Stjórnun

Ég hóf störf um haustið 1987 við Kennaraháskóla Íslands (KHÍ). Ég starfa nú á Menntavísindasviði Háskóla Íslands (MVS HÍ).

Ég gegndi ýmsum ábyrgðarstörfum við KHÍ, var kennslustjóri, forstöðumaður rannsóknarstofnunar, deildarforseti framhaldsdeildar og námsbrautarstjóri nokkurra námsbrauta. Ég átti ég sæti í ýmsum ráðum og nefndum í KHÍ, s.s. háskólaráði, deildarráðum og dómnefndum. Þá var ég starfandi aðstoðararrektor í eitt ár. Ég sat í Bologna nefnd Menntamáalaráðuneytisins og átti sæti í verkefnisstjórn sameiningar KHÍ og HÍ.

Ég var um árabil formaður á brautinni Menntastjórnun og matsfræði á MVS og hef starfað í gæðanefnd og aldarafmælisnefnd HÍ. Þá var ég formaður kennslumálanedar háskóalráðs til þriggja ára, frá 2014.

Ég sat í háskólaráði HÍ 2010-2012 sem fulltrúi háskólasamfélagsins og varaformaður ráðsins. Ég var endurkjörinn sem fulltrúi háskólasamfélagsins næsta tímabil, þ.e. frá 2012-2014.