Þjóðfræði

Þjóðfræðin rannsakar hversdagsmenningu, lífshætti og lífssýn á okkar dögum og áður fyrr. Þjóðfræðin rannsakar daglegt líf og daglegt brauð: sögur og sagnir, heimilis- og atvinnuhætti, trú og tónlist, siði og venjur, hátíðir og leiki, föt, tísku og matarhætti um heim allan. Áhersla er lögð á hvernig fólk mótar líf sitt og umhverfi undir kringumstæðum sem það hefur ekki mótað sjálft og hvernig fólk talar saman og lifir í samfélagi hvert við annað í þeim margvíslegu hópum sem það tilheyrir – sem Íslendingar, Argentínumenn, Valsmenn, unglingar, innflytjendur, Evrópubúar, Flateyringar, óperusöngvarar, flugfreyjur, fíklar, o.s.frv.

Þjóðfræði við HÍ