Ferilskrá

Björn Þorsteinsson, doktor í heimspeki, fæddur 23. maí 1967 í Kaupmannahöfn.

Kvæntur Sigrúnu Ölbu Sigurðardóttur menningarfræðingi, rithöfundi og sýningarstjóra. Dætur okkar eru Snædís Björnsdóttir, bókmenntafræðingur og gagnrýnandi, Matthildur Björnsdóttir, nemi í listasögu, og Lena Charlotta Björnsdóttir, grunnskólanemi.

Foreldrar Þorsteinn Vilhjálmsson prófessor emeritus í eðlisfræði og vísindasögu við Háskóla Íslands og Ingibjörg Björnsdóttir fv. fulltrúi í Norræna húsinu í Reykjavík.

Störf við rannsóknir og kennslu

2016–: prófessor í heimspeki við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði við Háskóla Íslands

2014–16: lektor í heimspeki við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands

2012–14: sérfræðingur við Heimspekistofnun Háskóla Íslands

2009–12: nýdoktor við Heimspekistofnun Háskóla Íslands

2007–09: sérfræðingur við Heimspekistofnun Háskóla Íslands

2004–14: stundakennsla við Hugvísindasvið og Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands, Listaháskóla Íslands og Endurmenntun Háskóla Íslands

Hef verið leiðbeinandi 59 nemenda við skrif BA-ritgerðar í heimspeki og aðalleiðbeinandi 12 nemenda við skrif MA-ritgerðar í heimspeki.

Hef verið aðalleiðbeinandi tveggja útskrifaðra doktorsnema (William Konchak og Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson) og þar að auki eru sex doktorsnemar nú í námi með mig sem aðalleiðbeinanda. Sit í doktorsnefnd fjögurra doktorsnema sem nú eru í námi og hef setið í doktorsnefnd fjögurra doktorsnema sem lokið hafa námi.

Hef verið andmælandi við doktorsvarnir við Södertörns högskola í Stokkhólmi, Háskóla Íslands og Université Paris 8.

Prófgráður

2005: Doktor í heimspeki frá Université Paris 8 (Vincennes-St. Denis) í Frakklandi

2000: D.E.A. í heimspeki frá Université Paris 8 (Vincennes-St. Denis) í Frakklandi

1997: M.A. í heimspeki frá University of Ottawa/Université d’Ottawa í Kanada

1993: B.A. í heimspeki frá Háskóla Íslands

Styrkir og rannsóknaverkefni

2023–: einn fimm verkefnisstjóra í rannsóknarverkefninu Freedom to Make Sense/Frelsi til merkingarsköpunar sem hlaut öndvegisstyrk hjá Rannsóknasjóði (Rannís)

2020-: þátttakandi (meðleiðbeinandi doktorsnema) í rannsóknarverkefninu Intelligent Instruments undir stjórn Þórhalls Magnússonar sem hlaut styrk frá Evrópska rannsóknaráðinu (ERC)

2019–24: einn þriggja fulltrúa Hugvísindasviðs Háskóla Íslands í FEINART, Marie Sklodowska Curie-samstarfsneti styrktu af Horizon 2020-áætlun Evrópusambandsins

2020–23: þátttakandi í rannsóknarverkefninu Mobilities on the Margins, styrktu af Rannsóknasjóði (Rannís)

2018–20: verkefnisstjóri, ásamt Sigríði Þorgeirsdóttur og Donata Schoeller, í rannsóknarverkefninu Líkamleg gagnrýnin hugsun, styrktu af Rannsóknasjóði (Rannís)

2013: styrkur frá Starfslaunasjóði sjálfstætt starfandi fræðimanna

2012: starfsstyrkur frá Hagþenki

2009–12: nýdoktorastyrkur frá Háskóla Íslands

2007–09: verkefnisstjóri rannsóknarverkefnisins Náttúran í ljósi fyrirbærafræði og austurlenskrar heimspeki, styrkt af Rannís

2006: starfsstyrkur frá Hagþenki

2002: rannsóknanámsstyrkur frá Rannís

1999–2001: styrkur til háskólanáms í Frakklandi frá frönsku ríkisstjórninni (boursier du gouvernement français)

1994–96: styrkir til náms frá University of Ottawa

Stjórnunar- og trúnaðarstörf innan akademíunnar

2022–24 og 2016–18: fulltrúi á Háskólaþingi af hálfu Hugvísindasviðs Háskóla Íslands (varafulltrúi 2018–22 og 2024-26)

2022–24: fulltrúi Deildar heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði í jafnréttisnefnd Hugvísindasviðs Háskóla Íslands

2016–20: formaður námsbrautar í heimspeki við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands

2018–20: formaður kennslunefndar Hugvísindasviðs Háskóla Íslands og fulltrúi sviðsins í Kennslumálanefnd Háskóla Íslands

2017–: formaður stjórnar Heimspekisjóðs Brynjólfs Bjarnasonar

2016–17: fulltrúi Sagnfræði- og heimspekideildar í stefnumótunarhópi Hugvísindasviðs Háskóla Íslands

2016–17: formaður stjórnar Útgáfusjóðs Listaháskóla Íslands

2016–17: fulltrúi Hugvísindasviðs í Vísindanefnd Háskóla Íslands

2016–18: formaður fagráðs hugvísinda hjá Rannsóknasjóði Háskóla Íslands og fulltrúi hugvísinda í stjórn sjóðsins

2015–16: fulltrúi Hugvísindasviðs Háskóla Íslands í nefnd um úttekt á Matskerfi opinberra háskóla

2014–18: annar tveggja fulltrúa Íslands í framkvæmdastjórn samstarfsnetsins COST Action IS1307 New Materialism: Networking European Scholarship on ‘How Matter Comes to Matter’

2014–17 og 2003–12: stjórnarmaður í Norræna fyrirbærafræðifélaginu (Nordisk Selskab for Fænomenologi, Nordic Society for Phenomenology, NoSP)

2014–16: formaður stjórnar Heimspekistofnunar Háskóla Íslands og fulltrúi stofnunarinnar í stjórn Hugvísindastofnunar

2014–16: fulltrúi í vinnumatsnefnd Hugvísindasviðs hjá Vísinda- og nýsköpunarsviði

2012–16: fulltrúi í fagráði hugvísinda hjá Rannsóknasjóði Háskóla Íslands

2011–14: fulltrúi í fagráði hug- og félagsvísinda hjá Nýsköpunarsjóði námsmanna

2009–12: fulltrúi Vísindasviðs í ritrýninefnd Háskólaútgáfunnar

2007–08: starfsmaður kennslusviðs Háskóla Íslands við frágang umsóknar HÍ um viðurkenningu til menntamálaráðuneytis

2004–05: verkefnisstjóri á rektorsskrifstofu Háskóla Íslands, m.a. við undirbúning og skipulagningu Háskóla unga fólksins, auk aðstoðarmennsku hjá háskólarektor á sviði rannsókna og ritstarfa

Önnur stjórnunar- og trúnaðarstörf

2018–19 og 2010–17: stjórnarmaður í Öldu, félagi um sjálfbærni og lýðræði

2008–10: formaður Félags áhugamanna um heimspeki

1997–99 og 2006–08: gjaldkeri Félags áhugamanna um heimspeki

1992–93: ritari Félags áhugamanna um heimspeki

1991–92: formaður Soffíu, félags heimspekinema við Háskóla Íslands

Ráðstefnuhald

2016: skipuleggjandi  ráðstefnu Norræna fyrirbærafræðifélagsins í Háskóla Íslands 21.–23. apríl

2013: skipuleggjandi ráðstefnu Nordic Network for Kierkegaard Research í Háskóla Íslands 22.–24. maí

2011: skipuleggjandi  ráðstefnu Norræna fyrirbærafræðifélagsins í Háskóla Íslands 28.–30. apríl

2010: skipuleggjandi ráðstefnunnar Junctures: Nature within/without in Eastern and Western thought í Háskóla Íslands 28. ágúst

2009: aðalskipuleggjandi ráðstefnunnar Náttúran í ljósaskiptunum í Háskóla Íslands 19. september

2006: aðalskipuleggjandi ráðstefnu Norræna fyrirbærafræðifélagsins í Háskóla Íslands 21.-23. apríl

1994: skipulagði ásamt öðrum ráðstefnu undir yfirskriftinni „Hvað er nútímaheimspeki?“ sem haldin var í Valhöll á Þingvöllum 4. júní

Ritstjórn og útgáfustörf

2011–15 og 2017–: í ritnefnd Ritsins, tímarits Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands

2012–14: störf við Rannsóknarskýrslu Alþingis um sparisjóði

2008–10: ritstjóri Ritsins, tímarits Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands (ásamt Gauta Kristmannssyni og Ásdísi R. Magnúsdóttur)

2005–15: ritstjóri Lærdómsrita Hins íslenzka bókmenntafélags (ásamt Ólafi Páli Jónssyni til 2012 og ásamt Eyju Margréti Jóhönnu Brynjarsdóttur frá 2014)

2004–07: ritstjóri Hugar: Tímarits um heimspeki

1997–99: ritstjóri hjá Máli og menningu, m.a. við ritstjórn Heimsatlass Máls og menningar

1988–90: í ritstjórn Íslenskrar alfræðiorðabókar Arnar og Örlygs