Við Baldur Þórhallsson skrifuðum sameiginlega grein í bókina The Politics of Smallness in Modern Europe: Size, Identity and International Relations since 1800 sem kom út fyrir stuttu hjá Bloomsbury forlaginu í London. Í bókinni, sem er ritstýrt af hollenska sagnfræðingnum Samuël Kruzinga, fjalla 16 sagn- og stjórnmálafræðingar í 10 greinum um viðhorf til evrópskra smáríkja síðustu tvær aldirnar. Grein okkar Baldurs heitir „Iceland's Smallness: Acceptance or Denial“.