Fyrstu færslunar í þessum greinaflokki fjalla nær eingöngu um alþýðufræðslu og kennslu í stjarneðlisfræði og heimsfræði, aðallega vegna þess, að vísindalegar rannsóknir á þessum sviðum hófust ekki hér á landi fyrr en talsvert var liðið á seinni hluta tuttugustu aldar.
Rétt er að geta þess, að höfundurinn er hvorki sagnfræðingur né heimspekingur og nálgast því viðfangsefnið fyrst og fremst út frá persónulegum viðhorfum sínum og sérþekkingu í stjarneðlisfræði og heimsfræði. Umfjöllunin byggir þó jafnframt á ýmis konar sagnfræði-grúski, lestri og heimildaleit á erlendum sem innlendum bókasöfnum og nú upp á síðkastið á hinum ómissandi veraldarvef.
Mikilvægt er að hafa í huga, að skiptingin í tímabil miðast fyrst og fremst við íslenskan veruleika og þróunina hér á landi. Drögin verða uppfærð jafnóðum og nýir kaflar eru tilbúnir. Þau koma því ekki til með að fá sína endanlegu mynd fyrr en síðasta færslan birtist.
Drög að efnisyfirliti
- Inngangur
- Tímabilið 1780-1870 - Skeið Newtons
(a) Skólahald - alþýðufræðsla - tíðarandi
(b) Stjarneðlisfræði fyrir daga Newtons
(c) Þyngdarfræði Newtons
(d) Björn Gunnlaugsson og heimsmynd hans - Tímabilið 1870-1930 - Ný tækni og nýjar grundvallarkenningar
(a) Nýja stjörnufræðin berst til landsins
(b) Þorvaldur Thoroddsen og alþýðufræðsla í stjarnvísindum á hans dögum
(c) Sturla Einarsson: (1) Íslenskur stjörnufræðingur í Vesturheimi (2) Ritaskrá
(d) Kynning á afstæðiskenningu og skammtafræði
(e) Ágúst H. Bjarnason og alþýðufræðsla til 1930 - Tímabilið 1930-1960 - Mikilvægir áfangar í stjarneðlisfræði og heimsfræði
(a) Steinþór Sigurðsson: (1) Stjörnufræðingurinn (2) Á Íslandi (3) Ritaskrá
(b) Trausti Einarsson: (1) Stjarneðlisfræðingurinn (2) Kennarinn og alþýðufræðarinn
(c) Ný heimsmynd í mótun - Tímabilið eftir 1960
Í undirbúningi - Viðaukar og heimildaskrár
(a) Úrval alþýðurita á íslensku 1780-1960.
(b) Nokkur áhugaverð erlend rit frá árunum 1600 til 1850.
(c) Valdar erlendar heimildir og ítarefni.
(d) Saga stjörnufræði og eðlisfræði á Íslandi frá miðöldum fram á tuttugustu og fyrstu öld - Nokkur rit eftir Einar H. Guðmundsson.
(e) Einar H. Guðmundsson, 2021: Íslenskir stærðfræðingar, eðlisfræðingar og stjörnufræðingar til 1960: Skrá með inngangi og eftirmála.