﻿{"id":1106,"date":"2018-09-28T12:36:08","date_gmt":"2018-09-28T12:36:08","guid":{"rendered":"http:\/\/uni.hi.is\/rhv\/?page_id=1106"},"modified":"2019-07-07T11:55:04","modified_gmt":"2019-07-07T11:55:04","slug":"eftirbatur","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/hofundurinn\/eftirbatur\/","title":{"rendered":"Eftirb\u00e1tur"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/uni.hi.is\/rhv\/files\/2018\/09\/EFTIRBATUR_x.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-medium wp-image-1107\" src=\"http:\/\/uni.hi.is\/rhv\/files\/2018\/09\/EFTIRBATUR_x-222x300.jpg\" alt=\"\" width=\"222\" height=\"300\" srcset=\"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/files\/2018\/09\/EFTIRBATUR_x-222x300.jpg 222w, https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/files\/2018\/09\/EFTIRBATUR_x-768x1036.jpg 768w, https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/files\/2018\/09\/EFTIRBATUR_x-759x1024.jpg 759w, https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/files\/2018\/09\/EFTIRBATUR_x.jpg 1669w\" sizes=\"auto, (max-width: 222px) 100vw, 222px\" \/><\/a>\u00c6gir leitar a\u00f0 sj\u00f3manninum f\u00f6\u00f0ur s\u00ednum eftir a\u00f0 b\u00e1tur hans finnst mannlaus \u00fat af Vestfj\u00f6r\u00f0um. Leitarlei\u00f0angrar \u00c6gis vekja spurningar um fa\u00f0erni\u00f0 sj\u00e1lft \u00ed \u00feessum har\u00f0b\u00fdla heimshluta. Hver er hinn raunverulegi fa\u00f0ir og hva\u00f0 m\u00f3ta\u00f0i hann? Er nau\u00f0synlegt a\u00f0 \u00feekkja s\u00f6guna til a\u00f0 vita hver ma\u00f0ur er?<\/p>\n<p>\u00deetta vefst fyrir \u00c6gi sem lifir og hr\u00e6rist \u00ed n\u00fai augl\u00fdsingaheimsins og veit \u201eandskotann ekkert um fort\u00ed\u00f0ina\u201c. \u00cd leit sinni fer hann v\u00edtt og breitt um st\u00f3rbrotna n\u00e1tt\u00faru og s\u00f6gu Vestfjar\u00f0a \u00fear sem r\u00e6tur hans sj\u00e1lfs liggja. \u00c1 sama t\u00edma eru teikn \u00e1 lofti \u00ed fj\u00f6lskyldul\u00edfinu og brestir komnir \u00ed hina hef\u00f0bundnu karlmennsku\u00edmynd.<\/p>\n<div class=\"post-content\">\n<p>R\u00fanar Helgi Vignisson hefur sent fr\u00e1 s\u00e9r sk\u00e1lds\u00f6gur og sm\u00e1sagnas\u00f6fn sem hloti\u00f0 hafa afbrag\u00f0s vi\u00f0t\u00f6kur og vi\u00f0urkenningar. Fyrir s\u00ed\u00f0ustu b\u00f3k s\u00edna,<em>\u00a0\u00c1st \u00ed meinum<\/em>, hlaut hann Menningarver\u00f0laun DV. Hann er einnig afkastamikill og ver\u00f0launa\u00f0ur \u00fe\u00fd\u00f0andi, auk \u00feess a\u00f0 hafa um \u00e1rabil haft veg og vanda af ritlistarn\u00e1mi vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands.<\/p>\n<\/div>\n<p>Dimma 2018<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>U M F J \u00d6 L L U N\u00a0 O G\u00a0 U M S A G N I R<\/strong><\/p>\n<p>\u201e\u00c9g er a\u00f0 reyna a\u00f0 hugsa um \u00feetta hverjir eru a\u00f0 vinna \u00far \u00feessari m\u00f3dern\u00edsku hef\u00f0, t.d. af h\u00f6fundum sem eru n\u00fa a\u00f0 gefa \u00fat. M\u00e9r flaug \u00fea\u00f0 bara \u00ed hug af \u00fev\u00ed \u00fe\u00fa nefndir Hornstrandir, \u00e9g var a\u00f0 lesa b\u00f3k R\u00fanars Helga Vignissonar n\u00fana um daginn sem heitir <em>Eftirb\u00e1tur<\/em> og \u00fearna finnst m\u00e9r mj\u00f6g skemmtilegt hvernig dansa\u00f0 er \u00e1 m\u00f6rkum, annars vegar svona rauns\u00e6issk\u00e1lds\u00f6gu og hins vegar einhvers annars sem a\u00f0 . . .\u201c (TT) \u201eJ\u00e1, vissulega, sem er \u00e1kve\u00f0inn m\u00f3dernismi og hugsanlega m\u00e6tti kalla \u00fea\u00f0 t\u00f6frarauns\u00e6i, \u00fea\u00f0 hugtak er n\u00fa nota\u00f0 um b\u00fdsna margt en \u00fea\u00f0 er samt \u00fear sem rofin eru \u00e1kve\u00f0in veruleikal\u00f6gm\u00e1l og hleypt inn einhverju sem \u00e6tti ekki a\u00f0 vera \u00fearna samkv\u00e6mt okkar veraldarhyggju. Hann opnar fyrir \u00fea\u00f0 mj\u00f6g listilega \u00ed \u00feessari s\u00f6gu \u00feannig a\u00f0 \u00feetta er gott d\u00e6mi um a\u00f0 \u00fea\u00f0 er enn h\u00e6gt a\u00f0 stunda \u00e1kve\u00f0nar tilraunir me\u00f0 fr\u00e1s\u00f6gnina.\u201c (\u00c1E) \u2013 Spjall Torfa Tuliniusar og \u00c1str\u00e1\u00f0s Eysteinssonar \u00ed \u00fe\u00e6ttinum \u201eSamtal\u201c \u00e1 R\u00e1s 1 20. jan. 2019.<\/p>\n<p>\u201etakk fyrir bokina \u00feina, eg er mj\u00f6\u00f6\u00f6g hrifin af henni.\u201c \u2013 Oddn\u00fd Eir \u00c6varsd\u00f3ttir, rith\u00f6fundur, Facebook.<\/p>\n<p>\u201e\u00c9g er st\u00f3rhrifin og s\u00e9rstaklega af t\u00edmaflakkinu.\u201c Svanhildur \u00de\u00f3r\u00f0ard\u00f3ttir, lestrarhestur, Facebook.<\/p>\n<p>\u201emeistaraleg byrjun \u00e1 b\u00f3kinni,\u00a0<a class=\"profileLink\" href=\"https:\/\/www.facebook.com\/runar.vignisson?eid=ARAyMaaYgrJyS3YxGBRqgA1P8_k11N16dDtqyzMColIs1FAFA5oUARTsYBP-wwXYJKKqsXlPDWI3EMVG\">R\u00fanar Helgi Vignisson<\/a>, hlakka til a\u00f0 lesa \u00e1fram!\u201c \u2013 Steinunn Sigur\u00f0ard\u00f3ttir, rith\u00f6fundur, Facebook.<\/p>\n<p>\u201eLas Eftirb\u00e1tinn, hann var g\u00f3\u00f0ur. Spennandi svona me\u00f0 flj\u00f3tandi t\u00edmann og fa\u00f0erni\u00f0 og allt. Um \u00fea\u00f0 hva\u00f0 vi\u00f0 heldur a\u00f0 s\u00e9 fast undir f\u00f3tum er \u00ed raun og veru \u00ed lausu lofti. Til hamingju!\u201c \u2013 Tapio Koivukari, rith\u00f6fundur, Facebook.<\/p>\n<p>\u201eLas EFTIRB\u00c1T R\u00fanars Helga Vignissonar, sk\u00e1lds\u00f6gu sem of l\u00edti\u00f0 hefur fari\u00f0 fyrir \u00ed j\u00f3lab\u00f3kafl\u00f3\u00f0inu. Titillinn er skemmtilega margr\u00e6\u00f0ur, v\u00edsar \u00ed al\u00feekkta yfirf\u00e6r\u00f0a merkingu sem og b\u00f3kstaflega \u2013 \u00ed fleiri en einum skilningi. R\u00fanar Helgi er s\u00e1 \u00edslenski h\u00f6fundur sem hva\u00f0 mest hefur lagt sig eftir a\u00f0 skrifa um \u201an\u00fat\u00edmakarlmanninn\u2018 og st\u00f6\u00f0u hans \u00ed heiminum og s\u00f6guma\u00f0ur Eftirb\u00e1ts er \u00fear engin undantekning. B\u00f3kin fjallar um fe\u00f0gasamband, hj\u00f3nal\u00edf, f\u00f6\u00f0urhlutverk, sj\u00f3mennsku og leit a\u00f0 r\u00f3<span class=\"text_exposed_show\">tum s\u00ednum, svo f\u00e1tt eitt s\u00e9 tali\u00f0. H\u00fan er mj\u00f6g vel skrifu\u00f0 og hefur \u00e1g\u00e6ta flettiorku. En \u00fea\u00f0 sem gerir \u00feessa b\u00f3k s\u00e9rstaka er t\u00edmaflakki\u00f0 sem s\u00f6gupers\u00f3nan lendir \u00ed og hefur \u00fdmislegt \u00f3v\u00e6nt \u00ed f\u00f6r me\u00f0 s\u00e9r. \u00cd s\u00ed\u00f0ustu sk\u00e1lds\u00f6gu R\u00fanars Helga, Feig\u00f0arflani, segir \u00e1 einum sta\u00f0 a\u00f0 fort\u00ed\u00f0in s\u00e9 ef til vill \u201ejafn framandi og \u00f6nnur l\u00f6nd\u201c og \u00ed Eftirb\u00e1ti m\u00e1 segja a\u00f0 h\u00f6fundur taki \u00feessa hugsun b\u00f3kstaflega \u00feegar hann l\u00e6tur a\u00f0alpers\u00f3nu s\u00edna, \u00c6gi, fer\u00f0ast inn \u00ed hin framandi l\u00f6nd fort\u00ed\u00f0arinnar me\u00f0 \u00fdmsum \u00f3fyrirsj\u00e1anlegum aflei\u00f0ingum.\u201c \u2013 <\/span>Soff\u00eda Au\u00f0ur Birgisd\u00f3ttir b\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0ingur, Facebook<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>Eftirb\u00e1tur<\/strong><\/p>\n<p><strong>\u2605\u2605\u2605<b>\u2605<\/b><\/strong><\/p>\n<p><strong>R\u00fanar Helgi Vignisson<\/strong><\/p>\n<p><strong>\u00datgefandi: Dimma<\/strong><\/p>\n<p><strong>Fj\u00f6ldi s\u00ed\u00f0na: 226<\/strong><\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er sitt hva\u00f0 Fa\u00f0irvor og fa\u00f0ir vor,\u201c segir s\u00f6gupers\u00f3nan \u00c6gir \u00feegar hann fr\u00e9ttir af \u00fev\u00ed a\u00f0 fa\u00f0ir hans S\u00e6var hefur t\u00fdnst \u00e1 sj\u00f3 vestur \u00e1 fj\u00f6r\u00f0um. \u00dear me\u00f0 hefst leitin a\u00f0 f\u00f6\u00f0urnum sem \u00e1 vissan h\u00e1tt er \u201efa\u00f0ir allra fe\u00f0ra\u201c. \u00dea\u00f0 er leitin a\u00f0 upprunanum, r\u00f3tunum, arfleif\u00f0inni, sj\u00e1lfum s\u00e9r.<\/p>\n<p>Lei\u00f0in liggur um votar sl\u00f3\u00f0ir \u00e1 s\u00f6gusvi\u00f0i aldanna \u00fear sem l\u00edfsbar\u00e1ttan vi\u00f0 sj\u00f3inn markast af vi\u00f0ureign vi\u00f0 n\u00e1tt\u00faruna, l\u00edfi\u00f0 og dau\u00f0ann. Sagan er fantas\u00eda \u00fear sem stu\u00f0st er vi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00e6vag\u00f6mlu a\u00f0fer\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0sagna og \u00e6vint\u00fdra a\u00f0 fer\u00f0ast milli \u201eheima\u201c \u2013 af einu t\u00edma- og s\u00f6gusvi\u00f0i yfir \u00e1 anna\u00f0. Skilin \u00fear \u00e1 milli eru t\u00e1knu\u00f0 me\u00f0 \u00feoku. A\u00f0alpers\u00f3nan lifir \u00ed n\u00fat\u00ed\u00f0inni en breg\u00f0ur s\u00e9r um s\u00f6gusvi\u00f0 forfe\u00f0ranna \u00e1 litlum b\u00e1ti. Draumur fl\u00e9ttast vi\u00f0 veruleika. Fort\u00ed\u00f0in gengur aftur \u00ed n\u00fat\u00edmanum. Sj\u00f3ma\u00f0urinn gamli sem fer me\u00f0 \u00c6gi \u00ed leitarlei\u00f0angra hans ber me\u00f0 s\u00e9r \u00fatlit allra b\u00e1tsformanna um aldir og draga m\u00e1 \u00ed efa a\u00f0 hann s\u00e9 raunveruleg pers\u00f3na. St\u00f6\u00f0ugur stendur hann vi\u00f0 st\u00fdri\u00f0 \u00e1 sj\u00f3num en eins og \u00feegar m\u00fakkanum fatast flugi\u00f0 yfir landi, lamast f\u00e6tur hans um lei\u00f0 og hann st\u00edgur \u00e1 \u00feurrt. Ver\u00f0ur \u00fe\u00e1 \u201eh\u00e1lfur ma\u00f0ur\u201c.<\/p>\n<p>Eftirb\u00e1tur er \u00e1ttunda sk\u00e1ldsaga R\u00fanars Helga Vignissonar (f. 1959). Sj\u00f3rinn hefur \u00e1\u00f0ur veri\u00f0 honum hugleikinn, eins og til d\u00e6mis \u00ed fyrstu b\u00f3k hans Ekkert slor (1984), enda er hann borinn og barnf\u00e6ddur vi\u00f0 \u00cdsafjar\u00f0ardj\u00fap l\u00edkt og efnist\u00f6k b\u00f3karinnar gefa til kynna. \u00c1 k\u00f6flum getur a\u00f0 l\u00edta hressilegt sj\u00f3mannam\u00e1l en ekki er v\u00edst a\u00f0 allir lesendur tengi jafn vel vi\u00f0 m\u00e1lfari\u00f0 sem h\u00f6fundi vir\u00f0ist tamt \u00e1 tungu \u2013 or\u00f0atilt\u00e6ki \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 \u201e\u00fea\u00f0 skal ekki skar\u00f0a\u201c e\u00f0a ve\u00f0urfarsl\u00fdsinguna \u201ekaldask\u00edt\u201c svo d\u00e6mi s\u00e9u tekin. Samanbori\u00f0 vi\u00f0 sj\u00f3mennskutali\u00f0 sk\u00fdtur \u00fev\u00ed sk\u00f6kku vi\u00f0, \u00feegar \u00e1stir og kynl\u00edf koma til tals, a\u00f0 sj\u00e1 gripi\u00f0 til r\u00f3sam\u00e1lsins. Er engu l\u00edkara en h\u00f6fundur vilji gera \u00fev\u00ed efni skil en veigri s\u00e9r samt vi\u00f0 \u00fev\u00ed (hj\u00f3nin eru \u201e\u00ed g\u00f3\u00f0um g\u00edr\u201c, \u00fea\u00f0 lifnar yfir honum \u201ene\u00f0an\u00feilja\u201c o.s.frv.). \u00datkoman ver\u00f0ur tilger\u00f0 sem \u00e1 illa heima \u00ed andr\u00fami s\u00f6gunnar og er \u00f3\u00fe\u00f6rf \u00fev\u00ed sumu hef\u00f0i einfaldlega m\u00e1tt sleppa.<\/p>\n<p>\u00c1 \u00f6\u00f0rum svi\u00f0um tekst betur til me\u00f0 h\u00famor og st\u00edlfimi. N\u00faningur milli fort\u00ed\u00f0ar og n\u00fat\u00ed\u00f0ar er undirstrika\u00f0ur me\u00f0 (v\u00edsvitandi) \u00f3samr\u00e6mi or\u00f0r\u00e6\u00f0u og andr\u00famslofts, \u00fear sem a\u00f0alpers\u00f3nan \u00c6gir botnar ekkert \u00ed \u00fev\u00ed sem fyrir augu ber enda veit hann \u201eandskotann ekkert um fort\u00ed\u00f0ina\u201c. Ekkert frekar en b\u00f6rnin sem skilja ekki or\u00f0i\u00f0 \u201eh\u00e9g\u00f3mi\u201c heldur \u201ehalda a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 eitthvert tannl\u00e6knam\u00e1l\u201c.<\/p>\n<p>H\u00e9r er s\u00f6g\u00f0 saga allra sj\u00f3manna (og raunar fleiri) sem lifa\u00f0 hafa og d\u00e1i\u00f0 vi\u00f0 \u00cdsafjar\u00f0ardj\u00fap en ganga aftur \u00ed afkomendum s\u00ednum kynsl\u00f3\u00f0 eftir kynsl\u00f3\u00f0. Synir hafsins \u2013 eins og n\u00f6fnin votta \u2013 s\u00e6kja sj\u00f3inn mann fram af manni, \u00fe\u00f3 me\u00f0 \u00fe\u00e1 von \u00ed brj\u00f3sti a\u00f0 afkomendurnir hlj\u00f3ti anna\u00f0 hlutskipti. \u201eFar\u00f0u aldrei \u00e1 sj\u00f3,\u201c segir fa\u00f0irinn vi\u00f0 soninn. \u201eSama hva\u00f0 \u00fe\u00e9r b\u00fd\u00f0st gott pl\u00e1ss.\u201c Sonurinn daufheyrist vi\u00f0. Nau\u00f0ugur viljugur er hann dreginn \u00e1fram af dular\u00f6flum fort\u00ed\u00f0ar sem eru eins og \u201e\u00f3lj\u00f3s marglyttu\u00fer\u00e1\u00f0ur kominn \u00far undirdj\u00fapunum\u201c. \u00c1st\u00e6\u00f0an er \u201eekki svar heldur kennd\u201c sem fyrir l\u00f6ngu var or\u00f0u\u00f0 \u00ed hendingu s\u00e1lmsins g\u00f3\u00f0a og lei\u00f0arstefi b\u00f3karinnar: F\u00f6\u00f0urland vort h\u00e1lft er hafi\u00f0 \u2013 helga\u00f0 \u00fe\u00fasund fe\u00f0ra d\u00e1\u00f0.<\/p>\n<p><em><strong>Ni\u00f0ursta\u00f0a:<\/strong>\u00a0\u00dea\u00f0 er sitt hva\u00f0 saga og Sagan \u2013 en \u00fe\u00e6r systur fl\u00e9ttast \u00fe\u00f3 b\u00fdsna vel saman \u00ed \u00feessari \u00e1hugaver\u00f0u b\u00f3k.<\/em><\/p>\n<p><span class=\"article__byline\">\u00d3l\u00edna Kjer\u00falf \u00deorvar\u00f0ard\u00f3ttir, Fr\u00e9ttabla\u00f0inu\u00a0<\/span><span class=\"article__pubdate\">18. okt\u00f3ber 2018<\/span><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<div class=\"field field-name-field-review-content field-type-text-with-summary field-label-hidden\">\n<div class=\"field-items\">\n<div class=\"field-item even\">\n<p><strong>F\u00d6\u00d0URLEITIR<\/strong><\/p>\n<p>R\u00fanar Helgi Vignisson hefur a\u00f0 \u00f6llum l\u00edkindum veri\u00f0 \u00e1 kafi \u00ed sm\u00e1s\u00f6gum undanfarin \u00e1r. Skrifa\u00f0 \u00fe\u00e6r nokkrar, \u00f6rugglega fari\u00f0 yfir \u00f3kj\u00f6rin \u00f6ll \u00ed s\u00ednu \u00fe\u00fd\u00f0ingarmikla brautry\u00f0jendastarfi sem ritlistarkennari, a\u00f0 \u00f3t\u00f6ldu hinu mikla verki vi\u00f0 a\u00f0 velja og ritst\u00fdra sm\u00e1s\u00f6gum heimsins \u00ed samnefndri ritr\u00f6\u00f0. \u00dea\u00f0 \u00fearf \u00fev\u00ed ekkert a\u00f0 koma \u00e1 \u00f3vart a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 sm\u00e1sagnabl\u00e6r yfir upphafi sk\u00e1lds\u00f6gunnar\u00a0<i>Eftirb\u00e1ts<\/i>. \u00dear er gengi\u00f0 hreint og fumlaust til verks vi\u00f0 a\u00f0 kynna til s\u00f6gunnar a\u00f0alpers\u00f3nuna, sj\u00f3mannssoninn og augl\u00fdsingager\u00f0armanninn \u00c6gi, og meginatbur\u00f0 s\u00f6gunnar og drifkraft, hvarf f\u00f6\u00f0ur hans, trillukarlsins S\u00e6vars, af b\u00e1t s\u00ednum vi\u00f0 minni \u00cdsafjar\u00f0ardj\u00faps. S\u00edminn hringir \u00ed mi\u00f0jum \u00e1starleik \u00c6vars og Sirr\u00fdar me\u00f0 fr\u00e9ttirnar og \u00feremur bla\u00f0s\u00ed\u00f0um s\u00ed\u00f0ar er \u00c6gir \u00e1 lei\u00f0 vestur \u00e1samt eiginkonu og syni. Til a\u00f0 veita m\u00f3\u00f0ur sinni stu\u00f0ning, en einkum a\u00f0 leita f\u00f6\u00f0ur s\u00edns. Flj\u00f3tlega leggja \u00feeir \u00far h\u00f6fn \u00e1 trillu f\u00f6\u00f0urins, \u00c6gir og Skarpi, me\u00f0eigandi b\u00e1tsins, sem er svo mikill sj\u00f3hundur a\u00f0 hann getur ekki stigi\u00f0 \u00ed f\u00e6turna \u00e1 landi og notar hj\u00f3last\u00f3l til a\u00f0 koma s\u00e9r \u00e1 milli, en f\u00e6r m\u00e1ttinn um lei\u00f0 og um bor\u00f0 er komi\u00f0.<\/p>\n<p>\u00deessi eiginlega leit b\u00e6tir flj\u00f3tlega vi\u00f0 sig \u00f3eiginlegri v\u00eddd. \u00cd fyrstu fer\u00f0 \u00e1 slyssta\u00f0inn hverfur \u00c6gir nefnilega aftur \u00ed t\u00edmann \u00feegar hann breg\u00f0ur s\u00e9r \u00ed land \u00ed A\u00f0alv\u00edk, illa haldinn af sj\u00f3veiki, og hittir fyrir samf\u00e9lag fr\u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00f6ld. \u00dear hittir hann st\u00falkuna Melkorku sem hann s\u00e6ngar hj\u00e1 og gerir a\u00f0 \u00f6llum l\u00edkindum barn. \u00cd s\u00ed\u00f0ari fer\u00f0um heldur \u00c6gir \u00e1fram a\u00f0 vera \u201e\u00f3st\u00f6\u00f0ugur \u00ed t\u00edmanum\u201c eins og annar b\u00f3kmenntalegur fl\u00f6kkuma\u00f0ur or\u00f0a\u00f0i \u00fea\u00f0, Billy Pilgrim \u00ed\u00a0<i>Sl\u00e1turh\u00fasi fimm<\/i>\u00a0eftir Kurt Vonnegut. \u00deau fer\u00f0al\u00f6g sn\u00faast a\u00f0 miklu leyti um a\u00f0 hafa uppi \u00e1 Melkorku og fylgjast me\u00f0 framgangi \u00f3l\u00e9ttunnar, en \u00c6gi grunar a\u00f0 \u00fear hafi fa\u00f0ir hans komi\u00f0 undir. Inn \u00ed leitina a\u00f0 Melkorku blandast \u00fdmis fr\u00e6g s\u00f6guleg atvik sem \u00c6gir ver\u00f0ur \u00fe\u00e1tttakandi \u00ed strand Go\u00f0afoss vi\u00f0 Straumnes 1916 og hinsti lei\u00f0angur Sumarli\u00f0a landp\u00f3sts 1920, en \u00ed \u00fe\u00e1 f\u00f6r sl\u00e6st \u00c6gir \u00feegar hann fr\u00e9ttir a\u00f0 kas\u00f3l\u00e9tt Melkorka hafi lagt \u00e1 s\u00f6mu hei\u00f0i nokkru fyrr.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er nokku\u00f0 t\u00f6frarauns\u00e6islegur svipur yfir \u00feessu t\u00edmaflakki \u00c6gis, a\u00f0 \u00fev\u00ed leyti a\u00f0 h\u00e9r er yfirn\u00e1tt\u00farulegum hlutum l\u00fdst sem n\u00e6sta sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0um, \u00f3venjulegum en \u00e1s\u00e6ttanlegum hluta hversdagslegs veruleika. Lesandinn ver\u00f0ur ekki miki\u00f0 var vi\u00f0 a\u00f0 \u00feetta uppbrot hafi mikil \u00e1hrif \u00e1 \u00c6gi, \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00ed fyrstu gruni augl\u00fdsingamanninn a\u00f0 veri\u00f0 s\u00e9 a\u00f0 taka kvikmynd \u00feegar Melkorka og hennar f\u00f3lk ver\u00f0ur \u00e1 vegi hans. Eftir \u00fea\u00f0 gengur hann nokku\u00f0 heils hugar inn \u00ed hlutverk sitt sem t\u00edmaflakkari og jafnvel eigin forfa\u00f0ir. \u00dea\u00f0 er miklu frekar a\u00f0 hann hafi eitthva\u00f0 vi\u00f0 framvinduna sj\u00e1lfa a\u00f0 athuga \u00fat fr\u00e1 sj\u00f3narh\u00f3li fagurfr\u00e6\u00f0innar:<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u201eFa\u00f0ir minn er ekki minn raunverulegi fa\u00f0ir. Hann var bara l\u00e1tinn taka vi\u00f0 m\u00f6mmu \u00feegar h\u00fan var or\u00f0in \u00f3fr\u00edsk.<\/p>\n<p>\u00d3ttalega er \u00feetta klisjukennt, hugsa \u00e9g me\u00f0 m\u00e9r\u201c (bls. 83).<\/p>\n<p>\u201eM\u00e1tti ma\u00f0ur ekki leita a\u00f0 pabba s\u00ednum \u00e1n \u00feess a\u00f0 lenda inni \u00ed enn einni mo\u00f0su\u00f0unni eftir \u00feessa leikstj\u00f3ra sem s\u00e9rh\u00e6f\u00f0u sig \u00ed \u00f6murlegri fort\u00ed\u00f0?\u201c (bls. 129)<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00deessi l\u00e9tt\u00fa\u00f0uga n\u00e1lgun R\u00fanars Helga \u00e1 sinn \u00fe\u00e1tt \u00ed a\u00f0 \u00fdta lesandanum \u00ed \u00fe\u00e1 \u00e1tt a\u00f0 hugsa \u00f3hlutbundi\u00f0, jafnvel heimspekilega um s\u00f6guna. Sko\u00f0a hana sem huglei\u00f0ingu um karlmennsku og f\u00f6\u00f0urhlutverki\u00f0. Um sj\u00e1lfsmynd karlmannsins \u00ed n\u00fat\u00edmaheiminum. \u00cd heimi\u00a0<i>Eftirb\u00e1ts\u00a0<\/i>er nokku\u00f0 lj\u00f3st a\u00f0 sta\u00f0a karlmannsins einkennist af talsver\u00f0u \u00f3\u00f6ryggi sem birtist \u00e1 flestum svi\u00f0um s\u00f6gunnar. Jafnvel \u00ed nafninu sj\u00e1lfu, \u00fev\u00ed er augl\u00fdsingama\u00f0ur \u00e1 m\u00f6linni ekki n\u00e1nast auglj\u00f3slega \u201eminni ma\u00f0ur\u201c,\u00a0<i>eftirb\u00e1tur<\/i>\u00a0 hetju hafsins fyrir vestan? \u00d3\u00f6ryggi\u00f0 ver\u00f0ur s\u00ed\u00f0an varla meira en \u00feegar fa\u00f0irinn hverfur, sem setur alla atbur\u00f0ar\u00e1sina af sta\u00f0.<\/p>\n<p>Reyndar m\u00e1 segja a\u00f0 athygli h\u00f6fundar og lesenda s\u00e9 minnst \u00e1 f\u00f6\u00f0urHLUTVERKINU, sambandi f\u00f6\u00f0ur og barna, \u00fe\u00e6tti fe\u00f0ra \u00ed uppeldi barna s\u00edna. H\u00e9r er sj\u00f3num miklu fremur beint a\u00f0 \u00fe\u00e6tti karla \u00ed getna\u00f0i, og hinum eil\u00edfu \u00e1hyggjum \u00feeirra af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00a0vera aldrei alveg vissir um a\u00f0 eiga \u00fear hlut a\u00f0 m\u00e1li. \u00deegar sagan hefst hafa \u00c6gir og Sirr\u00fd lengi reynt a\u00f0 eignast anna\u00f0 barn, og undir lokin kvikna efasemdir um a\u00f0 getna\u00f0ur H\u00e1vars litla, hafi \u00e1tt s\u00e9r sta\u00f0 \u00ed hj\u00f3nas\u00e6nginni. Megin\u00fer\u00e1\u00f0ur b\u00f3karinnar er s\u00ed\u00f0an s\u00e1 m\u00f6guleiki a\u00f0 \u00e1starfundur \u00c6gis og Melkorku hafi gert \u00c6gi a\u00f0 eigin afa.<\/p>\n<p>Margt er skili\u00f0 eftir \u00ed lausu lofti \u00ed vi\u00f0bur\u00f0ar\u00edkri stuttri sk\u00e1lds\u00f6gu, b\u00e6\u00f0i st\u00f3rt og sm\u00e1tt. \u00dea\u00f0 \u00e1 vi\u00f0 um fa\u00f0ernin, um hvernig n\u00fdaldarhugmyndir dr. Helga Pjeturs tengjast atbur\u00f0unum, sem er skemmtilegur \u00fat\u00fard\u00far, l\u00f6mun Skarpa og hlutur hans \u00ed t\u00edmaflakkinu (er hann m\u00f6gulega valdur af \u00fev\u00ed, eins og \u00c6gir sakar hann um \u00e1 einum sta\u00f0?) og andlitslausu mennirnir \u00e1 \u00e1rab\u00e1tnum sem ver\u00f0a tv\u00edvegis \u00e1 vegi \u00c6gis og farmur \u00feeirra. S\u00fa tilfinning l\u00e6\u00f0ist a\u00f0 lesandanum a\u00f0 R\u00fanar Helgi hafi f\u00e6rst of miki\u00f0 \u00ed fang, vi\u00f0a\u00f0 a\u00f0 s\u00e9r of miklu efni, spunni\u00f0 \u00far of m\u00f6rgum \u00fer\u00e1\u00f0um. \u00c1 sama t\u00edma er hinn \u00fer\u00f6ngi f\u00f3kus \u00e1 \u201et\u00e6knilegri\u201c hli\u00f0ar karlmennsku og f\u00f6\u00f0urhlutverks, \u00fe\u00e1tt karlmannsins \u00ed getna\u00f0i, \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta \u00f3venjulegur en l\u00edka eil\u00edti\u00f0 \u201egamaldags\u201c, vekur t.d. frekar upp hugrenningatengsl vi\u00f0 kokk\u00e1ls\u00fer\u00e1hyggjuna \u00ed sumum k\u00f3med\u00edum Shakespeares en st\u00f6\u00f0u karlmannsins \u00ed fl\u00f3knum og vonandi a\u00f0eins r\u00e9ttl\u00e1tari n\u00fat\u00edmaheimi. Engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur er\u00a0<i>Eftirb\u00e1tur<\/i>\u00a0forvitnileg b\u00f3k me\u00f0 \u00f3venjulegum efnist\u00f6kum \u00e1 m\u00f6rkum fur\u00f0usagna, fagurb\u00f3kmennta, s\u00f6gu og n\u00fat\u00edma. \u00dea\u00f0 er \u00e1 \u00feannig sl\u00f3\u00f0um sem best fiskast.<\/p>\n<p>\u00deorgeir Tryggvason, 2018, B\u00f3kmenntaborgin:\u00a0https:\/\/bokmenntaborgin.is\/umfjollun\/eftirbatur<\/p>\n<\/div>\n<\/div>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>ER EFTIRB\u00c1TUR S\u00d6GULEG SK\u00c1LDSAGA?<\/strong><\/p>\n<p>\u201eMagna\u00f0 hvernig ma\u00f0ur gengur sisvona inn \u00ed s\u00f6guleg hlutverk,\u201c segir s\u00f6guma\u00f0urinn \u00c6gir \u00ed\u00a0<em>Eftirb\u00e1t<\/em>, n\u00fdrri sk\u00e1lds\u00f6gu R\u00fanars Helga Vignissonar sem er n\u00fdkomin \u00fat hj\u00e1 Dimmu. Tilefni \u00feessara or\u00f0a er l\u00fdsing s\u00f6gumannsins \u00e1 \u00feeirri miklu hrakningaf\u00f6r sem Sumarli\u00f0i landp\u00f3stur Brandsson h\u00e9lt \u00ed \u00e1ri\u00f0 1920 yfir Sn\u00e6fjallahei\u00f0ina vi\u00f0 \u00cdsafjar\u00f0ardj\u00fap. \u00cd verunni var\u00f0 J\u00f3n Kristj\u00e1nsson samfer\u00f0a Sumarli\u00f0a \u00ed \u00feessari fer\u00f0 en \u00ed sk\u00e1lds\u00f6gu R\u00fanars Helga hefur \u00c6gir, sem starfar \u00e1 augl\u00fdsingastofu \u00ed samt\u00edmanum, fer\u00f0ast (e\u00f0a \u00f6llu heldur siglt) aftur \u00ed t\u00edmann \u00e1 einhver illskiljanlegan h\u00e1tt og gengi\u00f0 inn \u00ed hlutverk samfer\u00f0amannsins.\u00a0 Ekki er n\u00f3g me\u00f0 a\u00f0 hann hafi n\u00fat\u00edmalegri s\u00fdn \u00e1 fer\u00f0alagi\u00f0 en J\u00f3n mi\u00f0lar \u00ed sinni fr\u00e1s\u00f6gn af vi\u00f0bur\u00f0um (sem birtist \u00ed\u00a0<em>\u00c1rsriti S\u00f6guf\u00e9lags \u00cdsfir\u00f0inga<\/em>\u00a02001 og svo aftur \u00ed\u00a0<a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pageId=5344305\">Morgunbla\u00f0inu \u00e1ri\u00f0 2010<\/a>) heldur veit \u00c6gir fyrirfram um \u00feau \u00f6rl\u00f6g sem b\u00ed\u00f0a Sumarli\u00f0a p\u00f3sts \u00e1 hei\u00f0inni:<\/p>\n<p><img decoding=\"async\" class=\"alignright size-full wp-image-1578\" src=\"https:\/\/bokaskapurastus.files.wordpress.com\/2018\/10\/runar1.jpg?w=616\" alt=\"\" \/>\u201e\u00c9g reyni a\u00f0 f\u00e1 Sumarli\u00f0a ofan af \u00fev\u00ed a\u00f0 leggja \u00e1 Sn\u00e6fjallahei\u00f0ina \u00ed \u00feessu ve\u00f0ri, veit a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00e1 eftir a\u00f0 versna \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00e9g kunni ekki miki\u00f0 a\u00f0 skyggnast til ve\u00f0urs a\u00f0 h\u00e6tti fornmanna. Sumarli\u00f0i \u00feumbast au\u00f0vita\u00f0 vi\u00f0. G\u00f6mlu hj\u00f3nin, sem geymdu hestinn, reyna l\u00edka a\u00f0 f\u00e1 Sumarli\u00f0a ofan af \u00fev\u00ed a\u00f0 fara og bj\u00f3\u00f0a okkur gistingu. \u00dea\u00f0 er ekki vi\u00f0 \u00fea\u00f0 komandi, r\u00e9tt eins og funheit meyjarl\u00e6ri b\u00ed\u00f0i Sumarli\u00f0a hinum megin vi\u00f0 hei\u00f0ina. \u2026Vi\u00f0 erum vart lag\u00f0ir af sta\u00f0 \u00feegar gengur yfir kafalds\u00e9l me\u00f0 skafrenningi svo vart s\u00e9r \u00fat \u00far augum.\u201c<\/p>\n<p>Slysin vi\u00f0 Bjarnarn\u00fap eru einn af m\u00f6rgum \u00feekktum vi\u00f0bur\u00f0um \u00far s\u00f6gu Vestfjar\u00f0a sem R\u00fanar Helgi fl\u00e9ttar me\u00f0 \u00feessum \u00f3venjulega h\u00e6tti inn \u00ed sk\u00e1lds\u00f6gu s\u00edna. \u00deeir eru jafnan s\u00e9\u00f0ir me\u00f0 augum hins n\u00fat\u00edmalega s\u00f6gumanns og bera af \u00feeim \u00e1st\u00e6\u00f0um jafnr\u00edkan vott um bjaga\u00f0 skynbrag\u00f0 hans \u00e1 fort\u00ed\u00f0ina og \u00fea\u00f0 sem hugsanlega \u00e1tti s\u00e9r sta\u00f0, endur fyrir l\u00f6ngu. Fr\u00e1s\u00f6gnin er \u00f3venjulegt afbrig\u00f0i hinnar s\u00f6gulegu \u00edslensku sk\u00e1lds\u00f6gu sem hefur veri\u00f0 \u00ed \u00f6rri og spennandi \u00fer\u00f3un \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rum og \u00e1ratugum.<\/p>\n<p>S\u00f6gulegar sk\u00e1lds\u00f6gur hafa \u00e1tt r\u00edkan sess \u00ed \u00edslenskri sk\u00e1ldsagnager\u00f0 n\u00fat\u00edmans, allt fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 Torfhildur H\u00f3lm rei\u00f0 \u00fear \u00e1 va\u00f0i\u00f0 me\u00f0 verkum \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0\u00a0<em>Brynj\u00f3lf Sveinsson biskup<\/em>\u00a0(1882),\u00a0<em>Eldingu<\/em>\u00a0(1889) og framhaldss\u00f6gum s\u00ednum um J\u00f3n biskup Arason og J\u00f3n biskup V\u00eddal\u00edn. Hi\u00f0 klass\u00edska form \u00feessarar vins\u00e6lu b\u00f3kmenntagreinar (me\u00f0 alvitrum 3. pers\u00f3nu s\u00f6gumanni) m\u00f3tast \u00ed me\u00f0f\u00f6rum Gunnars Gunnarssonar, Halld\u00f3rs Laxness og Bj\u00f6rns Th. Bj\u00f6rnsson en \u00e1 seinni \u00e1rum\u00a0<img decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-1579\" src=\"https:\/\/bokaskapurastus.files.wordpress.com\/2018\/10\/runar.jpg?w=616\" alt=\"\" \/>hafa margir \u00edslenskir h\u00f6fundar endurskapa\u00f0 \u00fea\u00f0 me\u00f0 athyglisver\u00f0um 1. pers\u00f3nu s\u00f6gum\u00f6nnum sem flytja lesendum vitnisbur\u00f0 \u00far fort\u00ed\u00f0inni, \u00fdmist \u00e1 tungutaki sem er sl\u00e1andi n\u00fat\u00edmalegt e\u00f0a skemmtilegur sambr\u00e6\u00f0ingur eldri og yngri ritst\u00edla. \u00de\u00f3runn Jarla Valdimarsd\u00f3ttir, Einar K\u00e1rason, Sj\u00f3n, \u00d3feigur Sigur\u00f0sson og S\u00f6lvi Bj\u00f6rn Sigur\u00f0sson eru \u00ed h\u00f3pi \u00feeirra m\u00f6rgu h\u00f6funda sem skila\u00f0 hafa af s\u00e9r verkum \u00ed \u00feessum anda en segja m\u00e1 a\u00f0 Hermann Stef\u00e1nsson hafi sn\u00fai\u00f0 enn frekar upp \u00e1 hef\u00f0ina me\u00f0 sk\u00e1lds\u00f6gu sinni\u00a0<em>Bjargr\u00e6\u00f0i<\/em>\u00a0(2016) \u00fear sem hin flugm\u00e6lska L\u00e1tra-Bj\u00f6rg l\u00e6tur d\u00e6luna ganga \u00e1 kaffih\u00fasi \u00ed Reykjav\u00edk samt\u00edmans.<\/p>\n<p>R\u00fanar Helgi fer hins vegar \u00fever\u00f6fuga lei\u00f0; hann sendir s\u00f6gumann sinn \u00ed fer\u00f0alag aftur \u00ed t\u00edmann, ekki bara til eins tiltekins sta\u00f0ar og \u00e1rs heldur \u00e1 marga og \u00f3l\u00edka \u00e1fangasta\u00f0i vestfirskrar fort\u00ed\u00f0ar. Sumir \u00feeirra, \u00fear \u00e1 me\u00f0al Bjarnarn\u00fapur anno 1920, eru \u00feekktir \u2013 \u00feess m\u00e1 geta a\u00f0 J\u00f3n Kalman Stef\u00e1nsson s\u00e6kir einnig innbl\u00e1stur \u00ed fer\u00f0 Sumarli\u00f0a p\u00f3sts \u00ed sk\u00e1lds\u00f6gu sinni\u00a0<em>Harmur englanna,\u00a0<\/em>eins og\u00a0<a href=\"http:\/\/hugras.is\/2012\/02\/landpostar-tveir\/\">R\u00fanar Helgi hefur sj\u00e1lfur bent \u00e1.<\/a>\u00a0En a\u00f0ra er erfi\u00f0ara a\u00f0 kortleggja og t\u00edmasetja enda vir\u00f0ast \u00feeir fremur tilheyra pers\u00f3nulegri fort\u00ed\u00f0 h\u00f6fundarins en \u00fej\u00f3\u00f0arinnar. Ekkert er fj\u00e6r \u00feessum s\u00f6gumanni en a\u00f0 r\u00f3mant\u00edsera vi\u00f0fangsefni\u00f0; fr\u00e1s\u00f6gnin einkennist \u00e1 k\u00f6flum af n\u00edstandi (sj\u00e1lfs)\u00edr\u00f3n\u00edu og jafnvel galgopaskap, sem er um lei\u00f0 fullur af alv\u00f6ru. Og \u00fev\u00ed ver\u00f0ur h\u00fan fur\u00f0u sn\u00fain, \u00feessi annars einfalda spurning: Er\u00a0<em>Eftirb\u00e1tur<\/em>\u00a0s\u00f6guleg sk\u00e1ldsaga?<\/p>\n<p>B\u00f3kask\u00e1pur \u00c1stu S.:\u00a0https:\/\/bokaskapurastus.wordpress.com\/2018\/10\/02\/er-eftirbatur-soguleg-skaldsaga\/<\/p>\n<\/div>\n<div class=\"panel-pane pane-entity-field pane-node-field-summary max-width-wrapper padding-10-lr\">\n<div class=\"pane-content\">\n<div class=\"field field-name-field-summary field-type-text-long field-label-hidden\">\n<div class=\"field-items\">\n<div><\/div>\n<div><strong>VEL HEPPNA\u00d0 T\u00cdMAFLAKK EN HEF\u00d0I M\u00c1TT KAFA D\u00ddPRA<\/strong><\/div>\n<div class=\"field-item even\">Rith\u00f6fundurinn R\u00fanar Helgi Vignisson fer \u00e1 t\u00edmaflakk \u00ed n\u00fdjustu b\u00f3k sinni: Eftirb\u00e1tur, sem gerist a\u00f0 mestum hluta \u00e1 Vestfj\u00f6r\u00f0um. Gagnr\u00fdnendur Kiljunnar r\u00e6ddu Eftirb\u00e1t R\u00fanars.<\/div>\n<\/div>\n<\/div>\n<\/div>\n<\/div>\n<div class=\"panel-pane pane-entity-field pane-node-field-body max-width-wrapper [node:field-malaflokkar-term-ref:1] padding-10-lr\">\n<div class=\"pane-content\">\n<div class=\"field field-name-field-body field-type-text-long field-label-hidden\">\n<div class=\"field-items\">\n<div class=\"field-item even\">\n<p>\u00cdsfirski rith\u00f6fundurinn R\u00fanar Helgi Vignisson gaf \u00fat s\u00edna fyrstu sk\u00e1lds\u00f6gu,\u00a0<em>Ekkert slor<\/em>, \u00e1ri\u00f0 1984 en auk sk\u00e1ldsagna hefur hann sent fr\u00e1 s\u00e9r sm\u00e1s\u00f6gur og \u00fe\u00fdtt fj\u00f6lda erlendra b\u00f3kmenntaverka, me\u00f0al annars\u00a0verk eftir bandar\u00edska, \u00e1stralska og su\u00f0ur-afr\u00edska h\u00f6funda.\u00a0\u00cd kynningartexta um\u00a0<em>Eftirb\u00e1t<\/em>\u00a0segir, \u201e\u00c6gir leitar a\u00f0 sj\u00f3manninum f\u00f6\u00f0ur s\u00ednum eftir a\u00f0 b\u00e1tur hans finnst mannlaus \u00fat af Vestfj\u00f6r\u00f0um. Leitarlei\u00f0angrar \u00c6gis vekja spurningar um fa\u00f0erni\u00f0 sj\u00e1lft, hver er hinn raunverulegi fa\u00f0ir og hva\u00f0 m\u00f3ta\u00f0i hann? Er nau\u00f0synlegt a\u00f0 \u00feekkja s\u00f6guna til a\u00f0 vita hver ma\u00f0ur er?\u201c<\/p>\n<p>\u00deau Kolbr\u00fan Berg\u00fe\u00f3rsd\u00f3ttir og Sigur\u00f0ur Valgeirsson voru \u00e1n\u00e6g\u00f0 me\u00f0 vissa hluta b\u00f3karinnar en vildu meina a\u00f0 sumt hef\u00f0i m\u00e1tt fara betur e\u00f0a kafa hef\u00f0i m\u00e1tt d\u00fdpra \u00ed a\u00f0ra \u00fe\u00e6tti s\u00f6gunnar. \u201e\u00c9g var \u00ed\u00a0sm\u00e1 vanda me\u00f0 \u00feessa b\u00f3k, \u00e9g \u00e1tti ekki n\u00f3gu au\u00f0velt me\u00f0 a\u00f0 tengja vi\u00f0 \u00feennan mann og ef \u00e9g hef\u00f0i veri\u00f0 a\u00f0 fara a\u00f0 hitta m\u00f3\u00f0ur m\u00edna og fa\u00f0ir minn v\u00e6ri t\u00fdndur, \u00fe\u00e1 hef\u00f0i \u00e9g fari\u00f0 og huga\u00f0 a\u00f0 henni, jafnvel fj\u00f6lskyldunni og syni m\u00ednum. Hann fer hins vegar beint \u00fat \u00e1 sj\u00f3,\u201c segir Sigur\u00f0ur Valgeirsson og segir a\u00f0 m\u00f6gulega hafi\u00a0R\u00fanari Helga\u00a0f\u00e6rst of miki\u00f0 \u00ed fang og ekki n\u00e1\u00f0 til lands \u00ed s\u00f6gunni.<\/p>\n<\/div>\n<\/div>\n<\/div>\n<\/div>\n<\/div>\n<div class=\"panel-pane pane-entity-field pane-node-field-news-paragraph max-width-wrapper padding-10-lr\">\n<div class=\"pane-content\">\n<div class=\"paragraphs-items paragraphs-items-field-news-paragraph paragraphs-items-field-news-paragraph-full paragraphs-items-full\">\n<div class=\"field field-name-field-news-paragraph field-type-paragraphs field-label-hidden\">\n<div class=\"field-items\">\n<div class=\"field-item odd\">\n<div class=\"entity entity-paragraphs-item paragraphs-item-texti\">\n<div class=\"content\">\n<div class=\"field field-name-field-body field-type-text-long field-label-hidden\">\n<div class=\"field-items\">\n<div class=\"field-item even\">\n<p>B\u00f3kin fjallar a\u00f0 miklu leyti um fa\u00f0erni\u00f0 \u00ed mj\u00f6g brei\u00f0um og v\u00ed\u00f0um skilningi og \u00ed leit s\u00f6gupers\u00f3nunnar fer hann um v\u00ed\u00f0ar lendur \u00ed t\u00edmaflakki. \u00deau Kolbr\u00fan og Sigur\u00f0ur voru samm\u00e1la um \u00fea\u00f0 flakk v\u00e6ri vel heppna\u00f0. \u201e\u00c9g haf\u00f0i gaman a\u00f0 \u00feessu t\u00edmaflakki, \u00fea\u00f0 sem tekst me\u00f0 \u00fev\u00ed er skemmtilegur t\u00f3nn. K\u00e6ruleysislegur \u00e1 k\u00f6flum. \u00deannig a\u00f0 \u00e9g keypti \u00fea\u00f0 alveg a\u00f0 hann v\u00e6ri kominn \u00fearna aftur \u00ed t\u00edmann, a\u00f0 hitta \u00f6mmu s\u00edna me\u00f0al annars,\u201c segir Kolbr\u00fan.<\/p>\n<p>Kolbr\u00fan segir jafnframt a\u00f0 h\u00fan hafi sakna\u00f0 harmr\u00e6nunnar og hef\u00f0i vilja\u00f0 sterkari tengingu vi\u00f0 \u00fe\u00e1 s\u00f6gulegu atbur\u00f0i sem koma fram \u00ed b\u00f3kinni. \u201e\u00c9g fann aldrei fyrir harmr\u00e6nunni. M\u00e9r fannst frekar gaman a\u00f0 lesa b\u00f3kina vegna \u00e1kve\u00f0ins l\u00e9ttleika \u00ed st\u00edlnum. \u00dea\u00f0 hef\u00f0i m\u00e1tt vinna a\u00f0eins betur \u00ed einstaka \u00fe\u00e1ttum en \u00fea\u00f0 breytir samt ekki \u00fev\u00ed a\u00f0 m\u00e9r fannst \u00feetta nokku\u00f0 skemmtilegt. \u00dea\u00f0 hef\u00f0i \u00fe\u00f3 m\u00e1tt kafa d\u00fdpra en m\u00e9r fannst \u00feessar fer\u00f0ir til fort\u00ed\u00f0ar bestu hlutar b\u00f3karinnar.\u201c<\/p>\n<p>R\u00daV: http:\/\/www.ruv.is\/frett\/vel-heppnad-timaflakk-en-hefdi-matt-kafa-dypra<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<\/div>\n<p><strong>EFTIRB\u00c1TUR: R\u00daNAR HELGI VIGNISSON<\/strong><\/p>\n<p>\u00deetta er ekki b\u00f3k fyrir mig, hugsa\u00f0i \u00e9g eftir a\u00f0 hafa hlusta\u00f0 \u00e1 kynningu \u00e1 b\u00f3kinni. B\u00f3k um sj\u00f3mennsku og karlma\u00f0ur a\u00f0 leita a\u00f0 sj\u00e1lfum s\u00e9r. Og \u00e9g r\u00fdndi \u00ed daufgr\u00e1a k\u00e1pumyndina. Er \u00feetta ekki \u00f6rugglega mynd af s\u00e6\u00f0isfrumu \u00fearna fyrir mi\u00f0ri mynd?<\/p>\n<p><strong>S\u00f6gu\u00fer\u00e1\u00f0ur<\/strong><\/p>\n<p>Ungur ma\u00f0ur,\u00a0sem er b\u00fainn a\u00f0 koma s\u00e9r vel fyrir \u00ed l\u00edfinu, f\u00e6r upphringingu um n\u00f3tt. M\u00f3\u00f0ir hans segir honum a\u00f0\u00a0 f\u00f6\u00f0ur hans s\u00e9 sakna\u00f0, b\u00e1tur hans hafi fundist mannlaus. Ungi ma\u00f0urinn \u00e1kve\u00f0ur strax a\u00f0 fara vestur til \u00cdsafjar\u00f0ar og leita a\u00f0 f\u00f6\u00f0ur s\u00ednum. Hann fer \u00ed r\u00f3\u00f0ra me\u00f0 samstarsfmanni hans og \u00feeir fara \u00e1 \u00fe\u00e6r sl\u00f3\u00f0ir sem hann var vanur a\u00f0 stunda vei\u00f0arnar.<\/p>\n<p>En au\u00f0vita\u00f0 er \u00feetta engin venjuleg leit. Hann leitar hans \u00ed sj\u00e1lfum s\u00e9r, eiginlega haf\u00f0i hann ekki \u00feekkt hann. Hann villist inn \u00ed horfna ver\u00f6ld. Ver\u00f6ld li\u00f0ins t\u00edma.<\/p>\n<p><strong>T\u00edmaflakk<\/strong><\/p>\n<p>\u00c9g var \u00f6rlitla stund a\u00f0 fatta a\u00f0 \u00feetta var t\u00edmaflakk en eftir a\u00f0 m\u00e9r var \u00fea\u00f0 lj\u00f3st gekk allt betur. \u00c9g hef nefnilega gaman af t\u00edmaflakki, \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 s\u00e9 pirrandi a\u00f0 \u00fea\u00f0 gengur aldrei r\u00f6klega upp, \u00fe\u00e1 er gaman a\u00f0 hugsa en hva\u00f0 er ef \u00feetta e\u00f0a hitt hef\u00f0i gerst.<\/p>\n<p>H\u00f6fundur hef\u00f0i ekki geta\u00f0 vali\u00f0 betri sta\u00f0 fyrir flakk en Hornstrandir og J\u00f6kulfir\u00f0i fyrir mig. \u00c9g hef ekki t\u00f6lu \u00e1 fer\u00f0unum sem \u00e9g hef gengi\u00f0 og lei\u00f0unum sem \u00e9g hef \u00fer\u00e6tt. Alltaf me\u00f0 hugann fullan af s\u00f6gum og s\u00f6gnum af l\u00edfi f\u00f3lksins sem bj\u00f3 \u00fearna for\u00f0um. \u00c9g \u00feekki t.d. vel J\u00f3nmund prest \u00e1 \u00a0Sta\u00f0 \u00ed Grunnav\u00edk og gremst hversu illa er um hann tala\u00f0. Tek afst\u00f6\u00f0u me\u00f0 presti,og hugsa um t\u00f3ftina af steinh\u00fasinu, l\u00edklega fyrsta fj\u00f6lb\u00fdlish\u00fasinu \u00e1 landinu, sem hann\u00a0 l\u00e9t byggja fyrir sveitunga s\u00edna.\u00c9g gleymi m\u00e9r \u00ed t\u00edmaflakkinu og gleymi s\u00f6gunni. Getur ungi ma\u00f0urinn sem er a\u00f0 leita f\u00f6\u00f0ur s\u00edns fikta\u00f0 \u00ed \u00e6ttart\u00f6lu sinni og or\u00f0i\u00f0 afi sj\u00e1lfs s\u00edn? Nei,t\u00edmaflakks\u00e6vint\u00fdri ganga aldrei\u00a0upp.<\/p>\n<p>Og \u00ed \u00feetta skipti eru \u00feau \u00f3rafjarl\u00e6g\u00f0 fr\u00e1 \u00fev\u00ed sem hinn leitandi ma\u00f0ur \u00e6tti a\u00f0 vera \u00e1 \u00fatkikk eftir. Hva\u00f0 er a\u00f0 gerast hj\u00e1 hans litlu fj\u00f6lskyldu? Strax \u00ed upphafi b\u00f3karinnar er t\u00f3nn sleginn sem bo\u00f0ar a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 eitthva\u00f0 sem hafi t\u00fdnst \u00ed sambandi hans og konu hans.<\/p>\n<p>\u00c9g er ekki viss um a\u00f0 m\u00e9r finnist \u00feetta fullkomlega heppnu\u00f0 b\u00f3k en \u00e9g haf\u00f0i \u00e1n\u00e6gju af \u00fev\u00ed a\u00f0 lesa hana og h\u00fan rifja\u00f0i upp fyrir m\u00e9r sm\u00e1s\u00f6gu sem \u00e9g las eftir R\u00fanar Helga fyrir m\u00f6rgum \u00e1rum,\u00a0SAMFER\u00d0A<strong>,\u00a0<\/strong>\u00far b\u00f3kinni\u00a0<em>\u00c1st\u00a0\u00ed\u00a0meinum<\/em>\u00a0sem kom \u00fat 2012. \u00cd \u00feeirri s\u00f6gu er l\u00edka l\u00fdst l\u00f6sku\u00f0u sambandi. Fr\u00e1b\u00e6r saga. En kannski er \u00e9g ekki fyllilega d\u00f3mb\u00e6r \u00fev\u00ed merkilegt nokk, v\u00edsar \u00feessi saga einnig til Hornstranda og \u00a0g\u00f6ngusl\u00f3\u00f0a sem m\u00e9r eru k\u00e6rar.<\/p>\n<p>N\u00fa sit \u00e9g h\u00e9r og l\u00e6t mig dreyma\u00a0um enn eina g\u00f6ngufer\u00f0 \u00e1 Hornstr\u00f6ndum. Er meira a\u00f0 segja b\u00fain a\u00f0 r\u00e6\u00f0a um \u00fea\u00f0 vi\u00f0 manninn.<\/p>\n<p>B\u00f3kablogg Berg\u00fe\u00f3ru G\u00edslad\u00f3ttur:\u00a0https:\/\/bergthoraga.blog.is\/blog\/bergthoraga\/entry\/2226604\/<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<\/div>\n<\/div>\n<\/div>\n<\/div>\n<\/div>\n<\/div>\n<\/div>\n<\/div>\n<\/div>\n<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c6gir leitar a\u00f0 sj\u00f3manninum f\u00f6\u00f0ur s\u00ednum eftir a\u00f0 b\u00e1tur hans finnst mannlaus \u00fat af Vestfj\u00f6r\u00f0um. Leitarlei\u00f0angrar \u00c6gis vekja spurningar um fa\u00f0erni\u00f0 sj\u00e1lft \u00ed \u00feessum har\u00f0b\u00fdla heimshluta. Hver er hinn raunverulegi fa\u00f0ir og hva\u00f0 m\u00f3ta\u00f0i hann? Er nau\u00f0synlegt a\u00f0 \u00feekkja s\u00f6guna til a\u00f0 vita hver ma\u00f0ur er? \u00deetta vefst fyrir \u00c6gi sem lifir og hr\u00e6rist \u00ed [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":420,"featured_media":0,"parent":3,"menu_order":8,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","template":"","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1106","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1106","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/wp-json\/wp\/v2\/users\/420"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1106"}],"version-history":[{"count":17,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1106\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1206,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1106\/revisions\/1206"}],"up":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1106"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}