﻿{"id":1279,"date":"2020-07-24T20:00:52","date_gmt":"2020-07-24T20:00:52","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/?page_id=1279"},"modified":"2024-11-09T20:26:57","modified_gmt":"2024-11-09T20:26:57","slug":"bedid-eftir-barborunum","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/%c3%bey%c3%b0andinn\/bedid-eftir-barborunum\/","title":{"rendered":"Be\u00f0i\u00f0 eftir barb\u00f6runum"},"content":{"rendered":"<p><strong><a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/files\/2020\/05\/Screenshot-2020-05-31-at-16.50.27.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-medium wp-image-1267\" src=\"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/files\/2020\/05\/Screenshot-2020-05-31-at-16.50.27-192x300.png\" alt=\"\" width=\"192\" height=\"300\" srcset=\"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/files\/2020\/05\/Screenshot-2020-05-31-at-16.50.27-192x300.png 192w, https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/files\/2020\/05\/Screenshot-2020-05-31-at-16.50.27-657x1024.png 657w, https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/files\/2020\/05\/Screenshot-2020-05-31-at-16.50.27.png 684w\" sizes=\"auto, (max-width: 192px) 100vw, 192px\" \/><\/a>\u00cdslensk \u00fe\u00fd\u00f0ing \u00e1 verkinu\u00a0<em>Waiting for the Barbarians<\/em> eftir su\u00f0ur-afr\u00edska N\u00f3belssk\u00e1ldi\u00f0 J. M. Coetzee kom \u00fat \u00e1 vegum b\u00f3ka\u00fatg\u00e1funnar Unu \u00e1ri\u00f0 2020. B\u00f3kina \u00fe\u00fdddum vi\u00f0 Sigurl\u00edna Dav\u00ed\u00f0sd\u00f3ttir \u00ed sameiningu.<\/strong><\/p>\n<p><em>Be\u00f0i\u00f0 eftir barb\u00f6runum<\/em>, eins og b\u00f3kin heitir \u00e1 \u00edslensku, er s\u00edgilt samt\u00edmaverk enda hefur \u00fea\u00f0 enn mikla sk\u00edrskotun til atbur\u00f0a samt\u00edmans. B\u00f3kin kom fyrst \u00fat \u00e1ri\u00f0 1980 og er a\u00f0 m\u00ednu mati eitt af allrabestu verkum h\u00f6fundar og ein merkasta sk\u00e1ldsaga s\u00ed\u00f0ari hluta 20. aldar.<\/p>\n<p>\u00cd \u00e1ratugi hefur d\u00f3mari stj\u00f3rna\u00f0 r\u00f3legum b\u00e6 \u00e1 m\u00e6rum heimsveldis. \u00deegar or\u00f0r\u00f3mur berst um barbara (\u00feannig v\u00edsa stj\u00f3rnv\u00f6ld til innf\u00e6ddra) handan b\u00e6jarm\u00faranna taka fulltr\u00faar heimsveldisins v\u00f6ldin. \u00cd kj\u00f6lfari\u00f0 gerist d\u00f3marinn gagnr\u00fdninn \u00e1 alr\u00e6\u00f0i \u00feeirra og ofbeldi, en \u00fearf samhli\u00f0a a\u00f0 horfast \u00ed augu vi\u00f0 eigin takm\u00f6rk, f\u00fdsnir og si\u00f0fer\u00f0i. Sagan er \u00e1leitin gagnr\u00fdni \u00e1 n\u00fdlenduveldi og a\u00f0skilna\u00f0arstefnu l\u00edkt og fjalla\u00f0 er um \u00ed eftirm\u00e1la Einars K\u00e1ra J\u00f3hannssonar.<\/p>\n<p>B\u00f3kin hreppti B\u00f3ksalaver\u00f0launin 2020 sem besta \u00fe\u00fddda sk\u00e1ldverki\u00f0.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>UMSAGNIR<\/strong><\/p>\n<p>\u201eEftir stendur a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fum fengi\u00f0 eitt af st\u00f3rvirkjum heimsb\u00f3kmenntanna \u00e1 \u00edslensku, \u00ed \u00fe\u00fd\u00f0ingu sem \u00e1 sinn h\u00e1tt er eins t\u00edmalaus og frumtextinn. H\u00fan n\u00e6r hinum makr\u00e1\u00f0a t\u00f3ni s\u00f6gumanns algj\u00f6rlega og gerir hann a\u00f0 eftirminnilegri pers\u00f3nu.\u201c \u2013 Gauti Kristmannsson, <a href=\"https:\/\/www.ruv.is\/utvarp\/spila\/vidsja\/23618\/7hqus3\/gauti-kristmannsson-um-bedid-eftir-barborunum\">V\u00ed\u00f0sj\u00e1<\/a> 16.2.2021.<\/p>\n<p>\u201eLesendur fengu \u00fe\u00fd\u00f0ingar \u00e1 fr\u00e1b\u00e6rum verkum. \u00dear skal fyrst nefna Be\u00f0i\u00f0 eftir barb\u00f6runum eftir N\u00f3belsver\u00f0launah\u00f6fundinn J. M. Coetzee \u2013 magna\u00f0 meistaraverk.\u201c \u2013 Kolbr\u00fan Berg\u00fe\u00f3rsd\u00f3ttir \u00ed uppgj\u00f6rspistli \u00ed Fr\u00e9ttabla\u00f0inu 8.1.2021.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/files\/2021\/01\/Ritdo\u0301mur-Einars-Fals-Mbl12082020.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft wp-image-1338 size-large\" src=\"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/files\/2021\/01\/Ritdo\u0301mur-Einars-Fals-Mbl12082020-978x1024.png\" alt=\"\" width=\"474\" height=\"496\" srcset=\"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/files\/2021\/01\/Ritdo\u0301mur-Einars-Fals-Mbl12082020-978x1024.png 978w, https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/files\/2021\/01\/Ritdo\u0301mur-Einars-Fals-Mbl12082020-287x300.png 287w, https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/files\/2021\/01\/Ritdo\u0301mur-Einars-Fals-Mbl12082020-768x804.png 768w, https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/files\/2021\/01\/Ritdo\u0301mur-Einars-Fals-Mbl12082020.png 1366w\" sizes=\"auto, (max-width: 474px) 100vw, 474px\" \/><\/a><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>N\u00fdjung hj\u00e1 Unu \u00fatg\u00e1fuh\u00fasi er b\u00f3kaser\u00edan\u00a0<em>S\u00edgild samt\u00edmaverk.<\/em>\u00a0Fyrsta b\u00f3kin sem kemur \u00fat \u00ed ser\u00edunni er\u00a0<em>Be\u00f0i\u00f0 eftir barb\u00f6runum<\/em> (1980) eftir n\u00f3belssk\u00e1ldi\u00f0 J.M. Coetzee. B\u00f3kin er \u00ed \u00fe\u00fd\u00f0ingu Sigurl\u00ednu Dav\u00ed\u00f0sd\u00f3ttur og R\u00fanars Helga Vignissonar. B\u00f3kin var upprunalega \u00fe\u00fddd fyrir \u00fatvarp \u00e1ri\u00f0 1984 af Sigurl\u00ednu en R\u00fanar Helgi endursko\u00f0a\u00f0i og endurvann \u00fe\u00fd\u00f0inguna fyrir \u00feessa prentu\u00f0u \u00fatg\u00e1fu.<\/p>\n<p>B\u00f3kin er h\u00e1lfgj\u00f6rt prentverk en h\u00fan er \u00ed \u00f3hef\u00f0bundnu broti \u00fear sem fors\u00ed\u00f0an leggst yfir b\u00f3kina fr\u00e1 vinstri. H\u00e6gt a\u00f0 nota k\u00e1puna sem b\u00f3kamerki en \u00fe\u00e1 \u00e1 lesandinn \u00e1 h\u00e6ttu a\u00f0 afmynda hana svol\u00edti\u00f0. \u00deessi einstaka k\u00e1pa er h\u00f6nnu\u00f0 af Chris Petter Spilde.<\/p>\n<h4>Heimsveldi\u00f0 gegn barb\u00f6rum<\/h4>\n<p>\u00c1 fyrstu s\u00ed\u00f0unum kynnist lesandinn d\u00f3mara \u00ed litlum landnemab\u00e6 \u00e1 m\u00f6rkum \u00f3nefnds heimsveldis. Hann hefur lengi lifa\u00f0 \u00fear lj\u00fafu l\u00edfi \u00fear til herdeild sest a\u00f0 \u00ed b\u00e6num vegna yfirvofandi styrjaldar barbaranna. \u00deetta eru \u00fe\u00f3 a\u00f0eins s\u00f6gusagir, enn sem komi\u00f0 er, en \u00fer\u00e1tt fyrir \u00fea\u00f0 byrjar herforinginn a\u00f0 taka s\u00e9r, a\u00f0 \u00fev\u00ed vi\u00f0rist, saklausa fanga. D\u00f3marinn kann illa a\u00f0 meta framg\u00f6ngu herforingjans og er sk\u00e1ldsagan mest\u00f6ll innri m\u00f3n\u00f3l\u00f3gur hans \u00fear sem hann veltir fyrir s\u00e9r umhverfi s\u00ednu og r\u00edkjandi valdakerfi sem hann gr\u00e6\u00f0ir \u00e1. D\u00f3marinn er \u00fe\u00f3 alls ekki heilagur, hann fer a\u00f0 sofa hj\u00e1 barbarast\u00falku sem hermennirnir hafa blinda\u00f0 og afmynda\u00f0, og kemur s\u00e9r \u00feannig \u00ed sl\u00e6ma st\u00f6\u00f0u \u00ed litla samf\u00e9laginu.<\/p>\n<h4>T\u00e1knr\u00e6n \u00e1deila<\/h4>\n<p>B\u00f3kin birtist m\u00e9r sem t\u00e1knsaga, e\u00f0a alleg\u00f3r\u00eda, yfir hr\u00e6\u00f0ilegar aflei\u00f0ingar n\u00fdlendustefnu. H\u00fan er h\u00f6r\u00f0 \u00e1deila \u00e1 framgang n\u00fdlenduherra sem eigna s\u00e9r landsv\u00e6\u00f0i og bera svo enga vir\u00f0ingu fyrir f\u00f3lkinu sem bj\u00f3 \u00fear fyrir. \u00de\u00e1 er pers\u00f3na d\u00f3marans talsma\u00f0ur \u00feessarar \u00e1deilu en hann gagnr\u00fdnir st\u00f6\u00f0ugt \u00e1standi\u00f0 \u00fe\u00f3 a\u00f0 hann s\u00e9 sj\u00e1lfur spilltur si\u00f0fer\u00f0islega og virkur hluti af \u00feessu hr\u00e6\u00f0ilega valdakerfi.<\/p>\n<p>Hugsanir d\u00f3marans eru lj\u00f3\u00f0r\u00e6nar og setja a\u00f0st\u00e6\u00f0urnar \u00ed samhengi:\u00a0\u201e\u00dev\u00ed l\u00fdstur ni\u00f0ur a\u00f0 vi\u00f0 kremjum skord\u00fdr undir f\u00f3tum, \u00feau sem eru einnig d\u00fdr\u00f0legt sk\u00f6punarverk\u2026\u201c (bls. 175). \u00deannig hagar herinn s\u00e9r gagnvart barb\u00f6runum sem enginn hefur geta\u00f0 sta\u00f0fest a\u00f0 s\u00e9u raunverulegir \u00f3gnvaldar. \u00cd gegnum alla b\u00f3kina eru barbararnir mj\u00f6g \u00f3lj\u00f3s \u00f3vinur sem lesandinn efast um a\u00f0 s\u00e9 einu sinni til. Hva\u00f0 eru barbarar \u00ed raun? \u00deessi \u00f3gn er l\u00edklegast uppspuni valdagr\u00e1\u00f0uga Heimsveldisins sem vill ja\u00f0arsetja f\u00f3lk af \u00f6\u00f0ru \u00fej\u00f3\u00f0erni og kyn\u00fe\u00e6tti til a\u00f0 efla s\u00edn eigin v\u00f6ld.<\/p>\n<div id=\"attachment_6933\" class=\"wp-caption alignright\">\n<p><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"wp-image-6933\" src=\"https:\/\/lestrarklefinn.is\/wp-content\/uploads\/2020\/06\/coetzee-13685-portrait-medium.jpg\" alt=\"\" width=\"250\" height=\"376\" aria-describedby=\"caption-attachment-6933\" \/><\/p>\n<p id=\"caption-attachment-6933\" class=\"wp-caption-text\">\u00c1ri\u00f0 2003 hlaut Coetzee N\u00f3belsver\u00f0launin \u00ed b\u00f3kmenntum.<\/p>\n<\/div>\n<h4>\u201eBl\u00e6\u00f0ingar kvenna eru \u00f3heillamerki\u201c<\/h4>\n<p>A\u00f0alkvenpers\u00f3na b\u00f3karinnar er barbarast\u00falkan sem d\u00f3marinn \u201etekur a\u00f0 s\u00e9r\u201c. Hann f\u00e6rir hana \u00ed herbergi\u00f0 sitt og nuddar hana fr\u00e1 toppi til t\u00e1ar \u00e1 hverju kv\u00f6ldi. Hann segist ekki f\u00e1 neina kynfer\u00f0islega \u00f6rvun vi\u00f0 a\u00f0 framkv\u00e6ma \u00feetta nudd en \u00fer\u00e1ir a\u00f0 laga hana einhvernveginn eftir allt ofbeldi\u00f0 sem h\u00fan var beitt \u00ed yfirheyrslum af herm\u00f6nnunum. Athyglisvert er a\u00f0 sko\u00f0a hvernig d\u00f3marinn r\u00e9ttl\u00e6tir \u00feessa framg\u00f6ngu s\u00edna fyrir s\u00e9r en hann finnur fyrir sektarkennd fyrri a\u00f0 hafa ekki st\u00f6\u00f0va\u00f0 \u00feetta ofbeldi.<\/p>\n<p>D\u00f3marinn sefur hj\u00e1 \u00f6\u00f0rum st\u00falkum og veit sj\u00e1lfur upp \u00e1 sig s\u00f6kina, a\u00f0 hann \u00e6tti ekki a\u00f0 vera sofa hj\u00e1 svo ungum og fallegum konum \u00feegar hann er sj\u00e1lfur gamall og \u00f3fr\u00ed\u00f0ur. Hann gerir \u00fea\u00f0 samt. \u00d3heillandi lj\u00f3si er varpa\u00f0 \u00e1 konur \u00ed b\u00f3kinni en \u00e1 einum t\u00edmapunkti vill d\u00f3marinn hj\u00e1lpa barbarast\u00falkunni a\u00f0 komast aftur heim til s\u00edn og fer \u00fev\u00ed \u00ed h\u00e1skaf\u00f6r me\u00f0 nokkrum herm\u00f6nnum til a\u00f0 koma st\u00falkunni til f\u00f3lksins s\u00edns. \u00c1 me\u00f0an fer\u00f0alaginu stendur vill svo \u00f3heppilega til a\u00f0 henni byrjar a\u00f0 bl\u00e6\u00f0a:\u00a0\u201eSt\u00falkan er \u00e1 bl\u00e6\u00f0ingum, \u00fea\u00f0 er s\u00e1 t\u00edmi m\u00e1na\u00f0arins. H\u00fan getur hvorki leynt \u00fev\u00ed n\u00e9 fari\u00f0 afs\u00ed\u00f0is [\u2026]. H\u00fan er \u00ed uppn\u00e1mi og mennirnir l\u00edka. \u00dea\u00f0 er sama gamla sagan: bl\u00e6\u00f0ingar kvenna eru \u00f3heillamerki, \u00fe\u00e6r eru sl\u00e6mar fyrir gr\u00f3\u00f0urinn, sl\u00e6mar fyrir vei\u00f0arnar og sl\u00e6mar fyrir hestana.\u201c (bls. 114) \u00c1deilan er h\u00e9r mj\u00f6g sk\u00fdr, f\u00e1fr\u00e6\u00f0i og van\u00feekking mannanna er g\u00edfurleg, og ekki hj\u00e1lpar \u00feessi hrikalega hj\u00e1tr\u00fa. \u00c9g er \u00fe\u00f3 \u00fev\u00ed mi\u00f0ur ansi hr\u00e6dd um a\u00f0 sl\u00edkir ford\u00f3mar og f\u00e1fr\u00e6\u00f0i um t\u00ed\u00f0abl\u00e6\u00f0ingar kvenna s\u00e9u enn sumsta\u00f0ar vi\u00f0 l\u00fd\u00f0i a\u00f0 einhverju leiti. Konur \u00ed b\u00f3kinni eru \u00ed gamaldags kvenhlutverkum, vinnukonur, eldabuskur, m\u00e6\u00f0ur og kynl\u00edfsvi\u00f0f\u00f6ng, og hafa hvorki r\u00f6dd n\u00e9 vald.<\/p>\n<h4>L\u00e6v\u00edst og miskunnarlaust heimsveldi<\/h4>\n<p>A\u00f0st\u00e6\u00f0ur d\u00f3marans gj\u00f6rbreytast \u00ed seinni hluta b\u00f3karinnar, hann er sj\u00e1lfur fangelsa\u00f0ur og f\u00e6r a\u00f0 upplifa \u00fea\u00f0 a\u00f0 d\u00fasa \u00ed fangaklefa \u00e1n kl\u00f3setts, vatns og a\u00f0 vera skammta\u00f0 mat einu sinni \u00e1 dag. \u00deetta truflar d\u00f3marann fur\u00f0ulega l\u00edti\u00f0 en \u00ed fyrstu finnst honum \u00fe\u00e6gilegt a\u00f0 \u00feurfa hvorki a\u00f0 hugsa n\u00e9 taka \u00e1kvar\u00f0anir. \u00dea\u00f0 merkilegasta er samt a\u00f0 \u00e1 endanum \u00e1ttar hann sig \u00e1 hversu gagnslaus og m\u00e1ttlaus tilvera hans er. Hann hefur engin raunveruleg v\u00f6ld. Hann er a\u00f0eins eitt af \u00f3merkilegu hj\u00f3lunum sem keyrir \u00e1fram \u00feetta \u00f3gnv\u00e6nlega valdakerfi. Framan af er \u00e1deilan \u00e1 heimsveldi\u00f0 \u00e1 \u00feann h\u00e1tt a\u00f0 d\u00f3marinn l\u00fdsir \u00e1standinu og gagnr\u00fdnir \u00fea\u00f0 \u00ed huga s\u00e9r, en eftir \u00fev\u00ed sem l\u00ed\u00f0ur \u00e1 b\u00f3kina ver\u00f0ur h\u00fan auglj\u00f3sari og a\u00f0 lokum a\u00f0 lj\u00f3\u00f0r\u00e6n upphr\u00f3pun:<\/p>\n<blockquote><p>\u201eHva\u00f0 er \u00fea\u00f0 sem hefur gert okkur \u00f3f\u00e6r um a\u00f0 lifa fyrir l\u00ed\u00f0andi stund eins og fiskar \u00ed vatni, eins og fuglar \u00ed lofti, eins og b\u00f6rn? \u00dea\u00f0 er Heimsveldinu a\u00f0 kenna! Heimsveldi\u00f0 hefur skapa\u00f0 t\u00edmaskyn s\u00f6gunnar. Tilvera Heimsveldisins byggir ekki \u00e1 hn\u00f6kralausri hringr\u00e1s \u00e1rst\u00ed\u00f0anna, heldur \u00e1 sk\u00f6rpum skilum milli bl\u00f3maskei\u00f0s og ni\u00f0url\u00e6gingar, upphafs og endaloka, \u00e1 hamf\u00f6rum. Heimsveldi\u00f0 er d\u00e6mt til a\u00f0 tilheyra mannkynss\u00f6gunni en um lei\u00f0 til a\u00f0 vinna gegn henni. \u00cd hulduhuga Heimsveldisins kemst ekkert anna\u00f0 a\u00f0 en a\u00f0 for\u00f0ast eigin endalok, halda s\u00e9r gangandi og framlengja eigi\u00f0 valdaskei\u00f0. \u00dea\u00f0 eltir \u00f3vini s\u00edna \u00e1 daginn. \u00dea\u00f0 er l\u00e6v\u00edst og miskunnarlaust, sendir bl\u00f3\u00f0hunda s\u00edna \u00fat um allt.\u201c (bls. 216)<\/p><\/blockquote>\n<h4>Langt fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera sk\u00e1ldskapur<\/h4>\n<p><em>Be\u00f0i\u00f0 eftir barb\u00f6runum<\/em>\u00a0var virkilega \u00e1hugaver\u00f0ur og g\u00f3\u00f0ur lestur, s\u00e9rstaklega \u00ed dag \u00fear sem samf\u00e9lagi\u00f0 logar vegna bar\u00e1ttu svarts f\u00f3lks \u00ed Bandar\u00edkjunum. Umr\u00e6\u00f0an er \u00fev\u00ed mi\u00f0ur a\u00f0 fjara \u00fat en \u00fea\u00f0 er svo mikil \u00fe\u00f6rf a\u00f0 halda henni \u00e1 lofti og einmitt lesa b\u00e6kur sem \u00e1 einhvern h\u00e1tt tala inn \u00ed n\u00fat\u00edmann. \u00c9g tengdi \u00feessa sk\u00e1lds\u00f6gu beint vi\u00f0 \u00e1standi\u00f0 \u00ed heiminum \u00ed dag, \u00fear sem f\u00f3lk er teki\u00f0 h\u00f6ndum, beitt ofbeldi og myrt af yfirvaldinu \u00ed \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 k\u00f6llum \u201e\u00fer\u00f3u\u00f0um r\u00edkjum\u201c. \u00cd b\u00f3kinni er \u00fea\u00f0 herforinginn sem tekur f\u00f3lk fanga \u00e1n d\u00f3ms og laga og pyntir \u00fea\u00f0 \u00ed l\u00f6ngum yfirheyrslum, en \u00ed n\u00fat\u00edmanum er \u00fea\u00f0 l\u00f6gregluma\u00f0ur \u00ed Bandar\u00edkjunum sem k\u00e6fir mann til dau\u00f0a \u00feegar hann kr\u00fdpur \u00e1 h\u00e1lsi hans \u00feanga\u00f0 til hann kafnar. \u00deetta er \u00f3ge\u00f0felldur og hr\u00e6\u00f0ilegur raunveruleiki sem er \u00fev\u00ed mi\u00f0ur langt fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera sk\u00e1ldskapur. Enda hefur Coetzee upplifa\u00f0 eftirk\u00f6st n\u00fdlendu- og a\u00f0skilna\u00f0arstefnunnar \u00ed Su\u00f0ur-Afr\u00edku \u00e1 eigin skinni, en hann er sj\u00e1lfur afkomandi hollenskra n\u00fdlenduherra.<\/p>\n<p>\u00deetta er \u00e1st\u00e6\u00f0an fyrir mikilv\u00e6gi sk\u00e1ldskaparins og af hverju h\u00e6fileikar\u00edkir h\u00f6fundar eru nau\u00f0synlegir samf\u00e9laginu. Me\u00f0 listinni er h\u00e6gt a\u00f0 mi\u00f0la skelfilegu \u00e1standi \u00e1 lj\u00f3\u00f0r\u00e6nan og lesendav\u00e6nan h\u00e1tt, og \u00feannig varpa lj\u00f3si \u00e1 undirokun, ofbeldi og skelfilegt \u00f3r\u00e9ttl\u00e6ti. \u00dea\u00f0 er \u00fea\u00f0 sem Coetzee tekst \u00ed \u00feessari tilteknu b\u00f3k, hann f\u00e6r lesandann til a\u00f0 upplifa \u00e1standi\u00f0 \u00e1 n\u00fdjan og \u00f3v\u00e6ntan h\u00e1tt \u00ed gegnum augu d\u00f3marans sem sko\u00f0ar umhverfi sitt me\u00f0 lj\u00f3\u00f0r\u00e6num og gagnr\u00fdnum augum. Stundum jafnvel barnalegum augum, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er svo barnslega einfalt a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00e1 ekki a\u00f0 koma svona fram vi\u00f0 neinar mannverur.<\/p>\n<p>Til a\u00f0 fr\u00e6\u00f0ast n\u00e1nar um Coetzee, bakgrunn og \u00feemu b\u00f3karinnar, m\u00e6li \u00e9g me\u00f0 a\u00f0 lesa eftirm\u00e1lann eftir Einar K\u00e1ra J\u00f3hannsson sem er einstaklega fr\u00f3\u00f0legur og fer vel yfir fyrri verk Coetzees. \u00c9g vil \u00fe\u00f3 segja a\u00f0 lokum a\u00f0 \u00feetta var samt ekki au\u00f0veldur lestur fyrir mig \u00fev\u00ed \u00e9g tengdi hann svo beint vi\u00f0 \u00e1standi\u00f0 \u00ed heiminum \u00ed dag. \u00c9g t\u00f3k m\u00e9r \u00fe\u00f3 nokkrar p\u00e1sur til a\u00f0 melta \u00fea\u00f0 sem \u00e9g var a\u00f0 lesa og var \u00fev\u00ed frekar lengi me\u00f0 b\u00f3kina, en \u00feetta var hollur og g\u00f3\u00f0ur lestur. \u00c9g m\u00e6li innilega me\u00f0 \u00feessari b\u00f3k.<\/p>\n<p><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-medium wp-image-5623\" src=\"https:\/\/lestrarklefinn.is\/wp-content\/uploads\/2020\/03\/45-stj%C3%B6rnur-300x60.png\" alt=\"\" width=\"300\" height=\"60\" \/><\/p>\n<h3 class=\"sd-title\"><\/h3>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Rebekka Sif Stef\u00e1nsd\u00f3ttir, <a href=\"https:\/\/lestrarklefinn.is\/2020\/06\/24\/bedid-eftir-barborunum-i-vinnslu\/\">Lestrarklefinn<\/a><\/p>\n<div class=\"blog-entry-above\">\n<h2><a href=\"https:\/\/bergthoraga.blog.is\/blog\/bergthoraga\/entry\/2255047\/\">Be\u00f0i\u00f0 eftir barb\u00f6runum<\/a><\/h2>\n<\/div>\n<div class=\"entry-body\">\n<p>Lestur b\u00f3karinnar,\u00a0<strong>Be\u00f0i\u00f0 eftir barb\u00f6runum,<\/strong>\u00a0bar upp \u00e1 sama t\u00edma og umr\u00e6\u00f0an um brottrekstur egypskrar\u00a0 barnafj\u00f6lskyldu st\u00f3\u00f0 \u00a0sem h\u00e6st.\u00a0 Var \u00feetta tilviljun? Tr\u00falega. Hva\u00f0 sem \u00fev\u00ed l\u00ed\u00f0ur haf\u00f0i \u00fea\u00f0 mikil \u00e1hrif \u00e1 upplifun m\u00edna af b\u00f3kinni.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er minna en tv\u00f6 \u00e1r s\u00ed\u00f0an \u00e9g var sj\u00e1lf \u00ed Egyptalandi\u00a0 sem t\u00faristi. Vi\u00f0 sko\u00f0u\u00f0um p\u00edram\u00eddana, fornar grafir konunga og fj\u00f6ldann allan af f\u00f6llnum og h\u00e1lff\u00f6llnum musterum undir handlei\u00f0slu okkar fr\u00e1b\u00e6ru lei\u00f0s\u00f6gukonu.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 minnisst\u00e6\u00f0asta \u00far \u00feessari fer\u00f0 er \u00fe\u00f3 l\u00edtil saga sem h\u00fan sag\u00f0i okkur, \u00feegar vi\u00f0 vorum a\u00f0 sko\u00f0a gamla kirkju \u00ed K\u00e6r\u00f3 .<\/p>\n<p><strong>Fj\u00f6lskylda \u00e1 fl\u00f3tta<\/strong><\/p>\n<p>Sagan segir a\u00f0 kirkjan \u00a0s\u00e9 bygg\u00f0 \u00e1 grunni h\u00fass \u00fear sem g\u00f3\u00f0 fj\u00f6lskylda skaut skj\u00f3lsh\u00fasi yfir \u00feriggja manna fl\u00f3ttafj\u00f6lskyldu, \u00feeirra J\u00f3sefs, Mar\u00edu og hans Jes\u00fas litla. \u00a0\u00a0H\u00fan s\u00fdndi okkur gr\u00f3p \u00ed g\u00f3lfi\u00f0 \u00fear sem sagan segir a\u00f0 vaggan hafi sta\u00f0i\u00f0. Upp \u00e1 vegg var svo kort af fl\u00f3ttalei\u00f0inni sem fj\u00f6lskyldan f\u00f3r og sta\u00f0irnir merktir inn \u00fear sem \u00feau gistu \u00e1 fl\u00f3ttanum me\u00f0 hj\u00e1lp g\u00f3\u00f0vilja\u00f0ra. \u00dear voru s\u00ed\u00f0ar bygg\u00f0ar kirkjur. Ekkert sem \u00e9g heyr\u00f0i e\u00f0a s\u00e1 \u00ed Egyptalandi hreif mig eins miki\u00f0 og \u00feessi litla saga sem \u00e9g \u00fe\u00f3 vissi a\u00f0 var ekki s\u00f6nn. Allt \u00ed einu fannst m\u00e9r \u00e9g vita hvernig \u00fea\u00f0 var a\u00f0 vera \u00e1 fl\u00f3tta.<\/p>\n<p>En \u00e9g \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 skrifa um b\u00f3kina\u00a0<strong>Be\u00f0i\u00f0 eftir barb\u00f6runu<\/strong>m eftir N\u00f3belsver\u00f0launahafann Coetzee. \u00c9g hef ekki lesi\u00f0 b\u00e6kur hans fyrr \u00fev\u00ed \u00a0m\u00e9r er sagt af vinum m\u00ednum, sem \u00e9g treysti, a\u00f0 lesturinn taki svo miki\u00f0 \u00e1 mann og \u00e9g vildi hl\u00edfa m\u00e9r. En n\u00fa \u00e1kva\u00f0 \u00e9g a\u00f0 taka st\u00f6kki\u00f0 og h\u00f3f lestur\/hlustun um lei\u00f0 og \u00e9g s\u00e1 a\u00f0 b\u00f3kin var komin \u00e1 Hlj\u00f3\u00f0b\u00f3kasafni\u00f0. B\u00f3kin l\u00e6tur ekki miki\u00f0 yfir s\u00e9r. H\u00fan tekur 7:37 klst. \u00ed aflestri og \u00fea\u00f0 er Karl Emil Gunnarsson sem les . Hann les vel.<\/p>\n<p>A\u00f0alpers\u00f3na s\u00f6gunnar er d\u00f3mari litlu \u00ed \u00feorpi \u00e1 \u00fatja\u00f0ri heimsveldis. Hann segir s\u00f6gu s\u00edna \u00ed fyrstu pers\u00f3nu. Hann er b\u00fainn a\u00f0 vera \u00fearna lengi og er \u00ed raun a\u00f0 b\u00ed\u00f0a eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 komast \u00e1 eftirlaun. En hann \u00e1 ekki \u00fev\u00ed l\u00e1ni a\u00f0 fagna. \u00dea\u00f0 fer a\u00f0 heyrast or\u00f0r\u00f3mur um a\u00f0 barbarar muni r\u00e1\u00f0ast \u00e1 \u00feorpi\u00f0. Ef eitthva\u00f0 hverfur \u00ed \u00feorpinu tr\u00faa menn \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feetta s\u00e9u \u00feeir,barbararnir. Og af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feetta \u00feorp er \u00e1 \u00fatja\u00f0ri heimsveldis, finnst \u00feeim \u00ed h\u00f6fu\u00f0borginni r\u00e9tt a\u00f0 kanna hvort heimsveldinu standi \u00f3gn af barb\u00f6rum og senda mann \u00e1 sta\u00f0inn. Hann handsamar f\u00f3lk sem tilheyrir hir\u00f0ingjaflokki og yfirheyrir \u00fea\u00f0 me\u00f0 s\u00ednum a\u00f0fer\u00f0um. Og n\u00e6r fram j\u00e1tningu um a\u00f0 \u00a0barbarar s\u00e9u a\u00f0 undirb\u00faa \u00e1hlaup, innr\u00e1s \u00ed heimsveldi\u00f0. Og \u00fea\u00f0 er sendur her. \u00c1standi\u00f0 stigmagnast. Lesandinn getur einungis r\u00e1\u00f0i\u00f0 \u00ed \u00e1standi\u00f0 \u00fat fr\u00e1 \u00fev\u00ed sem d\u00f3marinn segir. Og m\u00e9r sem lesanda s\u00fdnist a\u00f0 d\u00f3marinn tr\u00fai ekki \u00feessum fr\u00e9ttum. Hann veit a\u00f0 j\u00e1tningunum hefur veri\u00f0 n\u00e1\u00f0 fram me\u00f0 pyntingum. Hann gerir ekkert, reynir \u00fe\u00f3 a\u00f0 finna s\u00e9r svefnsta\u00f0 \u00fear sem hann heyrir ekki kvalahlj\u00f3\u00f0in \u00ed f\u00f3lkinu.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 sem lesandinn f\u00e6r a\u00f0 vita um d\u00f3marann \u00ed gegnum fr\u00e1s\u00f6gn hans sj\u00e1lfs er, a\u00f0 hann vir\u00f0ist vera meinleysisgrey en miki\u00f0 upp \u00e1 kvenh\u00f6ndina. \u00de\u00e6r \u00feurfa a\u00f0 vera ungar, \u00a0\u00a0\u00fev\u00ed a\u00f0 geta hans til kynl\u00edfs fer dv\u00ednandi og \u00fe\u00e1 hj\u00e1lpar a\u00f0 hafa \u00fe\u00e6r ungar. \u00dea\u00f0 er \u00f3ge\u00f0fellt a\u00f0 lesa um \u00feetta. Allt \u00ed einu \u00e1ttar lesandinn sig \u00e1 \u00fev\u00ed, a\u00f0 \u00fearna er ma\u00f0ur \u00ed valdast\u00f6\u00f0u og vald hans er sl\u00edkt a\u00f0 hann \u00fearf ekki einu sinni a\u00f0 nau\u00f0ga. Hann getur nota\u00f0 konur a\u00f0 vild sinni.<\/p>\n<p>\u00deegar herinn er b\u00fainn a\u00f0 f\u00e1 \u00fea\u00f0 upp \u00far barb\u00f6rurum, \u00fea\u00f0 sem hann vill heyra, \u00a0er \u00feeim sleppt og \u00feeir fara til\u00a0 baka til sinna heimkynna. \u00de\u00e1 ver\u00f0ur eftir \u00e1 torginu st\u00falka e\u00f0a barn sem betlar s\u00e9r fyrir mat. D\u00f3marinn spyrst fyrir og kemst a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan er blind og getur ekki gengi\u00f0. \u00deannig er h\u00fan \u00fatleikin eftir yfirheyrslurnar. Hann fer me\u00f0 hana heim til s\u00edn og tekur \u00e1stf\u00f3stri vi\u00f0 hana. Hann veit ekki sj\u00e1lfur hvers lags sambandi\u00f0 er. Finnst hann vera allt \u00ed senn, fa\u00f0ir, elskhugi og vinur. H\u00e9r \u00e6tla \u00e9g a\u00f0 stoppa vi\u00f0 a\u00f0 rekja efni \u00feessarar b\u00f3kar. M\u00e9r fannst \u00f3notalegt a\u00f0 lesa hana , \u00e9g get \u00a0\u00fe\u00f3 ekki alveg \u00e1tta\u00f0 mig \u00e1 \u00fev\u00ed hvers vegna h\u00fan kemur svo illa vi\u00f0 mig. Er \u00fea\u00f0 vegna \u00feess a\u00f0 h\u00fan er svo s\u00f6nn e\u00f0a finnst m\u00e9r eins og \u00fea\u00f0 s\u00e9 veri\u00f0 a\u00f0 v\u00e6na mig um eitthva\u00f0? Fyrst fannst m\u00e9r eins og h\u00f6fundurinn v\u00e6ri a\u00f0 segja fr\u00e1 einhverju sem hef\u00f0i gerst \u00ed raunveruleikanum \u00e1 19.\u00f6ld \u00ed Afr\u00edku . Coetzee er fr\u00e1 Su\u00f0ur- Afr\u00edku (f\u00e6ddur 1940). Svo s\u00e1 \u00e9g a\u00f0 ve\u00f0urfari\u00f0 og sta\u00f0h\u00e6ttir stemmdu ekki. Loks s\u00e1 \u00e9g a\u00f0 t\u00edmasetningin var alls ekki \u00e1 hreinu heldur.<\/p>\n<p>N\u00fa veit \u00e9g a\u00f0 grimmd \u00e1deilunnar liggur \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 Coetzee er a\u00f0 fjalla um n\u00fat\u00edmann, um okkur. Vi\u00f0 \u00f3ttumst saklaust f\u00f3lk og b\u00faum til \u00far \u00fev\u00ed \u00f3vini. Og \u00e9g er ekki \u00ed neinum vafa um a\u00f0 umr\u00e6\u00f0an um fl\u00f3ttaf\u00f3lki\u00f0 hj\u00e1lpa\u00f0i m\u00e9r til a\u00f0 skilja \u00feessa b\u00f3k betur. En \u00feessi b\u00f3k er ekki a\u00f0 fjalla um \u00e1standi\u00f0 \u00ed heiminum h\u00e9r og n\u00fa. \u00deetta er t\u00edmalaus \u00a0fr\u00e1saga um land sem er til allssta\u00f0ar og hvergi. Kannski er h\u00fan um erf\u00f0asyndina. \u00dea\u00f0 fylgir \u00fev\u00ed mikil \u00e1byrg\u00f0 a\u00f0 hafa bor\u00f0a\u00f0 \u00e1vexti af skilningstr\u00e9 g\u00f3\u00f0s og ills.<\/p>\n<p><strong>Betra er seint en aldrei<\/strong><\/p>\n<p>\u00deessi b\u00f3k kom \u00fat \u00e1 ensku 1980 . \u00a0Og \u00a01984 var h\u00fan lesin \u00ed \u00fatvarpinu af Sigurl\u00ednu Dav\u00ed\u00f0sd\u00f3ttur. Sem haf\u00f0i sj\u00e1lf \u00fe\u00fdtt hana. S\u00fa \u00fe\u00fd\u00f0ing kom aldrei \u00fat. \u00de\u00fd\u00f0ingin \u00e1 b\u00f3kinni sem sem \u00e9g var a\u00f0 hlusta \u00e1 n\u00fana er \u00a0\u00a0samvinnuverkefni Sigurl\u00ednar Dav\u00ed\u00f0sd\u00f3ttur og R\u00fanars Helga Vignissonar. \u00dea\u00f0 er mikill fengur \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 vera b\u00fain a\u00f0 f\u00e1 \u00feessa merkilegu b\u00f3k \u00e1 \u00edslensku.<\/p>\n<p><strong>Lokaor\u00f0<\/strong><\/p>\n<p>\u00c9g finn \u00fea\u00f0 me\u00f0an \u00e9g er a\u00f0 skrifa \u00feetta a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekki \u00e1 m\u00ednu f\u00e6ri a\u00f0 gera \u00feessari b\u00f3k ver\u00f0ug skil. \u00a0En reyni \u00fe\u00f3. \u00deegar \u00e9g h\u00f3f a\u00f0 skrifa \u00feennan pistil \u00a0var tv\u00eds\u00fdnt um hvort vi\u00f0 myndum f\u00e1 a\u00f0 \u00a0taka \u00e1 m\u00f3ti sex manna fj\u00f6lskyldu. \u00cd g\u00e6rkv\u00f6ldi var sagt fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00ed fr\u00e9ttum a\u00f0 fj\u00f6lskyldan fengi a\u00f0 vera. Fr\u00e9ttin var \u00fe\u00f3 ekki n\u00f3gu sk\u00fdr og afdr\u00e1ttarlaus.<\/p>\n<p><strong>Eftirskrift<\/strong><\/p>\n<p>Sem sj\u00e1 m\u00e1, kallast b\u00f3klestur \u00e1 vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem er a\u00f0 gerast \u00ed heiminum og innra me\u00f0 lesandanum. \u00dea\u00f0 er e\u00f0li g\u00f3\u00f0ra b\u00f3ka. \u00c9g reyni ekki einu sinni a\u00f0 halda \u00fev\u00ed a\u00f0greindu.<\/p>\n<p>En af hverju tengjum vi\u00f0 m\u00f3tt\u00f6ku fl\u00f3ttamanna alltaf saman vi\u00f0 hj\u00e1lparstarf og g\u00f3\u00f0verk: H\u00f6fum vi\u00f0 gleymt \u00f6llum snillingunum og duglega f\u00f3lkinu sem vi\u00f0 h\u00f6fum fengi\u00f0 til okkar h\u00e9r \u00e1 \u00cdslandi.<\/p>\n<p><a href=\"https:\/\/bergthoraga.blog.is\/blog\/bergthoraga\/entry\/2255047\/\">Berg\u00fe\u00f3ra G\u00edslad\u00f3ttir<\/a><\/p>\n<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cdslensk \u00fe\u00fd\u00f0ing \u00e1 verkinu\u00a0Waiting for the Barbarians eftir su\u00f0ur-afr\u00edska N\u00f3belssk\u00e1ldi\u00f0 J. M. Coetzee kom \u00fat \u00e1 vegum b\u00f3ka\u00fatg\u00e1funnar Unu \u00e1ri\u00f0 2020. B\u00f3kina \u00fe\u00fdddum vi\u00f0 Sigurl\u00edna Dav\u00ed\u00f0sd\u00f3ttir \u00ed sameiningu. Be\u00f0i\u00f0 eftir barb\u00f6runum, eins og b\u00f3kin heitir \u00e1 \u00edslensku, er s\u00edgilt samt\u00edmaverk enda hefur \u00fea\u00f0 enn mikla sk\u00edrskotun til atbur\u00f0a samt\u00edmans. B\u00f3kin kom fyrst \u00fat \u00e1ri\u00f0 1980 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":420,"featured_media":0,"parent":6,"menu_order":23,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","template":"","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1279","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1279","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/wp-json\/wp\/v2\/users\/420"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1279"}],"version-history":[{"count":11,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1279\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1530,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1279\/revisions\/1530"}],"up":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/6"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/rhv\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1279"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}