Kennslustörf
2008– Prófessor emeritus við Menntavísindasvið HÍ.
2002–2008 Prófessor í sagnfræði við Kennaraháskóla Íslands (KHÍ)
1998–2002 Prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands (HÍ)
1991–1998 Prófessor í sagnfræði við KHÍ
1983–1991 Dósent í sagnfræði við KHÍ
1972–1983 Lektor í félagsfræði við KHÍ
1968–1972 Fastráðinn kennari í sögu og félagsfræði við Kennaraskóla Íslands (KÍ)
1967–1968 Stundakennari í sögu og félagsfræði við KÍ
1965–1968 Stundakennari í frönsku við Verzlunarskóla Íslands
1964–1967 Kennari við skóla gagnfræðastigsins í Reykjavík (Lindargötuskóla, Vogaskóla)
1962–1964 Lektor í íslensku við Skandinavísku stofnunina, háskólanum í Caen í Frakklandi
1957–1958 Stundakennari við Réttarholtsskóla í Reykjavík
Stjórnun, ráðgjöf og félagsstörf
Stjórnunarstörf við KHÍ/KÍ
2003–2004 Umsjónarmaður framhaldsnáms
1996–1998 Forstöðumaður Rannsóknarstofnunar KHÍ
1993–1997 Í deildarráði uppeldisvísindadeildar
1993–1996 Fulltrúi kennara í skólaráði
1992–1997 Stjórnarmaður í Rannsóknarstofnun KHÍ
1989–1990 Í starfshópi Námsgagnastofnunar til ráðgjafar um útgáfu námsefnis í samfélagsgreinum
1985–1987 Í nefnd á vegum skólaráðs um samningu nýrrar námskrár fyrir B.Ed.-námið
1978–1990 Misserisstjóri þemanáms („Skóli og samfélag“) á 1. misseri almenns kennaranáms
1977–1978 Í samráðsnefnd kennara og nemenda sem mótaði tillögur um nýskipan B.Ed.-námsins (þemanám)
1972–1996 Skorarstjóri félagsskorar KHÍ í 12 ár á þessu tímabili og sat þá jafnframt í skólaráði
1971–1973 Fagstjóri í félagsfræði og sögu við KHÍ
1970–1971 Ritari stjórnskipaðrar nefndar um samningu frumvarps til laga um KHÍ
1967–1971 Skipulagði frá grunni kennslu í félagsfræði (valgrein) í almennu kennaranámi, í félagsfræði og sögu (kjarnagrein) í menntadeild og í félagsfræði (kjarnagrein) í nýrri tveggja ára stúdentadeild
Stjórnunarstörf við HÍ
1999–2001 Forstöðumaður Sagnfræðistofnunar og stjórnarmaður í Hugvísindastofnun
Ráðgjafarstörf hjá skólarannsóknadeild menntamálaráðuneytisins
1974–1984 Í starfshópi um samfélagsfræði (vinna að námskrár- og námsefnisgerð)
1972–1973 Forstöðumaður starfshóps um samfélagsfræði
1970–1971 Í stjórnskipaðri nefnd um endurskoðun náms og kennslu í samfélagsfræðum
1968–1972 Í stjórnskipaðri nefnd um námskrá í sögu og samfélagsfræði fyrir framhaldsdeildir gagnfræðaskóla; í prófanefnd í sömu greinum
Dómnefndarstörf (opinberar dómnefndir)
2006 Í dómnefnd um hæfi Sigurðar Gylfa Magnússonar til að verja doktorsritgerð í sagnfræði við HÍ
2004 Prófessorsstarf í sagnfræði við HÍ
2001 Prófessorsstarf í mannfræði við HÍ (formaður)
2000 Dósentsstarf í sagnfræði við HÍ (formaður)
2000 Prófessorsstarf við félagsvísindadeild HÍ (formaður)
1994 Lektorsstaða í uppeldis- og menntunarfræðum við HÍ
1993 Lektorsstaða í sagnfræði við HÍ
1992 Prófessorsstaða í mannfræði við HÍ (formaður)
1991 Lektorsstaða í sagnfræði við HÍ
1990 Dósentsstaða í félagsfræði við KHÍ (formaður)
1989 Dósentsstaða í sagnfræði við KHÍ (formaður)
1986 Lektorsstaða í sagnfræði við KHÍ (formaður)
1984 Dósentsstaða í sagnfræði við KHÍ (formaður)
1982 Lektorsstaða í félagsfræði við HÍ
Nefndarstörf hjá Rannsóknaráði Íslands
1994–1996 Úthlutunarnefnd Rannsóknaráðs Íslands (Vísindasjóðs)
Prófdómarastörf
2005–2006 Námskeiðið „Íslenskt menntakerfi IMK/155“, Kennaradeild Háskólans á Akureyri (HA)
1986–1994 Námskeiðið „Íslenska þjóðfélagið A“ við félagsvísindadeild HÍ
1977–1986 Námskeiðið „Þróun íslenska stéttaþjóðfélagsins“ við
félagsvísindadeild HÍ
1976–1982 Námskeiðið „Marxismi“ við félagsvísindadeild HÍ
1971–1989 Námskeiðið „Almenn félagsfræði“ við félagsvísindadeild HÍ
1967–1972 Stúdentspróf í frönsku, fyrst við MA og síðan MR
Skipulagning og undirbúningur ráðstefna/málstofa
2006 Málstofan „Almenningsfræðsla og samfélag 1900–1946“ á 3. íslenska
söguþinginu
2005 Málþing á vegum Sögufélags í Þjóðminjasafni, 1. febrúar, um ritið Stjórnarráð Íslands 1964–2004, 1.–2. b. (ásamt Guðmundi Jónssyni)
2003 Manntalið 1703. Málþing í Reykjavík í tilefni 300 ára afmælis manntalsins 1703, 15. nóv. (ásamt Ólöfu Garðarsdóttur o.fl.).
2002 Ráðstefna á vegum Sagnfræðistofnunar Háskóla Íslands í apríl um gerð og nýtingu gagnagrunna í fólksfjöldasögu (ásamt Guðmundi Jónssyni).
2001 Málstofan „Ritmenning, lestur og samfélag“ á 2. íslenska söguþinginu
1997 Málstofan „Auður, vald og menning“ á 1. íslenska söguþinginu
1991 20. aðferðafræðiþing norrænna sagnfræðinga á Laugarvatni (ásamt Gísla Á. Gunnlaugssyni)
Andmæli við doktorsvarnir
2005 Andmælandi (fakultetsopponent) við doktorsvörn við Department of historical studies, Umeå Universitet, 19. maí. Doktorsefni: Elisabeth Engberg. Ph.D.- ritgerð: I fattiga omständigheter: Fattigvårdens former och understödstagare i Skellefteå socken under 1800-talet.
2004 Annar andmælandi við doktorsvörn við Kaupmannahafnarháskóla, Det Humanistiske Fakultet, 6. maí. Doktorsefni: Christina Folk Ax. Ph.D.-ritgerð: De uregerlige. Den islandske almue og øvrighedens reformforsøg 1700–1870.
Leiðsögn í doktorsnámi
2003–2013 Jón Árni Friðjónsson: Skólabókasagan. Um sögukennslu í framhaldsskólum á Íslandi á síðari hluta 20. aldar (við Menntavísindasvið HÍ).
2008 Guðrún V. Stefánsdóttir: „Ég hef svo mikið að segja.“ Lífssögur Íslendinga með þroskahömlun á 20. Öld (við félagsvísindadeild HÍ).
2002–2008 Sigurður Pálsson: Kirkja og skóli á 20. Öld (við Menntavísindasvið HÍ).
Félagsstörf á sviði sagnfræði
2001–2005 Forseti Sögufélags
1999–2001 Formaður Landsnefndar sagnfræðinga
1988–2001 Stjórnarmaður (gjaldkeri) í Sögufélagi
1992– Stjórnarmaður í skólaminjanefnd (samstarfsvettvangur nokkurra stofnana)
1985–1994 Í stjórnarnefnd aðferðafræðiþinga norrænna sagnfræðinga
1985–1987 Formaður Sagnfræðingafélags Íslands
1982–1984 Stjórnarmaður í samstarfsnefnd Sagnfræðistofnunar HÍ og Sagnfræðingafélags Íslands um alþjóðasamskipti.
1976–1978 Stjórnarmaður í Sagnfræðingafélagi Íslands
1970–1971 Í undirbúningsnefnd fyrir stofnun Félags íslenskra sagnfræðinga (síðar Sagnfræðingafélags Íslands)