Sierra Leone
Árin 2022 og 2023 tók ég mér hlé frá starfi háskólakennara og dvaldi við störf í Afríku á vegum Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans. Aðsetur mitt var í höfuðborg Sierra Leone, Freetown. Mér líkaði vel við landið, fólkið og borgina. Á meðan á dvölinni stóð setti ég í letur fáeinar svipmyndir af lífinu í Freetown, sem ég birti hér á nokkrum undirsíðum.