Bestu venjur í hönnun kennsluvefs

Kristbjörg Olsen, 09/04/2018 09:44

Bestu venjur (best practices) í skipulagi og hönnun kennsluvefs, er það eitthvað sem kennarar Háskóla Íslands þurfa að skoða? Já, samkvæmt niðurstöðum Moodle-könnunar þurfa sumir kennarar HÍ einmitt að skoða og tileinka sér betri vinnubrögð í þessu tilliti. Eitt helsta umkvörtunaratriði nemenda í könnuninni var að kennsluvefir námskeiða séu oft illa skipulagðir, yfirsýn yfir námskeið vanti, það taki langan tíma að finna efni, verkefnalýsingar séu jafnvel faldar inn í möppum, skiladagar verkefna óljósir, dagatal námskeiðs ekki notað og einkunnir ekki skráðar á réttan stað eða jafnvel seint og um síðir.

Ég get staðfest að Háskóli Íslands er ekki sér á báti heldur er þetta vandamál því miður til staðar víðar. Þar sem ég hef komið og aðstoðað vegna Moodle í grunnskólum, framhaldsskólum og háskólum er lélegt skipulag á kennsluvef að mínu mati áberandi. Eins og gott skipulag og góðar vinnuvenjur kennara, hlýtur að vera áríðandi fyrir nám nemenda. Það styður varla við nám og góðar vinnuvenjur nemanda að upplifa stjórnleysi á kennslulvefnum, hafa ekki yfirsýni yfir þá vinnu sem námskeið krefst og þurfa að eyða löngum stundum í að leita að og pirra sig yfir að finna ekki viðeigandi námsefni á vefnum.

Í glærukynningunni frá Michelle Moore hér fyrir ofan er farið yfir það mikilvægasta í skipulagi og uppsetningu kennsluvefs og á vefnum Moodle-hjálp Reykjavíkurborgar hef ég einnig tekið saman atriði um bestu venjur.