{"id":8396,"date":"2026-11-20T12:00:26","date_gmt":"2026-11-20T12:00:26","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=8396"},"modified":"2026-11-24T20:45:16","modified_gmt":"2026-11-24T20:45:16","slug":"jafnfaett-folk-og-jafnhent","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2026\/11\/20\/jafnfaett-folk-og-jafnhent\/","title":{"rendered":"Jafnf\u00e6tt f\u00f3lk \u2013 og jafnhent"},"content":{"rendered":"<p>\u00c9g rakst \u00e1 umfj\u00f6llun um unga knattspyrnukonu \u00fear sem sag\u00f0i \u201eL\u00edsa er jafnf\u00e6tt og spilar \u00e1 mi\u00f0junni\u201c. \u00c9g kanna\u00f0ist ekki vi\u00f0 l\u00fdsingaror\u00f0i\u00f0 <em>jafnf\u00e6ttur <\/em>en \u00fe\u00f3ttist \u00fe\u00f3 skilja merkinguna og f\u00e9kk sta\u00f0festingu \u00e1 m\u00ednum skilningi \u00ed <em>\u00cdslenskri or\u00f0ab\u00f3k <\/em>\u2013 'sem er jafnv\u00edgur \u00e1 b\u00e1\u00f0a f\u00e6tur, hvorki r\u00e9tt- n\u00e9 \u00f6rvf\u00e6ttur'. En \u00feetta er reyndar ekki fyrsta sk\u00fdring or\u00f0sins \u00fearna \u2013 h\u00fan er 'sem er me\u00f0 jafnlanga f\u00e6tur' sem m\u00e9r fannst auglj\u00f3st a\u00f0 ekki \u00e6tti vi\u00f0 \u00ed \u00feessu tilviki. \u00deetta mun \u00fe\u00f3 vera eldri merking or\u00f0sins \u2013 \u00ed <em>\u00cdslensk-danskri or\u00f0ab\u00f3k <\/em>fr\u00e1 1920-1924 er <em>jafnf\u00e6ttur <\/em><a href=\"https:\/\/blondal.arnastofnun.is\/faersla\/235785\/merkja\/jafnhentur\">sk\u00fdrt<\/a> 'med lige lange ben' \u2013 og einnig 'isopod', en <em>jafnf\u00e6ttir <\/em>er l\u00fdsingaror\u00f0 sem Benedikt Gr\u00f6ndal <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/2043846?iabr=on#page\/n45\/mode\/1up\/\">nota\u00f0i<\/a> \u00ed <em>D\u00fdrafr\u00e6\u00f0i <\/em>sinni um \u00e1kve\u00f0na tegund krabbad\u00fdra sem heita <em>isopoda <\/em>\u00e1 ensku og <a href=\"https:\/\/www.visindavefur.is\/svar.php?id=4636\">kallast<\/a> n\u00fa <em>jafnf\u00e6tlur<\/em>.<\/p>\n<p>Merkingin 'me\u00f0 jafnlanga f\u00e6tur' \u00e1 greinilega vi\u00f0 \u00ed <em>DV <\/em>1982 \u00fear sem segir: \u201er\u00e1\u00f0herrann er jafnf\u00e6ttur og mundi ganga \u00f3haltur me\u00f0an b\u00e1\u00f0ir f\u00e6tur eru jafnlangir\u201c. En \u00feetta er reyndar eina d\u00e6mi\u00f0 sem \u00e9g hef fundi\u00f0 um \u00fe\u00e1 merkingu, og ekki l\u00f6ngu eftir \u00feetta fara a\u00f0 sj\u00e1st d\u00e6mi um merkinguna 'jafnv\u00edgur \u00e1 b\u00e1\u00f0a f\u00e6tur' \u2013 \u00ed f\u00f3tboltaumfj\u00f6llun \u00ed <em>DV <\/em>1986 segir: \u201eJafnf\u00e6ttur og mj\u00f6g leikinn.\u201c \u00dea\u00f0 er samt ekki fyrr en undir aldam\u00f3t og einkum \u00e1 \u00feessari \u00f6ld sem fari\u00f0 er a\u00f0 nota or\u00f0i\u00f0 eitthva\u00f0 a\u00f0 r\u00e1\u00f0i, og \u00fe\u00e1 alltaf \u00ed n\u00fdrri merkingunni \u2013 langoftast \u00ed f\u00f3tboltaskrifum. Alls eru um tuttugu d\u00e6mi um or\u00f0i\u00f0 \u00ed \u00feessari merkingu \u00e1 <em>t\u00edmarit.is <\/em>og um hundra\u00f0 \u00ed <em>Risam\u00e1lheildinni<\/em>. Or\u00f0i\u00f0 er \u00fe\u00f3 ekki n\u00f3gu algengt til a\u00f0 hafa komist inn \u00ed <em>\u00cdslenska n\u00fat\u00edmam\u00e1lsor\u00f0ab\u00f3k<\/em>.<\/p>\n<p>En f\u00e6st okkar eru <em>jafnf\u00e6tt <\/em>heldur anna\u00f0hvort <em>r\u00e9ttf\u00e6tt <\/em>e\u00f0a <em>\u00f6rvf\u00e6tt<\/em>. \u00deau or\u00f0 eru e\u00f0lilega mun algengari og er b\u00e6\u00f0i a\u00f0 finna \u00ed <em>\u00cdslenskri n\u00fat\u00edmam\u00e1lsor\u00f0ab\u00f3k<\/em>, <a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/33235\">sk\u00fdr\u00f0<\/a> 'sem beitir fyrir sig h\u00e6gri f\u00e6ti frekar en vinstri' <a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/68577\">og<\/a> 'sem beitir fyrir sig vinstri f\u00e6ti frekar en h\u00e6gri'. \u00deessi or\u00f0 vir\u00f0ast ekki vera \u00fdkja g\u00f6mul \u00ed m\u00e1linu \u2013 hvorugt \u00feeirra er \u00ed <em>\u00cdslensk-danskri or\u00f0ab\u00f3k <\/em>fr\u00e1 1920-1924. Elsta d\u00e6mi um <em>\u00f6rvf\u00e6ttur <\/em>er \u00ed <em>Al\u00fe\u00fd\u00f0ubla\u00f0inu <\/em>1945: \u201eS\u00e1, sem er \u00f6rvhentur, er einnig \u00f6rvf\u00e6ttur; \u2013 og s\u00e9st \u00feetta ekki hva\u00f0 s\u00edzt \u00e1 knattspyrnum\u00f6nnum.\u201c Elsta d\u00e6mi um <em>r\u00e9ttf\u00e6ttur <\/em>(fyrir utan d\u00e6mi fr\u00e1 1941 \u00fear sem or\u00f0i\u00f0 er nota\u00f0 um hest og merkingin \u00f3lj\u00f3s) er \u00ed <em>Al\u00fe\u00fd\u00f0ubla\u00f0inu <\/em>1972: \u201evar sem fyrr kj\u00f6lfesta li\u00f0sins, r\u00f3legur, \u00e6\u00f0rulaus, en \u00fe\u00f3 \u00f6ruggur, eins konar <em>r\u00e9ttf\u00e6ttur<\/em> Ellert Schram.\u201c<\/p>\n<p>\u00deessi or\u00f0 eru vitanlega sm\u00ed\u00f0u\u00f0 me\u00f0 hli\u00f0sj\u00f3n af <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2021\/10\/26\/orvhent-og-retthent\/\">or\u00f0unum<\/a> <em>r\u00e9tthentur<\/em> \/ <em>r\u00e9tthendur <\/em>og <em>\u00f6rvhentur<\/em> \/ <em>\u00f6rvhendur <\/em>sem eru miklu eldri \u2013 a.m.k. \u00fea\u00f0 s\u00ed\u00f0arnefnda kemur fyrir \u00ed fornu m\u00e1li og hitt \u00e1 n\u00edtj\u00e1ndu \u00f6ld. En l\u00fdsingaror\u00f0i <em>jafnhentur <\/em>\/ <em>jafnhendur <\/em>er yngra og mun sjaldg\u00e6fara. Myndin <em>jafnhentur <\/em>er <a href=\"https:\/\/blondal.arnastofnun.is\/faersla\/235785\/merkja\/jafnhentur\">gefin<\/a> \u00ed <em>\u00cdslensk-danskri or\u00f0ab\u00f3k <\/em>fr\u00e1 1920-1924 en \u00ed merkingunni 'jafnhentugur', 'ligesaa hensigtsm\u00e6ssig' og s\u00fa er merkingin \u00ed <em>Andvara <\/em>1882: \u201eEg get \u00fev\u00ed eigi \u00e6tla\u00f0 anna\u00f0 l\u00e1nf\u00e6ri jafnhent oss sem se\u00f0labanka.\u201c Hli\u00f0st\u00e6\u00f0a merkingu vi\u00f0 <em>r\u00e9tthentur <\/em>og <em>\u00f6rvhentur <\/em>finn \u00e9g ekki fyrr en \u00ed <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1987: \u201eauk \u00feess v\u00e6ri hann jafnhentur.\u201c \u00dea\u00f0 er svo ekki fyrr en undir aldam\u00f3t og \u00e1 \u00feessari \u00f6ld sem fari\u00f0 er a\u00f0 nota or\u00f0i\u00f0 a\u00f0 r\u00e1\u00f0i, eins og me\u00f0 <em>jafnf\u00e6ttur<\/em>.<\/p>\n<p>Myndin <em>jafnhendur <\/em>me\u00f0 <em>d <\/em>er \u00fe\u00f3 eldri en <em>t<\/em>-myndin \u2013 elsta d\u00e6mi um hana er \u00ed <em>Sk\u00edrni <\/em>1915: \u201eEn b\u00f6rn vir\u00f0ast framan af jafnhend.\u201c \u00cd <em>Vi\u00f0b\u00e6ti \u00cdslensk-danskrar or\u00f0ab\u00f3kar <\/em>fr\u00e1 1963 sem og \u00ed <em>\u00cdslenskri or\u00f0ab\u00f3k <\/em>er myndin <a href=\"https:\/\/blondal.arnastofnun.is\/faersla\/164956\/merkja\/jafnhendur\">gefin<\/a> \u00ed merkingunni 'sem er jafnv\u00edgur \u00e1 b\u00e1\u00f0ar hendur, hvorki r\u00e9tt- n\u00e9 \u00f6rvhendur'. En myndin vir\u00f0ist ekkert hafa veri\u00f0 notu\u00f0 undanfarin hundra\u00f0 \u00e1r e\u00f0a svo enda eru <em>d<\/em>-myndirnar <em>r\u00e9tthendur <\/em>og <em>\u00f6rvhendur <\/em>einnig sjaldg\u00e6far \u00ed seinni t\u00ed\u00f0. Samfall vi\u00f0 myndir sagnarinnar <em>jafnhenda <\/em>sem hefur allt a\u00f0ra merkingu g\u00e6ti einnig spila\u00f0 inn \u00ed. B\u00e6\u00f0i <em>jafnf\u00e6ttur <\/em>og <em>jafnhentur <\/em>eru skemmtileg d\u00e6mi um g\u00f6mul or\u00f0 sem hafa veri\u00f0 mj\u00f6g sjaldg\u00e6f og n\u00e6rri horfin \u00ed eldri merkingu og \u00feess vegna er h\u00e6gt a\u00f0 endurl\u00edfga \u00feau og gefa \u00feeim n\u00fdja merkingu.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g rakst \u00e1 umfj\u00f6llun um unga knattspyrnukonu \u00fear sem sag\u00f0i \u201eL\u00edsa er jafnf\u00e6tt og spilar \u00e1 mi\u00f0junni\u201c. \u00c9g kanna\u00f0ist ekki vi\u00f0 l\u00fdsingaror\u00f0i\u00f0 jafnf\u00e6ttur en \u00fe\u00f3ttist \u00fe\u00f3 skilja merkinguna og f\u00e9kk sta\u00f0festingu \u00e1 m\u00ednum skilningi \u00ed \u00cdslenskri or\u00f0ab\u00f3k \u2013 'sem er jafnv\u00edgur \u00e1 b\u00e1\u00f0a f\u00e6tur, hvorki r\u00e9tt- n\u00e9 \u00f6rvf\u00e6ttur'. En \u00feetta er reyndar ekki fyrsta sk\u00fdring [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-8396","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8396","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=8396"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8396\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":8397,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8396\/revisions\/8397"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=8396"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=8396"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=8396"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}