Category: Moodle

Bestu venjur í hönnun kennsluvefs

Kristbjörg Olsen, 09/04/2018 09:44

Bestu venjur (best practices) í skipulagi og hönnun kennsluvefs, er það eitthvað sem kennarar Háskóla Íslands þurfa að skoða? Já, samkvæmt niðurstöðum Moodle-könnunar þurfa sumir kennarar HÍ einmitt að skoða og tileinka sér betri vinnubrögð í þessu tilliti. Eitt helsta umkvörtunaratriði nemenda í könnuninni var að kennsluvefir námskeiða séu oft illa skipulagðir, yfirsýn yfir námskeið vanti, það taki langan tíma að finna efni, verkefnalýsingar séu jafnvel faldar inn í möppum, skiladagar verkefna óljósir, dagatal námskeiðs ekki notað og einkunnir ekki skráðar á réttan stað eða jafnvel seint og um síðir.

Ég get staðfest að Háskóli Íslands er ekki sér á báti heldur er þetta vandamál því miður til staðar víðar. Þar sem ég hef komið og aðstoðað vegna Moodle í grunnskólum, framhaldsskólum og háskólum er lélegt skipulag á kennsluvef að mínu mati áberandi. Eins og gott skipulag og góðar vinnuvenjur kennara, hlýtur að vera áríðandi fyrir nám nemenda. Það styður varla við nám og góðar vinnuvenjur nemanda að upplifa stjórnleysi á kennslulvefnum, hafa ekki yfirsýni yfir þá vinnu sem námskeið krefst og þurfa að eyða löngum stundum í að leita að og pirra sig yfir að finna ekki viðeigandi námsefni á vefnum.

Í glærukynningunni frá Michelle Moore hér fyrir ofan er farið yfir það mikilvægasta í skipulagi og uppsetningu kennsluvefs og á vefnum Moodle-hjálp Reykjavíkurborgar hef ég einnig tekið saman atriði um bestu venjur.

Moodle spurningakönnun

Kristbjörg Olsen, 28/03/2018 17:30

Niðurstöður Moodle könnunar sem lögð var fyrir í janúar sl. eru aðgengilegar á vef Kennslumiðstöðvar.

Alls svöruðu 850 notendur könnuninni, 738 nemendur og 112 kennarar. Niðurstöðurnar gefa okkur í Kennslumiðstöð dýrmætar upplýsingar til að vinna með en eru einnig áhugaverðar fyrir þátttakendur. Í þeim kemur m.a. fram hvaða viðbótum kennarar óska eftir fyrir Moodle, hvað nemendur segja um kennsluvefi námskeiða og margt fleira.  Sumar af þeim upplýsingum sem koma fram eiga við hvort sem Moodle er notað fyrir kennsluvef námskeiðs eða Ugla t.d. ábendingar nemenda varðandi skipulag kennsluvefs.

Niðurstöðunum er skipt upp í eftirfarandi síður:

Moodle mobile appið

Kristbjörg Olsen, 21/03/2018 13:15

Moodle mobile virkar því miður ekki á HÍ-Moodle. Verið er að skoða hvað veldur og vonandi leysist málið fljótt.

Ná í Moodle mobile

Nánari upplýsingar um Moodle mobile appið.

Til hvers er safn í Moodle?

Kristbjörg Olsen, 09/03/2018 11:28

Safn er eitt af þessum verkfærum í Moodle sem er frekar lítið notað en það býður upp á ýmsa notkunarmöguleika og er einfalt í uppsetningu.