Internet Explorer vandræði

Nokkuð hefur verið um að notendur lendi í vandræðum með samspil Internet Explorer vafrans og qTranslate viðbótarinnar.  Ekki er ljóst á þessu stigi hvert vandamálið er nákvæmlega, en flestum hefur dugað að nota bara aðra vafra en Internet Explorer.  Reyndar mælum við með að minnka notkun Internet Explorer í flestum tilfellum.

Firefox er vinsæll vafri, einnig eru notendur Opera ánægðir sem og notendur Safari.  Þessir vafrar standa sig allir betur í að fylgja stöðlum.