Þú ert aÐ skoða allar greinar í flokknum Fréttir

Flutningur

Undanfarið hefur verið unnið að uppbyggingu nýs vélasalar reiknistofnunar.  Ferlið er er flókið og inniheldur fjölmarga verkþætti, meðal annars raunverulegan flutning véla milli vélasala. Reynt verður af fremsta megni að haga því þannig að notendur verði ekki varir við flutningana, en óhjákvæmilega gæti þurft að rjúfa einhverjar þjónustur tímabundið. Samkvæmt áætlun mun þjónusta einkavefja liggja niðri 1 […]

Lesa meira

qTranslate-X

qTranslate íbótin sem var yfirgefin af skapara sínum fyrir nokkru hefur fengið arftaka.  Sú heitir qTranslate-X, og hefur verið sett inn ( óvirk að jafnaði ) á uni.  Notendur sem hafa notað qTranslate geta nú gert hana óvirka og virkjað qTranslate-X í staðin og ættu að sömu virkni og qTranslate hafði áður.  Í einhverjum tilfellum gæti þurft […]

Lesa meira

qTranslate vandamál

Fjölmálaíbótin qTranslate hefur verið með okkur á uni.hi.is frá byrjun. Að mörgu leyti er íbótin stórfín, gerir notendum mögulegt að setja fram efni á mörgum tungumálum. Hinsvegar hafa tæknileg gæði íbótarinnar verið vafasöm, hún hefur verið erfið í rekstri og brotnað ítrekað. Nú hefur aðilinn sem þróar íbótina ekki gert á henni uppfærslur í langan […]

Lesa meira

Enn er qTranslate vesen

qTranslate íbótin, sem hefur verið virk á uni.hi.is frá upphafi hefur valdið töluverðum vandræðum.  Það er einstaklingur sem þróar íbótina og hefur greinilega ekki tök á að fylgja henni alveg eftir.  Það nýjasta er að hann hefur dregið að uppfæra íbótina til að hún spili með nýjustu öryggisuppfærslu WordPress kjarnakerfisins, og veldur því að íbótin […]

Lesa meira

Umbrotsvandi úr sögunni í bili

Eins og við er að búast höfðu fleiri en við lent í vanda með qTranslate, WP 3.3.1 og málsgreinaskil.  Félagi okkar, raido357, benti á lausn þar sem ákveðin virkni qTranslate er beinlínis fjarlægð úr kóðanum.  Við erum búin að gera þessa breytingu á kóðanum og því ætti þessi óþekkt að vera úr sögunni í bili.  Lausnin […]

Lesa meira

Umbrotsvandi og lausn

Ágætu uni notendur. Okkur hafa borist ábendingar um að umbrot síðna á uni hafi brenglast í einhverjum tilfellum.  Helst eru það málsgreinaskil sem hverfa.  Vandinn virðist tengjast hinn alræmdu íbót qTranslate.  Þegar hún er virk virðist sú íbót eiga við stillingar ritilsins.  Nú er búið að setja inn nýja íbót sem endurheimtir stjórn á ritlinum […]

Lesa meira

Uni uppfærður á föstudaginn

Eftir hádegi, föstudaginn 2.mars 2012, stendur til að uppfæra WordPress kerfið sem uni.hi.is keyrir á.  Ef allt gengur að óskum verða notendur ekki varir við neina truflun.  Áætlaður tími uppfærslu er 30 mínútur.

Lesa meira

Uni fluttur á nýan vélbúnað

Nú í október var vefumsjónarkerfið sem uni.hi.is keyrir á uppfært í nýjustu útgáfu WordPress og um leið flutt á nýjan vélbúnað.  Nýja uppsetningin á að tryggja öruggara rekstrarumhverfi og snarpara kerfi.  Lesendur ættu ekki að verða varir við mikla breytingu, en skrifarar sjá eflaust örlítið breytt stjórnborð.  Að auki var bætt við nýju útlitsþema.

Lesa meira

Uni bilar

Eins og notendur hafa ugglaust orðið varir við, fór þessi vefur og undirvefir hans niður í síðustu viku. Ástæðan var bilun í rosknum vefþjóni sem hýsti vefinn. Reiknistofnum biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þessi bilun olli. Undirbúningur fyrir færslu uni á nýjan kerfisgurnn var hafin en ekki lokið þegar ólánið dundi yfir. Slík færsla […]

Lesa meira

Annað kennsluefni

Nú hefur verið búin til sérstök síða á uni.hi.is sem tileinkuð er ytra WordPress kennsluefni.  Ytra í þeim skilningi að kerfisstjórn uni.hi.is hefur ekki skrifað það efni og það er hýst annarstaðar. Annað kennsluefni Notendur eru hvattir til að benda á hentugt og gott kennsluefni.  Senda má tilkynningar um slíkt gegnum "Support -> Support Tickets" […]

Lesa meira