{"id":42,"date":"2010-04-12T22:49:11","date_gmt":"2010-04-12T22:49:11","guid":{"rendered":"http:\/\/uni.hi.is\/hoski\/?page_id=42"},"modified":"2017-11-28T15:56:37","modified_gmt":"2017-11-28T15:56:37","slug":"rannsoknaverkefni","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/uni.hi.is\/hoski\/rannsoknaverkefni\/","title":{"rendered":"7. Ranns\u00f3knir"},"content":{"rendered":"<h2>Ranns\u00f3knir sem unni\u00f0 er a\u00f0<\/h2>\n<h3>M\u00e1l, m\u00e1lbreytingar og menningarleg sj\u00e1lfsmynd\/Heritage language, linguistic change and cultural identity.<\/h3>\n<p>\u00deetta verkefni hlaut styrk fr\u00e1 Ranns\u00f3knasj\u00f3\u00f0i \u00cdslands (gegnum RANN\u00cdS) \u00e1ri\u00f0 2013. Gert er r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 \u00feetta ver\u00f0i \u00feriggja \u00e1ra verkefni. Verkefnisstj\u00f3rar eru H\u00f6skuldur \u00der\u00e1insson og Birna Arnbj\u00f6rnsd\u00f3ttir. A\u00f0rir ums\u00e6kjendur eru \u00c1sta Svavarsd\u00f3ttir, Daisy Neijmann, Kristj\u00e1n \u00c1rnason, Matthew Whelpton og \u00dalfar Bragason.<\/p>\n<p>A\u00f0almarkmi\u00f0 \u00feessa verkefnis er a\u00f0 rannsaka vestur\u00edslensku og \u00fer\u00f3un hennar og bera hana saman vi\u00f0 \u00fer\u00f3un \u00edslensku \u00e1 \u00cdslandi fr\u00e1 19. \u00f6ld til dagsins \u00ed dag. \u00cd \u00feessari ranns\u00f3kn ver\u00f0ur liti\u00f0 \u00e1 vestur\u00edslensku sem upprunam\u00e1l (e\u00f0a erf\u00f0arm\u00e1l, e. <em>heritage language<\/em>), en s\u00fa nafngift hefur veri\u00f0 notu\u00f0 um tungum\u00e1l sem eru t\u00f6lu\u00f0 heima vi\u00f0 en eru minnihlutam\u00e1l \u00ed vi\u00f0komandi m\u00e1lsamf\u00e9lagi. \u00cd \u00feessu sambandi ver\u00f0ur m.a. sko\u00f0a\u00f0 hva\u00f0a hlutverki tungum\u00e1li\u00f0 hefur gegnt \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fer\u00f3a og vi\u00f0halda menningarlegri sj\u00e1lfsmynd Vestur-\u00cdslendinga. F\u00e9lagsleg og menningarleg sta\u00f0a \u00edslensku \u00e1 \u00cdslandi hefur auglj\u00f3slega veri\u00f0 allt \u00f6nnur en s\u00fa sem vestur\u00edslenska hefur b\u00fai\u00f0 vi\u00f0 og me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 bera saman \u00fer\u00f3un \u00feessara tveggja afbrig\u00f0a \u00edslenskunnar \u00e6tti a\u00f0 vera h\u00e6gt a\u00f0 \u00f6\u00f0last aukinn skilning \u00e1 \u00fev\u00ed hva\u00f0a hlutverki m\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilegir \u00fe\u00e6ttir annars vegar og f\u00e9lagslegir og menningarlegir \u00fe\u00e6ttir hins vegar gegna \u00ed m\u00e1lbreytingum.<\/p>\n<p>Sj\u00e1 n\u00e1nar \u00e1 sl\u00f3\u00f0inni\u00a0<a href=\"http:\/\/malvis.hi.is\/m%C3%A1l_m%C3%A1lbreytingar_og_menningarleg_sj%C3%A1lfsmynd_0\">http:\/\/malvis.hi.is\/m%C3%A1l_m%C3%A1lbreytingar_og_menningarleg_sj%C3%A1lfsmynd_0<\/a>.<\/p>\n<h3><\/h3>\n<h3>M\u00e1lbreytingar \u00ed raunt\u00edma \u00ed \u00edslensku hlj\u00f3\u00f0kerfi og setningager\u00f0<\/h3>\n<p>\u00deetta verkefni hlaut verkefnisstyrk fr\u00e1 Ranns\u00f3knasj\u00f3\u00f0i (gegnum RANN\u00cdS) 2010-2012. Me\u00f0ums\u00e6kjendur eru Kristj\u00e1n \u00c1rnason, Sigr\u00ed\u00f0ur Sigurj\u00f3nsd\u00f3ttir, Matthew Whelpton og \u00de\u00f3rhallur Ey\u00fe\u00f3rsson, \u00f6ll vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands.<\/p>\n<p>M\u00e1lv\u00edsindamenn greinir \u00e1 um \u00fea\u00f0 hvernig tungum\u00e1l breytast.\u00a0Sumir telja a\u00f0 breytingar \u00e1 m\u00e1li ver\u00f0i\u00a0fyrst og fremst\u00a0\u00e1 \u00feann veg a\u00f0 n\u00fd kynsl\u00f3\u00f0 tileinki s\u00e9r annars konar m\u00e1l en \u00fe\u00e6r eldri. Breytingarnar ver\u00f0i \u00fe\u00e1 \u00e1\u00a0m\u00e1lt\u00f6kuskei\u00f0i, ef svo m\u00e1 segja, \u00fe.e. a\u00f0 b\u00f6rnin l\u00e6ri ekki a\u00f0 \u00f6llu leyti \u00fea\u00f0 sem fyrir \u00feeim er haft e\u00f0a t\u00falki \u00fea\u00f0 ekki r\u00e9tt. \u00a0A\u00f0rir telja a\u00f0 m\u00e1li\u00f0 breytist ekki s\u00ed\u00f0ur \u00feannig a\u00f0 m\u00e1lnotendur breyti m\u00e1li s\u00ednu\u00a0\u00ed \u00e1ranna r\u00e1s.\u00a0Fr\u00e6\u00f0ilegt markmi\u00f0 \u00feessa ranns\u00f3knaverkefnis er a\u00f0 sko\u00f0a a\u00f0 hva\u00f0a marki s\u00ed\u00f0ari tilg\u00e1tan er r\u00e9tt \u00feegar liti\u00f0 er \u00e1 \u00e1kve\u00f0nar breytingar \u00ed \u00edslensku hlj\u00f3\u00f0kerfi og setningager\u00f0.<\/p>\n<p>V\u00edsbendingar um m\u00e1lbreytingar m\u00e1 finna\u00a0me\u00f0\u00a0tvennu m\u00f3ti. \u00d6nnur lei\u00f0in er s\u00fa a\u00f0 sko\u00f0a tiltekin\u00a0m\u00e1lfarsatri\u00f0i hj\u00e1 \u00f3l\u00edkum aldursh\u00f3pum \u00e1 sama t\u00edma. Ef\u00a0finna m\u00e1 reglulegan mun \u00e1 aldursh\u00f3punum m\u00e1 gera \u00fev\u00ed sk\u00f3na a\u00f0\u00a0s\u00e1 munur endurspegli m\u00e1lbreytingar sem eru a\u00f0 eiga s\u00e9r sta\u00f0, \u00feannig a\u00f0 yngri aldursh\u00f3parnir s\u00fdni hva\u00f0 koma skal\u00a0en m\u00e1l \u00feeirra eldri endurspegli gamla t\u00edmann. \u00deegar sl\u00edkur samanbur\u00f0ur er ger\u00f0ur er oft tala\u00f0 um <strong>s\u00fdndart\u00edma<\/strong> (e. <em>apparent time<\/em>), \u00fev\u00ed \u00ed raun og veru fer ranns\u00f3knin fram \u00e1 einum t\u00edma, er <strong>eint\u00edmaleg<\/strong> (e. <em>synchronic<\/em>). Hin lei\u00f0in til a\u00f0 sko\u00f0a breytingar er a\u00f0 bera saman mismunandi m\u00e1lstig, \u00fe.e. athuga tiltekin m\u00e1lfarsfyrirb\u00e6ri \u00e1\u00a0\u00f3l\u00edkum t\u00edmum.\u00a0\u00cd sl\u00edkum samanbur\u00f0i er \u00fe\u00e1 um <strong>raunt\u00edma<\/strong>\u00a0a\u00f0 r\u00e6\u00f0a (e. <em>real time<\/em>) \u00fev\u00ed ranns\u00f3knin\u00a0ber saman\u00a0tvo e\u00f0a\u00a0fleiri t\u00edmapunkta e\u00f0a t\u00edmabil, er <strong>fj\u00f6lt\u00edmaleg<\/strong> (e.\u00a0<em>diachronic<\/em>). Raunt\u00edmasamanbur\u00f0ur er svo au\u00f0vita\u00f0 s\u00e9rlega \u00e1hugaver\u00f0ur ef h\u00e6gt er a\u00f0 sko\u00f0a m\u00e1l s\u00f6mu einstaklinga \u00e1 \u00f3l\u00edkum t\u00edmum, af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e1 gefur hann um lei\u00f0 uppl\u00fdsingar um \u00fea\u00f0 a\u00f0 hva\u00f0a marki\u00a0sama f\u00f3lki\u00f0\u00a0breytir m\u00e1li s\u00ednu \u00ed \u00e1ranna r\u00e1s.<\/p>\n<p>S\u00e9rsta\u00f0a \u00feessa verkefnis felst einkum \u00ed tvennu. \u00cd fyrsta lagi felur \u00fea\u00f0 \u00ed s\u00e9r skipulegan samanbur\u00f0 \u00e1 m\u00e1lfari fleiri \u00fe\u00e1tttakenda en \u00e1\u00f0ur hefur veri\u00f0 ger\u00f0ur \u2014 og \u00fe\u00e1 er ekki bara mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 \u00cdsland. \u00cd \u00f6\u00f0ru lagi gefur \u00fea\u00f0 t\u00e6kif\u00e6ri \u00e1 a\u00f0 bera saman \u00f3l\u00edkar ger\u00f0ir m\u00e1lbreytinga \u00ed raunt\u00edma, \u00fe.e. b\u00e6\u00f0i breytingar sem snerta mismunandi \u00fe\u00e6tti hlj\u00f3\u00f0kerfis (e\u00f0a frambur\u00f0ar) og svo samanbur\u00f0 breytinga \u00e1 frambur\u00f0i og setningager\u00f0.<\/p>\n<p>Sj\u00e1 n\u00e1nar \u00e1 sl\u00f3\u00f0inni\u00a0<a href=\"http:\/\/malvis.hi.is\/malbreytingar_i_rauntima_i_islensku_hljodkerfi_og_setningagerd\">http:\/\/malvis.hi.is\/malbreytingar_i_rauntima_i_islensku_hljodkerfi_og_setningagerd<\/a><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<h3>Breytingar \u00e1 frambur\u00f0i \u00e1 70 \u00e1ra t\u00edmabili<\/h3>\n<p>\u00deetta verkefni\u00a0f\u00e9kk styrk \u00far \u00dej\u00f3\u00f0h\u00e1t\u00ed\u00f0arsj\u00f3\u00f0i 2009 og er n\u00e1tengt \u00fev\u00ed sem l\u00fdst er h\u00e9r n\u00e6st \u00e1 undan. Meginmarkmi\u00f0 \u00feess er a\u00f0 n\u00e1 til sem flestra \u00fe\u00e1tttakenda \u00far frambur\u00f0arranns\u00f3kn Bj\u00f6rns Gu\u00f0finnssonar og kanna frambur\u00f0 \u00feeirra \u00e1 n\u00fdjan leik, en \u00feetta f\u00f3lk er yfirleitt f\u00e6tt \u00ed kringum 1930. Auk \u00feeirra sem voru nefndir \u00ed l\u00fdsingu fyrra ranns\u00f3knaverkefnis og t\u00f3ku \u00fe\u00e1tt \u00ed ranns\u00f3kn BG og l\u00edka \u00ed R\u00cdN-ranns\u00f3kninni 40 \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar, ver\u00f0ur h\u00e9r l\u00f6g\u00f0 s\u00e9rst\u00f6k \u00e1hersla \u00e1 a\u00f0 n\u00e1 til f\u00f3lks sem BG r\u00e6ddi vi\u00f0 \u00e1 s\u00ednum t\u00edma en fluttist s\u00ed\u00f0an \"\u00e1 m\u00f6lina\", \u00fe.e. til Reykjav\u00edkur. \u00cd R\u00cdN-ranns\u00f3kninni var n\u00e1nast eing\u00f6ngu r\u00e6tt vi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00fe\u00e1tttakendur \u00far ranns\u00f3kn BG \u00fati um land sem h\u00f6f\u00f0u haldi\u00f0 kyrru fyrir \u00ed s\u00ednu heimah\u00e9ra\u00f0i. \u00dea\u00f0 ver\u00f0ur l\u00edka gert a\u00f0 \u00feessu sinni, en a\u00f0 auki ver\u00f0ur safna\u00f0 efni til samanbur\u00f0ar fr\u00e1 a\u00f0fluttu BG-f\u00f3lki \u00ed Reykjav\u00edk. Me\u00f0 \u00fev\u00ed m\u00f3ti f\u00e6st n\u00fd v\u00eddd \u00ed samanbur\u00f0inn, \u00fe.e. h\u00e6gt ver\u00f0ur a\u00f0 meta\u00a0bera saman \u00e1hrif umhverfisins \u00e1 \u00fe\u00e1 sem fluttu burtu og \u00fe\u00e1 sem s\u00e1tu heima. Frumranns\u00f3knir af sl\u00edku tagi benda til \u00feess a\u00f0 umhverfi\u00f0 hafi mismikil \u00e1hrif \u00e1 frambur\u00f0areinkenni f\u00f3lks \u2014 einstaklingar s\u00e9u t.d. l\u00edklegri til a\u00f0 leggja ni\u00f0ur skaftfellskan einhlj\u00f3\u00f0aframbur\u00f0 en <em>hv-<\/em>frambur\u00f0 (sj\u00e1 l\u00fdsingar og frambur\u00f0ard\u00e6mi \u00e1 vefnum <a href=\"http:\/\/mallyskur.is\/\">http:\/\/mallyskur.is<\/a>) \u00fe\u00f3tt b\u00f6rn sem alast upp \u00ed bl\u00f6ndu\u00f0u m\u00e1ll\u00fdskuumhverfi s\u00e9u aftur \u00e1 m\u00f3ti l\u00edklegri til a\u00f0 taka upp einhlj\u00f3\u00f0aframbur\u00f0inn en <em>hv-<\/em>frambur\u00f0inn.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<h3>Umskr\u00e1ning og a\u00f0l\u00f6gun m\u00e1ll\u00fdskugagna<\/h3>\n<p>\u00deegar efni var safna\u00f0 \u00ed m\u00e1ll\u00fdskuranns\u00f3kn H\u00f6skuldar \u00der\u00e1inssonar og Kristj\u00e1ns \u00c1rnasonar (Ranns\u00f3kn \u00e1 \u00edslensku n\u00fat\u00edmam\u00e1li, R\u00cdN) \u00e1 9. \u00e1ratug s\u00ed\u00f0ustu aldar var stafr\u00e6n uppt\u00f6kut\u00e6kni ekki komin til s\u00f6gunnar. \u00c1 undanf\u00f6rnum \u00e1rum hefur Ranns\u00f3knasj\u00f3\u00f0ur H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands veitt styrk til \u00feess a\u00f0 f\u00e6ra \u00feetta m\u00e1ll\u00fdskuefni yfir \u00ed stafr\u00e6nt form. \u00deetta er gr\u00ed\u00f0armiki\u00f0 efni (um 2.800 \u00fe\u00e1tttakendur \u00e1 \u00f6llum aldri fr\u00e1 \u00f6llum landshlutum, yfir\u00a01.500 klukkut\u00edmar), en stafr\u00e6na formi\u00f0 gefur au\u00f0vita\u00f0 n\u00fd f\u00e6ri \u00e1 a\u00f0 var\u00f0veita efni\u00f0, fj\u00f6lfalda \u00fea\u00f0 og n\u00fdta til ranns\u00f3kna. Auk \u00feess a\u00f0 flytja efni\u00f0 yfir \u00ed stafr\u00e6nt form \u00fearf s\u00ed\u00f0an a\u00f0 hreinsa \u00fea\u00f0 og snyrta til \u00e1 \u00fdmsan h\u00e1tt og b\u00e6ta hlj\u00f3mg\u00e6\u00f0in, enda voru uppt\u00f6kug\u00e6\u00f0in \u00e1 s\u00ednum t\u00edma b\u00fdsna misj\u00f6fn. \u00deetta verkefni er enn \u00ed gangi en s\u00fdnishorn af efninu m\u00e1 finna \u00e1 vefsv\u00e6\u00f0inu <a href=\"http:\/\/mallyskur.is\/\">http:\/\/mallyskur.is<\/a>. \u00a0Bjarki M. Karlsson MA \u00e1 mestan\u00a0hei\u00f0ur af uppsetningu \u00feessa vefsv\u00e6\u00f0is en Steinar H\u00f6skuldsson, hlj\u00f3\u00f0uppt\u00f6kuma\u00f0ur, hefur s\u00e9\u00f0 um a\u00f0 snyrta uppt\u00f6kurnar og gera \u00fe\u00e6r s\u00fdningarh\u00e6far, ef svo m\u00e1 segja. \u00de\u00e6r fyrstu sem komu \u00e1 vefinn voru \u00e1\u00f0ur birtar \u00e1 sn\u00e6ldu sem fylgdi b\u00f3kinni <em>M\u00e1ll\u00fdskud\u00e6mi <\/em>(me\u00f0h\u00f6fundar Gu\u00f0var\u00f0ur M\u00e1r Gunnlaugsson og Sigur\u00f0ur J\u00f3nsson, \u00fatg. M\u00e1lv\u00edsindastofnun H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands) en kort og l\u00ednurit eru m\u00f6rg hver upphaflega komin \u00far grein \u00e1 diskinum <em>Alfr\u00e6\u00f0i \u00edslenskrar tungu<\/em> (ritstj\u00f3rar \u00de\u00f3runn Bl\u00f6ndal og Heimir P\u00e1lsson, \u00fatg. N\u00e1msgagnastofnun) e\u00f0a \u00far 11. kafla b\u00f3kar Kristj\u00e1ns \u00c1rnasonar <em>Hlj\u00f3\u00f0<\/em> (\u00cdslensk tunga III, Almenna b\u00f3kaf\u00e9lagi\u00f0 2005).<\/p>\n<h2>Eldri ranns\u00f3knaverkefni<\/h2>\n<h3>Tilbrig\u00f0i \u00ed f\u00e6reyskri setningager\u00f0<\/h3>\n<p>Ranns\u00f3knasj\u00f3\u00f0ur veitti tveggja \u00e1ra styrk til \u00feessa verkefnis (2008\u20132009). Me\u00f0ums\u00e6kjendur voru J\u00f3hannes G\u00edsli J\u00f3nsson og \u00de\u00f3rhallur Ey\u00fe\u00f3rsson, en verkefni\u00f0 var \u00ed raun framhald af eldri verkefnum sem ums\u00e6kjendur h\u00f6f\u00f0u unni\u00f0 a\u00f0. Markmi\u00f0i\u00f0 var a\u00f0 rannsaka tilbrig\u00f0i \u00ed f\u00e6reyskri setningager\u00f0 skipulega og me\u00f0 svipu\u00f0um h\u00e6tti og gert haf\u00f0i veri\u00f0 fyrir \u00edslensku \u00ed <em>Tilbrig\u00f0averkefninu<\/em> (sj\u00e1 l\u00fdsingu h\u00e9r ne\u00f0ar).\u00a0 [... frekari l\u00fdsing og lokask\u00fdrsla \u00ed vinnslu]<\/p>\n<h3>Tilbrig\u00f0i \u00ed setningager\u00f0<\/h3>\n<p>\u00deetta verkefni f\u00e9kk \u00f6ndvegisstyrk fr\u00e1 Ranns\u00f3knasj\u00f3\u00f0i en me\u00f0ums\u00e6kjendur voru\u00a0\u00a0Eir\u00edkur R\u00f6gnvaldsson, Sigr\u00ed\u00f0ur Sigurj\u00f3nsd\u00f3ttir, J\u00f3hannes G\u00edsli J\u00f3nsson, Eir\u00edkur R\u00f6gnvaldsson, \u00c1sta Svavarsd\u00f3ttir, \u00de\u00f3runn Bl\u00f6ndal. [Frekari l\u00fdsing \u00ed vinnslu, auk \u00feess sem unni\u00f0 er a\u00f0 b\u00f3k um helstu ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur. Sj\u00e1 l\u00edka\u00a0<a href=\"http:\/\/malvis.hi.is\/tilbrigdi\/\">http:\/\/malvis.hi.is\/tilbrigdi\/<\/a>]<\/p>\n<h3>Tilbrig\u00f0i \u00ed setningager\u00f0 - A\u00f0fer\u00f0ir og efniss\u00f6fnun<\/h3>\n<p>\u00c1\u00f0ur en s\u00f3tt var um\u00a0\u00f6ndvegisstyrk\u00a0til verkefnisins <em>Tilbrig\u00f0i \u00ed setningager\u00f0<\/em>\u00a0f\u00e9kkst\u00a0forranns\u00f3knarstyrkur fr\u00e1 Ranns\u00f3knasj\u00f3\u00f0i til undirb\u00fanings. Markmi\u00f0i\u00f0 var annars vegar a\u00f0 kanna hva\u00f0a tilbrig\u00f0i kynni a\u00f0 vera forvitnilegast a\u00f0 sko\u00f0a\u00a0og hins vegar a\u00f0 gera tilraunir me\u00f0 \u00f3l\u00edkar a\u00f0fer\u00f0ir vi\u00f0 efniss\u00f6fnun.\u00a0[Frekari l\u00fdsing \u00ed vinnslu.\u00a0 Sj\u00e1 l\u00edka \u00a0<a href=\"http:\/\/malvis.hi.is\/tilbrigdi\/\">http:\/\/malvis.hi.is\/tilbrigdi\/<\/a>].<\/p>\n<h3>Samanbur\u00f0ur norr\u00e6nna eyjam\u00e1la<\/h3>\n<p>Til \u00feessa verkefnis f\u00e9kkst styrkur fr\u00e1 Ranns\u00f3knasj\u00f3\u00f0i 1996\u20131998.\u00a0 Markmi\u00f0i\u00f0 var einkum samanbur\u00f0ur \u00edslensku og f\u00e6reysku, eins og nafni\u00f0 bendir til, og b\u00f3kin <em>Faroese \u2013 An Overview and Reference Grammar<\/em> (2004) er helsti afrakstur \u00feessa verkefnis, auk \u00feess sem b\u00f3kin\u00a0<em>The Syntax of Icelandic<\/em> (2007) byggir a\u00f0 nokkru\u00a0leyti \u00e1 \u00feessum ranns\u00f3knum. F\u00e6reyskub\u00f3kin er almennt yfirlitsrit eins og nafni\u00f0 bendir til og fjallar um hlj\u00f3\u00f0fr\u00e6\u00f0i, hlj\u00f3\u00f0kerfisfr\u00e6\u00f0i, beygingar- og or\u00f0myndunarfr\u00e6\u00f0i, setningafr\u00e6\u00f0i, m\u00e1ll\u00fdskur og m\u00e1ls\u00f6gu, en\u00a0\u00e1 flestum \u00feessum svi\u00f0um er samanbur\u00f0ur vi\u00f0 \u00edslensku, og stundum l\u00edka forn\u00edslensku og \u00f6nnur norr\u00e6n m\u00e1l, talsvert\u00a0\u00e1berandi. B\u00f3kin <em>The Syntax of Icelandic<\/em> felur \u00ed s\u00e9r mun fr\u00e6\u00f0ilegri og skipulegri samanbur\u00f0 norr\u00e6nna m\u00e1la, einkum \u00edslensku og f\u00e6reysku. S\u00ed\u00f0ari ranns\u00f3knir \u00e1 tilbrig\u00f0um \u00ed \u00edslenskri og f\u00e6reyskri (og norr\u00e6nni) setningager\u00f0 hafa svo haldi\u00f0 \u00e1fram me\u00f0 \u00feann \u00fer\u00e1\u00f0.<\/p>\n<h3>Styrkir til ranns\u00f3kna\u00a0\u00ed \u00edslenskri setningafr\u00e6\u00f0i<\/h3>\n<p>\u00c1 \u00e1runum eftir\u00a01995 f\u00e9kk \u00e9g nokkra styrki\u00a0\u00far Ranns\u00f3knasj\u00f3\u00f0i H\u00e1sk\u00f3lans til ranns\u00f3kna \u00e1 \u00edslenskri setningager\u00f0. Markmi\u00f0i\u00f0 var a\u00f0 skrifa nokkurs konar framhald af kennslub\u00f3kinni <em>\u00cdslensk setningafr\u00e6\u00f0i<\/em> og reyndar byrja\u00f0i \u00e9g \u00e1 \u00feeirri vinnu fyrir 1991 og h\u00e9lt henni \u00e1fram me\u00f0an \u00e9g kenndi vi\u00f0 m\u00e1lv\u00edsindadeild\u00a0Harvardh\u00e1sk\u00f3la 1991\u20131995. \u00a0B\u00f3kin <em>Setningar<\/em> (\u00cdslensk tunga III) byggir m.a. \u00e1 \u00feessum ranns\u00f3knum og b\u00f3kin <em>The Syntax of Icelandic\u00a0<\/em>l\u00edka.<\/p>\n<h3>Ranns\u00f3kn \u00e1 \u00edslensku n\u00fat\u00edmam\u00e1li (R\u00cdN)<\/h3>\n<p>\u00c1 9. \u00e1ratug s\u00ed\u00f0ustu aldar fengum vi\u00f0 Kristj\u00e1n \u00c1rnason styrki \u00far Ranns\u00f3knasj\u00f3\u00f0i, Ranns\u00f3knasj\u00f3\u00f0i H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands og fleiri a\u00f0ilum til a\u00f0 vinna a\u00f0 ranns\u00f3kn \u00e1 \u00edslenskum frambur\u00f0arm\u00e1ll\u00fdskum. S\u00fa ranns\u00f3kn var k\u00f6llu\u00f0 Ranns\u00f3kn \u00e1 \u00edslensku n\u00fat\u00edmam\u00e1li, yfirleitt skammstafa\u00f0 R\u00cdN. Ranns\u00f3knin n\u00e1\u00f0i til yfir 2.800 \u00fe\u00e1tttakenda \u00e1 \u00fdmsum aldri um allt land. Vi\u00f0 Kristj\u00e1n h\u00f6fum gert grein fyrir helstu ni\u00f0urst\u00f6\u00f0um \u00feessarar ranns\u00f3knar \u00e1 \u00fdmsum vettvangi (sj\u00e1 ritaskr\u00e1 tengda \u00feessari heimas\u00ed\u00f0u), en heildst\u00e6\u00f0ustu yfirlitin er a\u00f0 finna \u00ed greinum \u00ed <em>\u00cdslensku m\u00e1li<\/em> (14, 1992),\u00a0\u00e1 margmi\u00f0lunardiskinum <em>Alfr\u00e6\u00f0i \u00edslenskrar tungu <\/em>(2001), \u00ed\u00a0greinasafni um norr\u00e6nar m\u00e1ll\u00fdskur (<em>Nordisk dialektologi<\/em>, 2003) og \u00ed 11. kafla b\u00f3kar Kristj\u00e1ns <em>Hlj\u00f3\u00f0<\/em> (\u00cdslensk tunga III, 2005). S\u00ed\u00f0an er b\u00fai\u00f0 a\u00f0 setja verulegar uppl\u00fdsingar, s\u00falurit, l\u00ednurit, kort og m\u00e1ll\u00fdskud\u00e6mi \u00ed stafr\u00e6nu formi inn \u00e1 m\u00e1ll\u00fdskuvefinn <a href=\"http:\/\/m\u00e1ll\u00fdskur.is\/\">http:\/\/m\u00e1ll\u00fdskur.is<\/a>.<\/p>\n<h2>Al\u00fej\u00f3\u00f0legt ranns\u00f3knasamstarf<\/h2>\n<p>Margt af \u00feeim ranns\u00f3knaverkefnum sem hafa veri\u00f0 talin upp h\u00e9r \u00e1 undan hefur veri\u00f0 unni\u00f0 \u00ed samstarfi e\u00f0a einhvers konar tengslum vi\u00f0 m\u00e1lv\u00edsindamenn \u00ed \u00f6\u00f0rum l\u00f6ndum, einkum norr\u00e6na. \u00deetta \u00e1\u00a0s\u00e9rstaklega vi\u00f0 tilbrig\u00f0averkefnin (Tilbrig\u00f0i \u00ed setningager\u00f0, Tilbrig\u00f0i \u00ed f\u00e6reyskri setningager\u00f0) sem tengjast hli\u00f0st\u00e6\u00f0um verkefnum annars sta\u00f0ar \u00e1 Nor\u00f0url\u00f6ndum \u00ed gegnum ranns\u00f3knanetin <em>Nordic Language Variation Network <\/em>(NLVN, sj\u00e1 <a href=\"http:\/\/nlvn.uit.no\/\">http:\/\/nlvn.uit.no\/<\/a> ),\u00a0 <em>Nordic Center of Excellence in Microcomparative Syntax<\/em> (NORMS, sj\u00e1 <a href=\"http:\/\/norms.uit.no\/\">http:\/\/norms.uit.no\/<\/a>) og\u00a0\u00a0<em>Scandinavian Dialect Syntax<\/em> og \u00ed stj\u00f3rn netsins (ScanDiaSyn, sj\u00e1 <a href=\"http:\/\/uit.no\/scandiasyn\">http:\/\/uit.no\/scandiasyn<\/a>).<\/p>\n<p>Samstarfsmenn vi\u00f0 upphaflegar ranns\u00f3knir m\u00ednar \u00e1 f\u00e6reysku og me\u00f0h\u00f6fundar b\u00f3karinnar <em>Faroese \u2013 A Handbook and Reference Grammar<\/em>, \u00feeir Zakaris Svabo Hansen, J\u00f3gvan \u00ed Lon Jacobsen og Hjalmar P. Petersen, hafa l\u00edka gegnt mikilv\u00e6gu hlutverki og sama \u00e1 vi\u00f0 um fj\u00f6lmarga f\u00e6reyska a\u00f0sto\u00f0armenn okkar vi\u00f0 s\u00ed\u00f0ari ranns\u00f3knir \u00e1 f\u00e6reysku (sj\u00e1 lokask\u00fdrslu verkefnisins Tilbrig\u00f0i \u00ed f\u00e6reyskri setningager\u00f0).<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Ranns\u00f3knir sem unni\u00f0 er a\u00f0 M\u00e1l, m\u00e1lbreytingar og menningarleg sj\u00e1lfsmynd\/Heritage language, linguistic change and cultural identity. \u00deetta verkefni hlaut styrk fr\u00e1 Ranns\u00f3knasj\u00f3\u00f0i \u00cdslands (gegnum RANN\u00cdS) \u00e1ri\u00f0 2013. Gert er r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 \u00feetta ver\u00f0i \u00feriggja \u00e1ra verkefni. Verkefnisstj\u00f3rar eru H\u00f6skuldur \u00der\u00e1insson og Birna Arnbj\u00f6rnsd\u00f3ttir. A\u00f0rir ums\u00e6kjendur eru \u00c1sta Svavarsd\u00f3ttir, Daisy Neijmann, Kristj\u00e1n \u00c1rnason, Matthew Whelpton [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":47,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","template":"","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-42","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/hoski\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/42","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/hoski\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/hoski\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/hoski\/wp-json\/wp\/v2\/users\/47"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/hoski\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=42"}],"version-history":[{"count":17,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/hoski\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/42\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":456,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/hoski\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/42\/revisions\/456"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/hoski\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=42"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}