Arfur aldanna

Arfur aldanna I–IV fjallar um fornaldarsögur, uppruna þeirra, útbreiðslu og einkenni. Útgefandi er Háskólaútgáfan.

 

Handan Hindarfjalls er fyrsta bindi af fjórum. Í bókinni er dregin upp heildarmynd af efnivið sagnanna í evrópsku samhengi utan Norðurlanda fram að ritunartíma þeirra á Íslandi á 13. og 14. öld. Einkum og sér í lagi er sótt í annála og aðrar fornar sagnfræðiheimildir en einnig söguljóð og fornminjar sem kunna að fela í sér myndrænar tilvísanir í söguefnið.

 

 

 

 

 

 

Norðvegur er annað bindi af fjórum. Í bókinni er dregin upp heildarmynd af efnivið sagnanna í norrænu samhengi fram að ritunartíma þeirra á Íslandi á 13. og 14. öld. Einkum er stuðst við fornminjar á borð við myndsteina, rúnasteina, útskurð í tré og vefnað en við sögu koma þó einnig sagnaritarar og skáld sem unnu með sagnaefnið í ritum sínum og kveðskap.