Íslenska

Ég er málfræðingur með doktorspróf í sálfræði tungumáls og tíu ára reynslu af fjölbreyttum rannsóknum við Íslenska erfðagreiningu. Rannsóknir mínar hafa m.a. beinst að tali og tungumáli, tónlist, lyktarskyni, persónuleika, geð- og taugaröskunum. Ég hef jafnframt víðtæka reynslu af markaðs- og kynningarstörfum, m.a. sem markaðsstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Ég hef veitt viðtöl í New York Times, Nature, sjónvarpsþáttunum Sporið og Klassíkin okkar, auk fjölda íslenskra vef-, prent- og útvarpsmiðla.

Ferilskrá