Urridaholt

Gróðurrásir í Urriðaholti taka við umframvatni og beina því í grunnvatn og að Urriðavatni

Finna þarf farveg fyrir rigningu og snjóbráð frá þökum, götum og görðum til þess að forðast flóð og vatnstjón í þéttbýli. Í æ ríkara mæli er horft til sjálfbærra lausna sem miðla vatni í náttúrulega farvegi. Urriðaholt í Garðabæ er fyrsta hverfið á Íslandi hannað með tilliti til sjálfbærra ofanvatnslausna sem stuðla að því að nægilegt vatn berist í Urriðavatnið.

Rannsóknin "sjálfbær regnvatnsstjórnun í köldu loftlsagi" hlaut 3 ára styrk úr verkefnissjóði Rannís árið 2018.  Markmið rannsóknarinnar er að skilja betur snjóbráð og ísig vatns þar sem er tíð frost og þýða. Niðurstöður munu gegna lykilhlutverki í að tryggja farsæla hönnun og rekstur ofanvatnskerfa í þéttbýli í köldu loftslagi.

Rannsóknarmiðstöðin í Urriðaholti 

Garðabær, Urriðaholt ehf.,Veðurstofa Íslands, og Háskóli Íslands, undirrituðu samstarfssamning um uppbyggingu rannsóknarmiðstöðvar á sviði blágrænna regnvatnslausna í Urriðaholti í Garðabæ í maí 2018.  Urriðaholtið verður rannsóknarvettvangur fyrir vísindalegar rannsóknir á blágrænum regnvatnslausnum, og miðla niðurstöðum úr þeirri vinnu jafnt innan- og utanlands. Í lok árs 2018 reis ný veðurstöð fyrir Urriðaholt, gögnin má nálgast hér.

Vettvangsrannsóknir í Urriðaholti 2018-2020

  • Samfelldar mælingar á jarvegsraka og hita
  • Mánaðarlegar ísigstilraunir, sem meta getu jarðvegs að taka við vatni og miðla í grunnvatn
  • Gerviflóð mæld í gróðurrásum
  • Mælingar á snjóþykkt, eðlisþyngd, leiðni

Rannsóknarteymið

  • Dr. Hrund Ó. Andradóttir, prófessor og verkefnisstjóri HÍ
  • Tarek Zaqout, doktorsnemi HÍ
  • Dr. Johanna Sörensen, póst-doc HÍ/Lund
  • Anna Rut Arnardóttir, MS. Ritgerð hennar fjallar um veður- og yfirborðsaðstæður sem valda flóði í þéttbýli og má nálgast á skemmunni.
  • Bjarni Halldórsson, MS nemi.
  • Vilhjálmur Sigurjónsson, tæknistjóri VoN
  • Ólafur Arnalds, prófessor í LBHÍ

Tarek er verkefnisstjóri vettvangsrannsókna

Þjálfun fagfólks

16 nemendur áhugasamir á umhverfismálum hafa fengið þjálfun í rannsóknaaðferðum beitt í þessum rannsóknum. Rannsóknir í Urriðaholti voru hluti af námskeiðunum UMV vatnsgæði (vor 2019), og UMV602M Fráveitur og skólphreinsun (Vor 2018) við Háskóla Íslands.  Veturinn 2020 komu 7 BS nemendur og aðstoðuðu við feltvinnu, og fengu þannig innsýn í hvernig rannsóknir fara fram í felt, að hversu mörgu þarf að huga og hvernig oft getur verið erfitt að hrinda einfaldri hugmynd í framkvæmd utandyra.

Nemendur við snjómælingar 2018

Nemendur við ísigsmælingar 2019

Birtingar í alþjóðlegum vísindaritum

MS ritgerðir

Bjarni Haldórsson (2021). Influence of repeated freeze-thaw cycles on the infiltration of Icelandic Andosols. MS thesis, University of Iceland.

Anna Rut Arnardóttir. 2020. Winter Floods in Reykjavík: Coaction of Meteorological and Soil Conditions. Meistararitgerð, Háskóla Íslands