Rannsóknir og ritstörf

Rannsóknir mínar eru hér flokkaðar eftir tíu rannsóknasviðum, sbr. taflan hér til hliðar:

1) Íslenskir barnakennarar sem félagsflokkur og faghópur 1910–1960;

2) Almenningsfræðsla á Íslandi 1880-2007;

3) Sagnritun á 20. öld og tengsl við aðrar fræðigreinar;

4) Alþýðumenntun, miðlun og menningarskil á Íslandi 1830-1930;

5) Ungbarna- og barnadauði á Íslandi 1750-1950;

6) Saga kristni á Íslandi;

7) Fólksfjöldi, fjölskylduferli og félagstengsl;

8) Uppeldi og samfélag á einveldis- og upplýsingaröld (ca. 1600–1830);

9) Saga læsis;

10) Saga og félagsfræði fyrir skóla og almenning.

Ef smellt er á ákveðið rannsóknasvið koma fram upplýsingar um tildrög, markmið og framvinda einstakra verkefna. Jafnframt eru talin upp rit og ritstörf, sem tilheyra hlutaðeigandi sviði, flokkuð í eftirtalda sjö flokka (elstu ritin fremst): a) bækur; b) tímaritsgreinar, ritgerðir og bókarkaflar; c)  ritdómar; d) skýrslur; e) ritstjórn og umsjón með útgáfu; f) óprentuð erindi og handrit; g) Þýðingar. Einnig er hægt að fá fram óflokkaða ritaskrá og birtist hún þá í tímaröð, nýjustu rit fremst.