Kennsla

Framhaldsdeild

Frá því stjórnunarnám var fyrst boðið við framhaldsdeild KHÍ árið 1988 vann ég með þeim Berki Hansen og Ólafi H. Jóhannssyni að þróun námsins, grunnnámskeiða þess og ýmsum valnámskeiðum.

Ég hef frá upphafi kennt um stjórnun og forystu við framhaldsdeild Menntavísindasviðs.  Viðfangsefni mín hafa verið menntastjórnun í víðu samhengi en með sérstakri áherslu á samspil forystu, lífsgilda og kyngervis.  Í nokkur ár bauð ég valnámskeiðið Konur og stjórnun menntastofnana en  Það námskeið var síðast í boði árið 2009. Frá árinu 2011 mun ég vinna að jafnréttismálum með Guðnýju Guðbjörnsdóttur á námskeiðinu Konur og karlar sem leiðtogar og stjórnendur. Eftirfarandi námskeið hef ég kennt og, eftir atvikum, haft umsjón með, síðustu ár.

2016-2017                                                                                                                   

Stjórnun og forysta. Umsjónar- og aðalkennari

Hlutverk millistjórnenda, valnámskeið í boði annað hvort ár. Annar tveggja aðalkennara og umsjónarkvenna ásamt Örnu H. Jónsdóttur.

2015-2016                                                                                                                        

Stjórnun og forysta. Umsjónar- og aðalkennari.

Konur og karlar sem leiðtogar og stjórnendur. Annar tveggja aðalkennara ásamt Guðnýju Guðbjörnsdóttur umsjónarkonu námskeiðs.

2014-2015                                                                                                                         

Stjórnun og forysta. Umsjónar- og aðalkennari

Konur og karlar sem leiðtogar og stjórnendur.  Aðalkennari ásamt Guðnýju Guðbjörnsdóttur umsjónarkonu námskeiðs.

Hlutverk millistjórnenda, valnámskeið í boði annað hvort ár. Annar tveggja umsjónarkvenna og aðalkennara.

2013-2014

Stjórnun og forysta. Umsjónar- og aðalkennari.

Konur og karlar sem leiðtogar og stjórnendur. Umsjónar-  og aðalkennari ásamt Guðnýju Guðbjörnsdóttur.

Fræðileg vinnubrögð. Umsjónar- og aðalkennari ásamt Allyson Macdonald.

Stofnanakenningar. Einn af kennurum.

2012-2013

Stjórnun og forysta. Umsjónarkennari og aðalfyrirlesari.

Fræðileg vinnubrögð I og II. Umsjónarkennari ásamt Allyson Macdonald og einn af aðalkennurum.

Hlutverk millistjórnenda. Umsjónarkennari og aðalfyrirlesari.

Stofnanakenningar. Einn af aðalfyrirlesurum.

Konur og karlar sem leiðtogar og stjórnendur. Einn af aðalfyrirlesurum

2010
Stofnanakenningar. Umsjónarmaður og aðalfyrirlesari

Fræðileg vinnubrögð. Umsjónarmaður og einn af fyrirlesurum

Stjórnun og forysta. Aðalkennari með Berki Hansen á námskeiði í hans umsjón

Millistjórnendur. Umsjónarmaður ásamt Örnu H. Jónsdóttur og einn af fyrirlesurum

Konur og karlar sem leiðtogar og stjórnendur. Einn af aðalkennurum á námskeiði í umsjón Guðnýjar Guðbjörnsdóttur.

Á síðustu árum hef ég kennt á eftirfarandi námskeiðum á leikskólabraut:

Leikskólabraut
2009
Samskipti og stjórnun. Annar tveggja kennara á námskeiði á leikskólabraut í umsjón Gyðu Jóhannesdóttur.

2008
Samskipti og stjórnun. Annar tveggja kennara á námskeiði á leikskólabraut í umsjón Gyðu Jóhannesdóttur.

2006
Kynferði, menntun og lífsstíll. Einn af höfundum námskeiðs og einn af átta kennurum á námskeiði í umsjón Þórdísar Þórðardóttur

Á grunnskólabraut hef ég haldið fyrirlestra um lífsgildi í skólastarfi og um sjálfsmat skóla. Dæmi um slík erindi má finna hér:

Grunnskólabraut
2009
Samskiptafærni. Fyrirlestur um lífsgildi  á námskeiði í umsjón Sólveigar Karvelsdóttur

2008
Sjálfsmat og skólaþróun. Fyrirlestur um sjálfsmat og sjálfsmatsaðferðir á námskeiði í umsjón Auðar Pálsdóttur

 2006
Námskrárfræði og námsmat. Fyrirlestur  um sjálfsmat 20. mars á námskeiði í umsjón Meyvants Þórólfssonar o.fl.