Fornfræði (MR): Námsmat 2014-2015

Vorpróf er 180 mínútna skriflegt próf úr lesefni 5. og 6. bekkjar.

Vetrareinkunn er samsett úr skriflegum verkefnum, kynningum og ástundun. Verkefni haust 2014 gilda 45%, verkefni vor 2014 gilda 45% og ástundun gildir 10%.

Jólaprófseinkunn byggist á skriflegu verkefni I (5%), ritgerð I (25%), framsögu um efni ritgerðar II (15%), ritgerð II (45%) og ástundun (10%).

Vægi verkefna að vori skiptist þannig: Leiklestur (10%), skriflegt próf (20%), framsaga um efni ritgerðar III (15%), ritgerð III (45%), ástundun (10%).

Ritgerðir og önnur verkefni að vori:

  • Undirbúinn leiklestur úr Skýjum Aristófanesar eða Síðustu dögum Sókratesar.
  • Skriflegt próf.
  • Kynning á efni ritgerðar III.
  • Ritgerð III: 3500 til 5000 orða ritgerð um Platon eða Sókrates.

Ritgerðir og skriflegt verkefni að hausti:

  • Skriflegt verkefni I: 300 til 500 orð um muninn á goðsögum annars vegar og heimspeki og vísindum hins vegar.
  • Ritgerð I: 2000 til 2500 orða ritgerð um frumherja heimspekinnar.
  • Ritgerð II: 3500 til 5000 orða ritgerð um Heródótos.