Category Archives: Leiðbeiningar
qTranslate-X
qTranslate íbótin sem var yfirgefin af skapara sínum fyrir nokkru hefur fengið arftaka. Sú heitir qTranslate-X, og hefur verið sett inn ( óvirk að jafnaði ) á uni. Notendur sem hafa notað qTranslate geta nú gert hana óvirka og virkjað qTranslate-X í … Continue reading
Umbrotsvandi úr sögunni í bili
Eins og við er að búast höfðu fleiri en við lent í vanda með qTranslate, WP 3.3.1 og málsgreinaskil. Félagi okkar, raido357, benti á lausn þar sem ákveðin virkni qTranslate er beinlínis fjarlægð úr kóðanum. Við erum búin að gera þessa … Continue reading
Umbrotsvandi og lausn
Ágætu uni notendur. Okkur hafa borist ábendingar um að umbrot síðna á uni hafi brenglast í einhverjum tilfellum. Helst eru það málsgreinaskil sem hverfa. Vandinn virðist tengjast hinn alræmdu íbót qTranslate. Þegar hún er virk virðist sú íbót eiga við … Continue reading
Lausn á https viðvörunum
Fyrr í vetur var uni fluttur yfir á öruggan vefþjón (síður sendar um https). Vefkerfið hélt samt áfram að senda myndir frá gamla hluta þjónsins (um http). Þessi samsetning efnis vakti grunsemdir ákveðinna vafra, og sumir þeirra settu jafnvel fram … Continue reading
Algengar spurningar og svör (FAQ)
Í skrifaraviðmóti WordPress er hægt að sjá lista yfir algengar spurningar og svör (FAQ). Nú þegar er komið smá safn spurninga og búast má við að það stækki þegar á líður. Hægt er að skoða listann með því að velja … Continue reading
Internet Explorer vandræði
Nokkuð hefur verið um að notendur lendi í vandræðum með samspil Internet Explorer vafrans og qTranslate viðbótarinnar. Ekki er ljóst á þessu stigi hvert vandamálið er nákvæmlega, en flestum hefur dugað að nota bara aðra vafra en Internet Explorer. Reyndar … Continue reading