Retrenchment or renewal? Welfare states in times of economic crisis
Edited by Guðmundur Jónsson and Kolbeinn Stefánsson.
NordWel Studies in Historical Welfare State Research 6.
Helsinki 2013. ISBN 978-952-10-8675-5
Efnahagskreppan sem reið yfir heimsbyggðina árið 2008 hefur verið velferðarríkjum þung í skauti og skekið fjárhagslegar, félagslegar og stjórnmálalegar undirstöður þeirra. Bókin fjallar um áhrif kreppunnar á velferðarríkin á Vesturlöndum og félagsmálastefnu þeirra. Hvernig brugðust ríkin við kreppunni á sviði velferðarmála? Hefur kreppan haft sömu áhrif á stöðu karla og kvenna? Markar kreppan upphaf aðhaldsstefnu og niðurskurðar í velferðarkerfum eða eru vísbendingar um að nýtt tímabil félagslegra umbóta sé að hefjast?
Í bókinni eru 16 greinar eftir 20 fræðimenn frá ýmsum löndum og úr ýmsum greinum hug- og félagsvísinda. Lesandinn fær góða yfirsýn yfir samspil efnahagsáfalla og velferðarkerfa á undanförnum árum en í bókinni er einnig er að finna ítarlegar rannsóknir á afmörkuðum þáttum kreppunnar og einstökum löndum. Þau lönd sem sérstaklega eru skoðuð eru Bandaríkin, Bretland, Danmörk, Finnland, Írland, Nýja-Sjáland og Ungverjaland – að ógleymdu Íslandi sem fjallað er um í fjórum köflum. Bókin er gefin út í ritröð norræna öndvegissetursins NORDWEL sem ásamt öndvegissetrunum REASSESS og EDDU stendur að útgáfu bókarinnar.
Ritstjórar eru Guðmundur Jónsson prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands og Kolbeinn Stefánsson félagsfræðingur og starfsmaður Hagstofu Íslands.