Arfleifð Bítlanna í íslensku
Breska hljómsveitin The Beatles er að mati okkar margra sem ólumst upp á sjöunda áratug síðustu aldar (og ýmissa fleiri) merkilegasta og besta hljómsveit sögunnar. Það er samt ekki ástæðan fyrir því að ég nefni hana hér, enda er þetta ekki hópur fyrir tónlistaráhugafólk. The Beatles – Bítlarnir – eru nefndir hér vegna þeirra áhrifa sem þeir höfðu á íslenskt mál. Þetta er ein fárra erlendra hljómsveita, ef ekki sú eina, sem hefur verið gefið íslenskt nafn sem meira að segja varð fullgilt nýyrði í málinu og hefur getið af sér ýmsar samsetningar. Að vísu voru The Rolling Stones stundum kallaðir Rollingarnir en það er annars eðlis – miklu sjaldgæfara og auk þess var rollingur til í málinu fyrir þótt það hafi auðvitað aðra merkingu en í Rolling Stones.
The Beatles sjást fyrst nefndir í íslensku blaði um mitt ár 1963, skömmu eftir að þeir slógu í gegn í Bretlandi. Alls er enskt nafn hljómsveitarinnar nefnt fimm sinnum í íslensku blöðunum það ár samkvæmt tímarit.is, en nærri sjö hundruð sinnum á næsta ári, 1964. En strax í nóvember 1963 er enska heitið búið að geta af sér íslenskt orð. Þá birtist frétt í Þjóðviljanum með fyrirsögninni „Bítilæðið í Bretlandi“ þar sem bítilæði er greinlega notað sem þýðing á enska orðinu Beatlemania sem kom fram í október sama ár. Í fréttinni segir: „Þeir kalla sig „The Beatles“ (framborið Bítils)“ og vitnað er í fyrirsögn í Daily Mail, „This is Beatlemania“, sem þýtt er „Þetta er bítilæði“. Myndin bítlaæði sem er mun algengari sést fyrst í mars 1964.
En fyrsta dæmið um íslenska gerð hljómsveitarheitisins sjálfs er í frétt Alþýðublaðsins með fyrirsögninni „„Beatles“ í Bandaríkjunum“ í febrúar 1964 – þar segir: „Og hvað um áform íbúa Detroitborgar um að útrýma Bítlunum.“ Í sama blaði viku síðar segir: „Við erum fremur ómerkilegir músikantar, segir Bítillinn George.“ Þar er sem sé farið að tala um einstakan Bítil – skilja Bítlar sem fleirtölu af Bítill. Fljótlega var svo farið að nota bítlar sem samheiti um hljómsveitir sem stældu Bítlana eða spiluðu svipaða tónlist. Um miðjan mars 1964 birti Morgunblaðið frétt um tónleika nokkurra íslenskra hljómsveita undir fyrirsögninni „Íslenzkir „Bítlar“ og daginn eftir segir í myndatexta í Alþýðublaðinu: „Hljómar, hinir íslenzku bítlar.“
Orðið bítill er í Íslenskri nútímamálsorðabók og skýrt 'félagi úr hljómsveitinni The Beatles' en það er ófullnægjandi skýring – merking fleirtölunnar er mun almennari. En bítill er frábært orð sem fellur fullkomlega að hljóðkerfi og beygingakerfi málsins. Það hefur sömu stofngerð og trítill og mítill (sem er reyndar yngra nýyrði) og fellir brott áherslulausa sérhljóðið þegar beygingarendingin hefst á sérhljóði – bítli, bítlar, bítla, bítlum. Þetta er reyndar svokölluð „öfug orðmyndun“ – í stað þess að fleirtalan sé leidd af eintölunni eins og venjulega er fyrst tekin upp fleirtalan Bítlarnir vegna hljóðlíkingar við Beatles og eintalan Bítill sem síðan verður samheitið bítill búin til út frá henni í samræmi við reglur málsins, sbr. lyklar – lykill, jöklar – jökull o.s.frv.
Á árinu 1964 urðu svo til fjölmargar samsetningar með bítil-/bítl- sem fyrri lið. Í sumum tilvikum vísa þær sérstaklega til Bítlanna en flestar urðu þó samheiti með tímanum. Lýsingarorðin bítilóður og bítilgreiddur sjást fyrst í Alþýðublaðinu snemma í mars, nafnorðið bítilfaraldur er í Þjóðviljanum um sama leyti, bítilhljómleikar, bítlahljómleikar og bítlaútlit sjást fyrst í Alþýðublaðinu um miðjan mars og bítlaskór í Tímanum í ágúst. Orðin bítilhár og bítlahár – sem er það eina af þessum orðum sem er í Íslenskri nútímamálsorðabók og skýrt 'hár niður í augu og niður fyrir eyru (á karlmanni)' – fara hins vegar ekki að sjást í ýmsum blöðum fyrr en um haustið þegar strákarnir hafa fengið nægilegan tíma til að láta hárið vaxa.
Ýmsar fleiri samsetningar komu fram næstu árin. „Hversu lengi eigum við að eyða gjaldeyri þjóðarinnar í þetta bítlagarg“ er spurt í Vísi vorið 1965, „Keflavík hefur með talsverðum sanni verið kallaður „bítlabærinn“ á Íslandi“ segir í Vikunni 1966, og svo mætti lengi telja. Aðrar hafa komið til síðar, eins og bítlaekkja. Sögnin bítlast er líka til – í myndatexta í Alþýðublaðinu vorið 1965 segir: „Ekki fylgdi það með í textanum, sem með fylgdi myndinni, hvort þau væru að bítlast.“ Vissulega náðu sumar þessara samsetninga aldrei flugi en þrátt fyrir að meira en hálf öld sé liðin síðan Bítlarnir sjálfir leystust upp lifir arfleifð þeirra í íslenskunni – eins og sjá má í Risamálheildinni eru furðu margar bítla-samsetningar sprelllifandi enn í dag.