Yfirlit yfir nám og störf

Ég hef verið háskólakennari frá 1994, fyrst sem stundakennari samhliða stjórnunarstörfum í atvinnulífinu en frá 2000 hefur háskólakennsla og rannsóknir verið mitt aðal starf. Fór óhefðbundna leið í starfið en ég hef samfellt verið í fullu starfi á vinnumarkaði frá 1977.

 

Námsferill

  • Viðskiptafræði Ph.D., áhersla á markaðsfræði og þjónustustjórnun, Háskóli Íslands, 2010. Lokaritgerð: Markaðs- og þjónustuáhersla í opinbera geiranum.
  • Viðskiptafræði M.Sc., áhersla á markaðsfræði, stjórnun og rannsóknaraðferðir. Háskóli Íslands, 2001. Lokaritgerð: Viðhorf viðskiptavina sem árangursmælikvarði.
  • Alþjóðamarkaðsfræði, B.Sc., áhersla á markaðsgreiningu og stefnumótun. Tækniháskóli Íslands, 1995. Lokaritgerð: Stefnumótun fyrir fyrirtæki/stofnun.
  • Iðnaðartæknifræði, B.Sc., áhersla á nýsköpun, vöruþróun og verkefnastjórnun. Tækniháskóli Íslands, 1994. Lokaverkefni: Aukin arðsemi í sjávarútvegi.
  • Iðnrekstrarfræði, áhersla á stefnumótun og markaðsfræði. Tækniháskóli Íslands, 1992. Lokaverkefni: Viðskiptaáætlun fyrir fyrirtæki/stofnun.

 

Starfsferill

  • Háskóli Íslands frá 1998: Stundakennari 1998, lektor 2001, dósent 2005 og prófessor 2022.
  • Thor ehf: Veiti fyrirtækjum og stofnunum ráðgjöf á sviði stefnumótunar, markaðs- og þjónustumála. Stofnandi og framkvæmdastjóri Thor ehf sem hefur starfað frá 2008.
  • Strætisvagnar Reykjavíkur 1995-2000: Forstöðumaður markaðs- og þróunarsviðs
  • Tækniháskóli Íslands/Háskólinn í Reykjavík 1994-2003 og 2008-2011: Stundakennsla við Tækniháskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík.
  • Umgjörð ehf 1994-1995: Viðskipta- og stjórnunarráðgjafi.
  • Krísuvíkursamtökin 1991-1994: Ráðgjafi og um tíma framkvæmdastjóri.
  • SÁÁ 1987-1990: Ráðgjafi að Sogni Ölfusi.
  • Áburðarverksmiðja ríkisins 1977-1987: Vinnuvélastjórn og almenn verkamannastörf.

 

Stjórnunarstörf í Háskóla Íslands

  • Forstöðumaður og stjórnarformaður Rannsóknarmiðstöðvar um markaðs- og þjónustufræði (Center of Marketing and Service Management, CemSem) frá 2009.
  • Ritstjóri (ásamt fleirum) Tímarits um viðskipti og efnahagsmál frá 2016.
  • Ritstjóri (ásamt Gylfa Dalmann og Runólfi Smára) bókarinnar Rannsóknir í viðskiptafræði III, Háskólaútgáfan, væntanlega 2022.
  • Ritstjóri (ásamt Gylfa Dalmann og Runólfi Smára) bókarinnar Rannsóknir í viðskiptafræði II, Háskólaútgáfan,  2021.
  • Ritstjóri (ásamt Gylfa Dalmann og Runólfi Smára) bókarinnar Rannsóknir í viðskiptafræði I, Háskólaútgáfan, 2020.
  • Formaður meistaranámsnefndar frá 2020.
  • Forstöðumaður MS náms í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum 2003-2005, 2013-2014 og frá 2020.
  • Forstöðumaður MS náms í viðskiptafræði frá 2020.
  • Forstöðumaður MS náms í þjónustustjórnun frá 2018.
  • Formaður grunnnámsnefndar 2005-2012 og 2015-2017.
  • Forstöðumaður BS-M línu í grunnnámi (áhersla á markaðsfræði og alþjóðaviðskipti) 2001-2012 og 2015-2017.
  • Í stjórn Viðskiptafræðistofnunar frá 2006-2013, formaður frá 2008.
  • Í stjórn MBA námsins 2005-2013, formaður 2007-2013.
  • Í stjórn BSV náms (nám samhliða starfi) 2007-2013, formaður 2008-2013.
  • Í stjórn rannsóknarmiðstöðvar um alþjóðaviðskipti 2007-2013.
  • Formaður kennslumálanefndar Félagsvísindasviðs 2009-2011.
  • Í kennslumálanefnd Háskólaráðs 2009-2011.
  • Formaður stjórnar ENSÍM, endurmenntun á vegum deildar, 2007-2008.
  • Formaður markaðs- og samskiptanefndar Háskólaráðs 2004-2007.
  • Seta í heildarstefnuhóp í tengslum við stefnumótun Háskóla Íslands 2006-2011.
  • Seta í ýmsum vinnuhópum á vegum rektors og sameiginlegrar stjórnsýslu frá 2001.

Sjá hér nánara yfirlit yfir stjórnunarstörf í þágu Háskóla Íslands

 

Innlend og alþjóðleg tengsl

  • Formaður dómnefndar ÍMARK um markaðsfyrirtæki ársins 2011, 2012, 2013, 2014, 2016, 2018 og 2020.
  • Félagi í AMC (Academy of Marketing Science) frá 2009.
  • Félagi í AM (Academy of Marketing) frá 2003.
  • Félagi í AMA (American Marketing Association) frá 2003

 

Seta í stjórnum

  • Í stjórn Hi-hostel Iceland (Farfuglar ses) frá 2014, stjórnarformaður frá 2020
  • Í stjórn Ísfugls ehf frá 2012
  • Stjórnarformaður Thor ehf frá 2008
  • Í stjórn/stjórnarformaður Ferðafélaga ehf frá 2017
  • Í stjórn Reykjabúsins ehf frá 2005
  • Í varastjórn Stefnis 2010-2022
  • Í stjórn Krísuvíkursamtakanna 1995-2005
  • Í stjórn Vífilfells 2008-2009.
  • Í stjórn IP-fjarskipta ehf 2009 (tilnefndur af Samkeppniseftirlitinu)

 

Efst á síðu