Staða íslenskunnar

Snemma á starfsferli mínum hafði ég mikinn áhuga á íslenskri málstefnu og skoðanir á ýmsum álitamálum í henni. Ég skrifaði nokkrar greinar í Skímu (sjá hér að neðan), m.a. um svonefnda "þágufallssýki", og tók þátt í umræðum í dagblöðum (sjá að neðan). Einnig sá ég um þáttinn Daglegt mál í Ríkisútvarpinu um skeið. Mér fannst þó fljótlega að þessi umræða hjakkaði í sama farinu og hætti þátttöku í henni.

Undir aldamótin komst ég á þá skoðun að framtíð íslensks máls ylti á því að málið yrði nothæft innan tölvu- og upplýsingatækninnar. Þetta var ein af ástæðunum fyrir því að ég sneri mér að rannsóknar- og þróunarstarfi í íslenskri máltækni. Fyrst ræddi ég þessi mál á norrænu málnefndaþingi í Færeyjum 1997 og síðan hef ég flutt fjölda fyrirlestra og skrifað greinar þar sem lögð er áhersla á mikilvægi íslenskrar máltækni fyrir framtíð tungunnar.

Árið 2016 fengum við Sigríður Sigurjónsdóttir og rannsóknarhópur okkar þriggja ára öndvegisstyrk frá Rannsóknasjóði til verkefnisins Modeling the Linguistic Consequences of Digital Language Contact (Greining á málfræðilegum afleiðingum stafræns málsambýlis) en meginmarkmið þess er að kanna stöðu íslenskunnar og ensk áhrif á hana, einkum gegnum stafræna miðla.

Rit og fyrirlestrar sem tengjast þessu rannsóknarsviði

  1. Eiríkur Rögnvaldsson. 2017. Vandalaust mál? Skíma 40:13-17.
  2. Eiríkur Rögnvaldsson. 2016. Stafrænt líf íslenskunnar – eða stafrænn dauði? Tölvumál41,1:6-7.
  3. Eiríkur Rögnvaldsson. 2016. Breytingar á mannanafnalöggjöf. Hugrás, vefrit Hugvísindasviðs, 23. júlí.
  4. Eiríkur Rögnvaldsson. 2016. Séríslenskir bókstafir, sjálfsmynd Íslendinga og framtíðarþróun íslensku. Hugrás, vefrit Hugvísindasviðs, 24. febrúar.
  5. Eiríkur Rögnvaldsson. 2016. Um utanaðkomandi aðstæður íslenskrar málþróunar. Skírnirvor 2016, 17-31.
  6. Eiríkur Rögnvaldsson. 2015. Að breyta fjalli staðli. Hugrás, vefrit Hugvísindasviðs, 15. nóvember.
  7. Eiríkur Rögnvaldsson. 2015. Er hrakspá Rasks að rætast? Hugrás, vefrit Hugvísindasviðs, 6. nóvember.
  8. Eiríkur Rögnvaldsson. 2015. Verður íslenska gjaldgeng í stafrænum heimi? Hugrás, vefrit Hugvísindasviðs, 29. október.
  9. Eiríkur Rögnvaldsson, Kristín M. Jóhannsdóttir, Sigrún Helgadóttir og Steinþór Steingrímsson. 2012. Íslensk tunga á stafrænni öld / The Icelandic Language in the Digital Age. META-NET White Paper Series. Springer, Berlín.
  10. Eiríkur Rögnvaldsson. 2011. Kann tölvan þín íslensku? Hugrás, vefrit Hugvísindasviðs, 10. mars.
  11. Eiríkur Rögnvaldsson. 2011. Frumvarp um stöðu íslenskrar tungu og táknmáls. Hugrás, vefrit Hugvísindasviðs, 2. mars.
  12. Eiríkur Rögnvaldsson, Kristín M. Jóhannsdóttir, Steinþór Steingrímsson, Hrafn Loftsson og Sigrún Helgadóttir. 2011. Languages in the European Information Society - Icelandic. META-NET DFKI Projektbüro, Berlín.
  13. Eiríkur Rögnvaldsson. 2011. Icelandic Language Technology: An Overview. Stickel, Gerhard, og Tamás Váradi (ritstj.): Language, Languages and New Technologies: ICT in the Service of Languages. Contributions to the Annual Conference 2010 of EFNIL in Thessaloniki, s. 187-195. (Duisburger Arbeiten zur Sprach- und Kulturwissenschaft, 87). Lang, Frankfurt am Main.
  14. Eiríkur Rögnvaldsson. 2010. The State of Icelandic LT. Clarin Newsletter 11-12:17.
  15. Eiríkur Rögnvaldsson. 2010. Ýmis. Aravísur sungnar Ara Páli Kristinssyni fimmtugum 28. september 2010, s. 10-12. Menningar- og minningarsjóður Mette Magnussen, Reykjavík.
  16. Eiríkur Rögnvaldsson. 2010. Íslenska, upplýsingatækni og máltækni – fortíð og framtíð. [Óprentuð grein.]
  17. Eiríkur Rögnvaldsson. 2009. Máltækni og málstefna – íslenska innan upplýsingatækninnar. Skíma 1:40-43.
  18. Eiríkur Rögnvaldsson, Hrafn Loftsson, Kristín Bjarnadóttir, Sigrún Helgadóttir, Anna Björk Nikulásdóttir, Matthew Whelpton og Anton Karl Ingason. 2009. Icelandic Language Resources and Technology: Status and Prospects. Domeij, Rickard, Kimmo Koskenniemi, Steven Krauwer, Bente Maegaard, Eiríkur Rögnvaldsson og Koenraad de Smedt (ritstj.): Proceedings of the NODALIDA 2009 workshop Nordic Perspectives on the CLARIN Infrastructure of Language Resources, s. 27-32. Northern European Association for Language Technology (NEALT), Tartu University Library.
  19. Eiríkur Rögnvaldsson. 2008. Framtíð íslensku innan upplýsingatækninnar. [Óprentuð grein.]
  20. Eiríkur Rögnvaldsson. 2008. Icelandic Language Technology Ten Years Later. Collaboration: Interoperability between People in the Creation of Language Resources for Less-resourced Languages, s. 1-5. SALTMIL workshop, LREC 2008. Marrakech, Marokkó.
  21. Eiríkur Rögnvaldsson. 2007. Sjálfs mín(s) sök? Íslenskt mál 28:117-130.
  22. Eiríkur Rögnvaldsson. 2006. Íslenska og upplýsingatækni. Morgunblaðið 8. febrúar, s. 30.
  23. Eiríkur Rögnvaldsson. 2005. The Status and Prospects of Icelandic Language Technology. [Óprentuð grein.]
  24. Eiríkur Rögnvaldsson. 2005. Staða íslenskrar tungutækni við lok tungutækniátaks. Tölvumál 24.2.
  25. Rögnvaldur Ólafsson og Eiríkur Rögnvaldsson. 1999. Skýrsla um tungutækni. Tölvumál 24,3:30-32.
  26. Rögnvaldur Ólafsson, Eiríkur Rögnvaldsson og Þorgeir Sigurðsson. 1999. Tungutækni. Skýrsla starfshóps. Menntamálaráðuneytið, Reykjavík.
  27. Eiríkur Rögnvaldsson. 1998. Informationsteknologien og små sprogsamfund. Sprog i Norden, s. 82-93.
  28. Eiríkur Rögnvaldsson. 1998. Málfræði í íslenskri orðabók: Hvernig og til hvers? Orð og tunga 4:25-32.
  29. Eiríkur Rögnvaldsson. 1991. Vandi íslenskrar tungu og viðbrögð við honum. Skíma 14,2:9.
  30. Eiríkur Rögnvaldsson. 1991. Minnkandi íslenskukunnátta? - Versnandi íslenskukennsla? Morgunblaðið 12. september, s. 22.
  31. Eiríkur Rögnvaldsson. 1988. Islandsk sprogpolitik. Språk i Norden, bls. 56-63.
  32. Eiríkur Rögnvaldsson. 1985. Þjóðfélagsbreytingar, stéttamál og íslensk málstefna. Þjóðviljinn 5. maí, s. 7-8.
  33. Eiríkur Rögnvaldsson. 1985. Hverjir eiga íslensku? Morgunblaðið 1. maí, s. 32-33.
  34. Eiríkur Rögnvaldsson. 1985. Málstefnan í nútíð og framtíð. Skíma 8,1:7-10.
  35. Eiríkur Rögnvaldsson. 1984. Er þetta hægt Matthías? Morgunblaðið 4. maí, s. 22-23.
  36. Eiríkur Rögnvaldsson. 1984. Daglegt mál. Þættir fluttir í Ríkisútvarpinu sumarið 1984. [Óprentað.]
  37. Eiríkur Rögnvaldsson. 1984. Af rökréttu máli. Skíma 7,2:2-4.
  38. Eiríkur Rögnvaldsson. 1983. Framburður og fordómar. Mímir 31:59-63.
  39. Eiríkur Rögnvaldsson. 1983. Þágufallssýkin og fallakerfi íslensku. Skíma 6,2:3-6.