Ég hef verið háskólakennari frá 1994 og eðli málsins samkvæmt hef ég kennt mörg námskeið á öllum stigum háskólanáms. Þá er átt við diplomanám, grunnnám til BS gráðu, framhaldsnám til MBA eða MS gráðu og doktorsnám.

 

Umsjón og kennsla 2021-22

  • VIÐ101G Inngangur að markaðsfræði
  • VIÐ158M Þjónustugæði og þjónustumat
  • VIÐ185F Markaðsáherslur og árangur
  • ViÐ511G Markaðsrannsóknir
  • VIÐ205G Markaðsfærsla þjónustu
  • VIÐ280F Fólk form og ferlar
  • VIÐ561L Doktorsritgerð

Sjá hér nánara yfirlit yfir kennslu og umsjón námskeiða við Háskóla Íslands

 

Kennslurit

  • Þórhallur Örn Guðlaugsson (2000). Lykilhugtök í markaðsfræði 2. hluti, fjölrit. Reykjavík, Háskólafjölritun og vefsíða námskeiða (76 síður)
  • Þórhallur Örn Guðlaugsson (2000). Lykilhugtök í markaðsfræði 1. hluti, fjölrit. Reykjavík, Háskólafjölritun og vefsíða námskeiða (62 síður)
  • Þórhallur Örn Guðlaugsson (Uppfært 2016). Markaðsrannsóknir, fjölrit. Reykjavík, vefsíða námskeiða (37 síður)
  • Þórhallur Örn Guðlaugsson (1998). Markaðssetning þjónustu, fjölrit. Reykjavík, Háskólafjölritun og vefsíða námskeiða (94 síður)
  • Þórhallur Örn Guðlaugsson (1997). Inngangur að markaðsfræði, fjölrit. Reykjavík, Háskólafjölritun og vefsíða námskeiða (154 síður)

 

Kennslustefna

Ég hef verið háskólakennari frá 1994. Hef kennt fjölbreyttum hópum, s.s. ungum nemendum með litla starfsreynslu, eldri nemendum með mikla starfsreynslu, nemendum í grunnnámi, nemendum í rannsóknartengdu framhaldsnámi, nemendum í MBA námi, nemendum í stuttum námsbrautum o.s.frv. Hef einnig kennt við ólíka skóla, s.s. Tækniskólann, Tækniháskólann, Háskólann í Reykjavík, Háskólann á Bifröst og Háskóla Íslands.

Þessi reynsla hefur mótað stefnu mína í kennslu. Hún er t.t.l. einföld:

  • Ég legg áherslu á fjölbreyttar kennsluaðferðir sem og matsaðferðir. Tel það heppilegra en að styðjast við einhæfar og einsleitar aðferðir.
  • Ég lít á nemendur sem bandamenn. Hagsmunir okkar skarast.
  • Ég tel að nemendur eigi að bera ábyrgð á eigin námi. Enginn getur lært fyrir aðra.
  • Ég trúi því að gagnkvæm virðing sé mikilvæg í háskólakennslu og háskólanámi.
  • Ég trúi því að þekking sé þannig eign að hún vaxi eftir því sem henni er miðlað. Því þykir mér kennsla mikilvægur þáttur í starfi mínu sem háskólakennari.
  • Það versta er þegar maður veit ekki að maður veit ekki!

 

Allt sem ég geri í kennslu tekur mið af þessari stefnu. Stefnan er hins vegar ekki óbreytanleg. Góðar og gildar aðferðir árið 1994 eru það kannski ekki í dag. Stefnan þarf því að vera kvik og lifandi. Allir geta bætt sig. Einnig háskólakennarar.