngd rafhl\u00f6\u00f0unnar og b\u00fana\u00f0ar kringum hana. \u00dea\u00f0 er reyndar s\u00e9rkennilegt a\u00f0 tala um rafmagn sem \u201e\u00f3hef\u00f0bundi\u00f0 eldsneyti\u201c \u2013 ef \u00fea\u00f0 er merkingin, sem \u00e9g er svo sem ekki alveg viss um. Fyrir utan \u00f3skiljanleika textans er regluger\u00f0in l\u00edka g\u00f6llu\u00f0 vegna \u00feess a\u00f0 \u00e1 undan textanum \u00feyrfti a\u00f0 standa \u201eR\u00e9ttindi til a\u00f0 stj\u00f3rna\u201c.<\/p>\n<p>\u00c9g s\u00e1 \u00feennan texta \u00e1 Facebook hj\u00e1 \u00f6kukennara sem benti \u00e1 a\u00f0 \u00e6tlast v\u00e6ri til a\u00f0 \u00f6kunemum v\u00e6ri kennt \u00feetta og \u00feeim er sannarlega vorkunn a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 l\u00e6ra \u00feetta \u2013 og skilja. \u00c9g hef fullan skilning \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 or\u00f0alag regluger\u00f0a af \u00feessu tagi \u00feurfi a\u00f0 vera n\u00e1kv\u00e6mt og \u00f3tv\u00edr\u00e6tt og ver\u00f0i \u00feess vegna stundum tyrfi\u00f0, en n\u00e1kv\u00e6mnin m\u00e1 ekki ver\u00f0a til \u00feess a\u00f0 textinn ver\u00f0i \u00fev\u00ed sem n\u00e6st \u00f3skiljanlegur eins og \u00ed \u00feessu tilviki \u2013 \u00fe\u00e1 er h\u00fan farin a\u00f0 vinna gegn tilgangi s\u00ednum. \u00deessi texti er vitanlega algerlega \u00f3bo\u00f0legur \u00ed regluger\u00f0 sem var\u00f0ar allan almenning og er sk\u00fdrt brot \u00e1 <a href=\"https:\/\/www.althingi.is\/lagas\/nuna\/2011061.html\">l\u00f6gum<\/a> um \u00edslenska tungu \u00fear sem segir: \u201eM\u00e1l \u00fea\u00f0 sem er nota\u00f0 \u00ed starfsemi r\u00edkis og sveitarf\u00e9laga e\u00f0a \u00e1 vegum \u00feeirra skal vera vanda\u00f0, einfalt og sk\u00fdrt.\u201c \u00dea\u00f0 hl\u00fdtur a\u00f0 vera h\u00e6gt a\u00f0 gera betur en \u00feetta.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd breytingu \u00e1 regluger\u00f0 um \u00f6kusk\u00edrteini s\u00ed\u00f0an \u00ed sumar segir a\u00f0 eftirfarandi b\u00e6tist vi\u00f0 5. t\u00f6luli\u00f0 6. greinar: \u201ec. \u00f6kut\u00e6ki sem eru kn\u00fain \u00f3hef\u00f0bundnu eldsneyti, sem um getur \u00ed 2. gr. tilskipunar r\u00e1\u00f0sins 96\/53\/EB, me\u00f0 leyfilegan h\u00e1marksmassa yfir 3.500 kg en sem fer ekki yfir 4.250 kg vi\u00f0 flutning \u00e1 v\u00f6rum \u00e1n eftirvagns, \u00fear sem [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-8338","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8338","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=8338"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8338\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":8339,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8338\/revisions\/8339"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=8338"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=8338"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=8338"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}