Ritröð í félagsvísindum Kristín Loftsdóttir. Kynþáttafordómar – í stuttu máli (2020) Gunnar Þór Jóhannesson og Katrín Anna Lund. Áfangastaðir - í stuttu máli (2021) |
|
........................ | |
Menningararfur á Íslandi: Gagnrýni og greining Ritstj. Ólafur Rastrick og Valdimar Tr. Hafstein. Í bókinni spyrja fjórtán höfundar gagnrýninna spurninga um menningararf, hvernig hann er notaður, af hverju og til hvers: Torfbæir og timburhús, handrit og hárlokkar, bátar og búningar, súrmatur og skyr, söguskilti og sögufrægir kvenskörungar. Hvernig stendur á því að sumu gömlu er hampað sem ómetanlegum menningararfi á meðan annað er léttvægt fundið og leyft að drabbast niður? Höfundarnir lýsa menningararfi sem sameiningar- og sundrungarafli, hugtaki sem fólk tekur til handargagns, hreyfiafli er drífur áfram athafnir þess, sjónarhorni á daglegt líf og umhverfi, hugsjón, auðlind og þrætuepli. http://haskolautgafan.hi.is/ |
|
........................ | |
Háborgin: Menning, fagurfræði og pólitík í upphafi tuttugustu aldar Háskólaútgáfan og Sagnfræðistofnun 2013. Bókin fjallar um samband fagurfræði, menningar og umbótastjórnmála á Íslandi frá lokum nítjándu aldar og fram til um 1930. Henni er ætlað að svara spurningum um hvaða hugmyndir mennta- og stjórnmálamenn gerðu sér um félagslegt hlutverk íslenskrar menningar á mikilvægu mótunarskeiði hennar. Einnig eru skoðuð áhrif stjórnmálamanna á menningarmál og hvernig þau birtust í mótun listastefnu, skipulagi höfuðstaðarins eða sviðsetningu alþingishátíðarinnar. Greint er hvernig menningarstjórnmálum var ætlað að lyfta þjóðinni á hærra stig menningar og siðmenntunar og sýna henni sjálfri og umheiminum fram á að í landinu byggi menningarþjóð sem ætti sér tilverurétt í fullvalda þjóðríki sem þjóð meðal þjóða. http://haskolautgafan.hi.is/ |
|
........................ | |
Constructing Cultural Identity, Representing Social Power. Eds. Cana Bilsel, Kim Esmark, Niyazi Kizilyurek and Ólafur Rastrick. Edizione Plus, Pisa, 2010.Final volume of the CLIOHRES.net thematic work group on power and culture. A collection of thirteen chapeters dealing with the role of culture in remodelling and contesting political identities, exploring political values and gender images and the representation of power through art, architecture and in European history. If there is one lesson to be learned from this book, it is that what seems obvious rarely is so, and that culture constitutes a way in which power is not only supported and resisted, but also discussed and debated, often with unintended results. Further details: Cliohres.net |