Ferilskrá
Menntun 2011 Doktorspróf í uppeldis- og menntunarfræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Ritgerðin fjallaði um nýsköpunarmennt í íslenskum grunnskólum. 2005 M.A. próf í uppeldis- og menntunarfræði frá Háskóla Íslands 2003 Diplóma í nýsköpunarmennt frá Kennaraháskóla Íslands – metin hluti af M.A. 2001 Diplóma í smíðakennslu frá Kennaraháskóla Íslands 1978 B.Ed. kennarapróf frá Kennaraháskóla Íslands. Sérgreinar íslenska og danska. 1974 Stúdentspróf frá Menntaskólanum við Tjörnina Starfsreynsla
- Grunnskólakennari frá 1978 til 2006
- Skólastjóri Gnúpverjaskóla 1991-92
- Aðstoðarskólastjóri við Gnúpverjaskóla veturinn 2001-2002.
- Ég hef kennt ýmsar námsgreinar við skólann sem er fámennur skóli með samkennslu árganga: myndmennt, samfélagsfræði, lestur, skrift, stærðfræði, kristinfræði, náttúrufræði, upplýsingatækni og síðustu tíu árin kenndi ég smíði og nýsköpun.
- Kennsla á námskeiðum fyrir starfandi kennara frá 2003
- Ég hef verið með kynningar, fræðslu og kennslu um nýsköpun víða á Íslandi og erlendis fyrir kennara, skólastjórnendur, kennaranema, stjórnmálasamtök, almenning og félagasamtök.
- Stundakennari við Kennaraháskóla Íslands síðar Menntavísindasvið Háskóla Íslands frá 2008-2011.
- Kennsla í framhaldsnámi í nýsköpunarmennt 2010 og kennslufræði 2011 og aðstoðarkennari í gunnnámi í aðferðafræði, kennslufræði og í alþjóðanámi.
- 2010-2018 leiðsögn í meistaraprófsverkefnum. Frá 2010-2018 hafa 27 nemendur lokið meistaraprófsverkefnum undir minni leiðsögn.
- Lektor í listum og skapandi starfi við Menntavísindsvið 2012.
- Dósent frá 1.júlí 2015.