﻿{"id":1114,"date":"2018-10-24T09:27:22","date_gmt":"2018-10-24T09:27:22","guid":{"rendered":"http:\/\/uni.hi.is\/rhv\/?page_id=1114"},"modified":"2024-11-09T20:32:50","modified_gmt":"2024-11-09T20:32:50","slug":"smasogur-heimsins-asia-og-eyjaalfa","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/%c3%bey%c3%b0andinn\/smasogur-heimsins-asia-og-eyjaalfa\/","title":{"rendered":"Sm\u00e1s\u00f6gur heimsins \u2013 As\u00eda og Eyja\u00e1lfa"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/uni.hi.is\/rhv\/files\/2018\/10\/Sma\u0301so\u0308gur-3-bor\u00f0i.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft wp-image-1115 size-large\" src=\"http:\/\/uni.hi.is\/rhv\/files\/2018\/10\/Sma\u0301so\u0308gur-3-bor\u00f0i-1024x538.png\" alt=\"\" width=\"474\" height=\"249\" srcset=\"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/files\/2018\/10\/Sma\u0301so\u0308gur-3-bor\u00f0i-1024x538.png 1024w, https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/files\/2018\/10\/Sma\u0301so\u0308gur-3-bor\u00f0i-300x158.png 300w, https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/files\/2018\/10\/Sma\u0301so\u0308gur-3-bor\u00f0i-768x404.png 768w\" sizes=\"auto, (max-width: 474px) 100vw, 474px\" \/><\/a>\u00deri\u00f0ja bindi Sm\u00e1sagna heimsins er komi\u00f0 \u00fat. \u00dea\u00f0 er helga\u00f0 As\u00edu og Eyja\u00e1lfu. \u00cd \u00fev\u00ed eru 20 s\u00f6gur fr\u00e1 jafn m\u00f6rgum l\u00f6ndum en markmi\u00f0 ritra\u00f0arinnar er a\u00f0 birta g\u00f3\u00f0ar s\u00f6gur fr\u00e1 eins m\u00f6rgum l\u00f6ndum og kostur er.<\/p>\n<p>As\u00eda og Eyja\u00e1lfa spanna marga menningarheima eins og bindi\u00f0 endurspeglar. \u00dear getur a\u00f0 l\u00edta sm\u00e1s\u00f6gur allt fr\u00e1 arab\u00edsku og persnesku r\u00edkjunum \u00ed vestri, til Indlands og Japans \u00ed austri og \u00c1stral\u00edu og N\u00fdja-Sj\u00e1lands \u00ed su\u00f0ri. Fr\u00e1 sumum \u00feeirra landa sem eiga fulltr\u00faa \u00ed b\u00f3kinni berast sjaldan s\u00f6gur til \u00cdslands. M\u00e1 \u00fear nefna K\u00faveit, \u00cdran, Nor\u00f0ur-K\u00f3reu, Malas\u00edu, Pakistan, V\u00edetnam og Filippseyjar. Stundum er fengist vi\u00f0 st\u00f3ra og \u00e1takanlega atbur\u00f0i \u00ed \u00feessum s\u00f6gum, s.s. \u00fej\u00f3\u00f0armor\u00f0 og hreinsanir, en \u00feess \u00e1 milli sj\u00e1um vi\u00f0 h\u00f6fundana gl\u00edma vi\u00f0 hversdagslegan veruleika.<\/p>\n<p>Sumir vilja helst sj\u00e1 \u00feekkta h\u00f6funda \u00ed svona safni. M\u00e9r finnst hins vegar enn skemmtilegra \u00feegar ma\u00f0ur finnur fr\u00e1b\u00e6ra h\u00f6funda sem enginn h\u00e9r hefur heyrt um og \u00fe\u00e1 ekki s\u00edst fr\u00e1 l\u00f6ndum sem sjaldan eiga fulltr\u00faa \u00e1 \u00edslenskum b\u00f3kamarka\u00f0i. H\u00e9r hefur hvort tveggja gerst og fyrir viki\u00f0 hefur heimurinn st\u00e6kka\u00f0. Okkur hefur a\u00f0 m\u00ednu viti tekist a\u00f0 finna spennandi s\u00f6gur fr\u00e1 \u00f6llum \u00feeim l\u00f6ndum sem eiga fulltr\u00faa \u00ed safninu: L\u00edbanon, \u00cdsrael, S\u00fdrlandi, K\u00faveit, Tyrklandi, \u00cdran, Indlandi, Pakistan, Ind\u00f3nes\u00edu, Malas\u00edu, Singap\u00far, V\u00edetnam, K\u00edna, Nor\u00f0ur-K\u00f3reu, Su\u00f0ur-K\u00f3reu, Ta\u00edlandi, Japan, Filippsseyjum, \u00c1stral\u00edu og N\u00fdja-Sj\u00e1landi.<\/p>\n<p>Margar sagnanna voru \u00fe\u00fdddar \u00far frumm\u00e1li, s.s. arab\u00edsku, ta\u00edlensku, ensku, k\u00f3resku og jap\u00f6nsku, a\u00f0rar hafa veri\u00f0 \u00fe\u00fdddar \u00far millim\u00e1li en \u00edslenska \u00fe\u00fd\u00f0ingin s\u00ed\u00f0an borin saman vi\u00f0 frumtexta. Alls koma t\u00f3lf \u00fe\u00fd\u00f0endur vi\u00f0 s\u00f6gu: Dagbj\u00f6rt Gunnarsd\u00f3ttir \u00fe\u00fdddi \u00far jap\u00f6nsku, J\u00f3n Egill Ey\u00fe\u00f3rsson \u00fe\u00fdddi \u00far k\u00f3resku, Sindri Gu\u00f0j\u00f3nsson \u00fe\u00fdddi \u00far arab\u00edsku, Hj\u00f6rleifur Rafn J\u00f3nsson \u00fe\u00fdddi \u00far ta\u00edlensku. \u00dar ensku \u00fe\u00fdddu Freyja Au\u00f0unsd\u00f3ttir og \u00de\u00f3rir J\u00f3nsson Hraundal g\u00e1ta\u00f0i, Hei\u00f0ur Agnes Bj\u00f6rnsd\u00f3ttir, Ingunn Sn\u00e6dal, L\u00e1rus J\u00f3n Gu\u00f0mundsson, \u00fear sem Xinyu Zhang g\u00e1ta\u00f0i, Steingr\u00edmur Karl Teague, Hrafnhildur \u00de\u00f3rhallsd\u00f3ttir, Sigr\u00fan \u00c1str\u00ed\u00f0ur Eir\u00edksd\u00f3ttir og fyrir hana g\u00e1ta\u00f0i Anh-Dao Tran v\u00edetn\u00f6msku \u00fe\u00fd\u00f0inguna, og ofanrita\u00f0ur en Ali Amoushahi og Svanhildur Konr\u00e1\u00f0sd\u00f3ttir g\u00e1tu\u00f0u me\u00f0 m\u00e9r \u00edr\u00f6nsku s\u00f6guna.<\/p>\n<p>\u00cd \u00fatg\u00e1fuh\u00f3fi 23. okt\u00f3ber klykkti \u00e9g \u00fat me\u00f0 \u00feessum or\u00f0um: \u201eMe\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 flytja b\u00f3kmenntir fr\u00e1 \u00f6llum heimshornum yfir \u00e1 \u00edslensku ver\u00f0um vi\u00f0 \u00fe\u00e1tttakendur \u00ed heimsmenningunni. Vi\u00f0 getum \u00fe\u00e1 noti\u00f0 \u00feessara gersema annarra landa \u00e1n \u00feeirrar t\u00e1lmunar og truflunar sem till\u00e6rt tungum\u00e1l hefur \u00ed f\u00f6r me\u00f0 s\u00e9r. Og \u00fear sem sm\u00e1sagan er oft mj\u00f6g n\u00e1komin h\u00f6fundunum, h\u00fan er i\u00f0ulega sj\u00e1lfsprotti\u00f0 vi\u00f0brag\u00f0 vi\u00f0 \u00e1hrifar\u00edkri ef ekki \u00e1takanlegri reynslu, f\u00e1um vi\u00f0 \u00ed gegnum hana hugl\u00e6ga inns\u00fdn \u00ed \u00feessa menningarheima.\u201c<\/p>\n<p>Ritstj\u00f3rar auk m\u00edn eru J\u00f3n Karl Helgason og Krist\u00edn Gu\u00f0r\u00fan J\u00f3nsd\u00f3ttir.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>U M S A G N I R<\/strong><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>METNA\u00d0ARFULL \u00daTG\u00c1FA HEIMSB\u00d3KMENNTA \u00cd SM\u00c1S\u00d6GUFORMI<\/p>\n<div class=\"field field-name-field-review-content field-type-text-with-summary field-label-hidden\">\n<div class=\"field-items\">\n<div class=\"field-item even\">\n<p>N\u00fdtt bindi af\u00a0<em>Sm\u00e1s\u00f6gum heimsins<\/em>, tileinka\u00f0 As\u00edu og Eyja\u00e1lfu, fer \u00a0me\u00f0 lesandann um fj\u00f6lbreytt l\u00f6nd og menningarheima og veitir inns\u00fdn \u00ed l\u00edf f\u00f3lks \u00e1 \u00feessum fjarl\u00e6gu sl\u00f3\u00f0um \u00ed gegnum tuttugu sm\u00e1s\u00f6gur. \u00dear af eru t\u00edu karlrith\u00f6fundar og t\u00edu kvenrith\u00f6fundar svo kynjahlutfalli\u00f0 \u00ed heftinu er hn\u00edfjafnt. Bindi\u00f0 er hi\u00f0 \u00feri\u00f0ja af fimm \u00ed ritr\u00f6\u00f0inni. \u00c1\u00f0ur hafa komi\u00f0 \u00fat Sm\u00e1s\u00f6gur heimsins me\u00f0 s\u00f6gum fr\u00e1 Nor\u00f0ur-Amer\u00edku og R\u00f3m\u00f6nsku-Amer\u00edku og hyggja ritstj\u00f3rar \u00e1 \u00fatg\u00e1fu \u00e1 sm\u00e1s\u00f6gum fr\u00e1 Evr\u00f3pu og Afr\u00edku \u00e1 n\u00e6stu \u00e1rum. Styrkleiki heftisins er s\u00fa breidd sem birtist \u00ed s\u00f6gunum sem h\u00e9r hafa veri\u00f0 valdar sem og inngangskaflarnir sem kynna h\u00f6fundana til leiks.<\/p>\n<p>Margir \u00fe\u00fd\u00f0endur koma a\u00f0 verkinu enda um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a m\u00f6rg tungum\u00e1l sem \u00fe\u00fdtt er \u00far. Ritstj\u00f3rar ritra\u00f0arinnar leitast vi\u00f0 a\u00f0 finna \u00fe\u00fd\u00f0endur til a\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0a \u00far frumm\u00e1lum. \u00deegar um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a s\u00f6gur sem hafa \u00e1\u00f0ur komi\u00f0 \u00fat \u00e1 \u00edslensku eru \u00fe\u00e6r \u00fe\u00fd\u00f0ingarnar anna\u00f0 hvort endursko\u00f0a\u00f0ar e\u00f0a ger\u00f0 n\u00fd \u00fe\u00fd\u00f0ing. \u00dea\u00f0 er \u00fev\u00ed metna\u00f0ur lag\u00f0ur \u00ed \u00fe\u00fd\u00f0ingarnar \u00ed ritr\u00f6\u00f0inni. \u00cd \u00feessu tiltekna bindi eru langflestar s\u00f6gurnar a\u00f0 koma \u00fat \u00ed fyrsta skipti \u00e1 \u00edslensku. Flj\u00f3tt \u00e1 liti\u00f0 vir\u00f0ast a\u00f0eins \u00ferj\u00e1r s\u00f6gur hafi birst h\u00e9r \u00e1 landi \u00e1\u00f0ur: \u201eS\u00e6la\u201c eftir hina n\u00fdsj\u00e1lensku Katherine Mansfield, \u201eAmer\u00edskir draumar\u201c \u00e1stralska h\u00f6fundarins Peter Carey og \u201eAldjefli\u201c eftir nor\u00f0ur-k\u00f3reskan h\u00f6fund sem notar dulnefni\u00f0 Bandi. Sm\u00e1sagnasafn \u00feess s\u00ed\u00f0astnefnda, kom \u00fat \u00ed heild sinni fyrr \u00e1 \u00feessu \u00e1ri en \u00ed annarri \u00fe\u00fd\u00f0ingu. Til vi\u00f0b\u00f3tar Mansfield, Carey og Bandi hafa tveir af h\u00f6fundunum fengi\u00f0 \u00fe\u00fddd verk \u00e1 \u00edslensku, en \u00fea\u00f0 eru \u00f6nnur sk\u00e1ldverk en birtast \u00ed Sm\u00e1s\u00f6gum heimsins. \u00dea\u00f0 eru k\u00ednverski N\u00f3belsver\u00f0launahafinn Mo Yan og Eka Kurniawan fr\u00e1 Ind\u00f3nes\u00edu. \u00cd \u00feessari t\u00f6lfr\u00e6\u00f0i endurspeglast sk\u00fdrt hvernig \u00feessi ritr\u00f6\u00f0 v\u00edkkar \u00edslenskan b\u00f3kmenntaheim. Safni\u00f0 gerir \u00edslenskum lesendum kleift a\u00f0 lesa n\u00fdja h\u00f6funda fr\u00e1 \u00f3l\u00edkum menningarheimum.<\/p>\n<p>Breidd b\u00f3kinnar birtist \u00e1 \u00fdmsum svi\u00f0um. \u00c1\u00f0urnefnd \u201eS\u00e6la\u201c er fyrsta sagan \u00ed b\u00f3kinni og einnig s\u00fa elsta, fr\u00e1 1918. \u00deessi m\u00f3dern\u00edska sm\u00e1saga Katherine Mansfield snertir me\u00f0al annars \u00e1 samkynhneig\u00f0. S\u00ed\u00f0an er lesandinn leiddur \u00e1fram \u00ed t\u00edmar\u00f6\u00f0 \u00ed gegnum \u00e1rhundra\u00f0i\u00f0 sem b\u00f3kin mi\u00f0ast vi\u00f0. \u00c1 me\u00f0an fer safni\u00f0 me\u00f0 lesandann um v\u00ed\u00f0an v\u00f6ll landafr\u00e6\u00f0ilega s\u00e9\u00f0. As\u00eda er mj\u00f6g v\u00edtt fl\u00e6mi svo \u00ed b\u00f3kinni er a\u00f0 finna s\u00f6gur fr\u00e1 arabar\u00edkjunum og Tyrklandi auk \u00feeirra landa sem okkur \u00e1 \u00cdslandi er tamara a\u00f0 hugsa um a\u00f0 tilheyri As\u00edu, eins og K\u00edna, Japan, Filippseyjar, V\u00edetnam, Ta\u00edland o.s.frv. Svo b\u00e6tist Eyja\u00e1lfan vi\u00f0 og eykur enn fj\u00f6lbreytileika safnsins. S\u00f6gurnar varpa oft lj\u00f3si \u00e1 p\u00f3lit\u00edk og s\u00f6gu, til d\u00e6mis fjalla s\u00f6gurnar fr\u00e1 Pakistan og Indlandi b\u00e1\u00f0ar um \u00fea\u00f0 \u00feegar \u201ePakistan og Indland klofnu\u00f0u \u00ed tvennt\u201c (bls. 43) eins og \u00fea\u00f0 er or\u00f0a\u00f0 \u00ed upphafi sm\u00e1s\u00f6gunnar \u201eToba Tek Singh\u201c eftir Saadat Hasan Manto. \u00dev\u00ed mi\u00f0ur er ekki a\u00f0 finna \u00ed bindinu s\u00f6gu fr\u00e1 Palest\u00ednu en ritstj\u00f3rar gera grein fyrir \u00fev\u00ed \u00ed inngangi a\u00f0 palest\u00ednskir h\u00f6fundar hafi hafna\u00f0 \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku \u00ed b\u00f3kinni \u00fear sem \u00edsraelskum h\u00f6fundi s\u00e9u \u00fear ger\u00f0 skil. Margar s\u00f6gurnar \u00ed safninu afhj\u00fapa \u00e1t\u00f6k, k\u00fagun og valdastr\u00fakt\u00fara \u00e1 \u00e1hrifamikinn h\u00e1tt. Sem d\u00e6mi m\u00e1 nefna \u00e1\u00f0urnefnda s\u00f6gu Bandis \u00fear sem eldri kona hittir \u00f3v\u00e6nt lei\u00f0toga Nor\u00f0ur-K\u00f3reu og gj\u00e1in \u00e1 milli lei\u00f0togans og \u00feegna hans ver\u00f0ur \u00f3\u00fe\u00e6gilega \u00e1\u00fereifanleg.<\/p>\n<p>Margar af \u00e1hrifar\u00edkustu s\u00f6gunum fjalla einmitt um daglegt l\u00edf og hversdagslega atbur\u00f0i sem eru settir fram \u00ed st\u00e6rra samhengi. \u00cd tilraunakenndu sm\u00e1s\u00f6gunni \u201eSpegillinn\u201c eftir tyrkneska h\u00f6fundinn Leyl\u00e2 Erbil fl\u00e6\u00f0a hugsanir s\u00f6gumannsins \u00e1fram. \u00cd s\u00f6gunni stingur ofbeldi \u00edtreka\u00f0 upp kollinum sem og \u00fdmsir p\u00f3lit\u00edskir atbur\u00f0ir einsog uppreisn K\u00farda. Anna\u00f0 d\u00e6mi er \u201eMyndin af Jasm\u00edn\u201c eftir hina l\u00edb\u00f6nsku Hanan Al-Shaykh en h\u00fan fjallar um par sem hefur fl\u00fai\u00f0 borgarastr\u00ed\u00f0 og dvelur \u00e1 heimili \u00f3kunnugra. \u00d3fri\u00f0ur r\u00edkir fyrir utan heimili\u00f0 en a\u00f0alpers\u00f3na s\u00f6gunnar, sem er karlma\u00f0ur, f\u00f3kusar \u00e1 \u00fer\u00e1hyggjukenndan h\u00e1tt \u00e1 h\u00fasfreyjuna sem er fjarverandi \u00feanga\u00f0 til \u00ed s\u00ed\u00f0ustu l\u00ednum s\u00f6gunnar. Samskipti inni \u00e1 og \u00ed kringum heimili\u00f0 eru einnig \u00ed brennidepli hj\u00e1 hinni \u00edr\u00f6nsku Fariba Vafi \u00ed s\u00f6gunni \u201e\u00dar skor\u00f0um, \u00far fj\u00f6trum\u201c. \u00dear segir Vafi fr\u00e1 grasekkju sem er \u00e1s\u00f3tt af leigusala s\u00ednum og \u00fe\u00f3 a\u00f0 ekki s\u00e9 um beint ofbeldi a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00fe\u00e1 fer konan a\u00f0 breyta heg\u00f0un sinni til \u00feess a\u00f0 for\u00f0ast \u00feessi k\u00fagandi samskipti. Ein \u00e1hrifar\u00edkasta sm\u00e1sagan \u201eFali\u00f0 lj\u00f3s hlutanna\u201c er eftir Mai Al-Nakib fr\u00e1 K\u00faveit. H\u00fan skrifar \u00ed s\u00f6gunni um endurkomu eiginkonu og m\u00f3\u00f0ur inn \u00e1 heimili\u00f0 sem h\u00fan var numin \u00e1 brott fr\u00e1 eftir t\u00edu \u00e1r \u00ed haldi. Fj\u00f6lskyldan reynir a\u00f0 skilja hva\u00f0 h\u00fan hefur gengi\u00f0 \u00ed gegnum en \u00fea\u00f0 er lesandinn sem hefur heilsteyptustu myndina af atbur\u00f0um \u00fear sem skipt er \u00e1 milli sj\u00f3narhorns konunnar og fj\u00f6lskyldu hennar \u00ed s\u00f6gunni.<\/p>\n<p>G\u00f3\u00f0 handlei\u00f0sla er f\u00f3lgin \u00ed stuttum inngangsk\u00f6flum sem fylgja hverri s\u00f6gu. S\u00f6gurnar eru au\u00f0s\u00fdnilega afar fj\u00f6lbreyttar og eru \u00feessir kynningartextar lesandanum \u00fev\u00ed d\u00fdrm\u00e6tur lei\u00f0arv\u00edsir \u00ed gegnum \u00fea\u00f0 fer\u00f0alag sem fali\u00f0 er \u00ed lestri b\u00f3karinnar. H\u00f6fundur s\u00f6gunnar er kynntur og sagan sett \u00ed samhengi vi\u00f0 samf\u00e9lagslegar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur landsins og t\u00edmabilsins sem h\u00fan tilheyrir. Margir h\u00f6fundar koma a\u00f0 kynningartextunum og tekst \u00feeim a\u00f0 au\u00f0ga lestur sagnanna \u00ed heftinu t\u00f6luvert. Stundum leyfa h\u00f6fundar kynningatextanna s\u00e9r a\u00f0 draga l\u00edkingar \u00e1 milli s\u00f6guefnisins og \u00edslensks samt\u00edma. \u00cd \u00fev\u00ed samhengi er s\u00e9rstaklega eftirminnileg kynningin \u00e1 Peter Carey. \u00cd sm\u00e1s\u00f6gu Carey, \u201eAmer\u00edskir draumar\u201c, ver\u00f0a b\u00e6jarb\u00faar a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed h\u00e1lfger\u00f0u leikriti fyrir fer\u00f0amenn. Einn af b\u00e6jarb\u00faum gerir eftirmynd af b\u00e6num og \u00edb\u00faum hans sem er fyrst afhj\u00fapu\u00f0 eftir a\u00f0 listama\u00f0urinn er l\u00e1tinn. \u00deessi eftirmynd ver\u00f0ur til \u00feess a\u00f0 b\u00e6rinn ver\u00f0ur a\u00f0 fer\u00f0amannasta\u00f0 en og sm\u00e1m saman festast b\u00e6jarb\u00faar \u00ed g\u00f6mlum hlutverkum til \u00feess a\u00f0 halda \u00e1huga fer\u00f0amannanna. \u00c1 sama t\u00edma ver\u00f0a fer\u00f0amennirnir s\u00edfellt fyrir vonbrig\u00f0um \u00fev\u00ed b\u00e6jarb\u00faar breytast og eldast en eftirmyndin ekki. R\u00fanar Helgi Vignisson tengir \u00ed inngangskafla s\u00ednum atbur\u00f0i s\u00f6gunnar vi\u00f0 fer\u00f0amannastrauminn sem hefur skolli\u00f0 \u00e1 \u00cdslendingum s\u00ed\u00f0asta \u00e1ratug. \u00deannig er \u00feessi \u00e1stralska sm\u00e1saga, sem kom fyrst \u00fat \u00e1ri\u00f0 1974, sett \u00ed samhengi sem er kunnuglegt fyrir \u00cdslendinga \u00ed dag.<\/p>\n<p>Sem b\u00f3kmenntagrein er sm\u00e1sagan s\u00e9rlega vel til \u00feess fallin a\u00f0 f\u00e6ra lesendum heimsb\u00f3kmenntir \u00fev\u00ed me\u00f0 henni er h\u00e6gt a\u00f0 safna saman heilum textum \u00ed fj\u00f6lbreytt safn \u00ed h\u00e6filegri lengd. Sumir h\u00f6fundanna tilheyra fleiri en einum heimi; \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 uppruni \u00feeirra s\u00e9 \u00ed \u00feeim l\u00f6ndum sem \u00feema bindisins n\u00e6r yfir \u00fe\u00e1 hafa sumir einnig \u00e1tt anna\u00f0 heimili \u00ed \u00f6\u00f0rum heims\u00e1lfum, s\u00e9r \u00ed lagi Evr\u00f3pu e\u00f0a Nor\u00f0ur-Amer\u00edku, \u00feanga\u00f0 sem \u00cdslendingum er tamara a\u00f0 s\u00e6kja heimsb\u00f3kmenntir \u00ed \u00edslenskum \u00fe\u00fd\u00f0ingum. Ritstj\u00f3rum\u00a0<em>Sm\u00e1sagna heimsins<\/em>\u00a0hefur \u00ed \u00feessu hefti tekist a\u00f0 f\u00e6ra \u00edslenskum lesendum fj\u00f6lbreyttar sm\u00e1s\u00f6gur sem eiga vi\u00f0 okkur erindi \u00fevert \u00e1 heims\u00e1lfur.<\/p>\n<p>El\u00edn Bj\u00f6rk J\u00f3hannsd\u00f3ttir, B\u00f3kmenntavefnum:\u00a0https:\/\/bokmenntaborgin.is\/umfjollun\/smasogur-heimsins-asia-og-eyjaalfa<\/p>\n<\/div>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>S\u00d6GURNAR FYLLA LESANDANN S\u00c6LU<\/p>\n<p>S\u00f6gurnar fylla lesandann s\u00e6lu sem sprettur af d\u00fdpt og fegur\u00f0 or\u00f0anna. \u00de\u00e6r eru spegill \u00fear sem ver\u00f6ldin birtist \u00ed \u00f6\u00f0ru lj\u00f3si en oft \u00e1\u00f0ur. Lest(r)arfer\u00f0 \u00fear sem numi\u00f0 er reglulega sta\u00f0ar en \u00e1 hverri st\u00f6\u00f0 er samf\u00e9lag \u00f3l\u00edkt \u00fev\u00ed s\u00ed\u00f0asta. T\u00edgrisd\u00fdr \u00ed b\u00fari birtist \u00e1 einum sta\u00f0 og breytist \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lags\u00feegn \u00ed borg. \u00c1 \u00f6\u00f0rum sta\u00f0 fl\u00fdtur l\u00edk st\u00falku framhj\u00e1 vatnsmel\u00f3nub\u00e1t og r\u00e6\u00f0arinn finnur \u00ed hjarta s\u00ednu til hrygg\u00f0ar yfir mannlegu hlutskipti.<\/p>\n<p>B\u00f3kin\u00a0<a href=\"https:\/\/bjartur-verold.is\/collections\/2018\/products\/smasogur-heimsins-asia-og-eyjaalfa\" target=\"_blank\" rel=\"noopener noreferrer\">Sm\u00e1s\u00f6gur heimsins \u2013 As\u00eda og Eyja\u00e1lfa<\/a> er full af sm\u00e1s\u00f6gum fr\u00e1 20 l\u00f6ndum. S\u00fa elsta er d\u00e1samleg saga fr\u00e1 1918 eftir Katherine Mansfield og s\u00fa yngsta fr\u00e1 2014 eftir Stehpahnie Ye og gerist \u00e1 flugvelli. Allar veita \u00fe\u00e6r inns\u00fdn \u00ed menningu N\u00fdja-Sj\u00e1lands, Indlands, Japan, K\u00faveit, Ind\u00f3nes\u00edu, Malas\u00edu, Tyrklands, \u00c1stral\u00edu, Pakistan, Vietnam, Singap\u00far, \u00cdran, K\u00edna, Nor\u00f0ur-K\u00f3reu, \u00cdsrael, Su\u00f0ur-K\u00f3reu, L\u00edbanon, Filippseyja, Tailands og S\u00fdrlands.<\/p>\n<p><strong>\u00dea\u00f0 er gj\u00f6f a\u00f0 f\u00e1 \u00feessa b\u00f3k \u00ed hendurnar<\/strong><\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er satt sem stendur \u00e1 k\u00e1punni og \u00e1 svo sannarlega vi\u00f0 um b\u00f3kina \u201eA\u00f0 skrifa sm\u00e1s\u00f6gu er eins og a\u00f0 s\u00fdna t\u00f6frabr\u00f6g\u00f0 \u00ed n\u00e1v\u00edgi \u2013 nokkur \u00fe\u00fasund or\u00f0 fara me\u00f0 mann \u00ed fer\u00f0alag um alheiminn e\u00f0a kremja hjarta\u00f0.\u201c\u00a0 B\u00f3kin er yfir 300 s\u00ed\u00f0ur og \u00e9g var\u00f0 hugfanginn \u00e1 hverri einustu. Las eina s\u00f6gu \u00e1 dag \u00ed tuttugu daga og leyf\u00f0i \u00e1hrifunum a\u00f0 berast um vitundina me\u00f0 t\u00edmanum.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er gott jafnv\u00e6gi \u00ed b\u00f3kinni, milli aldurs og kyns h\u00f6funda og hva\u00f0 efni var\u00f0ar, \u00fea\u00f0 er um samf\u00e9lags\u00fe\u00e6tti, um k\u00fagun, m\u00e6\u00f0ur, fe\u00f0ur, l\u00edfbar\u00e1ttu. \u00de\u00e6r eru um samband, fj\u00f6tra, dau\u00f0a, t\u00f6fra, \u00e1st, leit, val, misr\u00e9tti, frelsi og gle\u00f0i. Hver saga ber sinn t\u00f3n.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er vandasamt a\u00f0 sj\u00e1 fyrir s\u00e9r \u00fe\u00e1 \u00fatkomu sem ver\u00f0ur \u00ed huga lesenda \u00feegar sm\u00e1s\u00f6gur eftir 20 h\u00f6funda eru sauma\u00f0ar saman \u00ed eitt verk \u00ed \u00edslenskri \u00fe\u00fd\u00f0ingu. T\u00f6frar gerast og \u00f3v\u00e6ntar tengingar eiga s\u00e9r sta\u00f0. Lesandanum gefst t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 hugsa um mannlegt hlutskipti \u00fat fr\u00e1 m\u00f6rgum sj\u00f3narhornum en megineinkenni\u00f0 er a\u00f0 finna fyrir \u00feeirri mann\u00fa\u00f0 sem ofin er f\u00ednlega milli or\u00f0a af \u00f3segjanlegri kennd, s\u00e1rsauka og hl\u00fdju.<\/p>\n<p>\u00de\u00fd\u00f0ingar \u00e1 \u00cdslensku gefa okkur t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 fer\u00f0ast me\u00f0 \u00f6\u00f0rum fr\u00e1 menningu til menningar \u00e1 m\u00f3\u00f0urm\u00e1linu.\u00a0 S\u00f6gurnar er afbur\u00f0a\u00fe\u00fdddar af 14 \u00fe\u00fd\u00f0endum og verkinu ritst\u00fdrt af\u00a0<strong>R\u00fanari Helga Vignissyni<\/strong>,\u00a0<strong>Krist\u00ednu Gu\u00f0r\u00fanu J\u00f3nsd\u00f3ttur<\/strong>\u00a0og\u00a0<strong>J\u00f3ni Karli Helgasyni<\/strong>. A\u00f0rir \u00fe\u00fd\u00f0endur eru Dagbj\u00f6rt Gunnarsd\u00f3ttir, Freyja Au\u00f0unsd\u00f3ttir, Hei\u00f0ur Agnes Bj\u00f6rnsd\u00f3ttir, Hj\u00f6rleifur Rafn J\u00f3nsson, Hrafnhildur \u00de\u00f3rhallsd\u00f3ttir, Ingunn Sn\u00e6dal, J\u00f3n Egill Ey\u00fe\u00f3rsson, L\u00e1rus J\u00f3n Gu\u00f0mundsson, Sigr\u00fan \u00c1str\u00ed\u00f0ur Eir\u00edksd\u00f3ttir, Sindri Gu\u00f0j\u00f3nsson og Steingr\u00edmur Karl Teague.\u00a0Einnig m\u00e1 nefna stuttar kynningar \u00e1 undan hverri s\u00f6gu sem vekja \u00e1huga \u00e1 h\u00f6fundum.<\/p>\n<p>Gunnar Hersveinn<\/p>\n<p>https:\/\/stundin.is\/blogg\/lifsgildin\/sogurnar-fylla-lesandann-slu\/<\/p>\n<\/div>\n<div class=\"blog-entry-above\"><\/div>\n<div class=\"entry-body\">\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>Sm\u00e1s\u00f6gur heimsins:<\/strong><\/p>\n<p>As\u00eda og Eyja\u00e1lfa er \u00feri\u00f0ja b\u00f3kin \u00ed r\u00f6\u00f0inni \u00ed hinni merku \u00fatg\u00e1fu Sm\u00e1s\u00f6gur heimsins. \u00c1\u00f0ur hafa komi\u00f0 \u00fat s\u00f6gur fr\u00e1 Nor\u00f0ur-Amer\u00edku og R\u00f3m\u00f6nsku Amer\u00edku. \u00de\u00e1 eru eftir s\u00f6gur fr\u00e1 Evr\u00f3pu og Afr\u00edku. \u00deegar ma\u00f0ur hefur lesi\u00f0 \u00fe\u00e6r allar er eins og ma\u00f0ur hafi fari\u00f0 \u00ed heimsfer\u00f0. J\u00e1 og ekki neitt sm\u00e1r\u00e6\u00f0is fer\u00f0alag.<\/p>\n<p>Hugmyndin a\u00f0 baki ritra\u00f0arinnar er a\u00f0 kynna fyrir \u00cdslendingum sm\u00e1s\u00f6gur fr\u00e1 \u00f6llum heimshornum. S\u00f6gurnar eru fr\u00e1 s\u00ed\u00f0ustu 100 \u00e1rum. Auk \u00feess a\u00f0 velja g\u00f3\u00f0ar s\u00f6gur er leitast vi\u00f0 s\u00fdna fj\u00f6lbreytni og velja h\u00f6funda me\u00f0 \u00f3l\u00edkan bakgrunn og efnist\u00f6k.<\/p>\n<p>Hverri s\u00f6gu fylgir stutt kynning \u00e1 h\u00f6fundi.<\/p>\n<p>\u00cd \u00feessari b\u00f3k eru 20 s\u00f6gur fr\u00e1 jafn m\u00f6rgum l\u00f6ndum. \u00c9g \u00e1tti von \u00e1 st\u00e6rri b\u00f3k. \u00cd As\u00edu eru 48 l\u00f6nd og enn fleiri menningarheimar. \u00dear \u00a0b\u00fdr meira en helmingur jar\u00f0arb\u00faa en vi\u00f0 \u00feetta b\u00e6tist\u00a0 s\u00ed\u00f0an Eyja\u00e1lfa. M\u00e9r finnst \u00fea\u00f0 misr\u00e1\u00f0i\u00f0, \u00fev\u00ed menningarlega s\u00e9\u00f0 \u00e1 h\u00fan betur heima me\u00f0 Evr\u00f3pu og \u00fe\u00e1 hef\u00f0i veri\u00f0 h\u00e6gt a\u00f0 gera As\u00edu betur skil.\u00dea\u00f0 er umdeilt hvernig \u00e1 a\u00f0 skipta heiminum \u00ed heims\u00e1lfur svo \u00e9g h\u00e6tti m\u00e9r ekki lengra \u00fat \u00ed \u00feessa umr\u00e6\u00f0u en \u00ed raun sakna \u00e9g a\u00f0 ekki skuli vera eitt einasta land fr\u00e1 gamla Sov\u00e9t.<\/p>\n<p>M\u00e9r fannst merkilegt a\u00f0 lesa \u00feessa b\u00f3k fr\u00e1 l\u00f6ndum sem eru m\u00e9r svo framandi.\u00a0 En \u00feetta er enginn \u201eyndislestur\u201c \u00fev\u00ed margar s\u00f6gur fjalla um \u00e1t\u00f6k og \u00f3huggulega atbur\u00f0i. Vi\u00f0 erum kannski ekkert \u00f3v\u00f6n \u00fev\u00ed \u00cdslendingar a\u00f0 f\u00e1i fr\u00e9ttir af str\u00ed\u00f0um og \u00a0vo\u00f0averkum fr\u00e1 framandi heimshlutum. 0g h\u00f6fum sj\u00e1lfsagt flest komi\u00f0 okkur upp varnarkerfi til a\u00f0 taka \u00fea\u00f0 ekki of miki\u00f0 inn \u00e1 okkur en \u00fea\u00f0 er \u00f6\u00f0ru v\u00edsi a\u00f0 lesa\/hlusta \u00e1 fr\u00e1s\u00f6gn af einstaklingum sem upplifa \u00fea\u00f0 \u00e1 eigin l\u00edkama. M\u00e9r fannst merkilegt a\u00f0 finna hvernig efni b\u00f3karinnar kalla\u00f0ist \u00e1 vi\u00f0 gamlar fr\u00e9ttir. \u00dea\u00f0 var eins og \u00fe\u00e6r lifnu\u00f0u vi\u00f0, afskaplega veit ma\u00f0ur l\u00edti\u00f0, hugsa\u00f0i \u00e9g. \u00dea\u00f0 er erfitt a\u00f0 alh\u00e6fa um 20 s\u00f6gur, sem eru eins \u00f3l\u00edkar og \u00fe\u00e6r eru margar og s\u00f6gusvi\u00f0i\u00f0 n\u00e6r yfir s.l. 100 \u00e1r. Mig \u00a0langar til a\u00f0 finna samnefnara og n\u00fa hef \u00e9g lista\u00f0 \u00fe\u00e6r upp,\u00a0svo a\u00f0 \u00ed n\u00e6sta bloggi mun \u00e9g gera betur grein fyrir hverri og einni s\u00f6gu. \u00c9g \u00e1 ekki von \u00e1 a\u00f0 \u00feetta ver\u00f0i l\u00e6silegt, \u00e9g geri \u00feetta fyrir mig, \u00e9g er \u00e1str\u00ed\u00f0ulesari \u00a0og \u00e1 stundum erfitt me\u00f0 a\u00f0 yfirgefa b\u00e6kur.<\/p>\n<p><strong>Hlj\u00f3\u00f0b\u00f3kin<\/strong><\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er vanda\u00f0 til ger\u00f0ar \u00feessarar hlj\u00f3\u00f0b\u00f3kar engu s\u00ed\u00f0ur en til b\u00f3kaflokksins \u00ed heild. Upplesararnir lesa vel og sumir fr\u00e1b\u00e6rlega. \u00c9g hef\u00f0i vilja\u00f0 a\u00f0 \u00feeir hef\u00f0u veri\u00f0 kynntir me\u00f0 hverri s\u00f6gu, \u00e9g \u00feekki sumar raddirnar en ekki allar. \u00deegar b\u00f3k \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 \u00feessa er ger\u00f0 m\u00e9r a\u00f0gengileg sem hlj\u00f3b\u00f3k finn \u00e9g til mikils \u00feakkl\u00e6tis.<\/p>\n<p><a href=\"https:\/\/bergthoraga.blog.is\/blog\/bergthoraga\/entry\/2238876\/\">Berg\u00fe\u00f3ra G\u00edslad\u00f3ttir<\/a><\/p>\n<\/div>\n<div class=\"field-items\">\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Morgunbla\u00f0i\u00f0 6. feb. 2019<a href=\"http:\/\/uni.hi.is\/rhv\/files\/2019\/02\/Screenshot-2019-02-07-at-10.54.25.png\"><br \/>\n<\/a><a href=\"http:\/\/uni.hi.is\/rhv\/files\/2019\/02\/Screenshot-2019-02-07-at-10.54.25.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft wp-image-1178 size-large\" src=\"http:\/\/uni.hi.is\/rhv\/files\/2019\/02\/Screenshot-2019-02-07-at-10.54.25-696x1024.png\" alt=\"\" width=\"474\" height=\"697\" srcset=\"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/files\/2019\/02\/Screenshot-2019-02-07-at-10.54.25-696x1024.png 696w, https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/files\/2019\/02\/Screenshot-2019-02-07-at-10.54.25-204x300.png 204w, https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/files\/2019\/02\/Screenshot-2019-02-07-at-10.54.25-768x1130.png 768w, https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/files\/2019\/02\/Screenshot-2019-02-07-at-10.54.25.png 892w\" sizes=\"auto, (max-width: 474px) 100vw, 474px\" \/><\/a><\/p>\n<\/div>\n<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00deri\u00f0ja bindi Sm\u00e1sagna heimsins er komi\u00f0 \u00fat. \u00dea\u00f0 er helga\u00f0 As\u00edu og Eyja\u00e1lfu. \u00cd \u00fev\u00ed eru 20 s\u00f6gur fr\u00e1 jafn m\u00f6rgum l\u00f6ndum en markmi\u00f0 ritra\u00f0arinnar er a\u00f0 birta g\u00f3\u00f0ar s\u00f6gur fr\u00e1 eins m\u00f6rgum l\u00f6ndum og kostur er. As\u00eda og Eyja\u00e1lfa spanna marga menningarheima eins og bindi\u00f0 endurspeglar. \u00dear getur a\u00f0 l\u00edta sm\u00e1s\u00f6gur allt fr\u00e1 arab\u00edsku [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":420,"featured_media":0,"parent":6,"menu_order":21,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","template":"","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1114","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1114","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/wp-json\/wp\/v2\/users\/420"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1114"}],"version-history":[{"count":8,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1114\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1531,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1114\/revisions\/1531"}],"up":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/6"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1114"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}