{"id":8398,"date":"2026-11-21T12:00:46","date_gmt":"2026-11-21T12:00:46","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=8398"},"modified":"2026-11-24T20:46:31","modified_gmt":"2026-11-24T20:46:31","slug":"ad-binda-form-malsins-i-log-eda-reglur","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2026\/11\/21\/ad-binda-form-malsins-i-log-eda-reglur\/","title":{"rendered":"A\u00f0 binda form m\u00e1lsins \u00ed l\u00f6g e\u00f0a reglur"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd vikunni var\u00f0 nokkur <a href=\"https:\/\/www.dv.is\/frettir\/2026\/11\/19\/hart-sott-ad-oddvita-midflokksins-i-hafnarfirdi-i-umraedu-um-islenskt-mal\">umr\u00e6\u00f0a<\/a> um till\u00f6gu b\u00e6jarfulltr\u00faa Mi\u00f0flokksins \u00e1 fundi b\u00e6jarstj\u00f3rnar Hafnarfjar\u00f0ar um a\u00f0 b\u00e6num yr\u00f0i m\u00f3tu\u00f0 m\u00e1lstefna eins og hefur veri\u00f0 <a href=\"https:\/\/www.althingi.is\/lagas\/nuna\/2011138.html\">lagaskylda<\/a> sveitarf\u00e9laga fr\u00e1 2014 en f\u00e6st \u00feeirra hafa sinnt \u2013 \u00ed umr\u00e6\u00f0um kom reyndar fram a\u00f0 sl\u00edk stefna hef\u00f0i lengi veri\u00f0 \u00ed sm\u00ed\u00f0um \u00ed Hafnarfir\u00f0i \u00fe\u00f3tt vinna vi\u00f0 hana hafi legi\u00f0 ni\u00f0ri undanfari\u00f0. En \u00ed <a href=\"https:\/\/hafnarfjordur.is\/fundagerd\/?meeting_id=DuHGNC1rUEGUOK5gxDjVQ1\">till\u00f6gunni<\/a> voru l\u00edka \u00e1kv\u00e6\u00f0i um \u00fea\u00f0 hvernig stefna Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar \u00e6tti a\u00f0 vera \u2013 \u00ed \u00f6llu efni \u00ed nafni b\u00e6jarins skyldi \u201efylgt opinberum ritreglum og vi\u00f0tekinni m\u00e1lvenju um m\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilegt kyn. \u00deegar v\u00edsa\u00f0 er til f\u00f3lks almennt e\u00f0a h\u00f3ps af \u00f3\u00e1kve\u00f0nu kyni ver\u00f0i nota\u00f0 sj\u00e1lfgefi\u00f0 m\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilegt kyn, sem er hin hef\u00f0bundna m\u00e1lnotkun \u00ed \u00edslensku, til d\u00e6mis \u201eallir velkomnir\u201c en ekki \u201e\u00f6ll velkomin\u201c\u201c.<\/p>\n<p>\u00deetta er ekki fyrsta e\u00f0a eina d\u00e6mi\u00f0 um a\u00f0 Mi\u00f0flokkurinn hafi l\u00fdst <a href=\"https:\/\/www.mbl.is\/frettir\/innlent\/2024\/05\/16\/sigmundur_um_kynhlutlausa_malfraedi_thetta_er_bull\/\">andst\u00f6\u00f0u<\/a> vi\u00f0 tilraunir til a\u00f0 draga \u00far karll\u00e6gni \u00edslenskunnar. Eins og \u00feau sem hafa fylgst me\u00f0 skrifum m\u00ednum vita hef \u00e9g i\u00f0ulega stutt e\u00f0a vari\u00f0 \u00fdmsar sl\u00edkar tilraunir og \u00feess vegna kemur varla \u00e1 \u00f3vart a\u00f0 \u00e9g l\u00fdsi andst\u00f6\u00f0u vi\u00f0 umr\u00e6dda till\u00f6gu. En \u00e9g hef\u00f0i veri\u00f0 alveg jafnmiki\u00f0 \u00e1 m\u00f3ti till\u00f6gu sem gengi \u00ed \u00fever\u00f6fuga \u00e1tt \u2013 \u00fe.e. ger\u00f0i r\u00e1\u00f0 fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 gera notkun kynhlutlauss m\u00e1ls skyldubundna. \u00dea\u00f0 er mikilv\u00e6gt a\u00f0 leggjast eindregi\u00f0 og af fullri h\u00f6rku gegn \u00f6llum tilraunum til a\u00f0 festa \u00ed l\u00f6g e\u00f0a reglur einhver \u00e1kv\u00e6\u00f0i um tilteki\u00f0 form m\u00e1lsins, svo sem notkun \u2013 e\u00f0a bann vi\u00f0 notkun \u2013 \u00e1kve\u00f0inna or\u00f0a, or\u00f0asambanda, kynja, falla, beygingarmynda, setningager\u00f0a o.s.frv.<\/p>\n<p>Me\u00f0 \u00e1kv\u00e6\u00f0um af \u00feessu tagi er \u00ed raun veri\u00f0 a\u00f0 leggja bann vi\u00f0 m\u00e1lbreytingum og tilbrig\u00f0um \u00ed m\u00e1li \u2013 veri\u00f0 a\u00f0 hefta e\u00f0lilega m\u00e1l\u00fer\u00f3un og sk\u00f6punarm\u00e1tt m\u00e1lsins. \u00de\u00f3tt sl\u00edk l\u00f6g og reglur \u00e6ttu \u00ed byrjun a\u00f0eins vi\u00f0 um m\u00e1lnotkun hj\u00e1 r\u00edki, sveitarf\u00e9l\u00f6gum og opinberum stofnunum er h\u00e6ttan s\u00fa a\u00f0 fari\u00f0 yr\u00f0i \u2013 jafnvel af h\u00e1lfu stj\u00f3rnvalda \u2013 a\u00f0 l\u00edta \u00e1 \u00fea\u00f0 m\u00e1l sem \u00fear er skylt a\u00f0 nota sem einhvers konar r\u00edkism\u00e1l sem kennt ver\u00f0i \u00ed sk\u00f3lum, fj\u00f6lmi\u00f0lum beri a\u00f0 nota, o.s.frv. \u00de\u00e1 er stutt \u00ed h\u00f6mlur \u00e1 tj\u00e1ningarfrelsi sem eru banna\u00f0ar \u00ed stj\u00f3rnarskr\u00e1. \u00dea\u00f0 er au\u00f0vita\u00f0 sj\u00e1lfsagt a\u00f0 leggja \u00e1herslu \u00e1 sk\u00fdrt og vanda\u00f0 m\u00e1l en meginatri\u00f0i\u00f0 er a\u00f0 skilgreina ekki nema \u00ed almennum or\u00f0um \u00ed hverju \u00fea\u00f0 felist. M\u00e1lnotendur ver\u00f0a a\u00f0 finna \u00fea\u00f0 hj\u00e1 sj\u00e1lfum s\u00e9r\u00a0 hva\u00f0 er gott og vanda\u00f0 m\u00e1l.<\/p>\n<p>Sem betur fer var \u00fea\u00f0 sj\u00f3narmi\u00f0 r\u00edkjandi \u00ed umr\u00e6\u00f0unni \u00ed b\u00e6jarstj\u00f3rn Hafnarfjar\u00f0ar, b\u00e6\u00f0i hj\u00e1 meiri- og minnihluta, a\u00f0 \u00f3e\u00f0lilegt v\u00e6ri a\u00f0 hefta svigr\u00fam til tj\u00e1ningar \u00e1 \u00feann h\u00e1tt sem tillagan ger\u00f0i r\u00e1\u00f0 fyrir. Einn fulltr\u00fai Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokksins b\u00f3ka\u00f0i: \u201eM\u00e1lstefna [\u2026] \u00fearf [\u2026] a\u00f0 taka mi\u00f0 af fj\u00f6lbreyttu samf\u00e9lagi, tungum\u00e1li \u00feess og \u00feeim \u00f3l\u00edku a\u00f0st\u00e6\u00f0um sem f\u00f3lk b\u00fdr vi\u00f0. Mikilv\u00e6gt er a\u00f0 s\u00fa m\u00e1lstefna sem Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6r setur s\u00e9r ver\u00f0i ekki \u00fatilokandi, heldur byggi \u00e1 vir\u00f0ingu, v\u00ed\u00f0s\u00fdni og jafnr\u00e6\u00f0i. Umr\u00e6\u00f0an um m\u00e1lstefnu m\u00e1 ekki einskor\u00f0ast vi\u00f0 afst\u00f6\u00f0u til kynhlutlauss m\u00e1ls, heldur \u00fearf h\u00fan a\u00f0 n\u00e1 til m\u00e1lnotkunar \u00ed v\u00ed\u00f0ara samhengi, svo sem sk\u00fdrleika, a\u00f0gengis, m\u00e1lfars, fj\u00f6lbreytileika og vir\u00f0ingar fyrir \u00f3l\u00edkum m\u00e1lvenjum og sj\u00f3narmi\u00f0um.\u201c<\/p>\n<p>Og \u00ed b\u00f3kun eins fulltr\u00faa Frams\u00f3knarflokksins segir: \u201e\u00cd samskiptum b\u00e6jarins vi\u00f0 \u00edb\u00faa \u00e1 a\u00f0 nota vanda\u00f0a og sk\u00fdra \u00edslensku. Til \u00feess \u00fearf starfsf\u00f3lk a\u00f0 hafa svigr\u00fam til a\u00f0 velja or\u00f0alag sem h\u00e6fir tilefninu og n\u00e6r til fj\u00f6lbreytts h\u00f3ps \u00edb\u00faa. Jafnr\u00e9ttis- og mannr\u00e9ttindastefna Hafnarfjar\u00f0ar \u00e1 a\u00f0 endurspeglast \u00ed daglegum samskiptum b\u00e6jarins. A\u00f0 \u00ferengja svigr\u00fam til a\u00f0 nota or\u00f0alag \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 \u201e\u00f6ll velkomin\u201c \u00ed almennum bo\u00f0um v\u00e6ri skref aftur \u00e1 bak \u00ed jafnr\u00e9ttisbar\u00e1ttunni. B\u00e6rinn \u00e1 a\u00f0 hlusta \u00e1 sj\u00f3narmi\u00f0 hinsegin f\u00f3lks vi\u00f0 m\u00f3tun m\u00e1lstefnu og \u00e1varpa \u00edb\u00faa me\u00f0 \u00feeim h\u00e6tti a\u00f0 \u00feau finni a\u00f0 \u00feau eigi jafnan samasta\u00f0 \u00ed samf\u00e9laginu.\u201c Undir \u00feetta m\u00e1 taka, og \u00e9g endurtek a\u00f0 \u00f3h\u00e1\u00f0 afst\u00f6\u00f0u til kynhlutlauss m\u00e1ls er \u00f6ll reglubinding \u00e1 formi m\u00e1lsins st\u00f3rvaras\u00f6m.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd vikunni var\u00f0 nokkur umr\u00e6\u00f0a um till\u00f6gu b\u00e6jarfulltr\u00faa Mi\u00f0flokksins \u00e1 fundi b\u00e6jarstj\u00f3rnar Hafnarfjar\u00f0ar um a\u00f0 b\u00e6num yr\u00f0i m\u00f3tu\u00f0 m\u00e1lstefna eins og hefur veri\u00f0 lagaskylda sveitarf\u00e9laga fr\u00e1 2014 en f\u00e6st \u00feeirra hafa sinnt \u2013 \u00ed umr\u00e6\u00f0um kom reyndar fram a\u00f0 sl\u00edk stefna hef\u00f0i lengi veri\u00f0 \u00ed sm\u00ed\u00f0um \u00ed Hafnarfir\u00f0i \u00fe\u00f3tt vinna vi\u00f0 hana hafi legi\u00f0 ni\u00f0ri [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-8398","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8398","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=8398"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8398\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":8399,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8398\/revisions\/8399"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=8398"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=8398"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=8398"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}