Fyrri heimstyrjöldin gerði það að verkum, að fréttir af almennu afstæðiskenningunni bárust tiltölulega seint til Bretlands. Hinn merki breski stjarnvísindamaður og prófessor í Cambridge, Arthur S. Eddington, fékk þó upplýsingar um verk Einsteins eftir krókaleiðum og var ótrúlega fljótur að tileinka sér hugmyndir hans. Þrátt fyrir styrjaldarástandið, tók Eddington svo að sér óbeðinn að kynna félögum sínum almennu afstæðiskenninguna.
Í hópnum var vinur Eddingtons, konunglegi stjörnufræðingurinn Frank W. Dyson, sem var sérfræðingur í rannsóknum á sólmyrkvum. Þótt Dyson væri ekki sérlega trúaður á kenningu Einsteins, benti hann á það árið 1917, að í lok maí 1919 yrði almyrkvi á sólu, sem gengi frá Suður Ameríku yfir til Afríku. Ef veðurfar og aðrar aðstæður yrðu hagstæðar, skapaðist þarna kjörið tækifæri til að kanna spá Einsteins um sveigju ljós í þyngdarsviði.
Dyson lét ekki sitja við orðin tóm, heldur átti frumkvæðið að því, að Bretar hófu að undirbúa leiðangur til að fylgjast með myrkvanum. Hann fékk Eddington í lið með sér, enda var hann eini maðurinn á Bretlandseyjum, sem hafði full tök á almennu afstæðiskenningunni. Að auk þótti Eddington framúrskarandi stjörnufræðingur.
Þegar upp var staðið, urðu leiðangrarnir tveir: Eddington fór til eyjarinnar Príncipe fyrir utan versturströnd Afríku, ásamt aðstoðarmanni sínum Edwin T. Cottingham. Dyson skipulagði hins vegar leiðangur til Sobral í Brasilíu, en fór ekki sjálfur, heldur sendi þangað tvo aðstoðarmenn, þá Andrew C. D. Crommelin og Charles R. Davidson.
Mælingar bresku vísindamanna á ljóssveigjunni við sólmyrkvann 29. maí 1919 tókust bærilega, en úrvinnslan tók umtalsverðan tíma. Af þeim sökum var ekki skýrt frá niðurstöðunum fyrr en tæpu hálfu ári síðar, eða hinn 6. nóvember. Þá var kunngjört, að stefnubreyting ljóssins væri í fullu samræmi við útreikninga Einsteins og almennu afstæðiskenninguna. Fréttin barst eins og eldur í sinu um alla heimsbyggðina og í kjölfarið varð Einstein víðfrægur.
Mikið hefur verið fjallað um sólmyrkvaleiðangrana tvo í ræðu og riti og er ekki ástæða til að endurtaka þær lýsingar hér. Þeim, sem áhuga hafa, má hins vegar benda á eftirfarandi verk, þar sem jafnframt er vísað í frekari heimildir:
- R. Catchpole, 2014-2019: General Relativity and the 1919 Solar Eclipse.
- L. C. B. Crispino og M. C. de Lima, 2016: Amazonia Introduced to General Relativity: The May 29, 1919, Solar Eclipse from a North-Brazilian Point of View.
- R. Ellis og fl., 2009: 90 years on – the 1919 eclipse expedition at Príncipe.
Fundurinn 6. nóvember 1919
Fundurinn var haldinn á vegum breska vísindafélagsins (the Royal Society) og breska stjarnfræðifélagsins (the Royal Astronomical Society). Samkvæmt prentaðri fundargerð hófst hann á erindum þeirra Dysons, Crommelins og Eddingtons um leiðangrana tvo, mælingarnar og niðurstöðurnar. Eins og áður hefur komið fram taldi hópurinn að mæliniðurstöður væru í fullu samræmi við útreikninga Einsteins.
Að loknum fryrirlestri Eddingtons tók forseti vísindafélagsins, eðlisfræðingurinn J. J. Thomson, til máls og sagði meðal annars:
Eins og getið er um í fundargerðinni, lögðu fleiri orð í belg. Frekari umræður urðu þó að bíða betri tíma, því það var ekki fyrr en í lok apríl 1920 sem ítarleg greinargerð leiðangursmannanna kom loks á prenti:
- F. W. Dyson, A. S. Eddington, C. Davidson, 1920: A Determination of the Deflection of Light by the Sun's Gravitational Field, from Observations made at the Total Eclipse of May 29, 1919.
Í eftirfarandi greinum má finna frekari umfjöllun um bakgrunn þessa mikila ævintýris, mælingarnar sjálfar og nákvæmni þeirra:
- J. Earman og C. Glymour,1980: Relativity and Eclipses: The British Eclipse Expedition of 1919 and its Predecessors.
- M. Stanley, 2003: An Expedition to Heal the Wounds of War: the 1919 Eclipse Expedition and Eddington as Quaker Adventurer.
- D. Kennefick, 2009: Testing relativity from the 1919 eclipse - a question of bias
- C. M. Will, 2015: The 1919 measurement of the deflection of light.
Í þessu sambandi má einnig mæla með eftirfarandi yfirlitsgrein. Hún fjallar um söguna að baki hugmyndarinnar um sveigju ljóss í þyngdarsviði og beinar afleiðingar hennar, hinar svokölluðu þyngdarlinsur:
- D. Valls-Gabaud, 2009: A Conceptual and Cultural History of Gravitational Lensing.
Fréttaflutningur og viðbrögð
Fréttir af fundinum 6. nóvember birtust strax daginn eftir í Lundúnablaðinu The Times undir fyrirsögninni REVOLUTION IN SCIENCE. Af einhverjum enn óútskýrðum ástæðum hratt umfjöllunin af stað skriðu blaðagreina, bæði heima og erlendis. Blaðamenn og allur almenningur varð strax hugfanginn af persónu Einsteins og hugmyndum hans um rúm, tíma og þyngd. Á örfáum vikum öðlaðist hinn fertugi eðlisfræðiprófessor heimsfrægð og enn þann dag í dag er hann talinn einn mesti hugsuður allra tíma.
Nánari umfjöllun um fyrstu viðbrögðin við niðurstöðum sólmyrkvamælinganna og kenningum Einsteins má meðal annars finna í eftirfarandi ritsmíðum:
- J. Crelinsten, 1980a: Einstein, relativity, and the press: The myth of incomprehensibility.
- J. Crelinsten, 1980b: Physicists receive relativity: Revolution and reaction.
- L. Elton, 1986: Einstein, General Relativity, and the German Press, 1919-1920.
- Einar H. Guðmundsson og Skúli Sigurðsson, 2005: Eðli rúms og tíma: Ólafur Dan Daníelsson og greinar hans um afstæðiskenninguna (einkum kaflar 5 og 6).
Fréttirnar berast til Íslands
Frásagnir af fundinum í London bárust tiltölulega fljótt til Íslands í gegnum Danmörku og 19. nóvember 1919 mátti lesa eftirfarandi smáfrétt á síðu 2 í dagblaðinu Vísi:
Önnur dagblöð fylgdu fljótlega í kjölfarið með sömu frétt og 5. desember birti Morgunblaðið svo greinina Byltingar í heimi vísindanna. Um var að ræða endursögn á grein úr danska dagblaðinu Politiken frá 18. nóvember (sem aftur byggði umfjöllun sína á greinum The Times).
Síðar í greininni segir:
Þó hefir sú staðhæfing Einsteins vakið mesta athygli að hægt er að vega sólarljósið. En þó hefir það verið sannað meðal annars af tveimur stjörnufræðis rannsóknarnefndum sem athuguðu sólmyrkvan 29.maí sl. ár, bæði í Norður-Brasiliu og á vesturströnd Afríku. Kenningar eða uppgötvanir Einsteins bentu á það, að hreyfing reykistjarnanna væri dálítið frábrugðin því, sem Newton hélt fram. Þetta var sannað hvað braut Merkúrs snerti. En það veittist örðugt að sanna, að ljósið fylgdi öðrum reglum en þeim sem Newton hafði fundið. En meðan á sólmyrkvanum stóð, ljósmynduðu menn margar þær stjörnur, sem senda ljós sitt mjög nærri sólinni til jarðarinnar. Þá kom það í ljós, að geislar þesara stjarna, sveigðust mikið að sólinni um leið og þeir fóru fram hjá henni, vegna aðdráttarafls hennar. Þyngdarlögmál Newtons og yfirhöfuð allar kenningar hans raskast töluvert við þetta.
Á næstu árum var talsvert fjallað um Einstein í íslenskum blöðum og tímaritum. Mest voru það frásagnir af manninum sjálfum, skoðunum hans, yfirlýsingum og athöfnum. Slíkur fréttaflutningur hélt áfram áratugum saman, en inn á milli birtust einnig ritsmíðar þar sem reynt var að útskýra kenningar meistarans í einföldu máli. Frekari umfjöllum um þetta efni má finna í eftirfarandi greinum:
- Einar H. Guðmundsson og Skúli Sigurðsson, 2005: Eðli rúms og tíma: Ólafur Dan Daníelsson og greinar hans um afstæðiskenninguna.
- Einar H. Guðmundsson, 2015: Sólmyrkvinn sem skaut Einstein upp á stjörnuhimininn.
- Einar H. Guðmundsson, 2019: Þorkell Þorkelsson eðlisfræðingur, aðkoma hans að stofnun stærðfræðideildar og greinin um afstæðiskenninguna (sjá seinni hluta færslunnar).