{"id":8346,"date":"2026-10-14T16:54:33","date_gmt":"2026-10-14T16:54:33","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=8346"},"modified":"2026-10-14T16:54:33","modified_gmt":"2026-10-14T16:54:33","slug":"stjorar-styrur-og-styri","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2026\/10\/14\/stjorar-styrur-og-styri\/","title":{"rendered":"Stj\u00f3rar, st\u00fdrur og st\u00fdri"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd <em>mbl.is <\/em>\u00ed dag er \u00e1hugaver\u00f0 <a href=\"https:\/\/www.mbl.is\/frettir\/innlent\/2026\/10\/14\/styrid_fjarlaegt_vegna_afstodu_hinsegin_folks\/\">fr\u00e9tt<\/a> um or\u00f0anotkun \u00ed starfsaugl\u00fdsingu Veitna. \u00dear var fyrst augl\u00fdst eftir \u201esamskiptast\u00fdru<em><strong>\/-<\/strong><\/em>stj\u00f3ra<em><strong>\/-<\/strong><\/em><em>st\u00fdri<\/em>\u201c eins og fyrirt\u00e6ki\u00f0 sag\u00f0ist \u00e1\u00f0ur hafa gert \u00ed starfsaugl\u00fdsingum s\u00ednum. En eftir a\u00f0 hafa fengi\u00f0 \u00e1lit fr\u00e1 kv\u00e1ri og trans manni sem taldi a\u00f0 \u201e[e]kki v\u00e6ri eftirspurn eftir sl\u00edku innan hinsegin samf\u00e9lagsins og \u00fev\u00ed ekki \u00fe\u00f6rf \u00e1 a\u00f0 breyta titli eftir kyni, heldur v\u00e6ri n\u00f3g a\u00f0 nota a\u00f0eins or\u00f0i\u00f0 stj\u00f3ri\u201c var \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 taka <em>-st\u00fdri <\/em>\u00fat. Um \u00feetta voru \u00fe\u00f3 skiptar sko\u00f0anir og annar \u00e1litsgjafi sem leita\u00f0 var til vildi \u201emeina a\u00f0 komin v\u00e6ri hef\u00f0 fyrir svok\u00f6llu\u00f0u kynhlutlausu m\u00e1li \u00ed starfsaugl\u00fdsingum\u201c, en ni\u00f0ursta\u00f0an var s\u00fa a\u00f0 augl\u00fdsingunni var ekki breytt \u00ed anna\u00f0 sinn og \u00ed lokager\u00f0 hennar <a href=\"https:\/\/alfred.is\/en\/starf\/samskiptastyra-stjori-styri-veitna\">stendur<\/a> \u00fev\u00ed \u201eVeitur leita a\u00f0 samskiptast\u00fdru\/-stj\u00f3ra\u201c.<\/p>\n<p>\u00deessi vandr\u00e6\u00f0agangur me\u00f0 augl\u00fdsinguna s\u00fdnir \u00ed hnotskurn \u00feann vanda sem kynjahalli \u00edslenskra starfsheita getur skapa\u00f0 \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi \u00fear sem hvers kyns mismunun kynjanna er litin hornauga. Langflest \u00edslensk starfsheiti eru karlkyns og fyrir \u00fev\u00ed eru v\u00e6ntanlega tv\u00e6r samverkandi \u00e1st\u00e6\u00f0ur. Annars vegar voru \u00fea\u00f0 framan af einkum e\u00f0a eing\u00f6ngu karlmenn sem gegndu fj\u00f6lm\u00f6rgum st\u00f6rfum og e\u00f0lilegt a\u00f0 starfsheitin t\u00e6kju mi\u00f0 af \u00fev\u00ed og v\u00e6ru karlkyns, en hins vegar er m\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilegt karlkyn fr\u00e1 fornu fari og af s\u00f6gulegum \u00e1st\u00e6\u00f0um \u201ehlutlaust\u201c kyn, nota\u00f0 \u00ed almennri v\u00edsun. M\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilegt karlkyn nafnor\u00f0s er \u00fev\u00ed \u00ed raun formsatri\u00f0i sem hefur fr\u00e1 m\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilegu sj\u00f3narmi\u00f0i enga tengingu vi\u00f0 kyn \u00feess f\u00f3lks sem or\u00f0i\u00f0 er nota\u00f0 um.<\/p>\n<p>En \u00fea\u00f0 breytir \u00fev\u00ed ekki a\u00f0 \u00ed huga margra m\u00e1lnotenda eru tengsl \u00fearna \u00e1 milli, sem koma m.a. fram \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 m\u00f6rgum finnst \u00f3e\u00f0lilegt e\u00f0a ankannanlegt a\u00f0 nota karlkynsor\u00f0 \u00ed v\u00edsun til konu e\u00f0a kv\u00e1rs. Vissulega er deilt um r\u00f3t \u00feessarar tilfinningar \u2013 hvort um s\u00e9 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a raunverulega tilfinningu sem eigi s\u00e9r r\u00e6tur \u00ed m\u00e1lkennd f\u00f3lks, e\u00f0a hvort r\u00e6turnar s\u00e9u kynjap\u00f3lit\u00edskar en komi m\u00e1lkennd ekki vi\u00f0. Um \u00feetta er \u00fatiloka\u00f0 a\u00f0 fullyr\u00f0a nokku\u00f0 \u00e1n ranns\u00f3kna sem ekki liggja fyrir, en \u00e9g er samt viss um a\u00f0 \u00ed a.m.k. sumum tilvikum er \u00feetta raunveruleg og einl\u00e6g tilfinning sem er hluti af m\u00e1lkennd f\u00f3lks. \u00deessi tilfinning, hverjar sem r\u00e6tur hennar kunna a\u00f0 vera, hefur leitt til \u00feess a\u00f0 \u00fdmsar tilraunir hafa veri\u00f0 ger\u00f0ar til a\u00f0 draga \u00far karll\u00e6gni starfsheita.<\/p>\n<p>Helsta a\u00f0fer\u00f0in sem notu\u00f0 hefur veri\u00f0 til \u00feess er s\u00fa a\u00f0 breyta seinni li\u00f0 or\u00f0anna \u2013 setja t.d. <em>-kona <\/em>\u00ed sta\u00f0 <em>-ma\u00f0ur <\/em>(<em>\u00feingkona<\/em>, <em>knattspyrnukona<\/em>, <em>stj\u00f3rnarkona<\/em>), <em>-st\u00fdra <\/em>\u00ed sta\u00f0 <em>-stj\u00f3ri<\/em> (<em>framkv\u00e6mdast\u00fdra<\/em>, <em>samskiptast\u00fdra<\/em>) o.s.frv. \u00deetta er \u00fe\u00f3 \u00fdmsum vandkv\u00e6\u00f0um bundi\u00f0 \u2013 ekki er alltaf h\u00e6gt a\u00f0 finna kvenkyns samsvaranir vi\u00f0 karlkyns seinni li\u00f0 starfsheita. Mj\u00f6g m\u00f6rg starfsheiti enda t.d. \u00e1 vi\u00f0skeytum eins og <em>-andi<\/em>,<em> -ari<\/em>, <em>-ingur<\/em> e\u00f0a -<em>u\u00f0ur <\/em>og \u00fe\u00f3tt \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r v\u00e6ri au\u00f0velt a\u00f0 gefa \u00feeim kvenkynsendingu og breyta \u00feeim \u00ed <em>-anda<\/em>, <em>-ara<\/em>,<em> -inga <\/em>og <em>-u\u00f0a <\/em>vir\u00f0ist \u00fea\u00f0 ekki hafa veri\u00f0 gert \u2013 or\u00f0 eins og *<em>stj\u00f3rnanda<\/em>, *<em>i\u00f0nrekanda<\/em>, *<em>kennara<\/em>, *<em>h\u00e1rgrei\u00f0slumeistara<\/em>, *<em>hj\u00fakrunarfr\u00e6\u00f0inga<\/em>, *<em>verkfr\u00e6\u00f0inga<\/em>, *<em>h\u00f6nnu\u00f0a <\/em>o.s.frv. hlj\u00f3ma mj\u00f6g \u00f3e\u00f0lilega og eru fr\u00e1leit.<\/p>\n<p>En eigi einnig a\u00f0 taka tillit til \u00feeirra sem skilgreina sig utan kynjatv\u00edhyggjunnar dugir ekki a\u00f0 b\u00faa til kvenkynsmynd starfsheitanna \u2013 \u00fea\u00f0 \u00fearf einnig a\u00f0 hafa hvorugkynsmynd og myndin <em>-st\u00fdri <\/em>\u00ed umr\u00e6ddri augl\u00fdsingu hefur \u00e1tt a\u00f0 \u00fej\u00f3na \u00feeim tilgangi. \u00dea\u00f0 er \u00fe\u00f3 oft mun erfi\u00f0ara a\u00f0 b\u00faa til hvorugkynsmyndir starfsheita en kvenkynsmyndir, m.a. vegna \u00feess a\u00f0 hvorugkyni\u00f0 \u00e1 s\u00e9r enga endingu sem einkenni \u00fea\u00f0 (eins og <em>-ur <\/em>og <em>-i<\/em> eru d\u00e6miger\u00f0ar karlkynsendingar og <em>-a<\/em> d\u00e6miger\u00f0 kvenkynsending). Og \u00fe\u00f3tt kvenkynsor\u00f0i\u00f0 <em>st\u00fdra <\/em>s\u00e9 e\u00f0lileg samsv\u00f6run vi\u00f0 <em>stj\u00f3ri <\/em>gegnir \u00f6\u00f0ru m\u00e1li um hvorugkynsor\u00f0i\u00f0 <em>st\u00fdri <\/em>vegna \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 or\u00f0 \u00e1 s\u00e9r langa hef\u00f0 \u00ed m\u00e1linu um hlut, og \u00fea\u00f0 er almennt ekki heppilegt a\u00f0 taka or\u00f0 um hluti og fara a\u00f0 nota \u00feau um f\u00f3lk.<\/p>\n<p>\u00dear a\u00f0 auki held \u00e9g a\u00f0 kyngreind starfsheiti s\u00e9u ekki \u00e6skileg og geti raunar unni\u00f0 gegn markmi\u00f0i s\u00ednu vegna \u00feess a\u00f0 \u00feau bj\u00f3\u00f0a heim \u00feeirri hugmynd e\u00f0a tilfinningu e\u00f0a \u00fer\u00f3un a\u00f0 verksvi\u00f0 \u2013 e\u00f0a valdsvi\u00f0 \u2013 starfa s\u00e9 e\u00f0a ver\u00f0i mismunandi eftir kyni \u00feeirra sem gegna \u00feeim. Er <em>framkv\u00e6mdast\u00fdra <\/em>valdaminni e\u00f0a teki\u00f0 minna mark \u00e1 henni en <em>framkv\u00e6mdastj\u00f3ra<\/em>? Er <em>\u00feingkona <\/em>\u00e1hrifaminni en <em>\u00feingma\u00f0ur<\/em>? O.s.frv. \u00c9g veit \u00feetta ekki, en finnst \u00fea\u00f0 ekki \u00fatiloka\u00f0. \u00de\u00f3tt \u00e9g skilji vel og sty\u00f0ji af heilum hug hugmyndina \u00e1 bak vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 draga \u00far kynjahalla \u00edslenskra starfsheita held \u00e9g sem sagt a\u00f0 me\u00f0an ekki finnast g\u00f3\u00f0 hvorugkyns starfsheiti \u00ed sta\u00f0 hef\u00f0bundinna karlkyns starfsheita s\u00e9 sk\u00e1st a\u00f0 halda sig vi\u00f0 \u00feau hef\u00f0bundnu.<\/p>\n<p>En \u00fe\u00e1 skiptir m\u00e1li a\u00f0 vi\u00f0 s\u00e9um me\u00f0vitu\u00f0 um a\u00f0 kyn starfsheitisins getur haft \u00f3me\u00f0vitu\u00f0 \u00e1hrif \u00e1 vi\u00f0horf f\u00f3lks til starfsins og e\u00f0lis \u00feess. Um \u00feetta hef \u00e9g skrifa\u00f0 fj\u00f6lda pistla og hef t.d. <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2024\/09\/23\/eru-danir-karlkyns\/\">s\u00fdnt<\/a> fram \u00e1 a\u00f0 f\u00f3lk notar \u00fej\u00f3\u00f0aheiti \u2013 sem \u00f6ll eru karlkyns \u2013 miklu s\u00ed\u00f0ur um konur en karla. \u00deegar r\u00e6tt er um konur er frekar nota\u00f0 l\u00fdsingaror\u00f0 og nafnor\u00f0, t.d. <em>danska konan Pernille<\/em>, en \u00fej\u00f3\u00f0aheiti\u00f0, <em>Daninn Pernille<\/em>. \u00c9g hef l\u00edka <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2025\/01\/08\/hvers-kyns-er-okumadur\/\">s\u00fdnt<\/a> a\u00f0 sj\u00e1lfgefinn skilningur \u00e1 starfsheitum sem enda \u00e1 <em>-ma\u00f0ur<\/em>, eins og <em>\u00f6kuma\u00f0ur<\/em>, vir\u00f0ist oft s\u00e1 a\u00f0 \u00feau v\u00edsi til karlmanna. Vi\u00f0 breytum \u00fej\u00f3\u00f0aheitum e\u00f0a starfsheitum ekki svo glatt, og m\u00e9r dettur ekki \u00ed hug a\u00f0 tala fyrir \u00fev\u00ed. En m\u00e9r finnst samt mikilv\u00e6gt a\u00f0 vi\u00f0 \u00e1ttum okkur \u00e1 \u00feessu og h\u00f6fum \u00fea\u00f0 \u00ed huga.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd mbl.is \u00ed dag er \u00e1hugaver\u00f0 fr\u00e9tt um or\u00f0anotkun \u00ed starfsaugl\u00fdsingu Veitna. \u00dear var fyrst augl\u00fdst eftir \u201esamskiptast\u00fdru\/-stj\u00f3ra\/-st\u00fdri\u201c eins og fyrirt\u00e6ki\u00f0 sag\u00f0ist \u00e1\u00f0ur hafa gert \u00ed starfsaugl\u00fdsingum s\u00ednum. En eftir a\u00f0 hafa fengi\u00f0 \u00e1lit fr\u00e1 kv\u00e1ri og trans manni sem taldi a\u00f0 \u201e[e]kki v\u00e6ri eftirspurn eftir sl\u00edku innan hinsegin samf\u00e9lagsins og \u00fev\u00ed ekki \u00fe\u00f6rf \u00e1 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-8346","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8346","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=8346"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8346\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":8347,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8346\/revisions\/8347"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=8346"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=8346"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=8346"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}