Þessu rannsóknasviði hef ég sinnt öðru hverju aðallega frá 1990 að telja. Árið 1991 var ég af skólaráði KHÍ settur yfir starfshóp sem hafði það hlutverk að efla umfjöllun um uppeldis-, skóla og menntasögu við KHÍ. Ári síðar skilaði hópurinn tillögum til skólaráðs. Tillögurnar voru einkum tvíþættar: a) unnið yrði að því að móta rannsóknarvettvang á þessu fræðasviði með þátttöku ýmissa stofnana, m.a. Sagnfræðistofnunar, uppeldis- og menntunarfræðaskorar í HÍ; b) ráðist yrði í að semja yfirlitsverk um sögu skyldufræðslu á Íslandi 1880–1980; var bent á að tengja mætti verkefnið við þau tímamót sem væru ekki langt undan, þ.e. aldarafmæli fyrstu löggjafar um almenna barnafræðslu á Íslandi (2007).
Tvennt komst í framkvæmd sem tengist tillögu a): Í fyrsta lagi var árið 1993 efnt til opinnar málstofu um rannsóknarsviðið með þátttöku áhugasamra kennara í KHÍ og HÍ; í öðru lagi var stofnað til samvinnu Rannsóknarstofnunar KHÍ, Sagnfræðistofnunar HÍ og Félagsvísindadeildar um útgáfu heimilda í íslenskri uppeldis- og skólasögu (sbr. „Útgáfur“ í Ritaskrá).
Framkvæmdir tengdar tillögu b) greinast í tvo þætti, annars vegar gagnasöfnun og hins vegar gerð áætlunar um samningu fræðslusögunnar.
Árin 1992–1997 var unnið að þríþættri gagnasöfnun undir sameiginlegri stjórn okkar Helga Skúla Kjartanssonar og með fjárstyrk frá Vísindasjóði Rannís (1994 og 1995) og Rannsóknarsjóði KHÍ (1992–1997). Aðstoðarmenn voru Heiðrún Kristjánsdóttir, Rósa Jónsdóttir og Svanhildur Kaaber.
- Gagnagrunnur um sögu einstakra skóla. Grunnurinn geymir upplýsingar úr ca. 120 lokaritgerðum til B.Ed.-prófs varðandi þróun skyldufræðslu á tímabilinu. Langflestar ritgerðirnar voru samdar 1976–1992.
- Efnisleg greining á bréfaskiptum fræðslumálastjóra og fræðslunefnda/skólanefnda í sex sýslum (Gullbringu- og Kjósarsýslu, Barðastrandarsýslu, A-Húnavatnssýslu, Þingeyjarsýslu, N-Múlasýslu, Rangárvallasýslu) 1908–1927.
- Færsla í Excel á skólaskýrslum 15 fastra skóla í sömu sex sýslum1907–1920.
- Efnisleg greining á frumvörpum um barnafræðslu og kennaramenntun 1880–1927 sem og umræðum á Alþingi um sömu frumvörp.
Árið 2003 hleyptum við Helgi Skúli Kjartansson prófessor af stokkunum verkefni, „Íslenskir barnakennarar sem félagsflokkur og faghópur 1910–1960“, sem nýtist m.a. fræðslusögunni. Rannsóknarsjóður KHÍ hefur styrkt verkefnið frá upphafi. Aðstoðarmaður er Guttormur Helgi Jóhannesson BA.
Gengið var frá framkvæmdaáætlun um samningu og útgáfu fræðslusögunnar skólaárið 2002–2003. Verkefnið var á vegum Rannsóknarstofnunar KHÍ; var ég ráðinn ritstjóri verksins og einn af þremur aðalhöfundum þess. Kom það út í tveimur bindum, alls 703 bls., síðla árs 2007.
Ritaskrá (Publications)
Bækur
2008 Almenningsfræðsla á Íslandi 1880–2007. Fyrra bindi. Skólahald í bæ og sveit 1880–1945 Rv., Háskólaútgáfan, 340 s. (ásamt Ólafi Rastrick og Ólöfu Garðarsdóttur).
Tímaritsgreinar, ritgerðir og bókarkaflar
(Articles and book chapters)
1987 Forskning i islandsk uddannelseshistorie. Nordisk visit III. Skolen 1987. Årbok for norsk skolehistorie: 151–154.
1991 Sekulariseringstendenser i islandsk almuedannelse i slutningen af 1800-tallet. Skole–dannelse– Festskrift til Vagn Skovgaard-Petersen. Ritstj. H. Haue. Odense. S. 87–95.
1992 Farskólahald í sextíu ár (1890–1950): nokkrir megindrættir. Uppeldi og menntun. Tímarit Kennaraháskóla Íslands 1 (1):207–222.
1993 Frá kristindómslestri til móðurmáls. Hugmyndafræðileg hvörf í lestrarefni skólabarna um síðustu aldamót. Uppeldi og menntun. Tímarit Kennaraháskóla Íslands 2: 9–23.
1993 Skólasaga: til skilnings eða fordæmingar. Athugasemdir að gefnu tilefni. Ný menntamál 11(1): 38–43.
1996 Kennsla heima og í skóla. Þáttur heimila í barnafræðslu á Íslandi 1907–1930. Uppeldi og menntun. Tímarit Kennaraháskóla Íslands 5:9–22.
2004 Íslensk alþýðumenntun í skuggsjá Borgarfjarðar 1750–1930. Borgfirðingabók. Ársrit Sögufélags Borgarfjarðar 5:15–30.
2005 Skólahugmyndir Guðmundar Finnbogasonar. Andans arfur. Tíu erindi um manninn, menntafrömuðinn, sálfræðinginn og bókfræðinginn Guðmund Finnbogason. Ritstjórn: Trausti Þorsteinsson, Bragi Guðmundsson. Akureyri. S. 71–87.
2008 Hefðir og nýbreytni 1880–2007. Almenningsfræðsla á Íslandi á 19. og 20. öld. Fyrra bindi. S. 21–35.
2008 Þjóðfélagsbreytingar og menntamál. Almenningsfræðsla á Íslandi á 19. og 20. öld. Fyrra bindi. S. 38–53.
2008 Sjálfsprottnir skólar. Almenningsfræðsla á Íslandi á 19. og 20. öld. Fyrra bindi. S. 56–71.
2008 Tímamótin 1907. Almenningsfræðsla á Íslandi á 19. og 20. öld. Fyrra bindi. S. 75–89.
2008 Hikandi framkvæmd laga 1908–1925. Almenningsfræðsla á Íslandi á 19. og 20. öld. Fyrra bindi. S. 92–105.
2008 Lagagrunnur og framkvæmdir 1926–1945. Almenningsfræðsla á Íslandi á 19. og 20. öld. Fyrra bindi. S. 108–123
2008 Barnakennarar: Starfskjör, menntun og staða. Almenningsfræðsla á Íslandi á 19. og 20. öld. Fyrra bindi. S. 126–141.
2008 Almenningsfræðsla umfram skyldu. Almenningsfræðsla á Íslandi á 19. og 20. öld. Fyrra bindi. S. 144–159..
2008 Nám- og kennsluhættir. Almenningsfræðsla á Íslandi á 19. og 20. öld. Fyrra bindi. S. 212–226.
2008 Próf og námseftirlit. Almenningsfræðsla á Íslandi á 19. og 20. öld. Fyrra bindi. S. 230–243.
2008 Heimili og skóli. Almenningsfræðsla á Íslandi á 19. og 20. öld. Fyrra bindi. S. 284–298.
2014 Education, Icelandic. Encyclopedia of Romantic Nationalism in Europe, www.spinnet.eu.og http://romanticnationalism.net
Ritdómar
(Book reviews)
1984 Ingólfur Á. Jóhannesson: Menntakerfi í mótun. Rv. 1983. – Ný menntamál 2(1):57–60.
2001 Ármann Halldórsson: Barnaskólar í Reykjavík fyrir 1930. Tímarit Sögufélags 40(1):293–295.
2002 Margrét Guðmundsdóttir og Þorleifur Óskarsson: Menntaskólinn að Laugarvatni; forsaga, stofnun og saga til aldarloka. Tímarit Sögufélags 40(1):269–272.
2003 Árni Daníel Júlíusson: Skólinn við ströndina. Barnaskólinn á Eyrarbakka 1852–2002. – Uppeldi og menntun. Tímarit Kennaraháskóla Íslands 13(1):139–143.
Ritstjórn
(Editorial work)
1994 Guðmundur Finnbogason: Lýðmenntun. Hugleiðingar og tillögur. 2. útg. Rv.
Rannsóknarstofnun KHÍ í samstarfi við Félagsvísindastofnun og Sagnfræðistofnun. 218 s.28
2003-2004 Uppeldi og menntun.Tímarit KHÍ. 12. og 13. árg..
2008 Almenningsfræðsla á Íslandi 1880–2007. Fyrra bindi. Skólahald í bæ og sveit 1880–1945.
2008 Almenningsfræðsla á Íslandi 1880–2007. Síðara bindi. Skóli fyrir alla 1946–2007.
Óprentuð erindi/fyrirlestrar
(Unpublished papers)
1991 Skólaþróun í ljósi sögunnar. Fyrirlestur á fræðslufundi kennara á Akranesi 7. janúar.
1998 Einkunnir upp á hvern dag. Erindi flutt á Dagskrá í tilefni af 100 ára afmæli Miðbæjarskólans. Miðbæjarskólanum, 11. október 1998.
2003 Íslenskir barnakennarar 1910–1940 í félagsfræðilegu ljósi. Opinber fyrirlestur á vegum. Rannsóknarstofnunar KHÍ 4. maí. Endurfluttur í boði Kennaradeildar Háskólans á Akureyri 6. maí