Vilhjálmur Árnason fæddur í Neskaupstað 1953. Prófessor emeritus í heimspeki, Háskóla Íslands
Háskólanám
- 1978–1982. Purdue University, West Lafayette, IN, USA.
- Ph.D. og M.A. í heimspeki.
- 1973–1978. Háskóli Íslands
- Kennsluréttindi í heimspeki og almennri bókmenntasögu, Félagsvísindadeild.
- B.A. í heimspeki og almennri bókmenntasögu, Heimspekideild.
Helstu störf:
- Prófessor II (20%). Institutt for Byggfag. Høgskulen på Vestlandet, Bergen frá desember 2022.
- Formaður stjórnar Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands 1997–janúar 2023.
- Prófessor í heimspeki við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði, Hugvísindasviði Háskóla Íslands 1996–janúar 2023
- Námsbrautarformaður í heimspeki 2015–2016.
- Formaður vinnuhóps um siðferði og starfshætti í tengslum við Rannsóknarnefnd Alþingis 2009–2010.
- Skorarformaður í heimspeki 2007–2008; 1996–1997.
- Deildarforseti heimspekideildar 2000–2002.
- Dósent í heimspeki við heimspekideild Háskóla Íslands 1991–1996
- Lektor í heimspeki við heimspekideild Háskóla Íslands 1990–1991
- Gistikennari við Pacific Lutheran University 1988−1989
- Stundakennari í heimspeki 1983–1988
- Formaður Siðaráðs Landlæknis 1998–2000. Í stjórn frá 1993
- Formaður heimspekiskorar 1996–1997.
- Starfsmaður Framkvæmdanefndar um framtíðarkönnun á vegum forsætisráðherra 1985–1987.
Önnur akademísk störf:
- Einn af sex meðritstjórum (associate editors) endurútgáfu á Encyclopedia of Applied Ethics undir ritstjórn Ruth Chadwick 2008–2011. Elsevier 2012.
- Gestaritstjóri: Special section: Kant, Habermas and Bioethics, Cambridge Quarterly of Health Care Ethics 21 (væntanlegt 2012).
- Ritstjóri Lærdómsrita Hins íslenska bókmenntafélags 1997–2003.
- Ritstjóri Skírnis. Tímarits Hins íslenzka bókmenntafélags 1987–1994.
- Í ritnefnd Medicine, Health Care and Philosophy frá 1999.
- Í ritnefnd Genomics, Society and Policy frá 2005.
- Í ritnefnd Etikk i praksis frá 2007.
- Fulltrúi hugvísindasviðs í Háskólaráði Háskóla Íslands frá 2004–2006.
- Í stórn European Society for Philosophy of Medicine and Health Care 2004–2010.
- Í stjórn Nordisk kommité för bioetik frá 2004–2010. Formaður 2007.
- Í stjórn International Association of Bioethics (IAB) frá 2012.
Helstu náms- og rannsóknarstyrkir
- 1978 Námsstyrkur frá Thor Thors Foundation
- 1978–1982 Námsfararstyrkur frá Fulbright Foundation
- 1981–1982 Rannsóknarstyrkur frá David Ross Foundation, Purdue University
- 1983–1984 Rannsóknarstyrkur Vísindasjóðs: Siðferði Íslendingasagna
- 1989–1991 Rannsóknarstyrkur Vísindasjóðs: Siðfræði lífs og dauða
- 1993 Styrkþegi Alexander von Humboldt Stiftung, Bonn. Dvalið í Berlín.
- 2002–2004 Rannsóknarstyrkur úr 5. rannsóknaráætlunar Evrópuráðsins. ELSAGEN.
- 2002–2006 Rannsóknarnetstyrkur frá NorFA/NordForsk: Human genetic databases
- 2002, 04, 05 Styrkir úr Kristnihátíðarsjóði
- 2003, 2005 Rannsóknarstyrkir Rannís: Gagnagrunnar á heilbrigðissviði
- 2006 Visiting fellowship, Clare Hall, Cambridge University.
- 2010 Research fellow. Fondation Brocher. Genf
- 2103 Rannsóknarstyrkur Rannís: Íslenskt lýðræði
- 2013 Gjesteforsker. Filosofisk Institutt, Universitetet i Bergen
- 2017 Gistifræðimaður við Università degli Studi di Siena
- 2021 Gistifræðimaður við /8Institutt for Global Helse og Samfunnsmedisin, Universitetet i Bergen.
Viðurkenningar:
- Viðurkenning fyrir lofsvert framlag til rannsókna við Háskóla Íslands. Hátíðasal H.Í. 29. nóv. 2017.
- Í valnefnd Nils Klim verðlaunanna á vegum Holberg Prisen, Háskólanum í Bergen frá 2013‒2018.
- Rannsóknarstyrkþegi: Fondation Brocher 2010.
- Bókin Farsælt líf, réttlátt samfélag. Kenningar í siðfræði tilnefnd til Hinna íslensku bókmenntaverðlauna 2008 og til verðlauna Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, fyrir mikilsverð fræðastörf 2008.
- Kjörinn Life member á Clare Hall, Cambridge 2007.
- Verkefni mitt og Ástríðar Stefánsdóttur „Sjálfræði og aldraðir“ hlaut 2.–3. verðlaun í hugmyndasamkeppninni „Upp úr skúffunum“ 2003.
- Kjörinn félagi í Vísindafélagi Íslendinga 2000.
- Bókin Siðfræði lífs og dauða tilnefnd til bókmenntaverðlauna Forseta Íslands 1993 og hlaut viðurkenningu Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, fyrir mikilsverð fræðastörf 1993.
- Kjörinn Alexander von Humboldt félagi 1993.