Stjórnun – Innan kirkjunnar
2014– Aðalfulltrúi í Kenninganefnd íslensku þjóðkirkjunnar.
2013–2017 Fulltrúi Guðfræði- og trúarbragðafræðideildar í nefnd á vegum þjóðkirkjunnar um fimm alda minningu sibótarinnar.
2013–2014 Fulltrúi í nefnd um embættisskilninginn á vegum Prestafélags Íslands. Nefndin skilaði niðurstöðum á menntadegi PÍ 5. maí.
2010– Varafulltrúi Guðfræði- og trúarbragðafræðideildar á Kirkjuþingi. Aðalfulltrúi árið 2013.
2010–2013 Formaður Félags prestsvígðra kvenna
2009– Fulltrúi Guðfræðistofnunar í stjórn Stofnunar dr. Sigurbjörns Einarssonar.
2004–2014 Varamaður í Kenninganefnd íslensku þjóðkirkjunnar. (Varamenn sátu alla fundi Kenninganefndar frá 2005-2007.)
2004–2013 Varamaður í Úrskurðarnefnd íslensku þjóðkirkjunnar. (Sat í Úrskurðarnefnd sem aðalmaður frá des. 2005-maí 2006 og aftur frá maí-des. 2008.)
2001–2003 Formaður stjórnar Leikmannaskóla kirkjunnar.
2000–2003 Í starfshópi á vegum Kirkjuráðs um áratug gegn ofbeldi.
1999–2002 Formaður jafnréttisnefndar íslensku þjóðkirkjunnar.
1998 Formaður starfshóps sem samdi starfsreglur um meðferð kynferðisbrota innan íslensku þjóðkirkjunnar. Starfshópurinn skilaði af sér á Kirkjuþingi haustið 1998.