Velkomin!

--- ooo ---

Markaðsfræði og þjónustustjórnun er mitt sérsvið og flest það sem ég fæst við tengist með einum eða öðrum hætti þeim greinum. Bakgrunnur minn hefur vissulega áhrif en hann má fremur rekja til raunvísinda en félags- eða hugvísinda en í grunninn er ég með BS gráðu í iðnaðartæknifræði. Á þessari síðu er að finna ýmsar upplýsingar um kennslu og rannsóknir í markaðsfræði og þjónustustjórnun. Hver sem er má nota það efni sem hér er að finna að vild en farið er fram á að getið sé heimilda samkvæmt venjum og hefðum þar um.

Farið í <Nánar> til að sjá hvað ég hef verið að fást við síðustu ár.

--- ooo ---

Hér er áhugaverð sýn á markaðsfærslu

Margir tengja markaðsfærslu (marketing) mikið við kynningarstarf en síður við aðra þætti. Þeir sem til þekkja vita að þetta er mikill misskilningur. Til eru margar skilgreiningar á hugtakinu og eru sumar langar og ítarlegar á meðan aðrar eru styttri. Meðfylgjandi mynd sýnir þau orð eða hugtök sem koma oftast fyrir og byggt á 72 skilgreiningum í samantekt Heidi Cohen.

Eins og sést þá snýst faglegt markaðsstarf mjög mikið um viðskiptavininn, vörurnar og þjónustuna. Nú er bara spurningin hver fókusinn er hjá markaðsfólki.

--- ooo ---

Hér er sjónarmið sem mér finnst áhugavert:

"Mér finnst allt of algengt að vísindamenn telja þekkingu sína of flókna til að skýra hana fyrir almenningi. Það er ekkert annað en mont og hroki. Það er skylda vísindanna að skýra fyrir almenningi hvað er að gerast, skila þekkingu sinni til baka og vekja áhuga almennings á vísindum."

Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur í viðtali í Fréttablaðinu 27. mars 2010

--- ooo ---

Þeir sem vilja eitthvað vita um vörumerkjastjórnun (branding) gætu haft gagn af því að hlusta á Keller...