Í pistli sem ég skrifaði fyrr í dag notaði ég sambandið gera gott mót sem ég efast um að ég hafi notað áður í riti enda er það ekki gamalt í málinu og er ekki að finna í orðabókum svo að ég sjái. Væntanlega er uppruna sambandsins að leita í notkun orðsins mót í merkingunni 'íþróttamót' og lengi hefur verið talað um að eiga gott mót í merkingunni 'ná góðum árangri á mótinu'. En í Fréttablaðinu 2005 segir Ólafur Stefánsson: „Það er bara að hafa gaman af þessu og standa sig vel. Gera gott mót eins og maður segir stundum. Gott mót er að vera númer eitt eða tvö í riðlinum.“ Þarna er vissulega verið að vísa til handboltamóts en orðalagið „eins og maður segir stundum“ bendir samt til þess að mót sé þarna einnig notað í yfirfærðri merkingu.
Elsta dæmi sem ég finn um sambandið gera gott mót í yfirfærðri merkingu er í Morgunblaðinu 2000: „Þéttur hljómur, kraftur og keyrsla sem og skemmtilegar raddaðar laglínur gera einkar gott mót.“ Sambandið breiddist fljótt út eftir aldamótin – í Viljanum 2001 segir: „Viddi er sniðugur strákur sem mun án efa gera gott mót sem Listóformaður á næsta ári“ og „Setjið X-ið á réttan stað og þá mun Málfó gera gott mót næsta vetur!“. Í DV 2003 segir: „Liturinn gerir gott mót, myndi að minnsta kosti vekja athygli.“ Í DV 2006 segir: „Hún hefur þó ekki þótt gera jafn gott mót með nýju plötunni sinni“ og „Hann kom út fyrir síðustu jól og þótti gera gott mót.“ Í Fréttablaðinu 2006 segir: „Og hún Posh Beckham er aldeilis að gera gott mót í þessari viku.“
Merkingin í gera gott mót í þessum samböndum er 'virka vel, ná góðum árangri, standa sig vel, slá í gegn' eða eitthvað slíkt – svolítið misjöfn eftir samhengi en þó alltaf augljós. Sambandið hefur verið að gera gott mót undanfarin ár. Í Risamálheildinni eru tæp 1600 dæmi um það – í einhverjum þeirra hefur það bókstaflegu merkinguna 'íþróttamót' eins og í „veðrið var auðvitað frábært sem hjálpaði okkur að gera gott mót betra“ í Feyki 2014, en í langflestum tilvikum er þó um yfirfærðu merkinguna að ræða. Sambandið er vissulega fremur óformlegt, enn sem komið er, en af dæmunum í Risamálheildinni eru þó tæp 600 úr öðrum textum af en samfélagsmiðlum og sambandinu hefur m.a. brugðið fyrir í ræðum á Alþingi.
Út frá áðurnefndri notkun sambandsins eiga gott mót í merkingunni 'ná góðum árangri á mótinu' hefur verið farið að túlka sambandið gott mót út af fyrir sig sem 'góður árangur' og eiga gott mót er þá notað í merkingunni 'standa sig vel' eða eitthvað slíkt án þess að vísað sé til móts, eins og í „þarf hinn ungi Petr Cech í markinu líklega að eiga gott mót“ í Fréttablaðinu 2004. En þegar gott mót er þannig farið að lifa sjálfstæðu lífi er hægt að fara að nota það með öðrum sögnum en eiga – gera er kannski notuð vegna þess að hún felur í sér meiri sjálfstæða virkni af hálfu þeirra sem vísað er til en eiga. Íslenskunni er nauðsyn að vera í stöðugri endurnýjun og mér finnst gera/eiga gott mót fín viðbót við flóru íslenskra orðasambanda.

+354-861-6417
eirikurr