Rannsóknir

Helsta rannsóknarsvið Kristins er þjóðfræði í þverþjóðlegum samskiptum og þjóðernislegum sjálfsmyndum. Í rannsóknum hans er frásagnar- og efnismenning hreyfanlegra hópa í borgum Vestur-Evrópu og á vestnorræna svæðinu skoðuð í menningarlegu samhengi í tengslum við menningarpólitík íslenskrar útrásar, efnahagshruns og norðurslóðastefnu. Etnógrafískar rannsóknir Kristins taka mið af hljóð-og sjónræðum aðferðum og kenningum.  Kristinn hefur umsjón með rannsóknum, útgáfu, viðburðum og tengslanetum á sviði norðurslóða með áherslu á samfélag, menningu og stefnumótun.