Curriculum vitae
.
Núverandi verkefni
• Fornaldarsögur Norðurlanda: Þessa heims og annars. Verkefnið er styrkt af RANNÍS.
• Tilfinningar í tjáðri menningu síðari alda. Verkefnið er styrkt af Rannsóknasjóði Háskóla Íslands.
• Dósent í þjóðfræði við Háskóla Íslands.
Nám og störf
Menntun
• Stúdentspróf frá máladeild Verzlunarskóla Íslands 1986
• B.A. í íslensku frá Háskóla Íslands 1989
• Cand. mag. í íslenskum bókmenntum frá Háskóla Íslands 1993
• Dr. phil. frá heimspekideild Háskóla Íslands 2002
.
Háskólakennsla
• 2012 og áfr. Dósent í þjóðfræði við félags- og mannvísindadeild Félagsvísindasviðs HÍ.
• 2006–2011: Aðjunkt á BA-stigi í þjóðfræði við mannfræði- og þjóðfræðiskor Félagsvísindadeildar HÍ.
• 2007 Sumarnámskeið: Gestakennari á MA-stigi í Nordliks-intensivkursus, Fróðskaparsetri Færeyja, Þórshöfn. Den nordiske folkevise. Námsefni: Fornaldarsögur Norðurlanda, rímur og íslenskir sagnadansar.
• 2005 Vor: Stundakennsla á BA-stigi í íslensku fyrir erlenda stúdenta við íslenskuskor Hugvísindadeildar HÍ: 05.50.18 Íslenskar fornbókmenntir (5e. 4F). Kenndi 50%.
• 2002–2005: Stundakennari á BA-stigi í þjóðfræði við mannfræði- og þjóðfræðiskor Félagsvísindadeildar HÍ.
• 2003 Haust: Nordplus sendikennari í viku hjá Fróðskaparsetri Færeyja, Þórshöfn. Inngrip í námskeið um sagnadansa (aðalkennari: Eyðun Andreassen). Námsefni: Fornaldarsögur Norðurlanda, rímur og íslenskir sagnadansar.
• 1999 Stundakennari á MA-stigi í íslenskum bókmenntum í íslenskuskor heimspekideildar HÍ.
• 1995, 1997, 2004, 2005 og 2008: Stundakennari á BA-stigi við íslenskuskor Hugvísindadeildar HÍ.
.
Fagtengd störf
• 2010–2012 Aðjunkt (49%) hjá Félags- og mannvísindadeild Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands.
• 2005– Vinn að verkefninu Fornaldarsögur Norðurlanda: Þessa heims og annars, á rannsóknarstöðustyrk frá RANNÍS.
• 2008–2009 Sérfræðingur í tímabundinni stöðu Sigurðar Nordal hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Hálfs árs verkefnisbundið starf 2010.
• 2007 Smærri verkefni, unnin með kennslu og Fornaldarsagnaverkefni: a) Yfirlestur á Tíódels sögu fyrir Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. b) Ýmis verkefni um danssögu Íslands, m.a. þátttaka í norrænu samstarfi (Norden i dans).
• 2005–2007: Formaður Félags þjóðfræðinga á Íslandi.
• 2003–2006: Vinna við almenningsútgáfu á Strengleikum, sem varðveittir eru í norsku handriti frá 13. öld, auk annarra verkefna sem tengjast miðaldabókmenntum og þjóðsagnafræði.
• 2003-2005 Smærri verkefni, unnin með kennslu og útgáfu á Strengleikum: a) Ráðgjöf fyrir leikhópinn Annað svið vegna uppsetningar á leikritinu Úlfhams saga. b) Yfirlestur (gátun) á I. bindi Biskupasagna fyrir Hið íslenska fornritafélag. c) Málfarsyfirlestur fyrir Sagnfræðistofnun/ Borgarfræðasetur. d) Prófarkalestur fyrir Hið íslenska bókmenntafélag. e) Greinaskrif í Alfræði íslenskra bókmenntafyrir Bókmenntafræðistofnun Háskóla Íslands.
• 2001 Yfirlestur (samlestur, handritasamanburður, prófarkalestur, tölvuvinna) á eftirfarandi útgáfum:
a) Konungsbók Eddukvæða. Codex Regius. Ritstj.: Vésteinn Ólason og Guðvarður Már Gunnlaugsson. Edda - miðlun og útgáfa. Reykjavík, 2001.
b) Saga heilagrar Önnu. Útg. Kirsten Wolf. Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi. Reykjavík, 2001.
• 1994-2001 Vinna við fræðilega útgáfu á Úlfhams sögu og Vargstökum fyrir Stofnun Árna Magnússonar, með aðsetur þar.
• 1999-2001 Yfirlestur handrits að II. bindi Biskupasagna fyrir Hið íslenska fornritafélag.
• 1995-2000 Prófarkalestur hjá fjórum bókaforlögum:
a) Iðunni. b) Vöku-Helgafelli. c) Skerplu. d) Bókaútgáfu Orators.
• 1997 Las yfir handrit að tveimur útgáfum fyrir Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi. Um var að ræða gagnrýninn yfirlestur og handritasamanburð vegna eftirfarandi rita:
a) Fjórar sögur frá hendi Jóns Oddssonar Hjaltalín. Útg. Matthew J. Driscoll. Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi. Reykjavík, 2006. b) Hallgrímur Pétursson. Ljóðmæli I. Útg. Margrét Eggertsdóttir. Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi. Reykjavík, 2000 (sjá bls. xxviii).
.
Styrkir
Rannsóknastyrkir
• 2014 Rannsóknasjóður Háskóla Íslands.
• 2012 Hlaðvarpinn – menningarjóður kvenna á Íslandi.
• 2010 Hagþenkir, félag höfunda fræðirita – starfsstyrkur.
• 2008 Hagþenkir, félag höfunda fræðirita – starfsstyrkur.
• 2006 Menningarsjóður – útgáfustyrkur
• 2005–2007 Vísindanefnd Háskóla Íslands – Nýdoktorastyrkur
• 2005–2008 Rannís - Rannsóknastöðustyrkur.
• 2004 Starfslaun Launasjóðs fræðiritahöfunda.
• 2004 Menningarsjóður VíS.
• 2003 Menningarsjóður Kaupþings-Búnaðarbanka Íslands.
• 2002 Hagþenkir, félag höfunda fræðirita - starfsstyrkur.
• 2001 RANNÍS - forverkefnastyrkur.
• 2001 Hagþenkir, félag höfunda fræðirita - starfsstyrkur.
• 2001 Gjöf Jóns Sigurðssonar.
• 2001 RANNÍS - útgáfustyrkur.
• 1999 Hagþenkir, félag höfunda fræðirita - starfsstyrkur.
• 1997, 1998 og 1999 Lýðveldissjóður.
• 1994-1996 og 1999 Vísindasjóður RANNÍS - verkefnastyrkur.
• 1994 Minningarsjóður Dr. phil. Jóns Jóhannessonar.
.
Rannsókna- og ferðastyrkir
• 2001 Det arnamagnæanske legat - til handritarannsókna og mánaðar dvalar við Árnastofnun í Kaupmannahöfn.
• 1995 Det arnamagnæanske legat - til handritarannsókna og tveggja mánaða dvalar við Árnastofnun í Kaupmannahöfn.
.
Ferðastyrkir
• 2013 og 2014 Nordplus.
• 2012 Erasmus.
• 2012 Fondet for Dansk-Islandsk Samarbejde.
• 2012 Dansk - Islandsk fond.
• 2008 Sáttmálasjóður
• 2008 Hagþenkir, félag höfunda fræðirita
• 2006 Sáttmálasjóður
• 2005 Letterstedtski sjóðurinn.
• 2003 The IMC Bursaries Committee: the International Medieval Congress 2003.
• 2003 Hagþenkir, félag höfunda fræðirita.
• 2001 Det Norske Videnskaps-Akademi, Oslo, Noregi.
• 2000 Hagþenkir, félag höfunda fræðirita.
• 1997 Clara Lachmanns fond.
.