{"id":8390,"date":"2026-11-17T16:00:37","date_gmt":"2026-11-17T16:00:37","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=8390"},"modified":"2026-11-24T20:39:12","modified_gmt":"2026-11-24T20:39:12","slug":"ur-gammelnorsk-yfir-i-kynlaust-tungumal","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2026\/11\/17\/ur-gammelnorsk-yfir-i-kynlaust-tungumal\/","title":{"rendered":"\u00dar gammelnorsk yfir \u00ed kynlaust tungum\u00e1l?"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd <a href=\"https:\/\/www.visir.is\/g\/20262963655d\/-blanda-inn-ein-hverju-kyn-lausu-tungu-mali-\">vi\u00f0tali<\/a> vi\u00f0 mennta- og barnam\u00e1lar\u00e1\u00f0herra \u00e1 <em>Bylgjunni <\/em>\u00ed g\u00e6r sag\u00f0ist h\u00fan vilja a\u00f0 vi\u00f0 h\u00e9ldum okkur \u201evi\u00f0 okkar \u00edslensku \u2013 ja bara \u00fe\u00e1 sem vi\u00f0 h\u00f6fum tala\u00f0 alveg s\u00ed\u00f0an vi\u00f0 h\u00e6ttum a\u00f0 tala gamle norsk\u201c. \u00deetta or\u00f0alag l\u00fdsir alvarlegum misskilningi e\u00f0a van\u00feekkingu. \u00cd fyrsta lagi er ekki tala\u00f0 um <em>gamle norsk <\/em>heldur <em>gammelnorsk<\/em> \/ <em>gamalnorsk<\/em>, en l\u00e1tum \u00fea\u00f0 vera. \u00cd \u00f6\u00f0ru lagi er h\u00e6pi\u00f0 a\u00f0 halda \u00fev\u00ed fram a\u00f0 \u00cdslendingar hafi nokkru sinni tala\u00f0 <em>gammelnorsk<\/em> \u2013 vissulega hefur m\u00e1li\u00f0 sem var tala\u00f0 \u00e1 \u00cdslandi \u00e1 fyrstu \u00f6ldum \u00cdslandsbygg\u00f0ar v\u00e6ntanlega veri\u00f0 mj\u00f6g svipa\u00f0 \u00fev\u00ed sem var tala\u00f0 \u00ed Noregi, en \u00fea\u00f0 er engin s\u00e9rst\u00f6k \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 kalla \u00fea\u00f0 <em>gammelnorsk<\/em>. Venjulega er fremur tala\u00f0 um sameiginlegt m\u00e1l Noregs, F\u00e6reyja og \u00cdslands sem <em>norr\u00f8nt<\/em>, e\u00f0a <em>norr\u00e6nu<\/em>.<\/p>\n<p>Sm\u00e1tt og sm\u00e1tt fer svo a\u00f0 koma fram \u00fdmiss konar munur \u00e1 m\u00e1linu \u00e1 \u00cdslandi og \u00ed Noregi, og eftir 1200 er h\u00e6gt a\u00f0 fara a\u00f0 tala um tv\u00f6 mismunandi tungum\u00e1l, <em>forn\u00edslensku <\/em>og <em>fornnorsku<\/em>, \u00fe\u00f3tt l\u00edkindin v\u00e6ru vissulega mikil framan af, en munurinn eykst verulega \u00e1 fj\u00f3rt\u00e1ndu \u00f6ld. En jafnvel \u00fe\u00f3tt vi\u00f0 vildum kalla m\u00e1li\u00f0 sem tala\u00f0 var \u00e1 \u00cdslandi fyrstu aldirnar (<em>gammel<\/em>)<em>norsk <\/em>v\u00e6ri ekki h\u00e6gt a\u00f0 segja \u201evi\u00f0 h\u00e6ttum a\u00f0 tala gamle norsk\u201c. Vi\u00f0 h\u00f6fum nefnilega aldrei h\u00e6tt a\u00f0 tala \u00feetta m\u00e1l \u2013 \u00fer\u00f3unin fr\u00e1 \u00fev\u00ed m\u00e1li sem h\u00e9r var tala\u00f0 fyrstu aldir \u00cdslandsbygg\u00f0ar og allt til n\u00fat\u00edma \u00edslensku er samfelld og \u00f3slitin og aldrei nein sk\u00f6rp skil sem geri e\u00f0lilegt a\u00f0 segja a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0in hafi skipt um tungum\u00e1l og \u00edslenska hafi teki\u00f0 vi\u00f0 af <em>gammelnorsk<\/em> \u2013 e\u00f0a <em>norr\u00e6nu<\/em>.<\/p>\n<p>En \u00fe\u00f3tt vi\u00f0 g\u00e6fum okkur a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0in hef\u00f0i \u00ed raun skipt um tungum\u00e1l er \u00fea\u00f0 ekki heldur r\u00e9tt sem vir\u00f0ist eiga a\u00f0 lesa \u00far or\u00f0um r\u00e1\u00f0herrans a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fum tala\u00f0 s\u00f6mu \u00edslenskuna \u201ealveg s\u00ed\u00f0an vi\u00f0 h\u00e6ttum a\u00f0 tala gamle norsk\u201c. \u00de\u00f3tt aldei hafi or\u00f0i\u00f0 rof \u00ed m\u00e1l\u00fer\u00f3uninni er vitanlega margs konar munur \u00e1 forn\u00edslensku og n\u00fat\u00edmam\u00e1li \u2013 \u00ed frambur\u00f0i, or\u00f0afor\u00f0a, beygingum, setningager\u00f0, merkingu, or\u00f0avali, m\u00e1lnotkun o.s.frv. \u00cdslenskan hefur alltaf veri\u00f0 a\u00f0 breytast, b\u00e6\u00f0i af innri og ytri ors\u00f6kum, og \u00feess vegna t\u00f6lum vi\u00f0 ekki s\u00f6mu \u00edslenskuna og t\u00f6lu\u00f0 var fyrir \u00fe\u00fasund \u00e1rum \u2013 og ekki einu sinni s\u00f6mu \u00edslenskuna og foreldrar okkar, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 afar og \u00f6mmur. En h\u00fan er samt \u00e1fram \u00edslenska \u2013 og ver\u00f0ur \u00fea\u00f0 \u00fer\u00e1tt fyrir breytingar nema \u00fej\u00f3\u00f0in h\u00e6tti a\u00f0 nota hana.<\/p>\n<p>\u00c1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 r\u00e1\u00f0herrann s\u00e1 \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 hnykkja \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00f3lk \u00e6tti a\u00f0 \u201ehalda sig vi\u00f0 okkar \u00edslensku\u201c var a\u00f0 h\u00fan er \u00f3s\u00e1tt me\u00f0 a\u00f0 n\u00fa s\u00e9 \u201eb\u00fai\u00f0 a\u00f0 vera a\u00f0 blanda inn einhverju kynlausu tungum\u00e1li og gera tv\u00f6 kyn \u00far tungum\u00e1linu okkar\u201c eins og h\u00fan sag\u00f0i. \u00deetta er a\u00f0 v\u00edsu \u00f3skiljanlegt ef \u00fea\u00f0 er teki\u00f0 b\u00f3kstaflega, \u00fev\u00ed a\u00f0 vitanlega hefur \u00edslenska \u00ferj\u00fa m\u00e1lfr\u00e6\u00f0ileg kyn, en gera m\u00e1 \u00fev\u00ed sk\u00f3na a\u00f0 r\u00e1\u00f0herrann hafi \u00fearna veri\u00f0 a\u00f0 v\u00edsa til tilrauna me\u00f0 a\u00f0 draga \u00far karll\u00e6gni m\u00e1lsins, ekki s\u00edst me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 minnka notkun karlkynsor\u00f0a \u00ed v\u00edsun til f\u00f3lks (<em>starfsf\u00f3lk <\/em>\u00ed sta\u00f0 <em>starfsmenn<\/em>, <em>framkv\u00e6mdast\u00fdra <\/em>um konu \u00ed sta\u00f0 <em>framkv\u00e6mdastj\u00f3ri<\/em>) og me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 nota hvorugkyn fornafna og t\u00f6luor\u00f0a \u00ed sta\u00f0 karlkyns \u00ed almennri v\u00edsun (<em>\u00f6ll velkomin <\/em>\u00ed sta\u00f0 <em>allir velkomnir<\/em>).<\/p>\n<p>Vissulega eru skiptar sko\u00f0anir um \u00feessar breytingar, en \u00fea\u00f0 er fr\u00e1leitt a\u00f0 tengja \u00fe\u00e6r \u201ekynlausu tungum\u00e1li\u201c \u2013 hvorugkyn er au\u00f0vita\u00f0 m\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilegt kyn ekki s\u00ed\u00f0ur en karlkyn og kvenkyn. Af \u00fev\u00ed a\u00f0 r\u00e1\u00f0herrann tala\u00f0i um \u201eokkar \u00edslensku\u201c er r\u00e9tt a\u00f0 minna \u00e1 a\u00f0 \u00e1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00feessum tilraunum er einmitt s\u00fa a\u00f0 \u00fdmsum finnst hef\u00f0bundin notkun karlkyns \u00ed kynhlutlausri merkingu ekki h\u00f6f\u00f0a til s\u00edn \u2013 segja \u201e\u00feetta er ekki okkar \u00edslenska\u201c. H\u00e9r m\u00e1 einnig minna \u00e1 a\u00f0 \u00e1 degi \u00edslenskrar tungu \u00ed fyrra fengu Samt\u00f6kin \u00b478 <a href=\"https:\/\/samtokin78.is\/i-ordum-felst-nand-og-i-tungumalinu-liggur-styrkur-samtokin-78-verdlaunud-fyrir-framlag-til-islenskrar-tungu\/\">vi\u00f0urkenningu<\/a> fyrir stu\u00f0ning vi\u00f0 \u00edslenska tungu og bar\u00e1ttu fyrir tilverur\u00e9tti innan tungum\u00e1lsins. \u00dea\u00f0 ver\u00f0ur a\u00f0 \u00e6tlast til \u00feess a\u00f0 mennta- og barnam\u00e1lar\u00e1\u00f0herra tali af meiri \u00feekkingu um \u00edslenska tungu og s\u00fdni st\u00f6\u00f0u vi\u00f0kv\u00e6mra h\u00f3pa innan hennar meiri skilning en fram kom \u00ed \u00e1\u00f0urnefndu vi\u00f0tali.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd vi\u00f0tali vi\u00f0 mennta- og barnam\u00e1lar\u00e1\u00f0herra \u00e1 Bylgjunni \u00ed g\u00e6r sag\u00f0ist h\u00fan vilja a\u00f0 vi\u00f0 h\u00e9ldum okkur \u201evi\u00f0 okkar \u00edslensku \u2013 ja bara \u00fe\u00e1 sem vi\u00f0 h\u00f6fum tala\u00f0 alveg s\u00ed\u00f0an vi\u00f0 h\u00e6ttum a\u00f0 tala gamle norsk\u201c. \u00deetta or\u00f0alag l\u00fdsir alvarlegum misskilningi e\u00f0a van\u00feekkingu. \u00cd fyrsta lagi er ekki tala\u00f0 um gamle norsk heldur gammelnorsk \/ [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-8390","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8390","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=8390"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8390\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":8391,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8390\/revisions\/8391"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=8390"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=8390"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=8390"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}