Nám
- 2011. Doktor í íslenskri málfræði (Ph. D.) við HÍ 21. október 2011. Heiti ritgerðar: Málið á Ævisögu Jóns Steingrímssonar. Aðalleiðbeinandi var Guðrún Kvaran prófessor.
- 2002–2003. Nám við málvísindadeild Cornell-háskóla í Ithaca, New York.
- 2000. MA-próf í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands júní 2000. MA-ritgerð mín var útgáfa og málfræðileg lýsing á fornaldarsögunni Hálfdanar saga Brönufóstra og heitir: Hálfdanar saga Brönufóstra (a- og b-gerð). Leiðbeinandi var Guðvarður Már Gunnlaugsson, rannsóknardósent á Stofnun Árna Magnússonar.
- 1996. BA-próf í almennum málvísindum með íslensku sem aukagrein frá Háskóla Íslands október 1996. BA-ritgerð mín fjallaði um forníslenskar tvöföldunarsagnir (Tvöföldunarsagnir í forníslenzku). Leiðbeinandi var Guðrún Þórhallsdóttir lektor í íslensku við HÍ.
- 1993. Stúdentspróf frá fornmálabraut (latínu- og grískubraut) Menntaskólans við Hamrahlíð vor 1993.